Morgunblaðið - 01.06.2003, Page 37

Morgunblaðið - 01.06.2003, Page 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 37 *6 svefnherbergi *3 stofur *3 salerni *vaskahús * búr *geymslur. *Nýlegt mahogny parket á flestum gólfum, flísar á baðherbergi. *Möguleiki á að breyta kjallara í séríbúð eða nýta í atv.rekstur. *Húsið byggt úr bestu fáanlegri steinsteypu, allt viðhald 100%. *Verð 36 millj. *Gullfallegt Pallabyggt einbýli í grónu hverfi í miðri Reykjavík. RAUÐAGERÐI 49 OPIÐ HÚS Halldór G. Meyer sölufulltrúi Remax Sýnir eignina í dag á milli kl. 14-16 eða eftir pöntunum í 864-0108 Suðurlandsbraut Hrafnhildur Bridde Lögg. fasteignasali VESTURGATA - TRYGGVAGATA Opið mán.-fös. frá kl. 9-18, lau. frá kl. 11-14. Allar eignir á netinu: www.midborg.is Allar Naustseignirnar við Vesturgötu og Tryggvagötu, samtals u.þ.b. 2.040 fm að stærð. Eignirnar skiptast í: veitingahúsið Naustið með búnaði, tvö hús við Vesturgötu og hús við Tryggvagötu. Heildarlóðin liggur milli Vesturgötu og Tryggva- götu. Í deiliskipulagi er gert ráð fyrir u.þ.b. 3.000 fm byggingarrétti. Um er að ræða eignir sem eru vel staðsettar í miðbæ Reykjavíkur og þjóðþekktar. Nálægðin við bæði höfnina og miðbæinn, með möguleika að byggja hvort sem er aukið rými fyrir veitingarekstur, hótel, íbúðir eða verslanir, gerir þetta að einum besta fjárfestingar- kostinum í dag, bæði fyrir fjárfesta og byggingaverktaka. Eignirnar eru í góðu ástandi og í útleigu. 4036 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri. hdl., lögg. fastsali. • Karl Georg, hrl.,lögg. fastsali. Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. OPIÐ HÚS Í DAG HELLISGATA 29 - HAFNARFIRÐI Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali Erum með til sýnis í dag þetta reisulega 206 fm einbýli/tvíbýli á frábærum stað rétt hjá Víðistaðatúninu. Um er að ræða tvílyft hús ásamt risi og innbyggðum bíl- skúr. Húsið skiptist þannig að á jarð- hæð er samþykkt sér 59,5 fm íbúð ásamt 20 fm bílskúr. Á efri hæðinni er svo 98,5 fm íbúð ásamt 27 fm í risi. Húsið selst í einu lagi þó að um sé að ræða tvær samþykktar íbúðir. Allt al- mennt ástand er gott og hefur húsið fengið gott viðhald. Á aðalhæðinni eru tvær stofur og tvö herbergi, eldhús og bað ásamt tveimur herbergjum og baði í risinu. Út úr stofunni er sólpallur með stiga niður í fallegan garð frá náttúrunnar hendi með fal- legu hrauni. Jarðhæðin skiptist í hol, stofu, herbergi og eldhús, ásamt saml. þvotta- húsi. ÁHV. 11,9 MILLJ. HÚSBRÉF. (HÆGT AÐ BÆTA HÚSBRÉFUM VIÐ) ÁSAMT LÍFSJ. 3,8 MILLJ. VERÐ 24,9 MILLJ. Margrét tekur á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14 og 16. UMHVERFISMÁLIN koma öll- um við og það er því mikið hags- munamál að umræða um valkosti í umhverfismálum sé málefnaleg, upplýst og almenn. Það er vandfundinn mála- flokkur í íslenskri stjórnsýslu sem byggist með eins ríkum hætti á sam- ráði við almenning og þar sem al- menningi gefst með eins beinum hætti tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áð- ur en ákvarðanir eru teknar. Skýr- asta dæmið um þetta eru lögin um mat á umhverfisáhrifum sem skapa farveg fyrir aðkomu almennings, hagsmunaðaðila og samtaka þeirra. Það er því forsenda fyrir farsælli þróun í umhverfismálum að al- menningur sé virkur í