Morgunblaðið - 03.05.2003, Side 44
UMRÆÐAN
44 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vegna gífurlegs aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda alþing-
iskosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum,
breytt. Er þetta gert til þess að gera efnið aðgengilegra fyrir lesendur
og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á fram-
færi fyrir kosningar.
Alþingiskosningar
MÉR gremst stundum þegar ég
heyri svokallaða spekinga í stjórn-
málagreiningu halda því fram, að
hugtökin hægri og
vinstri eigi ekki
lengur heima í nú-
tímastjórnmálum
eins og það er svo
nútímalega orðað.
Þessar andstæður
eru engu að síður
staðreynd hvað sem menn annars
vilja kalla þær og birtast okkur
ljóslega í áherzlum stjórn-
málaflokkanna nú.
Misskipting
hefur aukist
Þjóðfélag sem hefur þróast hratt
til aukinnar misskiptingar lífsins
gæða þarf svo sannarlega á ann-
arri skilgreiningu að halda en
þeirri að öll samhjálp og fé-
lagshyggja vinstri stefnunnar sé
eitthvað sem tilheyri liðinni tíð.
Þessar kenningar henta mætavel
málsvörum ofurgróðans og þær
koma heldur ekki mjög við það
miðjumoðslið sem nú um stundir
bylur hvað hæst í. Umræðunni um
fátækt er m.a. í skjóli þessa drepið
á dreif, en sá sem starfað hefur
um árabil á vettvangi öryrkja veit
ofurvel, að hin sára og sívaxandi
fátækt svo alltof margra er einmitt
smánarblettur á samfélagi sem er í
raun svo auðugt. Og menn mega
trúa því, að einungis lausnir fé-
lagshyggju og samhjálpar geta
dregið úr eða jafnvel afmáð að
mestu þessa nöturlegu staðreynd.
Stefna VG snýst
um réttlæti
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð gengur til þessara kosninga
undir kjörorðinu Næst á dagskrá:
Réttlæti og með alveg dagljósa og
eindregna stefnu á velferðarstjórn
eftir þessar kosningar, enda sú
samfélagsleg nauðsyn mest. Sem
félagi þess flokks, hafandi sára
reynslu af fórnarlömbum fátækt-
arinnar, þá gleðst ég yfir þessari
megináherzlu og ég er ófeiminn
við að kalla þetta vinstri stefnu í
beztri mynd.
En þau eru fleiri áherzluatriðin
sem tekið skal undir heils hugar.
Eindregin er andstaða VG við inn-
göngu í Evrópusambandið þar sem
við værum dæmd til að glata um-
ráðaréttinum yfir auðlindum okk-
ar. Áherzlan á eindregna frið-
arstefnu gegn hvers konar stríði
og hernaðar-umsvifum er ein sam-
boðin vopnlausri, friðelskandi þjóð.
Efling innlendra atvinnugreina
með sérstökum stuðningi við
landsbyggðina er bráðbrýn. Fyrir
mig sem bindindismann er sérstök
ánægja með stefnu VG í áfeng-
ismálum þar sem heilbrigðissjón-
armið og mannheill eru sett ofar
hagsmunum skammsýnna gróða-
afla.
Og ég fagna því að flokkurinn
skuli ekki falla í gryfju ofurloforða
utan allra mögulegra efnda eins og
blasa hvarvetna við okkur annars
staðar. Stefnan í málefnum barna-
fólks gleður sér í lagi mitt gamla
hjarta. Nauðsynin mest er sú að
snúa af braut misskiptingar, of-
urgróða fárra, kaupaukum og
starfslokasamningum auðfirring-
arinnar. Gegn þessum býsnum
kvitta menn bezt fyrir með stuðn-
ingi við Vinstrihreyfinguna - grænt
framboð. Þann stuðning þarf að
tryggja.
Velferðarstjórn
í vor
Eftir Helga Seljan
Höfundur er fv. alþingismaður.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ATVINNA ÓSKAST
Húsasmiður
getur bætt við sig verkefnum í uppslætti,
þökum og klæðningum. Er með góð mót.
Upplýsingar í síma 698 2261.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Tónleikar
Söngfjelagið, kór FEB í Reykjavík,
heldur vortónleika sunnudaginn 4. maí
kl. 17.00 í Bústaðakirkju.
Kópavogsbúar
Í dag, laugardaginn 3. maí,
bjóðum við velkomna á
kosningaskrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi,
á Dalvegi 18, Davíð Odds-
son forsætisráðherra og
Geir Haarde fjármálaráð-
herra.
