Morgunblaðið - 22.06.2003, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2003 25
Gyllinæðarblautþurrkur
Græðandi & hreinsandi blautþurrkur sem draga úr kláða, sviða og ertingu af völdum gyllinæðar.
Blautþurrkurnar er einnig gott að nota við ýmiss konar óþægindum á ytri kynfærum kvenna,
s.s. við tíðablæðingar, hreinsun á bólgnum svæðum eftir uppskurð eða fæðingu o.s.frv.
Derma Soft inniheldur nornahesli og kamillukraft sem græða og róa húðina.
Fást í apótekum um land allt
Rétta útimálningin
getur sparað þér tugi þúsunda króna
Steinakrýl
- mjög góð viðloðun, gott
rakagegnstreymi og mikið
veðrunarþol
Kópal Steintex
- frábært á múr og
steinsteypta fleti þar sem
krafist er mikils veðrunarþols
Steinvari 2000
- besta mögulega vörn fyrir húsið
- yfirburðamálning fyrir íslenskar aðstæður
- verndar steypuna fyrir slagregni
- flagnar ekki og hefur frábært
veðrunarþol
Málning hf. hefur tekið þátt í viðamiklum rannsóknum á steinsteypu og
áhrifaþáttum yfirborðsmeðhöndlunar með helstu sérfræðingum á þessu sviði
hér innanlands. Á rannsóknarstofu Málningar er jafnframt haft strangt eftirlit
með framleiðslu og hráefnum og unnið kröftuglega að vöruþróun þar sem
nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar með tilliti til íslenskra aðstæðna hafa
skapað málningu frá okkur sérstöðu.
Við erum sérfræðingar í útimálningu
fyrir íslenskar aðstæður.
Útsölustaðir Málningar:
Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi
• Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur
byggingavöruversl. Ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko
Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði • Versl. Vík, Neskaupstað • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum
• Byko Keflavík
LÍTT hefur hingað til borið á Tóm-
asi Guðna Eggertssyni á hljómleika-
pöllum höfuðborgarsvæðisins, og
mætti því e.t.v.
skoða tónleika
hans í Salnum sl.
mánudag sem
óformlega frum-
raun – þótt hvergi
væri það ábyrgð-
arhlaðna orð ann-
ars nefnt á nafn.
Kvað slíkt reynd-
ar algengt á seinni
árum. Menn
laumstarta frekar í kyrrþey, og
stundum oftar en einu sinni.
Fjölbreytt og hlustvænlegt verk-
efnavalið hófst með sannkallaðri ger-
semi úr óbrotgjörnum sjóði Bachs,
hinni sjöþættu Frönsku svítu nr. 5.,
með Gavottu, Bourrée og Loure skot-
ið inn á milli fastadansanna Sara-
bande (III) og Gigue. Skv. fróðlegum
tónleikaskrárskrifum Hauks Hall-
dórssonar munu svíturnar frá upp-
hafsárum Tómasarkantorstíðar
Bachs í Leipzig (1723–50) og urðu
snemma vinsælar meðal fjölskyldu og
nemenda, ef marka má fjölda afrita –
ekki ósvipað og gilti hér fyrrum um
eftirsóttustu fornsögur eins og Njálu.
Annar hljómborðsgimsteinn, og sízt
ókunnari, fylgdi á eftir, Pathétique-
sónata Beethovens frá 1798, sem
þrátt fyrir að tilheyra svokölluðu
fyrsta sköpunarskeiði (í „anda Moz-
arts úr hendi Haydns“) ber mun
sterkari keim af hetjurómantík þess
næsta.
Hér var ekkert öryggisnet að hafa í
vægðarlausu viðmiðunarljósi frægð-
ar, allra sízt í gegnsæjum feilnótuaf-
hjúpandi rithætti Bachs, á m.a.s. oft
frísklegu tempói þar sem margur
hefði frekar haft vaðið fyrir neðan sig,
sérstaklega í fyrsta atriði dagskrár.
