Morgunblaðið - 24.06.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.06.2003, Blaðsíða 40
ÍÞRÓTTIR 40 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Efsta deild kvenna Landsbankadeild KR - ÍBV................................................... 3:0 Edda Garðarsdóttir 28., Hólmfríður Magnúsdóttir 65., Hrefna Jóhannesdóttir 70. FH - Þróttur/Haukar............................. 1:0 Gígja Heiðarsdóttir. Staðan: KR 7 6 1 0 32:3 19 Valur 7 5 1 1 21:9 16 ÍBV 7 5 0 2 31:10 15 Breiðablik 6 4 0 2 18:14 12 Stjarnan 6 2 0 4 9:13 6 FH 7 2 0 5 4:21 6 Þór/KA/KS 7 1 0 6 5:23 3 Þróttur/Haukar 7 1 0 6 6:33 3 1. deild kvenna A Fjölnir - HSH .......................................... 8:1 Staðan: Breiðablik 2 4 4 0 0 31:4 12 HK/Víkingur 5 3 1 1 15:5 10 RKV 4 3 1 0 14:8 10 Fjölnir 5 3 0 2 15:13 9 ÍR 5 2 0 3 20:14 6 Þróttur/Haukar 2 4 0 0 4 4:23 0 HSH 5 0 0 5 7:39 0 3. deild karla D Höttur - Fjarðabyggð ............................. 0:2 Staðan: Neisti D. 5 3 1 1 7:5 10 Fjarðabyggð 5 3 0 2 13:8 9 Huginn 5 3 0 2 12:8 9 Höttur 5 2 1 2 6:6 7 Einherji 5 2 0 3 7:10 6 Leiknir F. 5 1 0 4 5:13 3 Álfukeppnin B-RIÐILL: Brasilía - Tyrkland................................. 2:2 Adriano 23., Alex 90. - Gokdeniz Karade- niz 52., Okan Yilmaz 80. Bandaríkin - Kamerún........................... 0:0  Í undanúrslitunum eigast við annars vegar Kamerún og Kólumbía og hins veg- ar Frakkland og Tyrkland. Svíþjóð Elfsborg - AIK......................................... 2:0 Helsingborg - Landskrona..................... 2:2 Gautaborg - Sundsvall ............................ 1:1 Djurgården - Malmö FF ........................ 0:2 Staðan: Djurgården 11 7 1 3 26:10 22 Hammarby 10 6 4 0 16:8 22 AIK 11 6 2 3 20:13 20 Örebro 11 6 1 4 19:18 19 Malmö 11 5 3 3 17:12 18 Helsingborg 11 5 3 3 14:14 18 Elfsborg 11 4 4 3 14:17 16 Halmstad 10 4 2 4 15:14 14 Örgryte 11 4 2 5 14:19 14 Gautaborg 11 3 4 4 18:13 13 Sundsvall 11 2 4 5 11:15 10 Landskrona 11 2 4 5 13:18 10 Öster 11 2 2 7 10:20 8 Enköping 11 1 2 8 11:27 5 Noregur Bryne - Brann.......................................... 1:1 Staðan: Rosenborg 11 9 2 0 30:7 29 Stabæk 11 5 4 2 19:13 19 Bodö/Glimt 11 5 4 2 16:11 19 Viking 11 4 6 1 19:12 18 Sogndal 11 5 3 3 20:15 18 Odd Grenland 11 5 2 4 17:21 17 Lyn 11 4 3 4 16:19 15 Bryne 11 4 1 6 21:18 13 Vålerenga 11 3 4 4 14:13 13 Lilleström 11 2 6 3 10:16 12 Molde 11 3 2 6 13:19 11 Ålesund 11 1 5 5 15:21 8 Brann 11 1 5 5 11:23 8 Tromsö 11 1 3 7 15:28 6 KNATTSPYRNA Efsta deild kvenna, Landsbankadeild: Kópavogsv.: Breiðablik - Stjarnan .......... 20 1. deild karla: Ásvellir: Haukar - Keflavík ...................... 20 3. deild karla: Ólafsvík: Víkingur Ó. - Grótta .................. 20 1. deild kvenna: Valbjarnarv.: Þróttur/Haukar-2 - ÍR ...... 20 Í KVÖLD Rangt feðraður Gunnar Þór Gunnarsson, ungur kylfingur úr GKG, sem stóð sig svo vel á Íslandsmótinu í holukeppni um helgina, var rangt feðraður á nokkr- um stöðum í blaðinu í gær, en þá var hann sagður Birgisson. