Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 69
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 69
Tabú
(Taboo)
Spennumynd
Bandaríkin 2002. Skífan VHS/DVD.
Bönnuð innan 16 ára. (90 mín.) Leik-
stjórn Max Makowski. Aðalhlutverk Nich
Stahl, Eddie Thomas, January Jones.
ÞESSI hrollvekjandi ungmenna-
spennumynd var frumsýnd á Sund-
ance-hátíðinni 2002 og fyrirfram var
um hana fjallað eins og að hér kynni
að vera á ferð hin athyglisverðasta
ræma. En eftir frumsýninguna hvarf
áhuginn skyndilega. Hvers vegna í
ósköpunum? Jú,
einfaldlega vegna
þess að það gerð-
ist sem alltof oft
gerist, myndin
stóð engan veg-
inn undir eftir-
væntingum og
öllu hæpinu.
Markmiðin eru
háleit, ætlunin
greinilega sú að skjóta föstu skoti á sí-
fellt brenglaðri siðferðiskennd og
veruleikafirru ungs fólks sem lifir í
allsnægtum. Útkoman er hins vegar
ómerkileg, yfirborðskennd, heimsku-
leg og illa leikin unglingahrollvekja.
Talandi um tabú, þá ættu að vera til
viðurlög við gerð svona vondra
mynda.
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Algjört
tabú
KEPPNI Sovétsins sáluga og
Bandaríkjanna um sigra úti í geimn-
um er bakgrunnur þokkalegrar
blöndu gamans og alvöru. Sjöundi
áratugurinn er nýhafinn og Sovétið
að skilja Bandaríkin eftir í starthol-
unum í geimkapphlaupinu. Spútnik
og fleiri teikn á
lofti um yfir-
burðina í austri.
Í Flórída fer
þýski vísinda-
maðurinn von
Huber (Woods),
með lykilhlut-
verk í geimferða-
áætluninni, einn
nokkurra Þjóð-
verja sem unnu fyrir land sitt í síðari
heimsstyrjöldinni. Hann er jafnframt
að ná áttum í nýju landi ásamt syn-
inum Billy (Linz), sem verður fyrir
einelti í skólanum. Hagur Billys
vænkast er hann kynnist sjimpansan-
um Mac á vinnustað föður síns, en ap-
inn er í hópi fyrstu lífveranna sem
NASA hyggst senda útí geiminn.
Sögð byggð að einhverju leyti á
sönnum atburðum í tengslum við
Mercury-áætlun Bandaríkjamanna,
sem kom þeim á sigurbraut í kapp-
hlaupi sem þróaðist í áróðursstríð og
endaði með glæstum sigri vestursins
er þeir komu fyrstir mönnum til
Tunglsins. Í forgrunni er snubbótt
heimilislíf von Huber fjölskyldunnar,
karlinn stífur vísindamaður en sonur-
inn utanveltu í nýju landi, móðurlaus
og vinafár. Apinn Mac og læknirinn
Dinni (Gish), koma málunum á réttan
kjöl. Sýnir ljómandi vel hið mikilvæga
og jákvæða hlutverk sem dýrin geta
haft í lífi mannfólksins. William Dev-
ane og nafna hans Atherton bregður
fyrir í aukahlutverkum. Kapphlaupið um geiminn
(Race to Space)
Bandaríkin 2001. Myndform. VHS (104
mín.) Öllum leyfð. Leikstjóri: Sean
McNamara. Aðalleikendur: James
Woods, Alex D. Lintz, Annabeth Gish.
Fjölskyldumynd
Sæbjörn Valdimarsson
Apar, menn
og útgeimur
GÓÐAR hugmyndir eru oft
sáraeinfaldar. Þorsteinn Jónsson
kvikmyndagerðarmaður gekk á vit
skrifstofubyggingar í fæðingu,
fylgdist með hjartslætti hennar og
öðrum lífsmerkjum fram að loka-
gilli. Reyndar var húsið komið
nokkuð á veg er Þorsteinn mund-
aði tökuvélina en hann er ekki að
gera heimildarmynd fyrir bygging-
arverktakann heldur óð um bygg-
inguna og mennina sem koma að
smíðinni; verktakana, iðnaðar-
mennina og verkamennina. Á ekki
illa við að frumsýna verkið 1. maí.
