Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ                  ! "#$                % %   %      !  ! "  #$% & '"    &   "  (  &   )     ! *( &  " +&  ! '    "   , - . '  / " ! 0 1     '  / '   & "     & '   ( 2  3!    &   " & 45)                     ! "     S SJÁLFBÆR þróun er höfð að leið- arljósi í tillögu að deiliskipulagi 2. áfanga íbúðasvæðis á Völlum í Hafn- arfirði. Gert er ráð fyrir allt að 521 íbúð í hverfinu, mestmegins í fjöl- býlishúsum. Byrjað verður að út- hluta lóðum á svæðinu í byrjun sum- ars og er áformað að uppbygging geti hafist í október næstkomandi. Tillagan var kynnt á fundum í Hafnarborg í gær, annars vegar með verktökum, hönnuðum og fasteigna- sölum og hins vegar með öðrum áhugasömum. Um er að ræða ný- byggingasvæði sunnan 1. áfanga Valla sem nú er í uppbyggingu. Í greinargerð segir að byggðin muni skipast um fallegt opið svæði sem liggi yfir hraunhrygg, hraunkant og gjótur í framhaldi af opnu svæði í 1. áfanga Valla. Þar muni einkenni hraunsins haldast og verða megin- útivistarsvæði hverfishlutans. Áformað er að í hverfinu verði 485–521 íbúð í fjölbýlishúsum, rað- húsum og einbýlishúsum. Byggðin verður þéttust vestan við hraunkant- inn en þar verða tveggja til níu hæða fjölbýlishús með 398–434 íbúðum. Austan við hraunkantinn verður byggðin smágerðari og gisnari þar sem gert er ráð fyrir 29 tveggja hæða raðhúsum eða keðjuhúsum sem tengjast saman með einnar hæðar byggingu. Enn austar verða síðan 58 einbýlishús. Segir í grein- argerðinni að þessi gisna byggð muni mynda jaðarinn við ósnortna náttúru við Grísanes og grasvelli á Haukasvæðinu. Þá er gert ráð fyrir grunnskóla fyrir 1.–10. bekk og leikskóla mið- svæðis í hverfishlutanum. Lóðir þeirra munu tengjast beint hraun- kantinum, sem verður hluti af úti- vistarsvæði skólabarnanna. Göngustígar að Ástjörn og Hvaleyrarvatni Aðkoma að hverfinu verður um Ásbraut eða Krýsuvíkurveg en þrjár safngötur koma til með að liggja frá honum og inn í hverfið. Verða safn- göturnar tengdar við Krýsuvíkur- veginn um hringtorg og er það gert til að draga úr umferðarhraða. Þá verða þrír megingöngustígar í hverfinu og liggur sá austasti þeirra að Ástjörn í norðri og Hvaleyrar- vatni í suðri. Miðstígurinn er hugs- aður sem gönguleið barna til skóla og liggur gegnum allt hverfið. Verð- ur hægt að fara eftir honum í og úr skóla nánast án þess að fara yfir um- ferðargötur. Þriðji stígurinn verður síðan vestan til í hverfinu. Sömuleið- is er gert ráð fyrir tveimur leiksvæð- um og eru aðkomur að þeim um göngustígana. Segir í greinargerðinni að leitast verði við að hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi við úrvinnslu á skipulag- inu með því að leggja áherslu á þétta byggð og styttri aksturs- og göngu- leiðir. Þá verði það gert skylt að inn- an íbúðalóða verði aðstæður til að flokka sorp. Tillagan, sem arkitektastofan Arkís hannaði, hefur þegar verið auglýst og rennur frestur til að skila inn athugasemdum vegna hennar út hinn 26. maí næstkomandi. Að sögn Hafdísar Hafliðadóttur, skipulags- stjóra í Hafnarfirði, er gert ráð fyrir að lóðir verði auglýstar til úthlutun- ar fljótlega eftir það. Þá verða gatnaframkvæmdir á svæðinu boðnar út í lok mánaðarins að sögn Helgu Stefánsdóttur, for- stöðumanns gatnadeildar Hafnar- fjarðarbæjar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist um miðjan júní og ljúki í október næstkomandi en þá geta lóðarhafar hafið uppbyggingu á svæðinu. Allt að 521 íbúð í nágrenni Ástjarnar Lóðum í 2. áfanga Valla út- hlutað í sumar Hafnarfjörður Hönnun/Arkís Gert er ráð fyrir að byggðin verði þéttust vestan við hraunkantinn sem gengur gegnum hverfið en mun gisnari austan við hann. UM 800 nemendur