Morgunblaðið - 22.06.2003, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2003 27
Á ÍSLANDI er allt að gerast.
Ekki síst í músíkinni þar sem eng-
inn bilbugur er á þeirri hefð manna
að stíga á pall með söngglaðan vin
sér við hlið og syngja, – syngja bet-
ur í dag en í gær, snerta sameig-
inlegan streng í hjörtum fólks,
gleyma amstri og brasi og láta hrí-
fast í söngvaflóði. Og ef okkur
hættir til að verða værukær, heima
í sófunum með síbyljuna og möt-
unina dynjandi yfir sem aldrei fyrr,
þá höfum við orkubolta og atorku-
jöfra í músíkinni eins og öðru sem
drífa aðra með sér á vit þess söngs
sem býr í hvers manns brjósti.
Ein slík músíkbomba er Mý-
vetningurinn Margrét Bóasdóttir,
metnaðarfullur dugnaðarforkur,
sem í fjögur sumur hefur staðið
fyrir Menningarhátíð í Mývatns-
sveit og nú heilmikilli kórastefnu
að færeyskri fyrirmynd. Alls komu
níu kórar til kórastefnunnar, eink-
um Kirkjukórar frá Norðaustur-
landi, og boðið var upp á þrenna
tónleika dagana 12.–15. júní í
Skjólbrekku. Þeir síðustu voru há-
tíðartónleikar þar sem 60 manna
hátíðarkór félaga úr kórunum níu
söng til skiptis við Kór Glerár-
kirkju á Akureyri. Guðmundur Óli
Gunnarsson stjórnaði hátíðarkórn-
um og Aladár Rácz lék með á píanó
en Hjörtur Steinbergsson stjórn-
aði Kór Glerárkirkju með píanó-
undirleik Daníels Þorsteinssonar.
Hátíðarkórinn byrjaði tón-
leikana með „Kór englanna“ úr ór-
atoríunni Elía eftir Mendelssohn í
nýrri textaþýðingu Kristjáns Vals
Ingólfssonar og strax á eftir söng
Margrét Bóasdóttir með kórnum
helgisöng, Heyr ó Drottinn, einnig
eftir Mendelssohn við góðan texta
Kristjáns. Bæði lögin eru falleg og
voru vel sungin þótt greina mætti á
kórnum að hann hefði ekki haft
mikinn æfingatíma og fólkið væri
ennþá dálítið að grúfa sig ofan í
nóturnar. Margrét fór mjög
smekklega með einsöngshlutverk-
ið og hefur lag á að koma texta í
tónlist vel frá sér. Nú var röðin
komin að Kór Glerárkirkju sem
söng fyrst íslenska músík: Stóðum
tvö í túni í úts. Hjálmars Ragn.,
Tíminn líður í radds. Árna Harð-
ars., Dýravísur Jóns Leifs og Eng-
inn grætur Íslending eftir Hróð-
mar I. Sigurbjörnsson. Kórnum
tókst sérlega vel upp, einkum í
skemmtilega útsettu verki Árna og
þjóðlegu og áheyrilegu lagi Hróð-
mars. Fyrir hléið var síðan skipt
yfir í madrígalagír og áheyrendur
fengu að heyra Maíljóð eftir Thom-
as Morley og Sjáumst aftur eftir
Orlando di Lasso. Bæði verkin
voru afar fallega flutt, einkum verk
Lassos, þótt karlaraddirnar hefðu
mátt vera eilítið sterkari í Fa-la-la-
viðkvæðunum í Maíljóðinu.
Eftir hléið hélt kór Glerárkirkju
áfram en nú voru afrísk-amerískir
sálmar á efnisskránni. Byrjað var á
Deep River við geðþekkan undir-
leik Daníels Þorsteinssonar. Kór-
inn blómstraði þéttur, samtaka og
rytmískur og sönggleðin leyndi sér
ekki, og ekkert síður í næstu lög-
um: Poor man Lazarus, Nobody
knows, Swing low, Joshua fit the
Battle of Jericho og Certainly
Lord. Flutningurnn var oft stór-
glæsilegur og hrífandi og skær
rödd Hauks Steinbergssonar, sem
söng einsöng í tveimur síðasttöldu
verkunum, féll vel að hljómi kórs-
ins. Frábærlega útfærður meðleik-
ur Daníels kórónaði svo allt eyrna-
konfektið.
Síðasta verkið á efnisskránni
voru Sígaunaljóðin eftir Brahms.