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. Hjalti kom inn á Hjalti Jónsson kom inn á sem varamaður hjá ÍBV í efstu deild karla gegn FH á sunnudag. Í blaðinu í gær var nafn Inga Sigurðssonar tvítekið en Hjalta var skipt inn á fyr- ir Einar Hlöðver Sigurðsson. Leiðrétting GRÉTAR Hjartarson, framherji Grindvíkinga, fékk þann úrskurð hjá læknum í gær að hann yrði að hvíla sig frá knattspyrnuiðkun næstu sex mánuðina og þar með leikur hann ekkert með Grindavíkurliðinu á yfirstandandi leiktíð. Grét- ar meiddist í leik á móti Keflvíkingum í deilda- bikarkeppninni í vor og síðan þá hefur hann ekkert spilað. „Þetta voru að sjálfsögðu mjög svekkjandi fréttir sem ég fékk hjá lækninum en ég var svo sem búinn að búa mig undir það versta,“ sagði Grétar við Morgunblaðið í gær. Við skoðun á myndum sem teknar voru af ökkla Grétars kom í ljós sprunga í svokölluðu völubeini og skila- boðin sem hann fékk frá lækninum voru þau að hann yrði að hvílast næsta hálfa árið. „Það þýðir víst ekkert að grenja yfir þessu og ég verð bara að líta á sumarið sem langt und- irbúningstímabil fyrir það næsta. Ég ætla mér að koma sterkur til leiks á næsta ári,“ sagði Grétar sem sló í gegn með Grindvíkingum á síð- ustu leiktíð og varð markakóngur Íslandsmóts- ins. Hans hefur verið sárt saknað í Suð- urnesjaliðinu í sumar og forráðamenn Grindavíkurliðsins hyggjast styrkja liðið erlend- is frá eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindvíkinga, sagði við Morgunblaðið í gær að leitin stæði yfir, að- allega í Færeyjum, en hún hefði enn sem komið er ekki skilað árangri. Grétar úr leik hjá Grindavík Grétar Hjartarson  ÍSAK Einarsson, körfuknatt- leiksmaður úr Breiðabliki, er að öllum líkindum á förum frá Kópa- vogsfélaginu þar sem hann er á leið til Danmerkur í nám. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Ísak hefur leikið með Blikum í úrvals- deildinni undanfarin tvö ár og skorað að meðaltali 8–9 stig í leik en hann spilaði áður með Tinda- stóli og á alls 95 leiki að baki í úr- valsdeild.  GUNNAR Einarsson og Jón N Hafsteinsson ætla að leika áfram með Íslandsmeisturum Keflavíkur í körfuknattleik. Gunnar og Jón, sem eru báðir framherjar og leika með íslenska landsliðinu, sömdu til tveggja ára við Keflavík.  OLEG Titov, handknattleiks- maður, er genginn til liðs við Gróttu/KR og hyggst leika með liðinu næsta vetur. Titov, sem er 36 ára línumaður og öflugur varn- armaður, lék með Fram í fimm ár, 1995–2000, en hætti þá vegna þrá- látra bakmeiðsla sem höfðu haldið mjög aftur af honum tvö síðustu árin hjá Safamýrarfélaginu.  LORENZO Amoruso hefur náð samkomulagi við Blackburn og standist hann læknisskoðun síðar í vikunni leikur hann með félaginu á næstu leiktíð. Amoruso þótti leika vel með Rangers á nýafstaðinni leiktíð í Skotlandi.  LEEDS afþakkaði í gær boð frá Aston Villa í markvörðinn Paul Robinson. Tilboðið þótti lágt en forsvarsmaður Leeds sagði ekki útilokað að litið yrði á hærri tilboð ef þau bærust.  WILLIAM Gallas, franski varn- armaðurinn hjá Chelsea, er óánægður í herbúðum félagsins. Hefur hann m.a. afþakkað nýjan samning og hafa önnur lið í deild- inni nú rennt hýrum augum til hans.  