Morgunblaðið - 24.06.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 9
GRASRÓTARHREYFINGIN Lif-
andi landbúnaður stendur nú fyrir
fundaferð um landið til að kynna
markmið sín og byggja upp sam-
skiptanet.
Markmið hreyfingarinnar er að
stuðla að eflingu kvenna í bændastétt
og efla stéttina, íslenskan landbúnað
og jákvæð tengsl við neytendur og
þéttbýli. Þannig vilja konur í land-
búnaði leggja sitt af mörkum til að
treysta samkeppnisstöðu íslenskra
landbúnaðarafurða og byggð í land-
inu. Þá þykir nauðsynlegt að efla
áhuga kvenna á félagsmálum land-
búnaðarins og innri málefnum hans.
Ein kona starfar nú á móti hverjum
þremur körlum í bændastétt.
Verkefnið „Lifandi landbúnaður“
var sett á laggirnar sl. haust og hefur
nú hleypt af stokkunum öðru verkefni
er nefnist Gullið heima. Anna Mar-
grét Stefánsdóttir er verkefnisstjóri.
Hún segir að í upphafi sé markmiðið
að mynda þétt tengslanet hringinn í
kringum landið á meðan frekari hug-
myndir eru í þróun. Verkefnið Gullið
heima snýst einkum um að fá nýtt og
jákvæðara sjónarhorn á landbúnað-
arumræðuna og að bændur verði með
persónulegri nálgun gagnvart neyt-
endum landbúnaðarafurða og neyt-
endur þannig upplýstari og ánægðari.
Þannig verði þekking og hæfileikar
kvenna í landbúnaði nýttir og gæði ís-
lenskrar landbúnaðarframleiðslu og
matvælaöryggi þjóðarinnar efld.
Milliliðalaus kynning
fyrir neytendur
Anna Margrét segir undirbúnings-
vinnu hafna með uppbyggingu
tengslanetsins, en það er gert með
því að kalla konur í bændastétt alls
staðar af að landinu til fundar, skrafs
og ráðagerða. Verða í haust haldin
eflingarnámskeið fyrir þátttakendur
og upp úr því myndaðir vinnuhópar
fyrir einstök verkefni tengd kynn-
ingu íslensks landbúnaðar og ímynd-
armótun. Er þar verið að hugsa um
útgáfu kynningarefnis, neytenda-
kannanir, beinar kynningar á land-
búnaðarafurðum í verslunum og víð-
ar og gerð sjónvarpsefnis eða
auglýsinga.
Gullið heima er tengt inn á verk-
efnið Northern Periphery Program,
eða Norðurslóðaáætlun ESB, en Ís-
land hefur verið fullgildur aðili að því
síðan haustið 2002. Þá er einnig sam-
starf við Women Food and Farming
Union, Moray Collage og Scottish
Agricultural Collage í Skotlandi og
Kvinneuniversitetet Nord í Noregi.
Bakhjarlar Gullsins heima eru
Bændasamtök Íslands, landbúnaðar-
og félagsmálaráðuneyti og ráðherra
byggðamála.
Fimmtándi október ár hvert er
framvegis helgaður konum í dreifbýli
og hefur verið ákveðið að Lifandi
landbúnaður haldi daginn hátíðlegan
í Vetrargarði Smáralindarinnar í
Kópavogi í haust.
Fyrsta verkefni Lifandi
landbúnaðar er Gullið heima
Tengsl land-
búnaðar við
þéttbýlið efld
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Anna Margrét Stefánsdóttir, verk-
efnisstjóri Gullsins heima, ferðast
nú um landið og kynnir konum í
bændastétt markmið grasrótar-
hreyfingarinnar Lifandi landbún-
aðar. Ætlun hreyfingarinnar er að
efla jákvæða orðræðu um land-
búnað og tengja betur inn á neyt-
endur landbúnaðarafurða.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
EINN vinsælasti ferðamannastaður í Mývatnssveit er
Hverir austan Námafjalls. Þarna er fólk að ganga um
og skoða alla daga ársins. Í hita, sól og góðviðri er fjöl-
menni á svæðinu og fólk nýtur umhverfis og veðurs.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Góðviðri við Námaskarð
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
Samkeppnisstofnun af kröfum Eim-
skipafélags Íslands, sem krafðist
ógildingar á úrskurði áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála sem stað-
fest hafði ákvörðun Samkeppnis-
stofnunar um að Samskip hf. teldist
aðili að máli sem Samkeppnisstofnun
hafði til rannsóknar skv. ábendingu
fyrirtækisins og beindist að Eimskip.