umræðunni og að starfandi séu öflug lýðræð- isleg félagasamtök sem láta um- hverfismál til sín taka. Málflutningur Steingríms J. á villigötum Umhverfisráðuneytið hefur lagt áherslu á það að efla starf samtaka á umhverfissviði og gerði fyrir rúmum tveimur árum samstarfs- saming við ellefu félög og tvö hafa bæst við síðan. Markmið þessa samstarfs er að efla almenna um- ræðu um umhverfisvernd og að auka þátttöku í henni. Haldnir eru reglulegir samráðsfundir með fé- lögunum. Á sama tíma hefur ráðu- neytið fjórfaldað árlegan fjárhags- stuðning sinn við félagasamtök á umhverfissviði. Það fjármagn renn- ur til almenns rekstrar og tiltek- inna verkefna. Á þessu ári og því síðasta hefur ráðuneytið haft 8 milljónir króna til ráðstöfunar á ári til þess að styrkja verkefni og rekstur frjálsra umhverfissamtaka. Þannig hafa t.d. heildarframlög ráðuneytisins til Landverndar átt- faldast frá árinu 2001 og nema nú tæplega 4 millj. kr. Framlög til Náttúruverndarsamtaka Íslands hafa nærri fjórfaldast á sama tíma og nema þau í ár 1,8 millj. kr. Bæði styrkir til rekstrar sem og til verkefna umhverfissamtaka hafa því stórhækkað. Það er því alrangt að umhverfissamtök hafi ekki feng- ið aukið fé til rekstrar eins og Steingrímur J. Sigfússon heldur fram í grein í Morgunblaðinu 26. maí sl. Það er mér nokkurt áhyggjuefni að stærstu umhverfissamtökin eigi í rekstrarerfiðleikum. Hið opinbera mun halda áfram að styðja við starfsemi þessara samtaka en slík- ur stuðningur getur ekki komið í stað almennrar þátttöku. Árósasamningurinn kallar á lagabreytingar Fyrir tveimur árum var lögð fyr- ir Alþingi tillaga til þingsályktunar um fullgildingu Árósasamningsins um aðgang að upplýsingum, þátt- töku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Það var mat umhverfisráðuneytisins að fullgild- ing samningsins kallaði ekki á lagabreytingar hér á landi. Við nánari skoðun kom hins vegar hið gagnstæða í ljós og þingsályktun- artillagan náði því ekki fram að ganga. Óformlegur starfshópur þriggja ráðuneyta hefur verið að skoða stöðu Árósasamningsins gagnvart íslenskum lögum til að greina til hvaða sértæku lagasetn- ingar kunni að koma til að leysa málið. Sú fullyrðing Steingríms J. í fyrrnefndri grein að íslensk stjórn- völd hafi brugðist í þessum efnum er því mjög langsótt. Þátttaka almennings er mikilvæg Eðlilega verða stjórnvöld stund- um fyrir gagnrýni bæði af hálfu frjálsra félagasamtaka og ein- staklinga í samfélaginu. Sú gagn- rýni sem fram hefur komið hjá Steingrími J. Sigfússyni alþing- smanni um að umhverfisráðuneytið hafi ekki aukið rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka er ómál- efnaleg og óréttmæt. Lýðræðisleg umræða um um- hverfismál og náttúruvernd er for- senda árangurs í umhverfismálum. Í því sambandi er hlutverk fé- lagasamtaka afar mikilvægt sem og samstarf þeirra við umhverfis- ráðuneytið. Í sameiningu getum við stuðlað að málefnalegri og upp- lýstri umræðu um umhverfismál og náð árangri. Stuðningur við félagasamtök hefur aukist Eftir Siv Friðleifsdóttur Höfundur er umhverfisráðherra. Mörkinni 3, sími 588 0640. Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15 Brúðkaupsgjafir Br úð ar gj af al is ta r www.casa.is alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.