Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 35
Að vera sjálfum sér verstur AF einhverjum ástæðum fann Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. hjá sér hvöt til að koma með sitt álit á Þorfinnsmálinu svokallaða og birtist grein eftir hann í Mbl. 28. apríl sl. undir fyrirsögninni „Um valdsvið ríkisstofnana“. Það er ekki ætlun mín að blanda mér í þann hluta um- ræðunnar sem snýr að Ríkisend- urskoðun en ég vil gera athuga- semdir við þá mynd sem Jón Steinar bregður upp af styrkveit- ingum Þorfinns Ómarssonar og þá sérstaklega 22 milljóna króna eft- irvinnslustyrk til Hrafns Gunn- laugssonar. Kvikmyndamiðstöð verður til Til að fá einhverja heildarsýn á þessa síðustu atburði í Þorfinnsmál- inu verður að byrja á því þegar Kvikmyndasjóður auglýsti eftir um- sóknum í ágúst 2002. Sjóðurinn hef- ur frá upphafi auglýst eftir styrkj- um einu sinni á ári en vegna yfirvofandi lagabreytingar var aug- lýsingin 2002 dregin til baka – ef svo má að orði komast. Það var ákveðið í menntamálaráðuneytinu að ekki skyldi skipa úthlutunar- nefnd á haustmánuðum til að fjalla um umsóknir heldur bíða þar til bú- ið væri að koma upp úthlutunar- kerfi samkvæmt nýju lögunum. Þessi ákvörðun var tekin áður en umsóknarfresturinn rann út. Áfram var tekið við umsóknum en starfs- menn sjóðsins gerðu heyrinkunnugt að það nægði að skila inn umsókn- areyðublöðum, önnur gögn (eins og handrit og kostnaðar- og fjármögn- unaráætlanir) gætu beðið þar til málin skýrðust og það yrði kallað eftir þeim eða menn beðnir að end- urnýja umsóknir sínar. Það var ekki fyrr en nú fyrir nokkrum dögum – rúmum sex mánuðum síðar – að Kvikmyndamiðstöð auglýsti og eru menn þessa dagana að endurnýja gömlu umsóknirnar eða senda inn nýjar. Brot á stjórnsýslulögum Jón Steinar segir að Þorfinnur hafi haft fulla lagaheimild til að veita styrki þegar hann var for- stöðumaður. En hafði hann heimild til að sniðganga stjórnsýslulögin? Þetta mál snýst um það að Þorfinn- ur var að veita styrki á laun. Kvik- myndagerðarmenn hafa staðið í þeirri góðu trú í allan vetur að sjóð- urinn væri lokaður vegna lagabreyt- ingarinnar og höfðu ekki hugmynd um að það væri verið að fjalla um umsóknir, hvað þá að veita styrki. Þorfinnur hafði engar forsendur til að veita þennan styrk og engin gögn nema gögnin sem Hrafn Gunnlaugsson fékk honum í hendur. Málið snýst um brot á stjórnsýslu- lögum. Sjálfvirkar styrkveitingar? Jón Steinar segir í grein sinni að allt hafi farið fram með hefðbundn- um hætti því Þorfinnur hafi verið að úthluta styrkjum til þeirra sem „næstir“ komu í röðinni 2002, þ.e. til þeirra sem komust næst því að fá styrki 2002. Sjálfur hefur Þorfinnur orðað þetta þannig að Hrafn hafi verið á „stuttlista“. Það er ekki hægt að skilja útskýringar Jóns Steinars öðruvísi en svo en að veiting fram- leiðslustyrkja sé að einhverju leyti sjálfvirk hjá Kvikmyndasjóði, að til séu stuttlistar og þegar fé losnar sé því endurúthlutað til þess sem er efstur á stuttlistanum eða fremstur í biðröðinni ef menn vilja það orða- lag frekar. Við þetta er ýmislegt að athuga. Stuttlistarnir Fyrst er að gera grein fyrir því hvað menn meina með þessu orði, stuttlisti. Það varð til stuttlisti skömmu fyrir aðalúthlutun í janúar 2002 þegar úthlutunarnefndin boðaði tólf framleiðendur í viðtöl. Hrafn var ekki einn af þeim. Sjö þessara fram- leiðenda fengu framleiðslustyrk á árinu, þ.e. á síðasta ári. Þeir sem eftir standa eru þá þeir „sem næstir komu í röðinni 2002“. Með öðrum orðum: Ef það var til einhver stutt- listi í byrjun 2003 þá er þetta hann. Það er því rangt að Hrafn hafi verið á stuttlista nema Þorfinnur sé að tala um einhvern lista sem hann gerði sjálfur. Jón Steinar segir líka að það sé hefð fyrir því hjá Kvikmyndasjóði að styðjast við stuttlista þegar styrkjum er endurúthlutað og að það hafi verið gert „ótal sinnum“. Þetta er rangt. Það er rangt farið með ýmsar staðreyndir í grein Jóns Steinars en ég ætla ekki að vera að elta ólar við allt það hér. Málið er komið í farveg og er nú hjá ríkissaksóknara. Í