Morgunblaðið - 01.06.2003, Qupperneq 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Arina Arctica, Brúar-
foss og Danica Hav
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Richmond Park kemur
í dag.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1, Hvassaleiti
56–58 og Hæð-
argarður 31. Farin
verður bæjarferð 5.
júní nk. Ekið verður
um nýjustu hverfin.
Kaffiveitingar á Korp-
úlfsstöðum. Leið-
sögumaður verður
Tómas Einarsson.
Skráning í Norðurbrún
í s. 568 6960, í Furu-
gerði í s. 553 6040, í
Hvassaleiti í s.
535 2720 og í Hæð-
argarði í s. 568 3132.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið er opnað kl. 9
á mánudögum og
fimmtudögum og kl.
13.30 til 17 alla virka
daga.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á morgun kl.
9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. tréút-
skurður, frá hádegi
spilasalur opinn, kl.
15.15 dans. Veitingar í
Kaffi Bergi. Allar upp-
lýsingar um starfsem-
ina á staðnum og í síma
575 7720.
Aglow Reykjavík.
Mánudaginn 2. júní
verður fundur í Skip-
holti 70, efri hæð.
Hefst fundurinn kl. 20,
með kaffiveitingum.
Gestur fundarins er sr.
María Ágústsdóttir.
Þessi fundur verður sá
síðasti fyrir sumarfrí.
Allar konur velkomn-
ar.
Minningarkort
Minningarkort Hjarta-
verndar, fást á eft-
irtöldum stöðum í
Reykjavík: Skrifstofu
Hjartaverndar, Holta-
smára 1, 201 Kópavogi,
s. 535 1825. Gíró og
greiðslukort. Dval-
arheimili aldraðra
Lönguhlíð, Garðs
Apóteki, Sogavegi 108,
Árbæjar Apóteki,
Hraunbæ 102a, Bókbæ
í Glæsibæ, Álfheimum
74, Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, Bóka-
búðinni Grímsbæ v/
Bústaðaveg, Bókabúð-
inni Emblu, Völvufelli
21, Bókabúð Graf-
arvogs, Hverafold 1–3.
Minningarkort Hjarta-
verndar, fást á eft-
irtöldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavog-
ur: Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10,
Keflavík: Apótek
Keflavíkur, Suðurgötu
2, Landsbankinn,
Hafnargötu 55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Vesturlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borg-
arnes: Dalbrún, Bráka-
braut 3. Grund-
arfjörður: Hrannarbúð
sf., Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silf-
urgötu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Að-
alstræti 18. Stranda-
sýsla: Ásdís Guð-
mundsd., Laugarholti,
Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Austurlandi: Egils-
staðir: Gallery Ugla,
Miðvangur 5. Eski-
fjörður: Póstur og s.,
Strandgötu 55. Höfn:
Vilborg Einarsdóttir,
Hafnarbraut 37.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Norðurlandi: Ólafs-
fjörður: Blóm og gjafa-
vörur, Aðalgötu 7.
Hvammstangi: Versl-
unin Hlín, Hvamms-
tangabraut 28. Ak-
ureyri: Bókabúð
Jónasar, Hafnarstræti
108, Möppudýrin,
Sunnuhlíð 12c. Mý-
vatnssveit: Pósthúsið í
Reykjahlíð. Húsavík:
Blómasetrið, Héðins-
braut 1. Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Péturs-
dóttur, Ásgötu 5.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á Suð-
urlandi:
Vestmannaeyjar: Apó-
tek Vestmannaeyja,
Vestmannabraut 24.
Selfoss: Selfoss Apó-
tek, Kjarninn.
Minningarkort
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeon-
félagsins er að finna í
anddyrum eða
safnaðarheimilum
flestra kirkna á
landinu, í Kirkjuhús-
inu, á skrifstofu
KFUM&K og víðar.
Þau eru einnig af-
greidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14–16 eða í
síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á
Nýja testamentum
sem gefin verða 10 ára
skólabörnum eða kom-
ið fyrir á sjúkrahúsum,
hjúkrunarheimilum,
hótelum, fangelsum og
víðar.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), sími
588 8899.
Í dag er sunnudagur 1. júní, 152.
dagur ársins 2003. Sjómannadag-
urinn. Orð dagsins: Sérhver
sem fer of langt og er ekki stöð-
ugur í kenningu Krists, hefur
ekki Guð. Sá sem er stöðugur í
kenningunni, hann hefur bæði
föðurinn og soninn.
(2. Jóh. 9.-10.)
Fjölmargir halda útisvokölluðum blogg-
síðum á vefnum og sum-
ir ræða á þeim um
stjórnmál. Matthías Ás-
geirsson, forritari,
fjallar um nýjan pistil
Katrínar Jakobsdóttur á
Múrnum, um þá ákvörð-
un að hætta útgáfu
Tímarits Máls og menn-
ingar, TMM.
Matthías byrjar á aðvitna í pistil Katr-
ínar: „En af hverju á að
hætta með TMM? Jú,
það skilar ekki hagnaði.
