Morgunblaðið - 01.06.2003, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 33
staðlar og auðskiljanlegar reglur sem skilgreina
hvernig kerfið eigi að starfa. Ef markaðir eiga að
geta starfað verða að vera til staðar leiðtogar er
skilja mikilvægi heiðarleika og byggja upp
traust í garð starfsmanna sinna, stofnana sinna
og þess samfélags og þjóðfélags í heild sem þeir
eru hluti af.“
Clark segir að uppsveiflan í lok tíunda ára-
tugarins og byrjun ársins 2000 hafi ýtt undir
svik og pretti og gefið skemmdu eplunum byr
undir báða vængi. Það verði að finna þau og
grípa til viðeigandi aðgerða. Rætur vandans séu
hins vegar djúpstæðari. Mikið af góðu fólki hafi
staðið frammi fyrir hættulegum freistingum.
Sem betur fer hafi ekki allir fallið fyrir þeim. Það
sé greinilega mikið af heilbrigðum eplum í kass-
anum en hins vegar jafnframt ljóst að allt of
margir hafi farið yfir of margar markalínur.
„Eftir því sem heimurinn verður flóknari og
gráu svæðin fyrirferðarmeiri verður að styrkja
heiðarleika einstaklingsins. Við höfum þörf fyrir
leiðtoga sem eru reiðubúnir að standa á grund-
vallaratriðum með ákveðnar reglur að leiðarljósi
þrátt fyrir að til staðar sé ríkur peningalegur
hvati til að gera það ekki. Við þurfum mikið af
slíku fólki í kerfinu. Það felst kannski ákveðin
þversögn í því að til að markaðskerfi geti starfað
á skilvirkan hátt er þörf á fjölmörgum einstak-
lingum sem láta markaðinn ekki stjórna hegðun
sinni og gjörðum heldur treysta á þær grund-
vallarreglur sem tryggja starfsemi markaðar-
ins.“
Lausnina telur Clark felast annars vegar í því
að reyna að draga úr hagsmunaárekstrum í kerf-
inu og hins vegar að styrkja grundvallarreglur
og eftirlitsstofnanir. Þegar upp er staðið verði
vandinn ekki leystur á þinginu eða í eftirlits-
stofnunum. Slíkar stofnanir séu mikilvægar en
þær leysi ekki vandann. Lausnin verði ekki síst
að koma frá stjórnarherbergjum, forstjóraskrif-
stofum og fundarherbergjum um landið allt.
Hana sé einnig að finna í kennslustofum við-
skiptaháskóla. Það sé mikilvægt að leggja aukna
áherslu á heiðarleika þeirra er gegna forystu-
hlutverki í viðskiptalífinu.
Samviska
kapítalismans
Á árlegum fundi
World Economic
Forum í Davos voru
þessi mál einnig eitt
af aðalumræðuefnunum. Í tímariti WEF, Global
Agenda, rituðu nokkrir áhrifamenn í efnahagslífi
heimsins greinar þar sem þeir veltu fyrir sér
hvernig hægt væri að byggja upp traust á við-
skipta- og fjármálalífinu á nýjan leik.
Í grein sem Donald Evans, viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna, ritar í Global Agenda vitnar
hann í orð George W. Bush Bandaríkjaforseta í
kjölfar hneykslismálanna: „Til lengri tíma litið
verður ekki til kapítalismi án samvisku og eng-
inn auður án atgervis.“
Evans segir þetta liggja í augum uppi. Fjár-
festar muni ekki treysta fjármálamörkuðum fyr-
ir fjármagni sínu ef þeir telja að fyrirtækin séu
að reyna að blekkja þá. Hann segir að stjórn-
endur fyrirtækja beri ríka ábyrgð. „Forstjórar
eru ekki einungis ráðsmenn einstakra fyrir-
tækja. Þeir eru ráðsmenn sjálfs kapítalismans.