Með dómi sínum hnekkti Hæstiréttur
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá
12. febrúar 2003 sem felldi úrskurð
áfrýjunarnefndar úr gildi og gerði
henni að greiða Eimskip 400 þúsund
krónur í málskostnað.
Í Hæstarétti var tekið fram að
hvorki í samkeppnislögum né stjórn-
sýslulögum væri skilgreint hver skuli
vera skilyrði aðildar að málum sam-
kvæmt þeim lögum. Lögskýringar-
gögn gæfu til kynna að aðildarhugtak
í stjórnsýslumálum bæri að skýra
rúmt, þannig að ekki væri einungis
átt við þá, sem ættu beina aðild að
máli, heldur einnig þá sem hefðu
óbeinna hagsmuna að gæta. Líta
bæri til hvers tilviks fyrir sig en al-
mennt væri sá talinn aðili að máli sem
ætti einstaklegra, beinna og lögvar-
inna hagsmuna að gæta. Af erindi
Samskipa til Samkeppnisstofnunar
yrði ráðið að fyrirtækið teldi að ætlað
athæfi Eimskips hafi verulega skað-
leg áhrif á rekstur sinn. Að því athug-
uðu féllst Hæstiréttur á það með
áfrýjunarnefndinni að Samskip hefðu
mikilvægra og sérstakra hagsmuna
að gæta af úrslitum málsins. Með vís-
an til þessa voru ekki lagaskilyrði til
annars en að Samskip teldust aðili að
umræddu stjórnsýslumáli og Sam-
keppnisstofnun því sýknuð af kröfum
Eimskips.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Haraldur Henrysson, Árni Kol-
beinsson, Garðar Gíslason, Ingibjörg
Benediktsdóttir og Pétur Kr. Haf-
stein. Lögmaður Samkeppnisstofn-
unar var Karl Axelsson hrl. og lög-
maður Eimskips Pétur
Guðmundsson hrl.
Samkeppnis-
stofnun sýknuð af
kröfum Eimskips
Þri. 24/6: Grænmetiskarrýpottréttur
m. fersku salati, hrísgrjónum og
meðlæti.
Mið. 25/6: Indverskur eggaldinréttur
m. fersku salati, hrísgrjónum og
meðlæti.
Fim. 26/6: Grænmetisfaltbaka m. þistil-
hjörtum o.fl., m. fersku salati,
hrísgrjónum og meðlæti.
Fös. 27/6: Kartöfluröstí og ofnbakað
grænmeti m. fersku salati,
hrísgrjónum og meðlæti.
Helgin 28/6-29/6:
Gadó-gadó = indónesískur
m. fersku salati, hrísgrjónum og
meðlæti.
Mán. 30/6: Fylltar paprikur og fleira gott
m. fersku salati, hrísgrjónum og
meðlæti.
Matseðill
www.graennkostur.is Stuttbuxur í sólina
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
ÚTSALA - ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Jakkapeysa 4.100 1.600
Bómullarpeysa m/rennilás 5.100 1.900
Hettupeysa 5.700 1.900
Dömuskyrta 5.200 1.400
Tunika 5.800 1.900
Gallajakki 6.600 1.900
Sumarkjóll 4.900 1.800
Sítt pils 5.500 1.700
Einnig úrval af dömu- og herrabuxum á kr. 900
60—90% afsláttur
Ótrúlega lágt verð
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið frá kl. 10.00-18.00
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Nýjar fatasendingar
Fallegur og fjölbreyttur
sumarfatnaður
Fataprýði
Verið velkomnar
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán-fös 10-18, lau. 10-14
Svartar, léttar
buxnadragtir
Laugavegi 63, sími 551 4422
SUMARTILBOÐ
20-30%
afsláttur af
sumarjökkum
og -kápum