Þarna gerir þessi mikli meistari
sér far um að vera alþýðlegur í til-
tölulega einföldum strófískum lög-
um með punkteringum á réttum
stöðum. Ef ég á að vera alveg
hreinskilinn finnst mér Brahms
hafa farið margt betur úr hendi en
að vera sígaunalegur. Hans list rís
hærra í öðrum verkum eins og
sálumessunni, píanókonsertunum,
sinfóníunum og kammerverkun-
um. En hvað um það, þarna eru
víða bærilegar melódíur og fínar
útsetningar og píanóparturinn er
skemmtilegur. Lögin í heild eru
ellefu en af þeim eru oftast flutt
átta saman og hér voru þau sungin
í tiltölulega nýrri íslenskri þýðingu
Sigurðar Loftssonar. Hátíðarkór-
inn söng verkið við þróttmikinn og
gefandi undirleik Aladárs og gerði
margt vel. Sópraninn var bjartur
og mikill en karlaraddirnar voru
helst til fáliðaðar til þess að jafn-
vægi milli radda væri upp á það
allra besta. Hér ber líka að hafa í
huga að æfingatíminn var skamm-
ur og verið að flytja nokkurra þátta
verk sem einungis hafði verið æft í
tæpa tvo daga. Lög númer 5 og 6,
Skálabumbudans og Rauðar rósir,
voru einkum vel heppnuð. Lista-
fólkinu var vel fagnað í lok tón-
leikanna og samkvæmt sniðugri
mývetnskri venju fengu „höfuð-
paurar“ tónleikanna í stað blóma
reyktan Mývatnssilung, hvera-
brauð og andaregg í körfu.
Skemmtilegir
lokatónleikar
TÓNLIST
Mývatnssveit
Níu kórar á kórastefnu dagana 12.–15.
júní í Skjólbrekku.
KÓRASTEFNA Í MÝVATNSSVEIT
Ívar Aðalsteinsson
Margrét Bóasdóttir KRISTÍN R. Sigurðardóttir sópran
syngur kirkjuleg lög og óperuaríur
við orgel- og píanóundirleik Anton-
íu Hevesi í Hafnarfjarðarkirkju kl.
20 í kvöld. Tónleikarnir eru liður í
tónleikasyrpunni syngjandi sumar í
Hafnarfjarðarkirkju.
Á efnisskrá eru kirkjuleg lög
með orgelundirleik eins og Bist du
bei mir e. J.S. Bach, Panis angelicus
e. C. Franc, Ave María e.
Bach-Gounod, og líka lög eftir ís-
lenska höfunda, t.d. Friðarins Guð
og Máríuvers. Kristín syngur einn-
ig aríur með píanóundirleik eins og
t.d. Caro mio ben e. Caldara, Ave
María úr óperunni Othello eftir G.
Verdi o.fl.
Kristín R. Sigurðardóttir hefur
víða komið fram á tónleikum, bæði
heima og erlendis. Hún kennir nú
við Nýja söngskólann.
Antonía Hevesi hefur fjölbreytta
tónlistarmenntun að baki m.a. í pí-
anóleik, kórstjórn, hljómfræði og
orgelleik og starfar nú sem org-
anisti og kórstjóri við Hafnarfjarð-
arkirkju.
Morgunblaðið/Þorkell
Antonía Hevesi píanóleikari og Kristín R. Sigurðardóttir sópransöngkona.
Kristín og Antonía
á ljúfu nótunum
MEÐAL þess sem sýnt er á sum-
arsýningu í sýningarsal Handverks
og hönnunar, Aðalstræti 12, er bæði
hefðbundinn listiðnaður og nútíma
hönnun úr fjölbreyttu hráefni, m.a.
munir úr tré, roði, silki, ull, hör, leir,
selsskinni, hreindýraskinni, pappír,
silfri og gleri. 26 listemenn eiga verk
á sýningunni sem stendur til 31.
ágúst. Opið er frá kl. 13–17 alla daga,
nema mánudaga.
Sumarsýning
Handverks og
hönnunar
„ÞETTA er frábær sýning. Ég sá hana á Íslandi og
fannst hún mjög spennandi, þróttmikil og full af
óvæntum uppákomum. Mér fannst augljóst að hér í
Englandi, þar sem fólk þekkir verkið mjög vel, yrði
þetta mjög óvænt ánægja að sjá það frá svona gjör-
ólíku sjónarhorni,“ segir David Lan leikhússtjóri
Young Vic í Lundúnum en, sem kunnugt er, verður
sýning Vesturports á leikriti Shakespeares, Rómeó og
Júlíu, sett á svið í leikhúsinu í haust. Sýning Vest-
urports hefur vakið mikla athygli þar sem loftfim-
leikar og akróbatík eru stór og mikill þáttur í upp-
færslunni. David Lan sá sýninguna hér á landi í vetur
og bauð Vesturporti í kjölfarið að sýna verkið úti.