Það er gaman að stússa í því-
líkum karlasamfélögum þar sem
hlutirnir eru teknir mátulega al-
varlega og forsíðufréttirnar langt
utan sjóndeildarhringsins og bestu
kaflar Við byggjum hús, tvímæla-
laust, er myndavélin og mannskap-
urinn tónar saman. Ekkert utan-
aðkomandi áreiti, engin aukahljóð,
aðeins hávaðinn frá vinnuvélum,
verkfærum masi og erli starfs-
mannanna. Það er spurning hvort
viðmælendurnir eru of margir,
með færri innanborðs hefði hugs-
anlega náðst enn betra samband
við viðfangsefnið sem er bæði fróð-
legt og áhugavert í sjálfu sér. Alls
staðar er verið að vinna og skapa,
jörðin ein iðandi mauraþúfa; hvert
og eitt samfélag á sinn sjarma og
séreinkenni – hvort sem er til sjós
eða land. Þau vara mislengi, menn
koma og fara en eiga saman stund-
ir sem þeir jafnvel minnast ævi-
langt. Þar ríkja, líkt og í frum-
skóginum, þeir sterkustu. Þannig
er byggingin við Borgartúnið e.k.
þversumma af þjóðfélaginu.
Stjórnendur, milliliðar og svo þeir
sem vinna verkið. Það hefur verið
býsna vandasamt að fella tökurnar
saman í markvissa framvindu en
það hefur tekist á viðunandi hátt,
líkt og húsið sem er, vel að
merkja, eitt það reisulegasta sem
risið hefur á höfuðborgarsvæðinu
um langa hríð.
Svona gerum við …
KVIKMYNDIR
Háskólabíó Stutt- og heimilda-
myndahátíð
Höfundur, klipping og hljóðvinnsla:
Þorsteinn Jónsson. 43 mínútur.
Kvikmynd. Ísland 2003.
VIÐ BYGGJUM HÚS Sæbjörn Valdimarsson
áfram Ísland
xd.is
Komdu í heimsókn
Gu›laugur fiór
fiór›arson
Helga
Gu›mundsdóttir
Sólveig G.
Pétursdóttir
Lára Margrét
Ragnarsdóttir
Vilhjálmur fi.
Vilhjálmsson
Kolbrún
Baldursdóttir
Helga ÁrnadóttirGeir H. Haarde
Katrín Fjeldsted Pétur H. Blöndal Birgir
Ármannsson
Gu›rún Inga
Ingólfsdóttir
Ingvi Hrafn
Óskarsson
Vernhar›
Gu›nason
Lilja StefánsdóttirGu›mundur
Hallvar›sson
Björn Bjarnason Daví› OddssonSigur›ur Kári
Kristjánsson
Ásta Möller Soffía Kristín
fiór›ardóttir
Au›ur Björk
Gu›mundsdóttir
Vilborg Anna
Árnadóttir
Jóna Lárusdóttir
Sjálfstæ›isfélögin í Reykjavík eru me› opnar kosningaskrifstofur um allan bæ.
Kíktu í kaffi og spjall vi› frambjó›endur. Allir velkomnir.
Vilt flú leggja Sjálfstæ›isflokknum li›?
Saman vinnum vi› sigur!
Sjálfstæ›isflokkurinn í Reykjavík óskar eftir sjálfbo›ali›um til margvíslegra starfa daginn fyrir kjördag og
á kjördag. Allir sem eru rei›ubúnir a› hjálpa til eru hvattir til a› hafa samband vi› kosningaskrifstofurnar
e›a skrifstofu Sjálfstæ›isflokksins í síma 515 1700.
Kosningaskrifstofan, Austurstræti – Sími 551 1294
Kosningaskrifstofan, Hjar›arhaga 47 – Sími 551 1306
Kosningaskrifstofan, Miklubraut 68 – Sími 561 1500
Kosningaskrifstofan, Glæsibæ – Sími 553 1559
Kosningaskrifstofan, Hraunbæ 102b – Sími 567 4011
Kosningaskrifstofan, Álfabakka 14a – Sími 557 2576
Kosningaskrifstofan, Hverafold 1–3 – Sími 557 2631
Frambjó›endur Sjálfstæ›isflokksins í Reykjavík