Morgunblaðið - 01.06.2003, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Ein gata, eitt hverfi
eða allur bærinn
www.postur.is
Kortleggðu næstu markaðssókn
með Fjölpósti.
HRINGMYRKVI á sólu sýndi sig best á Norður-
landi og á Vestfjörðum. Hundruð manna sáu
myrkvann en aðrir urðu fyrir vonbrigðum.
Á nokkur hundruð metra belti við bæinn
Hraun á norðanverðum Skaga rofaði til á hár-
réttu augnabliki. „Í einu vetfangi var hið gráa
gluggatjald skýjanna dregið frá og engu var lík-
ara en glóandi, glansfægður giftingarhringur
svifi um himinhvolfið,“ segir í frásögn blaða-
manns Morgunblaðsins.
Bestu aðstæður til að fylgjast með myrkv-
anum hefðu verið á Norðausturlandi þar sem
fjöll skyggja ekki á sjóndeildarhringinn en þess í
stað byrgðu skýjabólstrar sýn. Í Ólafsfjarðar-
múla, í Arnarnesi í Skutulsfirði og á Mánár-
bakka í S-Þingeyjarsýslu sá vel á annað þúsund
manns myrkvann og á Dranganesi sást hring-
myrkvinn vel úr efstu húsum.
Morgunblaðið/RAX
Hringmyrkvinn birtist fólki á norðanverðum Skaga greinilega á himni laust eftir klukkan fjögur í fyrrinótt svo það setti hljótt stutta stund.
Mikill fjöldi
sá tunglið
myrkva sólu
Morgunblaðið/Svavar Berg Magnússon
Um þúsund manns komu sér fyrir í Ólafsfjarðarmúla og sáu myrkvann í gegnum skýjahuluna. Sem glóandi/4
FÆÐUBÓTAREFNI sem eru ólög-
leg hér á landi virðast vera í tölu-
verðri notkun, þá einkum efedrín og
forstighormón, að sögn Péturs
Magnússonar, lyfjafræðings og for-
manns lyfjaeftirlitsnefndar Íþrótta-
og ólympíusambands Íslands. Talið
er að það séu ekki aðeins íþrótta-
menn sem neyta þessara efna heldur
sé stærsti hópurinn hinn almenni
borgari sem vill „fegra“ líkama sinn.
Neysla vefaukandi stera er einnig
talin vera nokkur hér á landi. Við-
mælandi sem stundar eina af krafta-
greinunum, en vill ekki láta nafns
síns getið, lýsir notkun sinni á vef-
aukandi sterum og öðrum efnum
sem enduðu með aðkenningu fyrir
hjarta.
Hann segir menn ekki vilja við-
urkenna alvarlegar aukaverkanir
lyfjanna. „Flestir sem æfðu með mér
sögðust ekki finna fyrir neinum
aukaverkunum. Ég held að margir
hafi ekki verið að segja satt – svo
voru þeir bara allt í einu dánir.“
Pétur Magnússon tekur fram að
það sem geri íþróttafólki og öðrum
erfitt fyrir að greina á milli fæðubót-
arefna og lyfja sé mismunandi skil-
greiningar á þessum hugtökum milli
landa. „Íslenskir ferðamenn geta
keypt lyf eða fæðubótarefni án lyf-
seðils til dæmis í Bandaríkjunum,
sem þeir geta tekið heim til Íslands,
þar sem viðkomandi efni eða lyf eru
lyfseðilsskyld. Vegna neyslu þessara
efna hafa nokkrir íþróttamenn fallið
á lyfjaprófum erlendis, en segjast
ekki hafa vitað hvað hafi verið í þess-
um efnum.“
Þeir sem þekkja til segja að það sé
nokkuð algengt að sömu aðilar selji
fíkniefni og vefaukandi stera. Pétur
Magnússon segir áhuga- og aðgerð-
arleysi yfirvalda hér á landi í þessum
málaflokki áhyggjuefni, en nánast
ekkert hafi verið aðhafst af hálfu
hins opinbera til að sporna við neyslu
ólöglegra lyfja og fæðubótarefna.
Neysla ólöglegra fæðu-
bótarefna áhyggjuefni
Forboðin efni/B1
BRESKU leikararnir Gary Lewis og
Martin Compston hafa tekið að sér
aðalhlutverkin í kvikmyndinni Nice-
land, sem Friðrik Þór Friðriksson
leikstýrir eftir handriti Huldars
Breiðfjörð fyrir Zik Zak-kvikmynd-
ir.
Lewis hefur leikið á fjórða tug
kvikmyndahlutverka á ferli sínum en
náði heimsfrægð árið 2000 sem faðir
titilpersónunnar í smellinum Billy
Elliot. Þá lék hann eitt af helstu hlut-
verkunum í Gangs Of New York eftir
Martin Scorsese.
Compston er aðeins 19 ára en sló í
gegn í fyrsta og eina kvikmyndahlut-
verki sínu til þessa, Sweet Sixteen
(2002) eftir Ken Loach, sem hann
hreppti fjölda verðlauna fyrir, m.a.
skosku BAFTA-verðlaunin.
Að sögn Skúla Fr. Malquists hjá
Zik Zak hefjast tökur á Niceland
seinni hluta næsta mánaðar og fara
fram á Íslandi, í Þýskalandi og jafn-
vel víðar.
Breskar
stjörnur
leika í
Niceland
Í leit að tilgangi/B12
BENT Bjarnason, útibússtjóri
í Sparisjóði vélstjóra, lenti illa í
því á dögunum þegar kjöltu-
rakki hljóp í veg fyrir hest hans
er hann reið í gegnum hesta-
hverfið Heimsenda á Vatns-
enda. Hesturinn fældist og
Bent flaug af baki og slasaðist
talsvert. „Ég vil nú koma þessu
á framfæri svo fólk átti sig á því
hvað það er hættulegt að hafa
lausa hunda þarna, auk þess
sem það er bannað,“ segir
Bent.
Hann segist hafa riðið þess-
um hesti í nokkur ár og aldrei
lent í neinum vandræðum með
hann. „Hann fældist hins vegar
svona rosalega að hann þeytti
mér af baki. Ég slasaðist mikið.
Olnboginn fór úr lið og beinin
stóðu út,“ bætir hann við, en
Bent er með spelkur og í gifsi
og verður frá vinnu í nokkrar
vikur.
Hann ítrekar að hann vilji
koma þessu á framfæri svo fólk
átti sig á þessu. Hann segir að
það sé alltof mikið um það að
hundar gangi lausir í hesta-
hverfum, þrátt fyrir að bannið
sé margítrekað í fréttabréfum
hestamannafélaga.
Hætta af
lausum
hundum
Bent Bjarnason slasaðist illa
er hann datt af hestbaki.
Morgunblaðið/Kristinn