Morgunblaðið - 03.05.2003, Page 62
ÍÞRÓTTIR
62 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Deildabikarkeppni karla
Neðri deild, undanúrslit:
Njarðvík: Njarðvík – HK...........................14
Fífan: Breiðablik – Völsungur ..................15
Deildabikarkeppni kvenna
Efri deild, undanúrslit:
Fífan: Valur – KR.......................................13
Neðri deild:
Ásvellir: FH – Fjölnir ................................14
Reykjaneshöll: Tindastóll – RKV.............14
Sunnudagur:
Deildabikarkeppni karla
Undanúrslit:
Egilshöll: Keflavík – Grindavík.................16
Akranesvöllur: KR – ÍA.............................14
Deildabikarkeppni kvenna
Efri deild, undanúrslit:
Fífan: ÍBV – Breiðablik ........................16.30
UM HELGINA
FRAKKINN Thierry Henry,
framherji Arsenal, var í gær út-
nefndur knattspyrnumaður ársins
á Englandi af íþróttafréttamönn-
um þar í landi. Henry, sem einnig
var kjörinn leikmaður ársins af
leikmönnum úrvalsdeildarinnar
um síðustu helgi, hafði betur í
kosningunni gegn Ruud Van Nist-
elrooy, framherja Manchester
United. Alan Shearer framherji
Newcastle varð þriðji í kjörinu og
ítalski töframaðurinn Gianfranco
Zola hjá Chelsea varð fjórði.
Henry er fjórði Frakkinn sem
hlýtur þessa útnefningu en áður
höfðu Eric Cantona, David Ginola
og Robert Pires orðið þessa heið-
urs aðnjótandi. Þá er Henry 11.
leikmaðurinn sem kjörinn er leik-
maður ársins bæði af íþrótta-
fréttamönnum og leikmönnum á
sama árinu. Verðlaunin voru
fyrst veitt árið 1948 en þá varð
Stanley Matthew fyrir valinu.
„Henry er vel að þessum titli
kominn. Hann hefur átt frábært
tímabil, skorað mörg glæsileg
mörk og lagt upp fyrir mörk fyr-
ir félaga sína með hæfileikum
sínum og tækni,“ sagði Gerry
Cox, formaður breskra íþrótta-
fréttamanna, þegar hann kunn-
gerði valið á knattspyrnumanni
ársins.
Henry er sem stendur annar
markahæsti leikmaður deild-
arinnar með 22 mörk en Frakk-
inn er efstur á blaði hvað stoð-
sendingar varðar en 17 sinnum
hefur hann skapað mörk fyrir fé-
laga sína.
Tvöfalt hjá Henry
Það hefur alltaf blundað í manniað fara út,“ sagði Hanna í sam-
tali við Morgunblaðið en hún leikur
með Haukum líkt og Inga Fríða en
Helga Torfadóttir hefur varið mark
Víkings.
„Það hafa umboðsmenn verið að
hafa samband við mig alltaf öðru
hverju en ég hef ekki slegið til fyrr
en núna. Þessi möguleiki kom upp í
kringum áramótin en þá fréttum við
af því að liðið væri að leita eftir leik-
mönnum fyrir næsta tímabil. Þetta
var mjög freistandi og það skemmdi
ekki fyrir að Hrafnhildur var fyrir
hjá liðinu og gat gefið okkur góðar
upplýsingar um liðið og aðstæður á
svæðinu. Við slógum því til og fórum
allar þrjár út í byrjun mars til að líta
á aðstæður. Þær eru mjög góðar hjá
liðinu og þetta heillaði okkur uppúr
skónum. Samningurinn sem við
gerðum við liðið er til eins árs en ef
veturinn gengur vel og ef liðið nær
því markmiði sínu að komast aftur
upp í úrvalsdeildina þá væri gaman
að framlengja samninginn og leika í
einni bestu deild í heimi. En þetta er
ágætur byrjunarreitur,“ sagði
Hanna.
Team Tvis Holstebro er hálfat-
vinnumannalið og þær stöllur munu
fá vinnu á vegum félagsins. Hanna
gerir ráð fyrir að hún fái vinnu við
silkiprentun, Inga Fríða er leik-
skólakennari og fær væntanlega
vinnu við það og Helga er að ljúka
prófi í sjúkraþjálfun og vonast til að
fá starf í þeirri grein. Þær Hanna,
Helga og Inga Fríða halda utan um
miðjan júlí en keppnistímabilið hefst
19. ágúst þegar liðið leikur í fyrstu
umferð bikarkeppninnar. En hvern-
ig leggst ævintýrið í Hönnu? „Þetta
leggst mjög vel í mig og ég held ég
geti sagt það sama um Ingu Fríðu.
Við tvær höfum ekki áður leikið með
erlendu félagsliði en Helga hefur
leikið með norsku liði, var þar í eitt
ár og Hrafnhildur var einmitt með
henni í liði á þeim tíma,“ sagði
Hanna Guðrún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsliðskonurnar fimm í búningi Team Tvis Holstebro, sem þær munu klæðast í Danmörku. Frá
vinstri: Hanna G. Stefánsdóttir, Inga Fríða Tryggvadóttir, Helga Torfadóttir, Kristín Guðmundsdóttir
og Hrafnhildur Skúladóttir. Með þeim er framkvæmdastjóri danska liðsins, John Mikkelsen.