þessu sam- bandi nægir að segja þetta: Það hef- ur afar sjaldan komið fyrir hjá Kvikmyndasjóði að það sé endur- úthlutað. Ég man eftir einu tilviki þar sem stuðst var við stuttlista við endurúthlutun en þau geta verið fleiri. En í slíkum tilvikum er auð- vitað haft samband við alla sem eru á stuttlistanum. Það er engin biðröð Mergurinn málsins er þessi: Það er ekki til nein biðröð eins og Jón Steinar lýsir, það eru bara til kvik- myndaverkefni og þau eru mjög mörg og misstyrkhæf. Það væru al- veg fráleit vinnubrögð hjá Kvik- myndasjóði að vinna út frá einhverj- um sex eða tólf mánaða gömlum stuttlistum þegar stendur til að út- hluta eða endurúthluta styrkjum. Sjóðurinn verður að auglýsa eftir umsóknum; það er sérstaklega tekið fram í lögum að hann EIGI að aug- lýsa. Framleiðendur verða að fá að sitja við sama borð þegar fjallað er um umsóknir; um þetta snýst jafn- ræðisreglan. Þorfinnur braut stjórnsýslulögin þegar hann fór að úthluta styrkjum án þess að gefa mönnum kost á að senda inn um- sóknir, og án þess að láta nokkurn vita hvað væri á seyði nema þá sem hann kaus að styrkja. Hvað vakti fyrir Þorfinni? Þegar upp er staðið er engin aug- ljós skýring á þessum atburðum, hvers vegna Þorfinnur gekk þvert á jafnræðisregluna og brást trausti þeirra sem hann átti að vera að vinna fyrir. Og mest af öllu kemur hann sjálfum sér í vandræði. Hvað var hreyfiaflið í þessari atburðarás? Hann skuldar okkur einhverja skýr- ingu. Eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur Höfundur er kvikmyndagerðarmaður. „Framleið- endur verða að fá að sitja við sama borð þegar fjallað er um umsóknir…“ UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 35 ÞAÐ er orðið nokkuð langt síðan ég og fleiri óperusöngvarar og óp- eruunnendur höfum lýst þeirri skoðun okkar á prenti, að óperu- flutningur framtíðarinnar hljóti að eiga sér stað í Tónlistarhúsinu, sem manni skilst að rísi í Reykja- vík eftir nokkur ár. Mér hefur fundist það með ólík- indum, að enginn þeirra aðila, sem að undirbúningi þessa húss standa, hefur svarað okkur, hvað þá reynt að nýta sér reynslu okkar sem höf- um starfað sem óperusöngvarar erlendis í mörg ár. Nú ber svo við, að rétt fyrir kosningar er allt í einu farið að ræða húsnæðismál Íslensku óper- unnar, þar sem fyrrverandi og nú- verandi borgarstjóri nefna þann möguleika að Íslenska óperan fari með starfsemi sína inn í Borg- arleikhúsið. Skoðum þetta aðeins nánar. Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 29. apríl er sagt frá því að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir telji að „óperan eigi meiri samleið með leikhúsi en tónlist“. Þess vegna finnst henni liggja beint við að kanna þann möguleika að óperan fari inn í Borgarleikhúsið. Nokkr- um síðum framar í sama blaði er greint frá stórfelldum rekstrar- vanda Borgarleikhússins. Ein- hvern veginn finnst mér vera sam- hengi þarna á milli. Það á sem sé að troða óperunni þarna inn til að reyna að nýta húsið betur og reyna þannig að létta reksturinn á því. Þetta sama bar á góma í Kast- ljósi mánudaginn 5. maí. Þar voru vandamál Borgarleikhússins enn til umræðu. Þar upplýsti Þórólfur Árnason borgarstjóri okkur um það, að í gangi væri könnun á veg- um Reykjavíkurborgar og mennta- málaráðuneytis á því, hvort mögu- leiki væri á því að óperan færi þarna inn. Það var athyglisvert, að hann nefndi bara borgina og ráðu- neytið í sambandi við þessa könn- un, en sleppti að nefna óperuna. Það skyldi þó ekki vera af því, að óperan hefur aldrei léð máls á því að fara með starfsemi sína þangað inn. Ástæður þess að óperan hefur engan áhuga á þessu samstarfi eru eftirfarandi: 1. Gamla bíó og Borgarleikhúsið taka álíka marga í sæti. Bæði hús- in eru of lítil til að standa undir þeim kostnaði sem er samfara óp- erusýningu. Til þess að sýning standi undir sér þarf að selja a.m.k. 800 miða. Þess vegna verð- ur tap á sýningum óperunnar það sama, án tillits til þess hvort þær eiga sér stað í Gamla bíói eða Borgarleikhúsinu. 