Sem ráðsmönnum ber þeim ekki einungis að
vernda frelsi og sýn kapítalismans á líðandi
stundu, þeim ber einnig að vernda framtíðar-
frelsi komandi kynslóða athafnamanna, fjárfesta
og samfélagsins sjálfs.“
Evans segir að framtíð frjálsra markaða sé í
höndum þeirra sem sem ráði nú för í kerfinu og
annaðhvort beiti eða misbeiti því frelsi sem þeir
hafa.
Fleiri sem rita í tímaritið leggja einnig ríka
áherslu á mikilvægi þess að einstaklingar er fara
með forystu í viðskiptalífinu sýni gott fordæmi
og séu leiðarljós annarra í siðferðilegum efnum.
Fleiri atriði eru þó nefnd til úrbóta. Þannig telur
Jeffrey Garten, rektor viðskiptaháskóla Yale, að
nauðsynlegt sé að draga úr þeim þrýstingi sem
er á fyrirtæki að skila jákvæðri afkomu á hverj-
um ársfjórðungi. Hverfa verði frá slíkum
skammtímasjónarmiðum og móta þess í stað
stefnu til lengri tíma. Varpar hann fram þeirri
hugmynd að skattleggja skammtímahagnað í
auknum mæli en draga verulega úr eða afnema
skattlagningu á hlutabréfum sem fjárfestar eiga
í langan tíma. Þá telur hann brýnt að endur-
skoða launakerfi forstjóra og þá ekki síst kaup-
réttarsamninga á hlutabréfum. Ekkert sé at-
hugavert við að umbuna farsælum stjórnendum
en stundum virðist sem umbunin sé í engu sam-
ræmi við afkomu fyrirtækjanna.
Evrópa er ekki
ónæm
Umræður sem þessar
hafa að miklu leyti
verið bundnar við
Bandaríkin. Þær eiga
engu að síður ríkt erindi til Evrópu. Að undan-
förnu hefur hvert málið á fætur öðru komið upp í
Evrópu þar sem stjórnendur hafa sofnað á verð-
inum eða beinlínis blekkt fjárfesta. Má nefna
dæmi á borð við Vivendi, Elan Corporation,
Deutsche Telekom og Royah Ahold.
Í nýlegu hefti tímaritsins Business Week segir
að breytt eignarhald valdi því að fyrirtæki séu
undir vaxandi þrýstingi um að bæta ráð sitt.
Meðal annars séu bandarískir lífeyrissjóðir farn-
ir að taka höndum saman við evrópska sjóði til
að krefjast úrbóta.
Það má búast við því að á næstu árum verði
umræður um viðskipti og siðferði í viðskiptum
fyrirferðarmiklar.
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn er ungur og
að mörgu leyti óþroskaður. Hann lýtur hins veg-
ar sömu lögmálum og markaðir almennt og til
lengri tíma litið mun hann ekki vaxa og dafna án
þess að fjárfestar, stórir sem smáir, hafi trú á
honum og treysti þeim upplýsingum sem fyrir-
tæki á markaði veita. Viðskiptalífið á ekki að
forðast slíkar umræður heldur fagna þeim og
eiga frumkvæði að því að þær fari fram.
Morgunblaðið/Kristinn
Veiðimenn í vitanum við innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn.
„Íslenski hlutabréfa-
markaðurinn er
ungur og að mörgu
leyti óþroskaður.
Hann lýtur hins veg-
ar sömu lögmálum
og markaðir al-
mennt og til lengri
tíma litið mun hann
ekki vaxa og dafna
án þess að fjár-
festar, stórir sem
smáir, hafi trú á
honum og treysti
þeim upplýsingum
sem fyrirtæki á
markaði veita. Við-
skiptalífið á ekki að
forðast slíkar um-
ræður heldur fagna
þeim og eiga frum-
kvæði að því að þær
fari fram.“
Laugardagur 31. maí