Morgunblaðið - 03.05.2003, Síða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 21
MannverndEinkalíf Sjálfræði LýðræðiÞátttökufrelsi Rannsóknafrelsi Athafnafrelsi
Mannvernd, samtök um persónuvernd og rannsóknafrelsi
Ágæti kjósandi/frambjóðandi, hvort viltu
veita allt að 20 milljarða króna ríkisábyrgð í sértæka
aðgerð fyrir deCode?
setja 2 milljarða króna á ári næstu 10 ár til að efla
almenna samkeppni á sviði vísinda og tækni, skapa ný
störf og tryggja framfarir í læknisfræði?
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti niðurstöðu hernaðarátak-
anna í Írak í fyrrakvöld sem
„áfangasigri“ í baráttunni við al-
þjóðleg hryðjuverk, baráttu sem
enn væri ekki lokið. Hét Bush því
hins vegar að Bandaríkin myndu
ljúka verkinu. Forsetinn lýsti því
ekki formlega yfir, í ræðu sem
hann hélt á flugmóðurskipinu
Abraham Lincoln undan vestur-
strönd Bandaríkjanna, að stríðinu í
Írak væri lokið en hefði hann gert
það væru Bandaríkin skv. Genfar-
sáttmálanum skuldbundin til að
láta lausa þá um það bil sex þúsund
íraska stríðsfanga, sem nú eru í
haldi Bandaríkjahers.
„Meiriháttar hernaðaraðgerðum
í Írak er nú lokið. Í baráttunni um
Írak hafa Bandaríkin og banda-
menn okkar haft sigur,“ sagði Bush
í ræðu sem hann hélt á flugmóð-
urskipinu fyrir framan um fimm
þúsund sjóliða sem voru á heimleið
frá Persaflóanum. Var ræðunni
sjónvarpað beint um öll Bandarík-
in.
Bush varaði menn við því að vera
of lengi í sigurvímu yfir niðurstöðu
hernaðarátakanna í Írak og hann
sagði að „erfið verkefni“ væru
framundan. Sendi Bush þeim ríkj-
um tóninn sem Bandaríkjastjórn
telur að styðji baráttu alþjóðlegra
hryðjuverkasamtaka. Hann nefndi
ekki Sýrland, Íran eða Norður-
Kóreu sérstaklega – en í ræðu sem
hann hélt í janúar 2002 flokkaði
hann síðasttöldu ríkin tvö, auk
Íraks, sem öxulveldi hins illa – en
ljóst mátti þó vera að hann var
m.a. að tala til leiðtoga landanna
þriggja.
„Hinum siðmenntaða heimi staf-
ar hætta af hverju því útlagaríki
sem tengsl hefur við hryðjuverka-
samtök og sem reynt hefur að
koma sér upp gereyðingarvopnum,
eða býr þegar yfir þeim. Slík ríki
verða ekki látin óáreitt,“ sagði
Bush.
„Hver sú manneskja, samtök eða
ríkisstjórn sem styður, verndar eða
skýtur skjólshúsi yfir hryðjuverka-
menn, er meðsek í morðum sak-
lausra borgara og jafnábyrg fyrir
hryðjuverkaárásum,“ bætti forset-
inn við.
Heimsókn forsetans til flugmóð-
urskipsins Abraham Lincoln var
mikið sjónarspil og bandarískar
sjónvarpsstöðvar sýndu ítrekað frá
því er fararskjóti hans, herþota af
gerðinni S-3B Viking, lenti á þilfari
skipsins. Bush var klæddur í bún-
ing flugmanns í flughernum er
hann lenti á Abraham Lincoln og
þótti því gangast upp í hlutverki
sínu sem æðsti yfirmaður banda-
ríska heraflans. Þá þótti ekki síst
táknrænt að forsetinn skildi dvelja
nóttina um borð í skipinu sem var
að koma frá átakasvæðinu, sem
fyrr segir.
Enn stafar hætta
af al-Qaeda
Bush viðurkenndi í ræðunni að
enn hefðu engin gereyðingarvopn
fundist í Írak, en Bandaríkin rétt-
lættu árás sína á landið fyrst og
fremst á þeirri forsendu að Sadd-
am Hussein Íraksforseti byggi yfir
slíkum vopnum og að veruleg ógn
stafaði þar af leiðandi af honum.
Sagði Bush að leit að Saddam og
helstu ráðgjöfum hans stæði enn
yfir og að það yrði ekki létt verk að
byggja upp lýðræðisríki í Írak.
„Umskiptin frá einræðisstjórn yfir
í lýðræði munu taka tíma, en þau
eru ómaksins verð. Bandalag [vilj-
ugra þjóða] mun fylgja verkinu eft-
ir til enda. Þá munum við ferðbúast
– og við munum skilja eftir okkur
frjálst Írak,“ sagði hann.
Bush sagði ennfremur að
„hættulegum verkefnum“ væri enn
ólokið í Afganistan, þrátt fyrir að
sigur hafi unnist á hersveitum tal-
ibana og al-Qaeda-hryðjuverkasam-
takanna, en þau síðastnefndu stóðu
fyrir árásunum á Bandaríkin 11.
september 2001. „Al-Qaeda-
[hryðjuverkahreyfingin] hefur ver-
ið særð en hún hefur ekki verið
upprætt,“ sagði forsetinn. „Stríðinu
gegn hryðjuverkum er ekki lokið
en það mun þó ekki vara að eilífu.
Við vitum ekki hvenær fullur sigur
telst hafa verið unninn, en við
sjáum þó að við erum komin yfir
erfiðasta hjallann.“
Segir niðurstöð-
una áfangasigur
Bandaríkjaher mun þurfa að sleppa öllum stríðsföngum
þegar Bush lýsir formlega yfir lokum stríðsins í Írak
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti meðal sjóliða um borð í bandaríska
flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln undan vesturströnd Bandaríkj-
anna í fyrradag. Dvöl hans í flugmóðurskipinu þótti heilmikið sjónarspil.
Um borð í USS Abraham Lincoln. AFP.
George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsir því yfir að „meiriháttar hernaðaraðgerðum“ í Írak sé lokið