En Tómasi tókst í öllum meginatrið-
um mjög vel upp, mótaði músíkalskt
og sannfærandi af smitandi djörfung
og dug með glöggu næmi fyrir ólíkum
danshrynjum þáttanna. Þá sjaldan
bjátaði á sneri hann sig fimlega úr
klemmunni (jafnvel með spuna), sem
er hæfileiki út af fyrir sig, án hverrar
enginn verður sjóaður konsertpían-
isti. Túlkun Tómasar á Pathétique
var hvöss og skapmikil en líka við-
kvæm, borin uppi af furðuþroskaðri
formsýn og nánast örðulaus, burtséð
frá smáfingraflumbri á milli tveggja
„ecossaise“-kafla I. þáttar og nokkr-
um vinstri handar pp loftnótum í II.
sem annars var syngjandi fallega
mótaður. Farið var fram á yztu nöf í
hraðavali lokarondósins, en þrátt fyr-
ir að höggvið væri ótæpt á bæði borð
gafst einnig ráðrúm til þokkafullra
andstæðna.
Mondrian-míníatúrurnar þrjár eft-
ir Hafliða Hallgrímsson eftir hlé voru
skemmtilegar litlar örsmíðar, oftast
snöggar upp á lagið og útfærðar af lit-
ríkri snerpu með töluverðu kómísku
ívafi. Loks var Faschingschwank
[Kjötkveðjuglens] aus Wien Op. 26,
fimmþætt skapgerðarstykkjasafn
Roberts Schumann frá 1839. Það
byrjaði stormandi æst og helzt til
subbulega við ofnotaðan pedal, en
ljúfsár Rómanzan var aftur á móti
söngvæn og streymdi fagurlega
áfram. Gáskafullt Scherzinóið var
gætt miklum þokka, en stutt Inter-
mezzóið hikstaði aðeins á rásinni. Í
glæsilegum Fínalnum var „Höchst
lebhaft“ túlkað sem ígildi sannkallaðs
manndrápshraða og átti eftir að koma
Tómasi í koll rétt fyrir Coda – einmitt
þegar lýtalítið stórafrek virtist innan
seilingar. Fann hver maður í salnum
til með píanistanum þegar honum fat-
aðist óvænt háskaflugið.
Samt var björninn unninn. Heildin
stóð upp úr. Bráðefnilegur einleikari
hafði kvatt sér hljóðs, og músíkölsk
fjölhæfnin minnkaði ekki með auka-
lögunum, djass-impromptuinu
Georgia On My Mind eftir Hoagy
Carmichael og ónefndri frumsaminni
næturlokku við ljóð Guðmundar
Norðdahl sem Ólafur Kjartan Sigurð-
arson söng af ómþýðri snilld við und-
irleik höfundar, eldheitar undirtektir
og almennt uppistand.
Fjölhæfur píanisti
kveður sér hljóðs
TÓNLIST
Salurinn
J.S. Bach: Frönsk svíta nr. 5 í G BWV
816. Beethoven: Píanósónata í c Op. 13
(Pathétique). Hafliði Hallgrímsson: Þrír
þættir f. píanó (Homage to Mondrian).
Schumann: Faschingschwank aus Wien
Op. 26. Tómas Guðni Eggertsson píanó.
Mánudaginn 16. júní kl. 20.
PÍANÓTÓNLEIKAR
Tómas Guðni
Eggertsson
Ríkarður Ö. Pálsson
Röddin, glæpasaga Arnaldar Indr-
iðasonar, er komin út í kilju.
Sagan hefst á því að jólahátíðin er
að ganga í garð þegar starfsmaður á
stóru hóteli í Reykjavík finnst myrtur í
kjallara þess. Hann reynist hafa verið
vinafár og lifað fábreyttu lífi en upplýs-
ingar um æskuár hans, ævintýraleg og
dapurleg í senn, koma lögreglunni á
sporið.
Í kynningu frá útgefanda segir: „Arn-
aldur Indriðason hefur notið fádæma
vinsælda fyrir sögur sínar um lög-
reglumennina Erlend, Sigurð Óla og El-
ínborgu, m.a. Dauðarósir, Grafarþögn
og Mýrina.“
Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin er
330 bls., prentuð í Danmörku. Ragnar
Helgi Ólafsson hannaði kápu. Verð:
1.599 kr. Útgefandi: Vaka-Helgafell.
Kiljur