FORVÍGISMENN spænska liðs- ins Barcelona hafa viðurkennt að það geti reynst þeim afar erfitt að fá hinn brasilíska Ronaldinho til félagsins eins og vonir hafa staðið til. Þeir segja að bæði Manchester United og Real Madrid hafi boðið Paris SG hærri upphæð fyrir kapp- ann, eða um 1,7 milljarða króna, um 14 millj. punda.  RANGERS og Middlesborough keppast nú við að krækja í Kevin Phillips sóknarmann Sunderlands sem er til sölu um þessar mundir eins og reyndar flestallir leikmenn liðsins eftir að það féll úr ensku úr- valsdeildinni. Hvorugt liðanna er þó reiðubúið að greiða þær fjórar milljónir punda, um 470 millj. króna, sem Sunderland vill fá fyrir Phillips.  FRANK de Boer vonast til þess að leika í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð, en hann er nú laus allra mála hjá Barcelona. Þegar nýr forseti tók við stjórn Barce- lona á dögunum var de Boer meðal þeirra sem var sagt að taka hatt sinn og staf. FÓLK Vesturbæingum brá nokkuð í brúnþegar Karen Burke hóf leikinn með góðum spretti upp hægri kant- inn og sneri af sér varnarmenn KR en Mhairi Gilmour rétt missti af sendingu hennar fyrir framan markið. En þar við sat, KR-ingar náðu undirtökunum og hófu að sækja grimmt en þó oftast skipulega að marki ÍBV en þrátt fyrir ágætis færi lét fyrsta markið bíða eftir sér. Hrefna Jóhannesdóttir fékk tækifæri til að ná því þegar skot hennar fór í slá og aftur út en Hrefnu brást held- ur bogalistin þegar hún skallaði bolt- anum síðan yfir næstum autt markið. Um miðjan fyrri hálfleik fóru gest- irnir að feta sig framar á völlinn en reyndu sem fyrr helst að sparka bolt- anum yfir vörn KR á markadrottn- inguna Olgu Færseth en án árang- urs. KR-stúlkur slógu hins vegar ekkert af og Edda Garðarsdóttir kom KR í 1:0 með hörkuskoti utan víta- teigs á 28. mínútu. Undir lokin fékk KR tvö færi á að bæta við en Rachel Brown í marki ÍBV varði gott skot Sólveigu Þórarinsdóttur og annað frá Ásthildi Helgadóttur í horn. Eyjastúlkur fengu síðan tvö ágæt færi án árangurs áður en KR-ingar fóru að bíta frá sér. Edda tók auka- spyrnu frá vinstri og Sólveig skallaði boltann í slá, hann barst síðan þvert fyrir markið þar sem fyrirliðinn Guð- rún Jóna Kristjánsdóttir rétt missti af honum. KR-ingar voru aftur búnir að ná undirtökunum og Hólmfríður Magnúsdóttir bætti við marki á 65. mínútu þegar hún fylgdi vel á eftir þegar Hrefna skaut boltann í slána. Aðeins fimm mínútum síðar var Hrefna aftur á ferðinni þegar hún af- greiddi boltann í netið eftir frábæran undirbúning Ásthildar. Úrslit voru ráðin en hvort lið fékk þó eitt tæki- færi til að breyta tölunum, Margrét Lára Viðarsdóttir á 81. mínútu en Þóra Helgadóttir í marki KR varði glæsilega gott skot og hinum megin greip Rachel Brown boltann við fæt- ur Hrefnu þegar Ásthildur náði skyndisókn eftir mistök í vörn ÍBV. KR-ingar voru vel að sigrinum komnir, vörnin var sterk með Guð- rúnu Sóleyju Gunnarsdóttur en á miðjunni réðu Edda og Ásthildur ríkjum. Það skilaði einnig mörgum góðum sendingum og sprettum handa Hólmfríði og Hrefnu í framlín- unni. Reyndar féllu leikmenn stund- um í sömu gryfju og mótherjar þeirra með ómarkvissum spörkum fram völlinn en byggðu