Áhrif þess að hleypa
kapítalismanum inn á
þetta svið eru augljós.
Það skiptir engu máli
hversu gott blaðið hefur
verið og hve mikla um-
ræðu ólíkar greinar
hafa vakið – en það hafa
þær svo sannarlega
gert. Menningarlegt og
andlegt gildi blaðsins er
með öðrum orðum að
engu haft. Það eina sem
skiptir máli er gullið í
vösum eigendanna.“
Þessu svarar hannsvona: „Ef blaðið er
svona gott og merkilegt,
hvernig stendur þá á því
að ekki fleiri hafa verið
tilbúnir að greiða fyrir
aðgang að efni blaðsins?
Ég játa það hér og nú
að ég hef flett þessu
blaði ef ég hef rekist á
það. Það sama gildir
reyndar um Séð og
heyrt.“
Aftur vitnar Matthíasbeint í pistilinn:
„Einhvern veginn fóru
gömlu forlögin að því að
halda sér á floti en reka
samt metnaðarfulla út-
gáfu. Kannski var
minna lagt í húsbúnað
og flottheit. Önnur há-
leitari markmið réðu
ferðinni.“ Styrkir frá
Ráðstjórnarríkjunum?
Styrkir frá BNA. Getur
verið að þessi háleitari
markmið hafi verið póli-
tísk að einhverju leyti?
Af hverju eiga þeir sem
er nokkuð sama um
menningu að bera
kostnaðinn við útgáfu
TMM?“ spyr Matthías.
Hann spyr einnighvort þeir sem hafi
svona mikinn áhuga á
menningu geti ekki ein-
faldlega gerst áskrif-
endur að tímaritinu.
Er virkilega til of mik-ils mælst? Nei, væl-
um frekar út í vondu
kapítalistana sem gáfu
blaðið út fyrir eigið fé
og töpuðu á því.
Skömmum þá fyrir að
vera ekki tilbúnir til að
tapa meira fé.
Er þetta ekki kjöriðtækifæri fyrir fram-
taksama múrverja að
hella sér út í útgáfu?
Geta þeir ekki farið út í
að sannfæra menning-
arvitana um að það væri
við hæfi að greiða eitt-
hvað örlítið fyrir að-
gang að þessu efni?“
spyr Matthías Ásgeirs-
son forritari að lokum.
STAKSTEINAR
Er menningin afskipt á
frjálsum markaði?
Víkverji skrifar...
EFTIR alþingiskosningarnar 10.maí mátti heyra á mörgum að
þeir væru sigurvegarar kosning-
anna þó svo að þeir hefðu ekki náð
takmarki sínu.
Já, ef menn fagna ekki sigri –
fagna þeir varnarsigri. Víkverji er
afar ánægður með þetta munstur.
Ef farið er eftir því standa
yfirleitt allir uppi sem sigurveg-
arar, fáir hafa þurft að játa sig
sigraða. Allir eru ánægðir og sátt-
ir við sitt.
x x x
VÍKVERJI telur þó að einn hafikomið, séð og sigrað, þó að
hann vilji ekki gera lítið úr öðrum
sigurvegurum. Að mati Víkverja
er það Dagný Jónsdóttir, formað-
ur Félags ungra framsókn-
armanna og nýr þingmaður úr
Norðausturkjördæmi. Hún sá sér
þann leik á borði við þingsetningu
Alþingis að mæta klædd fögrum
upphlut, sem upphaflega var í eigu
langömmu hennar og nöfnu, Dag-
nýjar Einarsdóttur (1901–1968).
x x x
ÞAÐ var ekki í fyrsta skipti semVíkverji varð heillaður af
framkomu Dagnýjar Jónsdóttur.
Hún kom fram í Kastljósi í janúar
sl., þar sem hún skákaði kunnum
skemmtikröftum eins og Ómari
Ragnarssyni og Arnari Jónssyni,
leikaranum góðkunna, sem sátu
við hlið hennar.
Dagný upplýsti í þættinum að
hún væri félagi í drykkjumanna-
félagi í heimabyggð sinni og það
þótt hún bragði ekki áfengi – og
hefði aldrei gert. Hún gegnir afar
þýðingarmiklu starfi í félaginu
sem birgðavörður og sagði að hún
réði ferðinni – sæi um kostinn og
kæmi honum út þegar við ætti, en
lokaði birgðageymslu þegar full-
langt væri gengið.
Víkverji skrifaði þá:
Víkverji er þeirrar skoðunar að
Dagný eigi bjarta framtíð fyrir sér
og ef Framsóknarflokkurinn verð-
ur áfram í ríkisstjórn, eigi Dagný
að vera birgðavörður í hinum
ýmsu málaflokkum. Ekki veitir af.
x x x
DAGNÝ er komin á þing – ogþar sem Framsóknarflokk-
urinn er áfram í ríkisstjórn, er
tækifærið komið, að stofna nýtt
embætti – starf birgðavarðar.
Morgunblaðið/Sverrir
Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands heilsar Dagnýju við setningu Alþingis.
