Morgunblaðið - 22.06.2003, Side 12

Morgunblaðið - 22.06.2003, Side 12
12 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTA bókin um galdra-stákinn Harry Potter komút í gær, Harry Potter andthe Order of the Phoenix,og ekki hefur áður gengið eins mikið á vegna útkomu bókar. Milljónir eintaka höfðu selst fyr- irfram af bókinni og víða um heim voru bókaverslanir opnaðar á mið- nætti aðfaranótt laugardagsins til að áhugasamir þyrftu ekki að bíða leng- ur eftir að komast yfir bókina. Hér á landi voru verslanir Pennans Ey- mundssonar í Lækjargötu og Máls og menningar opnaðar á miðnætti. Nánast um leið og tilkynnt var um útgáfudag bókarinnar var hún komin í sölu í netverslanir víða um heim og ekki tók nema nokkrar klukkustund- ir þar til hún var komin í efsta sæti sölulista vefverslunar Barnes & Noble í Bandaríkjunum og sömuleið- is í efsta sæti á sölulista Amazon í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem hún hefur setið síðan, en til gam- ans má geta þess að síðustu vikur hefur bókin einnig verið mest selda bók í öðrum vefverslunum Amazon; í Þýskalandi, Frakklandi, Kanada og Japan. Því er svo við að bæta að bók- in er í fyrsta og öðru sæti – barna- útgáfan er í fyrsta sæti en fullorðins- útgáfan í því öðru (textinn er eins í bókunum en öðruvísi kápa – safnarar kaupa því báðar), hljóðbókin á diski er svo í sjötta sæti vestanhafs, mynd- skreytt útgáfa í áttunda sæti, hljóð- bókin á snældu í 12. sæti, fyrstu fjór- ar bækurnar í kilju saman í kassa í 15. sæti, fyrstu fjórar bækurnar inn- bundnar saman í kassa í 21. sæti og svo má telja en alls eru sjö bækur um Harry Potter eða tengdar honum á metsölulista Amazon.com til við- bótar. Að sögn talsmanns fyrirtæk- isins hefur Amazon þegar selt meira en milljón eintök af Harry Potter og Fönixreglunni fyrirfram, þar af 782.705 eintök í Bandaríkjunum. Ekki er bara að netverslanir séu búnar að selja bókina fyrirfram í meira mæli en dæmi eru um því bókaverslanir um heim allan eru búnar að taka pantanir í bókina und- anfarnar vikur og mánuði, til að mynda hefur Borders-bókakeðjan, sem rekur verslanir í Bandaríkj- unum og Bretlandi, tekið á móti 300.000 pöntunum í bókina í Banda- ríkjunum einum og framkvæmda- stjóri bresku bókaverslunarkeðj- unnar WH Smith sagði að pantanir hefðu borist um 280.000 eintök. Eldri bækurnar fjórar um Harry Potter hafa líka tekið sölukipp og þannig eru þær allar meðal tíu mest seldu barnabóka í Bretlandi, í 2., 3., 6. og 7. sæti. Í ljósi þessa og þess að 96% fyrstu prentunar af Harry Potter og Eld- bikarnum seldust á fyrstu tveim út- gáfudögunum lét bandarískur útgef- andi bókarinnar prenta af henni hálfa níundu milljón eintaka til að vera við öllu búinn. Margfaldur milljónungur Gefur augaleið að Joanna K. Rowl- ing er margfaldur milljónungur; ef marka má viðskiptatímarit nema heildartekjur hennar af bókunum og tengdum umsvifum ríflega fjörutíu milljörðum króna og ef salan á nýju bókinni verður eins og allt bendir til bætast rúmir sex milljarðar við fyrir bókina eina. Í útgáfuheiminum gera menn því skóna að ritlaun hennar séu nokkuð meiri en gengur og gerist um rithöfunda, líklega um 300 kr. fyrir