einnig upp góðar sóknir. Gestirnir úr Eyjum voru ekki eins skipulagðir. Í byrjun var mikið óör- yggi í vörninni, sem var eftir það lengi að jafna sig og reyna að spila boltanum fram völlinn. Um miðbik vallarins börðust Burke og Íris Sæ- mundsdóttir um völdin við miðju- menn KR og það gekk oft upp en ekki nógu oft. Fyrir vikið fékk framlínan úr litlu að moða og Olga náði ekki að leika listir sínar. Herbragð ÍBV dugði ekki HERBRAGÐ Eyjastúlkna, spark og sprettur, dugði þeim skammt í heimsókn í Vesturbænum í gærkvöldi því vörn KR sá við því og þeg- ar við bættist skipulagður sóknarleikur KR var 3:0 sigur síst of stór. Sigurinn tryggir stöðu KR á toppnum með þriggja stiga forskot á næsta lið þegar deildarkeppnin er hálfnuð en Vestmannaeyingar áttu tækifæri á að ná efsta sætinu. Þeim gefst þó færi á að hefna ófaranna á föstudaginn þegar liðin takast aftur á í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Í Hafnarfirði tókst FH að færa sig aðeins frá fall- sæti og upp í það sjötta með 1:0 sigri á Þrótti/Haukum en Gígja Heiðarsdóttir skoraði markið. Stefán Stefánsson skrifar Línurnar eru farnar að skerpast á toppnum eftir toppslag kvöldsins. Vanda Sigurðardóttir, þjálfari KR, segir deildina vera jafnari í ár en áður og þær stefna ótrauðar á titilinn. „Við lögðum áherslu á það í kvöld að halda hreinu, Eyjastúlkur eru með beitta sókn – við þekkjum Olgu vel – og okkur tókst vel að halda þeim niðri. Þetta var hörku- leikur og barátta á kostnað gæðanna en við mættum vel stemmdar og mér fannst stelpurn- ar spila frábærlega í kvöld,“ sagði Vanda eftir leikinn. Liðin mætast á ný næstkomandi föstudag í bik- arnum og má búast við að Eyja- stúlkur mæti alveg brjálaðar í leikinn. „Það er ekki við öðru að búast en við ætlum okkur að sjálf- sögðu sigur og ef mitt lið spilar eins og í kvöld þá erum við í góð- um málum.“ Mikill missir Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, varnarmaður KR-inga, átti mjög góðan leik í gær. „Hún þarf að fara í uppskurð, ökklabrotnaði í fyrra og brotið greri eitthvað vit- laust. Hún hefur spilað hvern leik- inn á fætur öðrum með tárin í aug- unum. Það er gríðarlega stórt skarð að fylla því hún er án efa fljótasti varnarmaður á Íslandi,“ sagði Vanda. Ekki tilbúnar Olga Færseth, framherji ÍBV og fyrrverandi leikmaður KR, fékk ekki úr miklu að moða í framlín- unni, hún var tekin föstum tökum af varnarmönnum KR og var skilj- anlega ókát að leik loknum. „Hreint út sagt var þetta hræði- legt af okkar hálfu, vörnin var mjög óörugg og við fundum okkur aldrei í sóknarleiknum. Því varð of mikið um tilgangslausa langa bolta og lítið um spil. Þær voru alltaf skrefinu á undan og það fór allt úrskeiðis hjá okkur sem gat. Við vorum einfaldlega ekki tilbúnar í þennan leik – mættum ekki með hausinn í lagi. Ég hef enga lausn á því hvað gera skal eins og er en við höfum nokkra daga til að fara yfir okkar leik og gera okkur til- búnar fyrir átökin á föstudaginn, við skulum sjá hvað gerist þar,“ sagði Olga að lokum. „Spiluðu frábærlega“ Eftir Andra Karl ÚRSLIT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.