2. Hljómburður Borgarleikhúss- ins er afleitur. Það hafa þeir leik- húsgestir sem sitja framarlega til hliðar fengið að reyna. Þar heyrast stundum ekki orðaskil nema leik- ararnir tali beint í átt til leik- húsgesta. Ef maður situr til hliðar og leikari talar beint fram í miðjan salinn er erfitt að greina orðaskil. Hvernig er þá hægt að gera ráð fyrir að söngur berist almennilega, þegar búið er að koma hljómsveit fyrir á milli sviðs og áheyrenda? 3. Hljómsveitargryfjan er ónot- hæf. Hún er of lítil. Þar er ekki hægt að koma fyrir nógu mörgum hljóðfæraleikurum fyrir stærri óp- erur. Þar að auki er hún þannig í laginu að þar er algert sam- bandsleysi á milli hljóðfæraleikara, þannig að þeir sem eru lengst til vinstri í gryfjunni hafa ekkert samband við þá sem eru lengst til hægri. Hvers vegna er þá verið að hamra á þessari þráhyggju? – Að mínu viti er þetta gert af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi er verið að reyna að drepa á dreif umræðunni um óperu í Tónlistarhúsi. – Sú um- ræða var svo sem aldrei nein um- ræða, vegna þess að við fengum aldrei neinn til andsvara, eins og áður er komið fram. Í öðru lagi er hér reynt að slá tvær flugur í einu höggi, með því að reyna að láta Ís- lensku óperuna hjálpa borginni við rekstur Borgarleikhússins. Það er líka önnur hlið á þessu máli: Ís- lenska óperan er ekki opinber stofnun. Hvorki ríki né borg hafa neinn ráðstöfunarrétt yfir henni. Þess vegna er það ekkert annað en lítilsvirðing við hana og starfsfólk hennar, þegar menntamálaráðu- neyti og Reykjavíkurborg fara að gera áætlanir um það, að henni forspurðri, að nota hana sem hækju til að leysa úr sjálfskap- arvíti Borgarleikhússins. Þetta lítur allt saman voða vel út á pappírnum. Það er bara eitt sem gleymist. Það er neytandinn. Óperuunnendur verða sviknir um að upplifa þessa stórkostlegu list- grein við þær aðstæður sem henni sæma. Þær aðstæður eru hvergi til á Íslandi eins og er. Þær eru því miður ekki fyrir hendi í Gamla bíói og enn síður í Borgarleikhúsinu. Vonandi berum við gæfu til þess að búa Óperunni þannig aðstæður í Tónlistarhúsinu að Íslenska þjóð- in geti loksins kynnst því hve stór- kostleg þessi listgrein er. Ég er ekki að biðja um þessa að- stöðu handa sjálfum mér, enda vinn ég 99% af mínu starfi erlend- is, og vísast verð ég hættur að syngja, loksins þegar húsið verður að veruleika. Ég yrði hins vegar þakklátur ef mér tækist að stuðla að því, að Íslendingar framtíðar- innar gætu fengið að njóta óperu við boðlegar aðstæður. Allir sem hafa kynnst þeirri stórkostlegu reynslu sem felst í því að upplifa óperusýningu þar sem allt gengur upp, bæði tónlist og leikur, vita að óperan verður aldrei fullkomin nema leik- og tón- list sé gert jafnhátt undir höfði. (Ég verð reyndar að játa, að fyrir mér er tónlistin mikilvægari þátt- ur.) Til að tónlistin njóti sín þurf- um við góðan hljómburð, sem von- andi verður hægt að njóta í Tónlistarhúsinu. Þess vegna dett- ur mér ekki í hug að taka undir þann orðalepp Ingibjargar Sólrún- ar, að ópera eigi meiri samleið með leikhúsi en tónlist. Þetta þvaður er Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til vansæmdar. Eftir Kristin Sigmundsson Höfundur er óperusöngvari og for- maður listráðs Íslensku óperunnar. „Óperuunn- endur verða sviknir um að upplifa þessa stórkostlegu listgrein við þær aðstæður sem henni sæma.“ Á Íslenska óperan að bjarga Borgarleikhúsinu? Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 19.950 M.v. 2 fyrir 1. Fargjald kr. 32,600/2 = 16,300. Skattar kr. 3,650, samtals kr. 19,950. Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag, þessarar fegurstu borgar Evrópu, sem hefur heillað Íslendinga með heillandi mannlífi, stórkostlegri byggingarlist og sögu sem þú upplifir á hverju horni. Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara fyrir 1 og tryggir þér frí á frábæru verði. Að auki getur þú valið um úrval góðra hótela í hjarta Prag á góðu verði. 6 dagar Munið Mastercard ferðaávísunina 2 fyrir 1 Prag 23. maí frá kr. 19.950
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.