Fásinna
FORSETAEMBÆTTIÐ
er þarflaust með öllu. Þykir
mér það hin mesta fásinna
að skattpeningum borgar-
anna sé varið í ferðalög for-
setans og föruneytis hans
til fjarlægra landa. Á með-
an sveltur lýðurinn. Það er
engin þörf á því að mikið
þurfi að bera á svo fá-
mennri þjóð sem við Ís-
lendingar erum. Öðrum
þjóðum þykir við eflaust
vera að setja upp skrípa-
leik.
Kona.
Þakkir fyrir
veitta aðstoð
91 ÁRS gömul þýsk kona
vildi koma á framfæri
þökkum fyrir veitta hjálp
hinn 27. maí sl. Þá féll hún
við á Laugaveginum og
fjórar ókunnugar mann-
eskjur komu henni til hjálp-
ar, færðu hana til sætis og
kölluðu til lögreglu. Lög-
reglan keyrði hana heim.
Konan var mjög snortin
og hrærð yfir þeirri miklu
hjálp sem hún fékk frá
ókunnu fólki og lögregl-
unni. Kann hún þeim bestu
þakkir fyrir.
Erika Guðjónsson.
Efamol, góð
hjálp við ofvirkni
FYRIR liðlega tveimur ár-
um greindist dóttir mín, þá
6 ára gömul, með ofvirkni
og athyglisbrest. Skömmu
eftir greininguna las ég að
bætiefnið efamol væri ráð-
lagt við þessu. Ég ákvað að
prufa þetta frekar en gefa
henni ritalin og reyndist
það mjög vel, hún hefur
verið laus við erfið einkenni
þessa sjúkdóms. Ég hef í
seinni tíð reyndar líka gefið
henni B-súper og omega-3.
Svo gerist það í upphafi
þessa árs að efamol er ófá-
anlegt og fæ ég þær skýr-
ingar hjá Heilsuhúsinu,
sem selur efnið, að af-
greiðslur erlendis frá hafi
tafist. Telpunni, sem nú er
orðin 8 ára, fór fljótlega að
hraka og endaði með því að
ég varð að gefa henni rital-
in. Það hafði hins vegar
þær aukaverkanir að hún
varð lystarlaus og svaf illa.
Núna er efamol komið aft-
ur og vil ég biðja innflytj-
endur að láta það ekki
vanta. Ég veit að fjöldi
barna glímir við þennan
sjúkdóm og því vildi ég láta
vita af þessum góða árangri
með bætiefni sem er án
aukaverkana.
Móðir.
Dýrahald
Systa leitar að heimili
SYSTA er lítil og bröndótt
læða í leit að góðu heimili.
Hún er 13 vikna gömul,
mjög falleg og skapmikil.
Systa kýs að vera innan um
eldra fólk en gæti þó hæg-
lega vanist börnum með
tímanum. Hún er ekki áfjáð
í að flytja frá móður sinni
og mun ekki gera það nema
gott heimili standi henni til
boða. Áhugasamir geta
hringt í síma 699 7055.
Donna er týnd
DONNA er persknesk
læða, hvítsilfurgrá að lit.
Hún slapp frá heimili sínu,
Álftahólum 6 í Efra-Breið-
holti, hinn 26. maí sl. Donna
er inniköttur og af þeim
sökum ekki mikið fyrir úti-
veru. Þeir sem hafa orðið
hennar varir eru vinsam-
lega beðnir um að hringja í
síma 561 3560.
Flaug á brott
BLÁR og gulur páfagauk-
ur flaug frá Mosarima 14
29. maí sl. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
567 5680.
Páfagaukur strauk
að heiman
AFSKAPLEGA gæfur
páfagaukur strauk af heim-
ili sínu í Suðurhólum 6 sl.
föstudag. Þetta er lítill gári
blár að lit með smá gult á
höfðinu. Þeir sem hafa orð-
ið hans varir eru beðnir um
að hringja í síma 861 4595
eða 861 0366.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
LÁRÉTT
1 flá, 8 tuskan, 9 lærir, 10
greinir, 11 lofar, 13
ójafnan, 15 biskupsstaf,
18 mjólkurvara, 21 bál,
22 eyja, 23 blunda, 24
eðli.
LÓÐRÉTT
2 ofsögur, 3 korn, 4 deila,
5 lærdómurinn, 6 beltum,
7 hugboð, 12 svelgur,
14 á húsi, 15 smábrellur,
16 fisks, 17 launung, 18
broddur, 19 skjálfa, 20
kyrrir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 troða, 4 refur, 7 bólið, 8 gæfum, 9 sæg, 11 álfa,
13 unna, 14 látin, 15 gull, 17 græt, 20 örg, 22 göfug, 23
lofar, 24 tíðni, 25 parta.
Lóðrétt: 1 tíbrá, 2 oflof, 3 arðs, 4 rögg, 5 fífan, 6 rimma,
10 æmtir, 12 all, 13 ung, 15 gegnt, 16 lífið, 18 rífur, 19
terta, 20 ögri, 21 glep.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16