Fimm landsliðskonur
leika með Holstebro
FIMM íslenskar landsliðskonur í handknattleik munu leika með
danska liðinu Team Tvis Holstebro á næstu leiktíð. Þetta eru þær
Hrafnhildur Skúladóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Helga Torfadóttir,
Hanna G. Stefánsdóttir og Inga Fríða Tryggvadóttir. Hrafnhildur lék
með liðinu í vetur og hefur framlengt samning sinn við það og í
marsmánuði gekk Kristín frá samningi við liðið. Hún lék með Virum í
Danmörku í vetur en var áður í herbúðum Víkings. Í vikunni gengu
svo þær Hanna, Inga Fríða og Helga frá samningi en framkvæmda-
stjóri Tvis Holstebro kom til landsins og innsiglaði samningana.
KOBE Bryant skoraði 31 stig
þegar Los Angeles lagði
Minnesota 101:85 (4:2) og
tryggði sér rétt til að leika í
undanúrslitum vesturdeildar –
mætir San Antonio Spurs, sem
lagði Phoenix að velli, 87:85
(4:2). Boston Celtics vann In-
diana 110:90 (4:2) og mætir
New Jersey Nets, sem lagði
Milwaukee 113:101 (4:2), í
undanúrslitum austurdeild-
arinnar.
Bryant gerði 14 af 31 stigi á
fyrstu sex mínútum í fjórða
leikhluta gegn Minnesota.
Shaquille O’Neal gerði 24 stig
í leiknum, tók 17 fráköst og
átti níu stoðsendingar fyrir
Lakers.
Bryant
með
31 stig
ÞEIR áhorfendur sem ætla sér að
hlaupa inn á knattspyrnuvelli á
Englandi í framtíðinni munu ef-
laust hugsa sig tvisvar um ef
reglugerð enska knattspyrnu-
sambandsins verður samþykkt á
næstunni. Þar er lagt til að þeir
sem geri slíkt á enskum knatt-
spyrnuvöllum verði úrskurðaðir í
ævilangt bann. Reglugerðin kem-
ur í kjölfarið á hárri sekt sem
enska knattspyrnusambandinu
var gert að greiða vegna atviks
sem átti sér stað í leik enska
landsliðins gegn því tyrkneska á
heimavelli Sunderland 12. apríl
sl.
Paul Barber, talsmaður enska
knattspyrnusambandsins, segir að
öllum brögðum verði beitt til þess
að koma í veg fyrir að slíkt end-
urtaki sig, auk þess sem kastljós-
inu verði beint að kynþátta-
fordómum á meðal áhorfenda.
„Það hafa aðeins fáir stundað
slíkt á undanförnum misserum en
við teljum að þessi hópur hafi
stækkað undanfarið. Því munum
við grípa til harðra aðgerða,“
segir Barber en reglugerðin mun
gilda á öllum opinberum leikjum
á Englandi.
Næsti leikur enska landsliðsins
er gegn Slóvakíu 11. maí nk. og
fer leikurinn fram á heimavelli
Middlesbrough.
Lífstíðarbann fyrir að
fara inn á völlinn
1,5 millj-
óna króna
munnvatn
MUNNVATNIÐ sem Frakk-
inn Christoph Dugarry, leik-
maður enska úrvalsdeild-
arliðsins Birmingham, lét út
úr sér og hæfði íslenska
landsliðsmanninn Jóhannes
Karl Guðjónsson í leik Aston
Villa og Birmingham í febr-
úar síðastliðinn reyndist hon-
um dýrkeypt. Aganefnd
enska knattspyrnusambands-
ins dæmdi Frakkann nefni-
lega til að greiða 12.500 pund
í sekt sem jafngildir 1,5 millj-
ónum króna.
Annar leikmaður í úrvals-
deildinni, framherjinn Dunc-
an Ferguson hjá Everton, er
einnig til skoðunar hjá aga-
nefndinni eftir viðskipti við
Jóhannes Karl en sjónvarps-
upptaka frá leiknum, sem
háður var um síðustu helgi,
sýnir að framherjinn stóri og
stæðilegi gaf Skagamann-
inum olnbogaskot í andlitið.
LETTINN Alexanders Petersons,
sem leikið hefur með liði Gróttu/
KR undanfarin ár, hefur gert
þriggja ára samning við þýska 2.
deildarliðið HSG Düsseldorf. Pet-
ersons hefur dvalið við æfingar hjá
Düsseldorf undanfarna daga og eft-
ir að hafa skoðað leikmanninn til
hlítar ákvað Richard Ratka þjálfari
Düsseldorf að bjóða Petersons
samning sem hann þáði.
Düsseldorf á enn möguleika á að
komast upp í Bundesliguna en liðið
er öruggt með annað sætið í 2. deild
syðri og kemst í aukakeppni um
laust sæti í úrvalsdeildinni.
Alexanders Petersons
Petersons
samdi við
Düsseldorf