Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ DICK Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, hefur tilkynnt að hann hafi fullan hug á því að vera aftur varafor- setaefni George W. Bush Banda- ríkjaforseta í for- setakosningunum sem haldnar verða haustið 2004. Hann segir að heilsubrestur muni ekki aftra honum frá því að verða í framboði. „Forsetinn hef- ur beðið mig um að verða aftur í framboði með honum. Ég hef samþykkt að gera það,“ segir Cheney í viðtali sem birtist í dag- blaðinu The Dallas Morning News í gær. Sagði hann að heilsa hans væri „nógu góð“. „Allt er í lagi,“ sagði hann. Cheney er 62 ára gamall. Miklar getgátur hafa verið um það í Bandaríkjunum hvort Cheney yrði aftur varaforsetaefni Bush en Cheney hefur verið veill fyrir hjarta. Hefur hann fjórum sinnum fengið hjarta- áfall, en ekkert þeirra síðan hann tók við varaforsetaembættinu í janúar 2001. Upp á síðkastið hafa menn síðan rætt um hvort tengsl Cheneys við ým- is bókhalds- og fjármálahneyksli gætu dregið úr líkum Bush á að ná endurkjöri, en nú stendur yfir rann- sókn á bókhaldsfærslum Halliburton- fyrirtækisins á þeim tíma er Cheney var þar framkvæmdastjóri. „Ég hef lækni við höndina allan sól- arhringinn og hann fylgist mjög grannt með mér,“ sagði Cheney í við- talinu sem birt var í gær. „Ef ég yrði fyrir skakkaföllum sem yllu því að ég teldi mig ekki geta sinnt embættinu, þá yrði ég fyrstur til að segja það upp- hátt og draga mig í hlé.“ Cheney verð- ur í framboði með Bush Dallas. AP. Dick Cheney varkár í yfirlýsingum sínum og að ýmis ummæli hans hafi vart stuðl- að að góðum samskiptum Banda- ríkjamanna og íraskra borgara. Útnefning Bremers er túlkuð þannig að utanríkisráðuneytið bandaríska hafi haft betur í þess- ari lotu valdabaráttu ráðuneyt- anna í Washington. Á hinn bóginn er eftir því tekið að Bremer mun heyra undir varnarmálaráðherr- ann, sem fyrr segir, og bandarísk- ir embættismenn fullyrtu að það hefði verið Rumsfeld sem valdi Bremer til starfans – ekki Colin Powell utanríkisráðherra. Varaði við árás á Bandaríkin „Hann býr yfir afar mikilli reynslu. Hann er maður sem veit hvernig á að koma hlutunum í framkvæmd,“ sagði Bush, er hann tilkynnti um útnefningu Bremers á þriðjudag. „Sendiherrann nýtur fulls stuðnings þessarar stjórnar og öll erum við sannfærð um að hann geti náð tilsettum árangri,“ sagði Bush ennfremur. Bremer er sextíu og eins árs gamall og starfaði um tuttugu og þriggja ára skeið í utanríkisþjón- ustunni. Hann var á sínum tíma aðstoðarutanríkisráðherra í tíð Williams B. Rogers og Henrys Kissingers. Hann var sendiherra Bandaríkjanna í Hollandi 1983– 1986, þegar Ronald Reagan var forseti, og síðan sendiherra, ábyrgur fyrir hryðjuverkavörnum, á árunum 1986–1989. Áður hafði hann unnið í sendiráðum Banda- ríkjanna í Afganistan, Malawi og Noregi. Eftir að Bremer hætti í utanrík- isþjónustunni starfaði hann hjá ráðgjafarfyrirtæki Kissingers og árið 1999 var hann síðan skipaður formaður þverpólitískrar nefndar um hryðjuverk sem starfar á veg- um fulltrúadeildar Bandaríkja- þings. Bremer varaði í vitnisburði fyrir þingnefnd í júní 2000 við hryðju- verkaárás á Bandaríkin sem hugs- anlega yrði svo hrikaleg að aðeins mætti líkja henni við árás Japana á Pearl Harbour 7. desember 1941. Sagðist Bremer seinna hafa orð- ið fyrir miklu áfalli þegar hryðju- verkamenn réðust á Bandaríkin 11. september 2001 en að árásin hefði þó ekki komið honum á óvart þar sem leyniþjónustan banda- ríska hefði verið orðin værukær í störfum sínum. ÁKVEÐIÐ hefur verið að L. Paul Bremer, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Hollandi, stýri borgaralegri stjórn Bandaríkja- manna í Írak. Hershöfðinginn fyrrverandi, Jay