hvert selt eintak, en alls hafa selst af bókunum fjórum, sem þýdd- ar hafa verið á 55 tungumál, um 200 milljón eintök. Ótalið er svo hvað Rowling á eftir að fá fyrir sölu á alls kyns aukahlutum, leikföngum, skóla- vörum, sælgæti, myndabókum o.s.frv., kvikmyndina og svo má telja, en hún fær víst 5% af öllum hagnaði. Ekki er bara að bækurnar hafa selst vel því kvikmyndirnar tvær sem þeg- ar hafa verið gerðar hafa hlotið met- aðsókn og tekjur af þeim samanlagt um 150 milljarðar króna. Til stóð að gefa fimmtu bókina út á síðasta ári en Rowling gaf sér meiri tíma til að vinna verkið til að tryggja að bókin yrði sem best úr garði gerð að því hún segir, en þetta hefði eins getað verið úthugsað markaðsbragð, því eftirvæntingin var þess meiri sem útgáfan tafðist. Það mátti og sjá í desember síðastliðnum þegar haldið var góðgerðauppboð á miða sem Rowling hafði skrifað á 93 orða vís- bendingu um söguþráðinn í bókinni. Áhugamannahópur á Netinu, sem rekur vefsetrið www.the-leaky- cauldron.org, var meðal þeirra sem buðu í miðann og safnaði á skömm- um tíma tæpum tveim milljónum króna, enda hugðist hann birta vís- bendinguna á vefsetrinu. Allt kom þó fyrir ekki, ónefndur bandarískur safnari hreppti miðann fyrir rúmar fjórar milljónir og hann hefur ekki birt miðann, eflaust til að tryggja að hann lækki ekki í verði. (Uppboðshúsið birti eftirfarandi af miðanum, menn geta svo getið í eyð- urnar: „38 kaflar … gæti breyst … lengsta bindið … Ron … kústur … rekinn … húsálfur … nýr … kenn- ari … deyr.“ Ekki síður umdeildar en vinsælar Ekki er bara að bækurnar séu gríðarlega vinsælar, þær eru ekki síður umdeildar og meðal annars hafa bókstafstrúarmenn vestan hafs hamast að þeim, sagt þær óguðlegar og krafist þess að þær verði bann- aðar á bókasöfnum og skólum; þær kenni börnum og ungmennum heiðni. Segir sitt að á einu af fjöl- mörgum vefsetrum kristinna bók- stafstrúarmanna, jesusjournal.com, birtist frétt um útkomu bókarinnar þar sem Harry Potter er líkt við Andkrist, enda sé hann með merki dýrins á enni sér. Frjálslyndir hafa einnig sumir horn í síðu bókanna, segja þær mett- aðar af stöðluðum úreltum lýsingum á hlutverki kynjanna (Hermione er ósjálfbjarga og treystir á piltana, galdrakarlar ráða öllu en konurnar eru ýmist heimskar og óhæfar í karlahlutverkum eða húsmæður og þjónustur og svo má telja). Aðrir sjá ofsjónum yfir velgengn- inni, og þannig linntu skáldsagnahöf- undar vestan hafs og útgefendur þeirra ekki látum fyrr en New York Times tók upp sérstakan met- sölulista fyrir barnabækur til að bækurnar um Harry Potter einok- uðu ekki almenna metsölulistann. Allt umtalið um bækurnar og deil- urnar um inntak þeirra og söguþráð tekur oft á sig broslegar myndir. Gott dæmi um það er æðibunugang- urinn þegar í ljós kom óvænt flétta að því Potter-fræðingar töldu; í fjórðu bókinni þar sem Harry ungi glímir við Voldemort hinn illa. Há- punktur bardagans er þegar þeir sem sá vondi hefur drepið birtast út úr töfrasprota hans í öfugri röð, þ.e. þeir síðustu fyrstir, og þá birtist faðir Harry Potters á undan móður hans. Getur nærri að áhugamenn hafi grip- ið andann á lofti og talið að rosaleg flækja