Morgunblaðið - 03.05.2003, Side 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STARFSMAÐUR sjúkrahúss í
Peking tekur sýni úr sjúklingi
sem talinn er hafa smitast af
bráðri lungnabólgu, HABL.
Kínverskir fjölmiðlar skýrðu
frá því í gær að nær 14.000
manns væru í sóttkví í Peking
vegna lungnabólgufaraldursins,
um 854 fleiri en daginn áður.
Alls hafa um 3.600 manns losnað
úr sóttkví í borginni, þar af um
980 í gær.
Talið er að a.m.k. 1.634 hafi
smitast af sjúkdómnum í kín-
versku höfuðborginni og 97 hafa
dáið. Hermt er að 181 hafi dáið
af völdum bráðrar lungnabólgu
á meginlandi Kína og 417 í
heiminum öllum.
Telja að faraldurinn sé
að ná hámarki
Kínversk heilbrigðsyfirvöld
sögðu í gær að búist væri við
hátt í 200 nýjum sjúkdóm-
stilfellum á dag næstu daga eins
og verið hefur að undanförnu.
Þau telja þó líklegt að farald-
urinn sé að ná hámarki og smit-
tíðnin taki að minnka innan tíu
daga.
„Ég tel að það taki okkur
langan tíma að uppræta sjúk-
dóminn,“ sagði Liang Wannian,
aðstoðarframkvæmdastjóri heil-
brigðiseftirlits kínversku höf-
uðborgarinnar.
Reuters
Um 14.000
manns
í sóttkví
í Peking
KOSNINGUM til heimastjórnar-
þings Norður-Írlands hefur verið
frestað fram á haust en þær áttu að
fara fram 29. maí nk. Paul Murphy,
ráðherra Norður-Írlandsmála í
bresku stjórninni, greindi frá þessu
í fyrradag.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hafði nýverið krafist
þess að Írski lýðveldisherinn (IRA)
lýsti skýlaust yfir að hann hygðist
afvopnast og leggja af til frambúðar
öll ofbeldisverk. Tilkynnti Gerry
Adams, leiðtogi Sinn Féin, stjórn-
málaarms IRA, Blair að ekki þyrfti
að hafa áhyggjur af áformum IRA.
Þær yfirlýsingar töldu bresk yf-
irvöld hins vegar ekki nægilega
skýrar. Sagði Blair kominn tíma til
að lýðveldissinnar yrðu við kröfum
um afvopnun, en fimm ár eru nú
síðan Belfast-friðarsamkomulagið
var gert og fól það m.a. í sér að all-
ir öfgahópar á Norður-Írlandi ættu
að afvopnast.
Ahern ekki sammála
Bertie Ahern, forsætisráðherra
Írlands, sagðist ekki vera sammála
ákvörðun Breta en viðurkenndi að
hann væri vonsvikinn yfir afstöðu
IRA. Sagði Ahern að skýr og af-
dráttarlaus yfirlýsing frá IRA hefði
leyst vandann.
Sambandssinnar á Norður-Ír-
landi hafa aftekið með öllu að setj-
ast í stjórn aftur með fulltrúum
Sinn Féin fyrr en IRA hefur gert
hreint fyrir sínum dyrum. Sagði
Blair að ekkert gagn væri að því að
efna til kosninga ef ekki væru nein-
ar líkur á að hægt yrði að mynda
eftir þær samsteypustjórn mótmæl-
enda og kaþólikka.
Kosningum frestað á N-Írlandi
London. AFP.
Enn er deilt um afvopnun IRA
SHO Timothy Yano er aðeins
12 ára en hefur hlotið styrk til
náms í læknisfræði við Háskól-
ann í Chicago. Samkvæmt upp-
lýsingum frá sambandi banda-
rískra læknadeilda verður Sho
einhver yngsti læknanemi sem
sögur fara af.
Í ljósi þess hve ungur Sho er
hafa stjórnendur læknadeildar
skólans skipulagt nám hans
þannig, að hann mun ekki hitta
sjúklinga eða taka vaktir fyrr
en hann verður 18 ára. Talið er
að þá muni félagsfærni hans
hafa náð sama stigi og náms-
hæfileikar hans eru á.
Sho er af kóresku og jap-
önsku foreldri og hóf háskóla-
nám níu ára, en í Bandaríkjun-
um hefst háskólanám jafnan við
18 ára aldur. Hann mun út-
skrifast með láði frá Loyola-há-
skóla í Chicago síðar í mánuðin-
um. Aðalgrein hans var líffræði
og efnafræði var aukafag.
12 ára í
læknanám
Chicago. AFP.