Garner, hefur fram að þessu verið æðsti embætt- ismaður Bandaríkjastjórnar í Írak en hann mun framvegis teljast undirmaður Bremers. Bremer mun heyra beint undir Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra, en Garner hafði hins vegar talist und- irmaður Tommy Franks hershöfð- ingja, æðsta yfirmanns Banda- ríkjahers í Írak. Embættismenn Bandaríkja- stjórnar segja að með útnefningu Bremers vilji menn stuðla að því að stjórnartaumarnir í Írak verði í höndum borgaralegra embættis- manna, í stað Bandaríkjahers. Vona þeir að útnefning Bremers verði til þess að ýmsir bandamenn Bandaríkjanna láti af tregðu sinni til að taka þátt í kostnaði vegna uppbyggingarstarfs í Írak; tregðu sem m.a. skýrðist af andstöðu við hernaðarblæinn sem var á aðgerð- um Bandaríkjamanna. Garner fórnarlamb aðstæðna? Tommy Franks hershöfðingi mun áfram verða æðsti yfirmaður bandaríska heraflans í Írak. Bremer mun hins vegar fara fyrir því teymi manna sem er ætlað að sinna uppbyggingarstarfinu í Írak og vinna að lýðræðisþróun í land- inu. Fær Jay Garner nú það verk- efni að koma ýmiss konar grunn- þjónustu við borgarana í samt lag, s.s. tryggja aðgang að vatni og rafmagni, og ýta starfi ráðuneyta úr vör á nýjan leik. Zalmay Khalilzad, annar sérleg- ur sendimaður Bandaríkjaforseta, mun hins vegar vinna að því með fulltrúum írösku þjóðarinnar að mynda bráðabirgðastjórn heima- manna. Bandarískir embættismenn vildu ekki tjá sig um það hvers vegna ákveðið hefði verið að setja Bremer yfir Garner. Stuðnings- menn Garners sögðu hins vegar að hann væri nú að súpa seyðið af því hversu lélegar áætlanir hefðu verið til staðar um það hvað tæki við í Írak að loknum beinum stríðsátökum. Þá væri Garner fórnarlamb valdabaráttu sem varnamála- og utanríkisráðuneytið háðu nú. Á hinn bóginn hefur mörgum ekki þótt Garner vera nægilega Bremer sett- ur yfir Jay Garner í Írak L. Paul Bremer starfaði lengi í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna. Hann mun heyra beint undir Rumsfeld varnarmálaráðherra Washington. AP, AFP, The Washington Post. AP L. Paul Bremer þegar George W. Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í fyrrakvöld um útnefningu hans. BANDARÍSKA geimferjan Kól- umbía fórst að öllum líkindum vegna þess að einangrun milli flísa á vinstri væng ferjunnar losnaði. Þetta er nið- urstaða frumrannsóknar sem gerð hefur verið á orsökum slyssins. Í yfirlýsingu frá Hal Gehman að- mírál, formanni sérstakrar rannsókn- arnefndar, sagði að nú lægju nægileg- ar upplýsingar fyrir til að hægt væri að einbeita sér að tilteknum þáttum í rannsókninni. Lýsti hann frumniður- stöðunni sem vinnutilgátu. Kólumbía brotnaði í sundur yfir Texas-ríki í Bandaríkjunum þegar hún kom inn til lendingar yfir Texas 1. febrúar sl. Allir geimfararnir sjö, sem um borð voru, létu lífið. Rann- sóknarmenn telja að hitaeinangrun- arhlífar á vinstri væng hafi skemmst í flugtaki þegar bútar af einangrunar- froðu brotnuðu af eldsneytistanki og lentu á vængnum. Einangrun gaf sig í Kólumbíu Washington. AFP. SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítal- íu, sem sætir ákæru fyrir að múta dómurum í tengslum við umdeilda einkavæðingarsamn- inga á miðjum níunda áratugnum, lýsti sig í gær fylgjandi því að menn sem gegna háum pólitískum embættum njóti friðhelgi frá lög- sóknum. Frumvarp um slíka friðhelgi ráðamanna er til umfjöllunar í ítalska þinginu, en það var upprunalega lagt fram í fyrra af þing- mönnum á vinstri vængnum, sem eru í stjórnarandstöðu. Í grein sem forsætisráðherrann ritaði í gær í dagblaðið Corriere della Sera sagði hann nauðsynlegt að þess- ar nýju reglur gengju í gildi áður en Ítalía tekur við formennskunni í Evr- ópusambandinu um mitt