væri framundan, enda átti móðurástin að hafa haldið hlífiskildi yfir Harry litla. Skýring á þessu var hins vegar ósköp einföld, fljótfærni skrifara og hamagangur í útgáfunni og villan var leiðrétt í næstu útgáfu. (Þetta er rétt í íslensku útgáfunni.) Bókaútgáfa í kreppu Útgefendur og bókavinir víða um heim hafa kallað J.K. Rowling bjarg- vætt bókarinnar, því gríðarlegar vin- sældir bókanna um Harry Potter hafi verið eins og vítamínsprauta inn í iðngrein sem var á fallanda fæti, enda megi gera því skóna að drjúgur hluti þeirra barna sem lesa bæk- urnar um piltinn Potter eigi eftir að lesa meira. Það má til sanns vegar færa, því mikill og góður vöxtur hef- ur verið í sölu á bókum fyrir börn og unglinga, meðal annars vegna þess að þessi gerð bókmennta er orðin sýnilegri, en það hefur þó ekki dugað til að draga úr samdrættinum al- mennt. (Gamansamir benda á að æð- ið í kringum Harry Potter sé þvílíkt að ekki sé vænlegt að gefa út barna- bækur í sama mánuði og bækur um hann koma út og helst ekki einn til tvo mánuði á eftir.) 50.000 bækur eru gefnar út á ári vestan hafs og ekki komast nema 100 þeirra í stórmarkaðadreifingu, til viðbótar við bókabúðirnar, og seljast í risaupplagi. Þó að síðasta vika hafi verið ævintýraleg í bókaútgáfu, til- kynnt var á mánudag að æviminn- ingar Hillary Rodham Clinton hefðu selst í milljón eintökum og 500.000 í viðbót í prentun og Harry Potter og Fönixreglan kom út á laugardag, ná sífellt færri titlar að seljast fyrir kostnaði á meðan þær bækur sem ná metsölu seljast í æ stærra upplagi. Þetta er ekki ósvipuð þróun og átt hefur sér stað í tónlistarheiminum og ólíklegt að henni verði snúið við frek- ar en hægt verður að bjarga útgáfu- risunum í músíkinni. Aftur segja menn að þetta sé á móti sóknarfæri fyrir smáfyrirtæki sem stöðugt sækja í sig veðrið þó að þau hafi eng- an Harry Potter sér til halds og trausts. Ævintýrið um Harry Potter arnim@mbl.is Það er ekki á hverjum degi sem heimurinn nánast stendur á öndinni yfir útkomu á bók, að ekki sé talað um barnabók. Árni Matthíasson segir frá ævintýrinu um Harry Potter. Morgunblaðið/Jim Smart Fyrstu í röðinni voru leystir út með gjöfum. Frá vinstri: Unnsteinn Jóhannsson, Rósanna Andrésdóttir, Magnús Örn Sigurðsson, Inga Auðbjörg Kristjánsdóttr og Halla Hallsdóttir með bókina eftirsóttu. Seldist upp á hálftíma HALLA Hallsdóttir var fyrst í röðinni af þeim sem biðu á föstudag fyrir ut- an Mál og menningu á Laugavegi eftir því að komast yfir bók. Hún fékk bók- ina gefins fyrir ómakið, gjafabréf og fleiri gjafir en vel á annað hundrað manns var í röðinni fyrir utan þegar verslunin var opnuð á miðnætti. Þau eintök sem til voru í búðinni seldust upp á hálftíma og sama átti sér stað í Pennanum Eymundsson í Austur- stræti; þar seldist bókin einnig upp á hálftíma. Í báðum verslunum urðu margir frá að hverfa. Að sögn starfs- manna í verslunum vonast menn til að fá meira af bókinni eftir miðja viku, en óljóst hve mikið því hart er barist um hvert eintak og fá færri en vilja. Óttarr Proppé, sviðsstjóri erlendra bóka hjá Máli og menningu, hampar fyrsta eintakinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.