Morgunblaðið - 01.06.2003, Qupperneq 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 39
Opið hús í dag á milli kl. 15 og
17. Sérlega glæsileg algjörlega
endurnýjuð ca 127 fm 4ra her-
bergja sérhæð (jarðhæð). Ný
eldhúsinnr. og tæki. Nýtt flísal.
baðherbergi. Nýtt parket og
flísar. Nýtt rafmagn, lagt fyrir
síma og sjónvarpi í öllum herb.
Íbúðin er nýmáluð.
Borgarfasteignir,
Hlíðarsmárla 9, 201 Kóavogi
Sölumaður frá Borgarfasteignum
verður á staðnum.
Símar 896 2340 eða 561 4270.
Sólheimar 8
Opið hús í dag milli kl. 15-17
OPIÐ HÚS - KLUKKURIMI 65
Heimilisfang: Klukkurimi 65
Stærð eignar: 89 fm
Stærð bílskúrs: Nei
Brunabótamat: 9,7 millj
Byggingarár: 1993
Áhvílandi: 6 millj
Verð: 10,9 millj.
Falleg 3ja herbergja íbúð á góðum
stað í Grafavoginum. Nálægt í alla
þjónustu, leikskóla, grunnskóla og
fjölbrautaskóla. Íbúðin er laus
Tekið á móti gestum milli
kl. 15 -16.30
Andri Björgvin Arnþórsson
846 0991 / 590 9508
andri@remax.is
Sigurbjörn Skarphéðinsson
lögg. fasteignasali
Til sölu glæsilegur 75 fm sumarbústað-
ur, sem stendur á 5.850 fm kjarrivöxnu
eignarlandi. 3 svefnherbergi. Sólstofa.
Ca 100 fm verönd. Í bústaðnum er raf-
magn og kalt vatn, einnig heitt vatn hit-
að með hitatúpu. Bústaðurinn er á
mjög fallegum stað í Borgarfirði.
Glæsilegt útsýni til allra átta. Aðeins 12
km frá Borgarnesi. Stutt í sund, golf og
veiði. Húsið er allt hið vandaðsta.
Verð 8,5 millj.
Kristín Davíðsdóttir í síma 695 2105
vísar veginn og sýnir.
Sími 568 5556
SUMARBÚSTAÐUR VIÐ LANGÁ
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG,
Á MILLI KL. 14 OG 18
NÝR hökull var vígður til notk-
unar í Stafkirkjunni á Heimaey á
dögunum ásamt stólu. Hökull og
stóla eru hluti af skrúða prestsins
sem annast helgihaldið í kirkj-
unni.
Stærsti gefandi þessa veglega
skrúða er Hitaveita Suðurnesja.
Óhætt er að segja að með þessari
góðu gjöf hafi Stafkirkjunni bæst
enn einn dýrgripurinn og list-
munur um leið.
Hökullinn og stólan eru unnin
af Leifi Breiðfjörð og Sigríði Jó-
hannsdóttur árið 2002–3 og af-
hent kirkjunni við messu laug-
ardaginn 25. maí sl.
Þegar hökullinn og stólan voru
teiknuð var mynd á altari kirkj-
unnar höfð til hliðsjónar. Þessi
mynd er svokölluð fyrirbrík, þ.e.
altarismyndin er framan á alt-
arinu en ekki ofan á því eða fyrir
ofan altarið eins og síðar varð al-
gengasti siður í kirkjum. Á fyr-
irbríkinni eru myndir af þáttum
úr helgisögninni um Ólaf helga
Noregskonung. Tákn á kirtli
Ólafs helga á miðri myndinni var
valið sem fyrirmynd að tákni
framan á höklinum. Fjórblaða-
form er í kringum tákn guð-
spjallamannanna á myndinni og
var það valið sem fyrirmynd að
táknum á baki hökulsins, ásamt
rétthyrndu tígulformi. Snið á
höklinum er að grunni til frá
gömlum hökli, sem var í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík, en sniðinu
er breytt til að aðlaga það Staf-
kirkjunni. Bogasnið neðan á hökl-
inum er það sama og á dyraboga
yfir inngangi í kór kirkjunnar og
í dyraboga kirkjudyranna. Stóla
biskups á altarismyndinni er fyr-
irmynd að sniði stólunnar. Hún
er frekar mjó en neðst breikkar
hún út líkt og þekkt er af fornum
myndum og gerð elstu stóla sem
varðveittar eru á Þjóðminjasafni.