þetta ár. „Við verðum að grípa inn í. Ekki til þess að hjálpa forsætisráðherranum að standast próf næstu sex mánaða [þ.e. ESB-formennskutímabilsins], sem ég er fullfær um upp á eigin spýtur, heldur til að færa þjóðþinginu aftur sinn sess sem þungamiðja stjórnmálalífsins í landinu,“ segir í grein Berlusconis. Að samþykkja friðhelgisákvæðið væri því „í þágu þjóðarhagsmuna og ítalskra kjós- enda, ekki minna per- sónulegu hagsmuna“. Friðhelgi þingmanna var afnumin að hluta samkvæmt lögum árið 1993 til að greiða fyrir upprætingu spillingar í ítölskum stjórnmálum í svokölluðum „hreinu handa“-réttarhöldum (ít. mani puliti). Andreotti sýknaður af ákæru um þjónk- un við mafíuna Einn fyrrverandi ráðamanna Ítalíu sem réttað var yfir í „hreinu handa“-her- ferðinni, Giulio Andreotti, var á föstudag sýknaður af ákærum um samstarf við mafíuna. Andreotti var forsætisráðherra í sjö ríkisstjórnum og á alls 60 ára stjórnmálaferil að baki. Dómstóll í Róm hafnaði áfrýjun ákæruvaldsins á úrskurði lægra dómstigs í þessu máli frá árinu 1999. Breytti vitnisburður fyrrverandi mafíuforingja, sem var íþyngjandi fyrir sakborninginn, þar engu um. Andreotti var hins vegar dæmdur í fyrrahaust af dómstól í Perugia í 24 ára fangelsi fyrir að hafa verið með- ábyrgur fyrir morði á rannsóknar- blaðamanni. Að ítölskum lögum er hann hins vegar of gamall til að af- plána dóminn, sem er reyndar í áfrýj- un og bíður úrskurðar. Berlusconi kall- ar eftir lögum um friðhelgi Róm. AFP. Silvio Berlusconi FYRSTA dýrið sem ein- ræktað hefur verið í Afr- íku var í gær sýnt op- inberlega í fyrsta sinn, en það er kálfurinn Futi sem kom í heiminn 19. apríl síðastliðinn í Norðvest- urhéraði í Suður-Afríku. Kálfurinn var einrækt- aður með því að taka erfðaefni úr einni frumu úr eyra kýr og koma því síðan fyrir í ófrjóvgaðri eggfrumu sem var komið fyrir í legi kýr sem síðan gekk með kálfinn og bar honum loks. Futi sprangaði um hinn hressasti þegar hann var sýndur fjölmiðlafólki í gær. Fyrsta ein- ræktunin í Afríku Reuters BANDARÍKJASTJÓRN hefur bætt Batasuna, stjórnmálaflokki baskneskra aðskilnaðarsinna, á lista yfir hryðjuverkahreyfingar. Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, sem var í heimsókn í Wash- ington í gær, fagnaði þessari ákvörðun. „Þetta eru góðar fréttir fyrir Spánverja og þá sem berjast gegn hryðjuverkastarfsemi,“ sagði Aznar skömmu áður en hann hélt til fund- ar við George W. Bush Bandaríkja- forseta í gærkvöldi. Hann vildi ekki svara því hvort Bandaríkjastjórn væri að þakka Spánverjum fyrir stuðninginn við hernaðinn í Írak með því að bæta Batasuna á listann. Spænskur dómstóll bannaði Ba- tasuna í mars vegna meintra tengsla flokksins við ETA, aðskiln- aðarhreyfingu Baska, sem hefur staðið fyrir nokkrum árásum á Spáni og Frakklandi. ETA er á lista Bandaríkjastjórnar yfir hryðju- verkahreyfingar. Batasuna á lista yfir hryðjuverkahreyfingar Washington. AFP. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ BANDARÍSK yfirvöld hafa endur- heimt um 40.000 fornmuni sem ræn- ingjar höfðu á brott með sér úr þjóð- minjasafni Íraks í Bagdad, þar á meðal handrit og listmuni, að því er talsmenn Bandaríkjastjórnar greindu frá í Washington í gær. Michael Garcia, starfandi yfirmað- ur Innflytjenda- og tollaeftirlits- stofnunar Bandaríkjanna (Bureau of Immigration and Customs Enforce- ment), sagði að endurheimt mun- anna væri afraksturinn af samhæfð- um aðgerðum bandarískra rann- sóknarlögreglumanna, hersins og íraskra borgara. Útsendarar stofnunarinnar hafa verið að störfum í Írak frá því innrás bandamanna hófst, að sögn Garcia. Þeir haldi áfram að leita uppi muni. Um 40.000 munir fundnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.