Morgunblaðið - 03.05.2003, Page 68
HEIMILDARMYNDIN Ég er arabi
eftir Sigurð Guðmundsson og Ara Al-
exander Ergis Magnússon fjallar um
andstöðu Íslendinga gegn stríðinu í
Írak og tjá fjölmargir Íslendingar sig
um „árásarstríð Bandaríkjastjórnar á
Írak og yfirlýstan stuðning íslenskra
stjórnvalda við það“, eins og segir í
fréttatilkynningu frá Ergis kvik-
myndaframleiðslu.
„Við byrjuðum að vinna hana á
fyrsta degi stríðsins,“ segir Ari Alex-
ander. Hann segir að honum og Sig-
urði hafi fundist þetta aðkallandi
verkefni. „Fyrir það fyrsta trúðum
við því ekki að Ísland væri þátttak-
andi í þessu stríði,“ segir hann. „Ég
þori að fullyrða það að þetta sé fyrsta
óritskoðaða heimildarmynd, sem
gerð hefur verið. Fólk fékk 30 sek-
úndur til eina og hálfa mínútu til að
segja hvaða skoðun það hefði á þessu
máli. Við komum og tókum það upp
og það er hvergi klippt í talað mál,“
segir Ari Alexander. „Þetta er þver-
pólitískt. Við erum með fólk úr öllum
áttum í samfélaginu. Ekki má gleyma
að 82% þjóðarinnar hafa verið á móti
þáttöku Íslands í þessu stríði,“ segir
Ari Alexander.
Rætt er við 37 Íslendinga í mynd-
inni og varð sú tala fyrir valinu vegna
þess að hún táknar jafnframt eðlilegt
hitastig mannslíkamans. „Þetta eru
allt andstæðingar stríðsins,“ útskýrir
Ari Alexander. „Þeir sem tala með
stríðinu eru hvort eð er í fjölmiðlum
alla daga.“ Fólk úr ýmsum áttum tjá-
ir afstöðu sína í myndinni: Karl Sig-
urbjörnsson, Hallgrímur Helgason,
Guðrún Gísladóttir, Erpur Eyvind-
arson og Tinna Gunnlaugsdóttir, svo
einhverjir séu nefndir.
Ennfremur birtist í myndinni ým-
islegt efni frá Írak, bæði ljósmyndir
og mynbandsupptökur. „Það birtast
þarna myndir sem hafa hvergi sést í
fjölmiðlum, allavega ekki hér á Ís-
landi. Þetta eru myndir sem eru á
Netinu og fólk er hvatt til að nota,“
segir Ari Alexander en myndirnar
eru eingöngu frá Írak. „Við höldum
okkur við það umfjöllunarefni. Við er-
um ekki að tala um aðra stefnu
Bandaríkjanna eða neitt slíkt,“ segir
hann en einnig er notast við efni úr
innlendum og erlendum fjölmiðlum.
„Við erum að leggja okkar lóð á
vogarskálina til þess að allar hliðar á
málinu séu sýndar,“ segir Ari Alex-
ander. „Við stöndum fyrir utan allar
pólitískar hreyfingar. Það má ekki
misskilja það að myndin sé að koma
núna af því að það eru kosningar,“
segir hann og bætir við að þeir séu
ekki að reyna að koma höggi á ráða-
menn landsins. „Það er bara að þetta
stríð er rétt að byrja og Íslendingar
eru þáttakendur í því,“ segir hann og
vísar til hótana Bandaríkjastjórnar
hvað varðar Sýrland.
Mikil vinna hefur verið við að klára
myndina á svo stuttum tíma. „Við er-
um búnir að leggja dag við nótt. Þetta
er búið að vera alls 41 dagur. Myndin
er að rúlla úr hjóðvinnslu,“ segir Ari
Alexander degi fyrir frumsýninguna
og leggur áherslu á að allir séu vel-
komnir í kvöld.
Ég er arabi eftir Sigurð Guðmundsson og Ara Alexander frumsýnd í kvöld
Reuters
Fréttamynd Reuters frá Írak. Hinn 14 ára Ahmed Muthanna situr í bíl, sem
varð fyrir skotárás bandarískra hermanna. Í myndinni Ég er arabi er bæði
rætt við Íslendinga um afstöðu þeirra og sýndar fréttamyndir.
Sigurður Guð-
mundsson leikstjóri.
!
" #
$
%& '
( )# ( )
Ég er arabi er á dagskrá Shorts &
Docs og verður frumsýnd í Há-
skólabíói í kvöld klukkan 20. Myndin
verður í sýningum næstu daga.
Ari Alexander
leikstjóri.
Óritskoðað og
þverpólitískt
68 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16.
Kvikmyndir.is
kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i.14. / kl. 5.50, 8 og 10.10. b.I. 14. / kl. 4 og 10. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14.
Heims frumsýning
Sagan heldur áfram. Enn stærri og
magnaðri en fyrri myndin.
Missið ekki af þessari!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 3.20, 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 3 og 10.
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10. B.i.14 ára.
Heimilda- og Stuttmyndahátíð
Stuttmyndasyrpa
sýnd kl. 4
Europe in shorts
sýnd kl. 4
Gamla Brýnið
sýnd kl. 6
Ég er Arabi
sýnd kl. 8
10 Dansmyndir
sýnd kl. 8
Stevie
sýnd kl. 10
Alt om min far
sýnd kl. 10
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Tvöfaldur
Óskarsverðlaunahafi,
Michael Caine í
stórbrotinni kvikmynd sem
byggð er á sígildri
skáldsögu Graham Greene.
Michael Caine var m.a.
tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í myndinni.
Frumsýning
Sjálfstæðisflokkurinn
Býður upp á
íslenska bíóveislu
IKINGUT
sýnd kl 4.
ÍSLENSKI DRAUMURINN
sýnd kl. 6.
ENGLAR ALHEIMSINS
sýnd kl. 8
MAÐUR EINS OG ÉG
sýnd kl. 10.
Aðgangur ókeypis
á meðan húsrúm leyfir
SMÁRALIND • S. 555 7878
Ingmar Bergman í
Stund
úlfanna
Max von Sydow og Liv Ullman leika
aðalhlutverkin í Stund úlfanna.
KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir
á næstunni nokkrar kvikmynda
sænska leikstjórans Ingmars Berg-
mans sem verður 85 ára í júlí
næstkomandi og er enn að.
Fyrsta myndin er Stund úlfanna
(Vargtimmen) frá árinu 1968, sem
verður sýnd í sýningarsal safnsins
í Bæjarbíóí í Hafnarfirði kl. 16 í
dag.
Myndin segir frá Johan (Max
von Sydow), málara sem á í miklu
sálarstríði og dvelur í sínum eigin
heimi milli svefns og vöku á nótt-
unni, ásóttur af djöflum og púkum.
Eiginkona hans, Alma (Liv Ull-
man), reynir allt til að þóknast
manni sínum og létta honum til-
veruna.
Stund úlfanna er sá tími sólar-
hringsins, segir Bergman, þegar
nóttin er liðin en nýr dagur ekki
runninn upp. Hún er sú stund sem
hvorki er dagur né nótt, þegar
flest fólk deyr, þegar svefninn er
dýpstur, þegar martraðir ásækja
mest, að sögn leikstjórans.
Stund úlfanna verður sýnd í sýning-
arsal Kvikmyndasafnsins í Bæjarbíói
við Strandgötu kl. 16 í dag. Miðaverð
er 500 krónur.
Kvikmyndasafni Íslands