Hann kveðst hafa séð ótal uppfærslur á Rómeó og Júl-
íu, en engar þeirra hafi verið neitt svipaðar þessari.
„Þessi uppfærsla er óneitanlega ein sú allra frumleg-
asta og kemur manni eiginlega alveg í opna skjöldu.
Loftfimleikarólurnar skapa snilldarlega myndlíkingu
fyrir tilfinningarnar í kjarna verksins og leikararnir
óviðjafnanlegir bæði í leiknum og fimleikunum.“
Verkið verður leikið á ensku og segir David Lan nú
unnið að því að vinna nýja útgáfu textans. Frumsýn-
ing verður í október og segir David Lan þetta verða
eina af stóru uppfærslum Young Vic í vetur. „Við
munum sýna Rómeó og Júlíu á hverju kvöldi í nokkr-
ar vikur.“
Með hlutverk elskendanna nafntoguðu fara þau
Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson,
sem jafnframt leikstýrði sýningunni ásamt Agnari
Jóni Egilssyni.
Rómeó og Júlía til föðurhúsanna í Lundúnum
„Sýningin
kemur
manni í opna
skjöldu“
Morgunblaðið/Golli
Hin ástföngnu í rólunni: Rómeó og Júlía – Gísli Örn
Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir.
Kóran, hin helga bók múslíma, er
komin út í nýrri og endurskoðaðri þýð-
ingu Helga Hálfdanarsonar. Í Kór-
aninum eru skráðar opinberanir þær
sem Gabríel erkiengill miðlaði Mú-
hammeð spámanni, allt frá því hann
tók að boða hina
nýju trú árið 610 til
dauða spámanns-
ins árið 632. Sumir
hlutar bókarinnar
voru ritaðir meðan
Múhammeð var
enn á lífi, en ekki
allir. Samkvæmt ísl-
amskri arfleifð
skipaði eftirmaður
spámannsins svo fyrir eftir dauða
hans að opinberununum skyldi safn-
að á bók og safnaðarmeðlimir miðla
því sem þeir höfðu skráð eða lagt á
minnið.
Stíll bókarinnar er breytilegur. Á
elstu opinberununum, frá þeim tíma
er Múhammeð var einsamall að pre-
dika yfir heiðingjum, er háleitur og
ljóðrænn blær. Textinn frá síðustu ár-
unum er skipulegri og ber þess merki
að þá hefur myndast trúarsamfélag
sem þarf á fræðikenningu og lífs-
reglum að halda, enda þótt trúarhit-
inn sé samur við sig.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 427 bls., prentuð í Danmörku.
Kápa: Anna Leplar. Verð: 4.990.
Trúarbrögð
SÝNING á verkum félaga í Mynd-
listarklúbbi STAFF, Starfsmanna-
félags Flugleiða, stendur nú yfir í
anddyri aðalskrifstofu Flugleiða.
Verkin eru afrakstur vetrarstarfs
klúbbsins, en hópurinn kom saman
einu sinni í viku síðastliðinn vetur
undir leiðsögn Margrétar Zophóní-
asdóttur myndlistarkennara.
Ákveðið var í byrjun vetrar að
vinna með vatnsliti og voru verkefnin
af ýmsum toga. Þrír litir voru notaðir
til að vinna mismunandi litaafbrigði
með mismiklu vatni, uppstillingar
með grænmeti, blómum, nýveiddum
bleikjum og ýmsu fleira. Eitt kvöldið
kom karlmódel í heimsókn og vetr-
arstarfið endaði með því að farið var
upp í Heiðmörk eina kvöldstund og
málað úti í náttúrunni.
Þeir Flugleiðastarfsmenn sem
taka þátt í samsýningunni eru: Bald-
ur Ingólfsson, Björg Bjarnason,
Bryndís Guðjónsdóttir, Guðný Jóna
Einarsdóttir, Guðrún Valgarðsdótt-
ir, Gréta Erlendsdóttir, Gréta Garð-
arsdóttir, Inga Lára Gylfadóttir, Lí-
ney Friðfinnsdóttir, Herdís Sif
Þorvaldsdóttir, Kjartan B. Guð-
mundsson, Sigríður Hrönn Helga-
dóttir og Sverrir Þórólfsson.
Félagar úr Myndlistarklúbbi STAFF við opnun sýningarinnar á verkum
sínum í aðalskrifstofum Flugleiða í Reykjavík.
Drátthagir Flug-
leiðastarfsmenn
♦ ♦ ♦