Morgunblaðið - 03.05.2003, Qupperneq 59
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 59
REIÐIN sýður í mér eftir að hafa
rekið augun í fyrirsögn greinar Hall-
dórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra um Íraksdeiluna í Morgun-
blaðinu hinn 26. mars sl. Þar segir:
„Markmiðið er eyðing gereyðingar-
vopna, uppbygging Íraks og frelsi
þjóðarinnar.“ Þessi orð gætu ekki
verið fjær sannleikanum.
Í fyrsta lagi hafa engin gögn kom-
ið fram sem sanna tilvist gereyðing-
avopna í Írak þótt vopnaeftirlits-
menn SÞ hafi leitað þeirra logandi
ljósi síðustu mánuði. Á meðan eyða
Bandaríkjamenn milljörðum dollara
á ári í þróun og smíði slíkra vopna og
hika ekki við að nota þau. Fórnar-
lömb í Hiroshima og Nagasaki bera
vott um það.
Í öðru lagi tel ég að þær fáu krón-
ur sem íslensk stjórnvöld láta hugs-
anlega af hendi rakna til uppbygg-
ingar í Írak væru aðeins dropi í það
gereyðingarhaf sem nú blasir þar
við. Auk þess má búast við að sú fjár-
hagsaðstoð kæmi beint úr veglegum
olíusjóði „bandamanna“ sem væri í
raun réttri eign írösku þjóðarinnar.
Í þriðja lagi nefnir Halldór frelsi
írösku þjóðarinnar. Frelsi hverra?
Frelsi þeirra sem eru réttum megin í
trúmálum? Frelsi þeirra sem eiga ol-
íu? Frelsi þeirra Íraka sem eru hlið-
hollir Bandaríkjamönnum? Það er
a.m.k. nokkuð ljóst að ekki er um að
ræða frelsi írösku þjóðarinnar í heild
sinni. Mætti ég þá heldur biðja um
að íslenska þjóðin verði frelsuð und-
an þeirri misbeitingu valds sem nú á
sér stað í þjóðfélaginu þannig að við
getum hætt að skammast okkar fyrir
að vera Íslendingar.
Eftir að fyrirsögninni sleppir
heldur utanríkisráðherra áfram og
segir hann Ísland styðja árásir á
Írak. Ekki man ég til þess að ég né
nokkur annar Íslendingur hafi verið
spurður um afstöðu til árásanna,
enda vitað að 70–80% landsmanna
eru þeim mótfallin. Þeir Halldór Ás-
grímsson og Davíð Oddsson ættu þó
að vera í kunnuglegri stöðu því eins
og Halldór bendir réttilega á er nú-
verandi staða nokkuð sambærileg
við það er herþotur NATO sprengdu
upp íbúa Kosovo með góðfúslegu
samþykki þeirra.
Utanríkisráðherrann okkar minn-
ist á að ekki verði liðið að Saddam
Hussein né nokkur annar sniðgangi
ákvarðanir öryggisráðs SÞ. George
W. Bush virðist hins vegar vera und-
anskilinn þessu enda brýtur stefna
hans og annarra stríðsæsingaleið-
toga augljóslega í bága við stefnu
SÞ.
Í lok greinar sinnar fer Halldór
Ásgrímsson mikinn og er rétt að
grípa niður í völdum köflum úr orð-
um hans. Hann segir: „Íslensk þjóð
er blessuð af því að búa í landi mik-
illa náttúrugæða [sem nú er spillt
með virkjanaframkvæmdum. Innsk.
höf.] og auðlegðar [… alltaf má þó
bæta við smáolíugróða] í heimshluta
friðar og lýðræðis [já, því leiðtogarn-
ir kjósa gjarnan að heyja stríð sín ut-
an þessa heimshluta]. „Við viljum sjá
þann dag, og það sem allra fyrst, að
friður komist á …“ Nei, hættu nú al-
veg! Þetta stríð snýst ekki um frið
eða uppbyggingu heldur úthellingu
blóðs fyrir olíu!
Ég tek mér það bessaleyfi að tala
á sömu nótum og Halldór gerir í nið-
urlagi greinar sinnar og spyr:
Hversu langan tíma á að gefa mönn-
um af tagi Halldórs og Davíðs til að
sjá að sér? Fimmtán ár? Tuttugu ár?
Nei, nú er mælirinn fullur og bið ég
þess að önnur réttsýnni öfl verði við
stjórnvölinn eftir 10. maí.
GUÐMUNDUR THORODDSEN,
nemandi í Listaháskóla Íslands.