við Mennta- skólann við Sund óska eftir vinnu í einn dag í febrúar á næsta ári. Menntskælingarnir hyggjast síðan gefa andvirði vinnunnar, sem innt verður af hendi í tengslum við árshátíð þeirra, til menntunar fá- tækra barna í Kambódíu. Þetta verður í annað sinn sem nemendur skólans styðja við bakið á uppbygg- ingarstarfi í Kambódíu með þessum hætti. Verkefnið verður unnið í sam- vinnu við Barnaheill – Save the Children á Íslandi en síðast stóðu þessir aðilar að sambærilegu verk- efni árið 1999. Þá unnu nemendur einn dag í árshátíðarviku skólans á ýmsum stöðum í borginni og gáfu laun dagsins til barnanna í Kambódíu. Alls safnaðist ein millj- ón króna sem var nýtt til uppbygg- ingar lítilla „fljótandi“ skólahúsa – eins konar skólabáta, sem og til menntunar tveggja kennara. Að sögn Kristínar Jónasdóttur, framkvæmdastjóra Barnaheilla, hefur framlag krakkanna í MS frá 1999 haft mikið að segja fyrir kam- bódísk börn. „Rauðu Khmerarnir voru nýfarnir af þessu svæði þegar við komum og fólkið sem þarna bjó var búið að vera undir hálfgerðri ógnarstjórn í 25 ár,“ segir hún og útskýrir að meðal annars hafi menntun algerlega aflagst á þeim tíma. Heil kynslóð foreldra ómenntuð „Þarna var komin kynslóð for- eldra sem hafði ekki fengið neina menntun þannig að fólkið var meira og minna ólæst og óskrif- andi. Metnaður innfæddra var að koma af stað einhverju lágmarks- skólastarfi, þótt ekki væri nema upp að tólf ára aldri, þannig að fólk lærði að lesa og fengi grunnþekk- ingu í stærðfræði og öðrum grund- vallarnámsgreinum.“ Hún segir að þetta hafi gengið mjög vel eftir. Þannig séu 137 nem- endur í öðrum skólanum sem sé við lítið 400 manna þorp. Markmiðið með söfnuninni á næsta ári sé að halda áfram á sömu braut og setja á laggirnar svipaða starfsemi í fleiri slíkum þorpum. Kristín segir frábært að fá menntskælingana til samstarfs við samtökin. „Það er ekki verra að þetta er einnig menntun fyrir okk- ur sjálf því það getur líka verið gott að láta minna sig á hvað við erum lánsöm að mörgu leyti.“ Geta tekið til heima hjá sér Að sögn Jóns Péturs Guðmunds- sonar, ármanns Nemendafélags MS, fannst stjórn félagsins tilvalið að endurtaka leikinn frá 1999, ekki síst til að lífga upp á árshátíðarviku nemenda. „Við, sem erum í stjórn nemendafélagsins, eigum öll systk- ini sem voru í skólanum þegar þetta var gert síðast og þau láta mjög vel af þessu þannig að við ákváðum að prófa þetta.“ Hann á von á að nemendur taki vel við sér enda tali þeir oft um að koma þurfi á eins konar vettvangs- degi í skólanum. „Þetta getur kom- ið í staðinn fyrir það,“ segir hann. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að nemendafélagið reynir að útvega sem flestum nemendum vinnu en þeir sem ekki vilja fara út á vinnumarkaðinn geta styrkt verk- efnið með öðrum hætti. „Þeir geta t.d. tekið til heima hjá sér og borg- að síðan ákveðinn pening til söfn- unarinnar,“ segir Jón Pétur. Næsta árshátíð nemenda verður haldin í febrúar á næsta ári og því góður tími til stefnu til að vekja at- hygli vinnuveitenda á verkefninu. Á Jón Pétur von á að þeir taki vel við sér og ráði til sín menntskæl- inga í einn dag þegar þar að kemur. Atvinna óskast í einn dag fyrir 800 mennta- skólanema MS-ingar styrkja skólastarf í Kambódíu Sund Í skólabátunum eru kennd undirstöðufög á borð við lestur og stærðfræði en foreldrar flestra nemendanna eru alveg ómenntaðir vegna stjórnar- stefnu Rauðu Khmeranna, sem réðu ríkjum í landinu í um aldarfjórðung. Morgunblaðið/Jim Smart Jón Pétur og Kristín eru bjartsýn á að vel gangi að útvega unga fólkinu vinnu þannig að halda megi uppbyggingarstarfinu í Kambódíu áfram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.