Rauður og gylltur litur á efni í
hökli og stólu er sóttur í liti
kirtla og klæða helgra manna í
altarismyndinni. Þrjár myndir
eru á bakhlið. Efst er höndin
tákn föður, lambið tákn sonar og
dúfan tákn heilags anda.
Fyrirbríkin er talin vera frá
Ljósmynd/Leifur Breiðfjörð
Sr. Kristján Björnsson, formaður Stafkirkjunnar, mátar hér nýja hökulinn
upp við altarið.
Nýr hökull
og stóla í
Stafkirkjuna á
Heimaey
því um 1320–30. Hún er nú varð-
veitt á minjasafni í Þrándheimi í
Noregi enda er hún sögð hafa
komið „frá kirkju Þrándheims ár-
ið 1691 til minjasafns í Kaup-
mannahöfn“. Myndin hefur verið
rannsökuð ítarlega og var það
ástæða þess að hægt var að gera
mjög nákvæma eftirmynd af þess-
ari fornu mynd. Fornminja-
stofnun Noregs annaðist það og
það var svo Norska kirkjan sem
gaf eftirmyndina sem þjóðargjöf
til Íslands þegar Stafkirkjan var
afhent sumarið 2000 í Vest-
mannaeyjum.
Öll sú mikla þjóðargjöf, Staf-
kirkjan og umbúnaður, var í til-
efni þess að 1000 ár voru þá liðin
frá kristnitöku Íslendinga og
komu þeirra Hjalta Skeggjasonar
og Gissurar hvíta til Eyja með
kirkjuvið í fyrstu kirkju kristni-
tökunnar á Íslandi sama ár.
Formaður Stafkirkjunnar á
Heimaey er sr. Kristján Björns-
son, sóknarprestur Landakirkju,
og skrýddist hann hinum nýja
hökli við messuna og þjónaði fyr-
ir altari ásamt öðrum presti
Landakirkju, sr. Þorvaldi Víð-
issyni.
Mikið er um heimsóknir í kirkj-
una og oft hafa verið haldnar
helgistundir fyrir hópa ef óskað
er eftir því. Kirkjan verður opin í
sumar og fylgir það afgreiðslu-
tíma Landlystar á Skansasvæð-
inu.
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Fé-
lagsvist á morgun í Setrinu kl. 13.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9-17 í síma
587 9070.
Lágafellskirkja. Bænastund á
mánudagskvöldum í Lágafellskirkju
kl. 19.30.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld
sunnudag kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma að
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti
601. Samkoma kl. 14. Ræðumaður
Helga R. Ármannsdóttir. Lofgjörð og
fyrirbænir. Nú er vetrarstarfi barna-
starfs lokið en í sumar verður þó
gæsla fyrir 1-7 ára börn á samkomu-
tíma. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir velkomnir.
Vegurinn. Kennsla um trú kl. 10,
Jón Gunnar Sigurjónsson kennir.
Bænastund kl. 16. Samkoma kl.
16.30. Högni Valsson predikar,
gestir frá YWAM í Færeyjum taka til
máls. Lofgjörð, fyrirbænir, sam-
félag. Allir hjartanlega velkomnir.
Fíladelfía. Sunnudagur 1. júní:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Vörður Leví Traustason. Almenn
samkoma kl.20. Ræðumaður Ester
Jacobsen. Gospelkór Fíladelfíu sér
um lofgjörðartónlistina. Allir hjartan-
lega velkomnir. Miðvikud. 4. júní:
Mömmumorgun kl.10. Fimmtud. 5.
júní: Eldur unga fólksins kl.21. Allir
hjartanlega velkomnir. Föstud. 6.
júní: Unglingasamkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir. filadelfia@gospel.is
Safnaðarstarf