Eyðing Íraks, uppbygging
og frelsi hinna staðföstu
Frá Guðmundi Thoroddsen:
AÐ SÖGN breskra sérfræðinga hafa
nýlegar rannsóknir leitt í ljós að
ungmennum sem reykt hafa hass
einu sinni í viku að staðaldri sé tölu-
verð hætta búin á að verða virkir
fíklar fíkniefna, áður en þeir ná 21
árs aldri. Að svo geti farið hjá hverju
einu ungmenni á móti þremur. Einn-
ig segja sérfræðingarnir um þau sem
notuðu efnið sjaldnar en einu sinni í
viku en byrjuðu á táningsaldri, að
meðal þeirra væri einum af hverjum
fimm veruleg hætta búin á að verða
varanlegir fíklar. Þessi nýja upp-
götvun sérfræðinganna veldur
áhyggjum því hún staðfestir að notk-
un kannabisefna getur orðið ávísun á
neyslu sterkari efna, geðrænna sjúk-
dóma og andþjóðfélagslegra til-
burða. Á Bretlandseyjum eru hass-
reykingar stöðugt algengari meðal
ungmenna og því samfara hækkandi
hlutfall þeirra sem verða háðir efn-
inu. Samkvæmt nýjustu könnunum
breska heilbrigðisráðuneytisins kom
í ljós að þriðji hver unglingur undir
15 ára aldri hafði reynt efnið.
Breska þingið
Eins og kunnugt er hafa nokkrar
nágrannaþjóðir okkar verið að slaka
á í baráttunni gegn hinum svoköll-
uðu veikari efnum. Hjá Bretum
stendur fyrir dyrum að færa kanna-
bisefnin úr flokki B yfir í flokk C,
sem er m.a. flokkur róandi lyfja eins
og Temezepams og Valíums.
„Með því að lækka efnið í áhættu-
staðlinum þá eru ráðherrarnir á
þinginu að gefa röng skilaboð að
sögn sérfræðinganna, þeir eru þar
með að gefa tóninn á að kannabis-
neysla sé ekki eins hættuleg og önn-
ur bönnuð fíkniefni.“
Samkvæmt nýju lögunum verður
lögreglunni gert að horfa framhjá
þeim sem neyta efnisins og eða hafa
það í vörslu sinni til eigin nota, sé um
minna magn að ræða. Komi hins veg-
ar til haldlagningar yfirvalda á efn-
inu, ætluðu til dreifingar og sölu, í
meira magni, þá getur það leitt til
dóms og fangelsisvistar til allt að
nokkurra ára.
Ástæða ofangreindrar tilslökunar
Breta er fyrst og fremst sú að gríð-
arlegur tími lögreglunnar fer í að elt-
ast við kannbisefnin. Samanber að á
sl. ári handtók hún u.þ.b. 80.000
manns, vegna þessa málaflokks.
Fengu langflestir þeirra lágmarks-
sektir eða jafnvel sluppu þeir með
áminningar. Tíma lögreglunnar er
því betur varið í að eltast við sterkari
efnin að sögn fylgismanna breyting-
anna.
Ísland í dag
Fáum hafa dulist þau öfl í íslensku
þjóðfélagi sem vilja lögleiða kanna-
bisefnin á svipaðan hátt og Bretar
hyggjast gera. Það þarf vissar laga-
breytingar til, en ég tel að til þeirra
megi alls ekki koma. SÁÁ telur að
hérlendis séu um 500 ungmenni í
„hassvímu“ á hverri einustu klukku-
stund, að jafnaði (www.saa.is). Bar-
áttan við kannabisefnin kann að vera
Bretum erfið vegna fjölmennis
þeirra og erfiðrar stöðu við að hefta
innflutninginn. Lega lands okkar og
fámenni þjóðar býður hins vegar upp
á árangursríkari útkomu í barátt-
unni við ólöglegum innflutningi á
fíkniefnum. Það er því andstætt öllu
að slaka á í baráttunni eða að gefast
upp.
Hlúum að æskunni, byggjum
henni bjarta framtíð!
ELÍAS KRISTJÁNSSON,
foreldri og áhugamaður um
fíkniefnaforvarnir,
Reykjanesbæ.
Fíkniefni, þú og barnið þitt!
Frá Elíasi Kristjánssyni:
Morgunblaðið/RAX
STJÖRNUSPÁ mbl.is
OPIÐ HÚS
SÆBÓLSBRAUT 28, KÓPAVOGI
Rúmgóð 95 fm íbúð á efstu hæð í níu íbúða húsi.
Þrjú rúmgóð svefnherb. Tengt fyrir þvottavél á baði.
Flísar og parket á gólfum. Ekkert áhvílandi. Jóhannes og Ólöf
munu sýna íbúðina frá kl. 14-16, þriðja hæð til vinstri (efsta
bjalla). Verið velkomin. Verð 13,5 m. 3817