Þeir munu koma á skrifstofu
okkar klukkan 14:00 og ræða við
gesti og gangandi. Boðið er upp
á kaffi, kleinur og gos.
Fjölmennum og tökum vel á móti
ráðherrunum.
Opnunartími kosningaskrifstofunnar fram til
kosninga verður frá kl. 16:00 til 19:00 virka
daga og frá kl. 10:00 til 14:00 um helgar.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Stígamót vantar
framtíðarhúsnæði
Stígamót óska eftir að leigja 200—250
fm húsnæði í góðu ástandi.
Upplýsingar í s. 562 6868 eða 696 0222.
TIL SÖLU
Lagersala á skóm
Höfum opnað aftur!
í Askalind 5, Kópavogi, að ofanverðu.
Opið frá kl. 13—17.
Munið! Tökum engin kort.
TILKYNNINGAR
Gvendur dúllari
Ýmiss góð tilboð í gangi í dag
Opið í dag 11—17
Gvendur dúllari fornbókaverslun,
Klapparstíg 35, s. 511 1925
www.gvendur.is
Risa-rýmingarsala
Bækur - myndir - málverk
húsgögn - skrautmunir o.fl.
Allt að 70% afsláttur
Allt á að seljast
Fyrstir koma — fyrstir fá
Gvendur dúllari — alltaf góður
Kolaportinu
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Árgerði, L-Árskógssandi, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Gréta Sigrún
Tryggvadóttir og Guðmundur Már Sigurbjörnsson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, sýslumaðurinn á Akureyri og Vátryggingafélag
Íslands hf., fimmtudaginn 8. maí 2003 kl. 10:50.
Ártún, eignarhl., Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Bjartmar V. Þorgrímsson,
gerðarbeiðandi Lögreglustjóraskrifstofa, þriðjudaginn 6. maí 2003
kl. 11:00.
Miðbraut 2A, Hrísey, þingl. eig. Dagbjört Elín Pálsdóttir og Jóhann
Jónsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf., Lands-
banki Íslands hf. og sýslumaðurinn á Akureyri, fimmtudaginn
8. maí 2003 kl. 12:15.
Mikligarður, suðurendi, verslun í kjallara, Hjalteyri, Arnarneshreppi,
þingl. eig. Sigurbjörn Karlsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf.
og sýslumaðurinn á Akureyri, fimmtudaginn 8. maí 2003 kl. 10:15.
Sandskeið 16, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Sigurður Brynjar Júlíusson,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Svarfdæla, fimmtudaginn 8. maí 2003
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
2. maí 2003.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
www.fi.is
Gamla Krýsuvíkurleiðin
Fyrsti hluti raðgöngu sunnudag.
Gengið af Kömbum að Þrengsla-
vegi.
Lagt verður af stað klukkan
10.00 frá BSÍ með viðkomu í
Mörkinni 6.
Verð 1.600/1.900.
Fararstjóri Björn Pálsson.
4. maí. Esja — Tindstaðafjall
(um 800 m). Gengið verður upp
á hnjúkinn og austur eftir Esjunni
norðanmegin að Skálatindi og
niður að Meðalfellsvatni. Hækk-
un er rúmlega 800 m, vega-
lengd 16—17 km og göngutími
6—7 tímar.
Fararstjóri Tómas Þröstur Rögn-
valdsson. Brottför kl. 10:30 frá
BSÍ. Verð 1.900/2.300 kr.
7. maí. Útivistarræktin.
Krýsuvík — Arnarvatn
Brottför frá Sprengisandi (Pizza
Hut) kl. 18.30. Allir velkomnir —
ekkert þátttökugjald.
8.—11. maí. Jeppaferð. Jök-
ulheimar — Grímsvötn (4
dagar). Uppselt.
Sjá nánar www.utivist.is ATVINNA
mbl.is
Seltirningar
Í dag, laugardaginn 3. maí,
verða Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra á kosningaskrif-
stofu sjálfstæðisfélags
Seltjarnarness á Austurströnd 3.
Geir H. Haarde kl. 11.00.
Davíð Oddsson kl. 13.30.
Kosningaskrifstofa félagsins
er opin:
Virka daga kl. 16.30 — 18.30.
Laugardaga kl. 11.00 — 14.00
Stjórn sjálfstæðisfélags Seltjarnarness.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
SMS FRÉTTIR
mbl.is
FASTEIGNIR
mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111