Morgunblaðið - 24.06.2003, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 12
Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 16 ára.
Sýnd kl. 10. B i. 12
HL MBL
"Triumph!"
Roger Ebert
SG DV
Frá höfundi
"Training Day"
kemur
kyngimagnaður
löggutryllir með
hinum svala Kurt
Russell.
"Fyrsta stórmynd
ársins 2003"
US WEEKLY
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
KVIKMYNDIR.IS
Frá höfundi
"Training Day"
kemur
kyngimagnaður
löggutryllir með
hinum svala Kurt
Russell.
"Fyrsta
stórmynd
ársins 2003"
US WEEKLY
KVIKMYNDIR.COMÓHT Rás 2
Tálkvendi
(Femme Fatale)
Spennumynd
Bandaríkin 2002. Sam-myndbönd VHS/
DVD. Bönnuð innan 16 ára. (110 mín.)
Leikstjórn og handrit Brian De Palma.
Aðalhlutverk Rebecca Romijn-Stamos,
Antonio Banderas.
ÞEGAR hann nær sér á strik þá
á hann sér fáa jafnoka, sérstaklega
hvað snýr að samspili útlits,
djarfra tilrauna og víraðrar
spennu. En af sama skapi eru þeir
fáir sem eru
eins skelfilega
mistækir og
hann Brian De
Palma. Á móti
hverri snilld-
inni á borð við
Blow Out höf-
um við eins og
eina Raising
Cain, fullkomn-
ar andstæður,
önnur útpæld og næsta óþægilega
ánetjandi veisla fyrir augað, hin
hreint óþolandi óskiljanleg þvæla.
Í hvert sinn sem maður sér vonda
De Palma-mynd bítur maður í vör-
ina og veltir fyrir sér hverslags
synd þetta sé, á meðan maður
hugsar til allra góðu myndanna og
allra þeirra hæfileika sem mað-
urinn býr óneitanlega yfir.
Því miður beit ég í vörina þegar
ég horfði á Tálkvendið. Eins og
nákvæmlega allar De Palma-
myndir, jafnt hinar góðu og
slæmu, þá hefur hún eitthvað við
sig, einstaka atriði sem hiklaust
má flokka sem snilld. En hér, sem
oft áður, hefur De Palma karlinn
ekki gætt að sér, látið alla stæl-
ana, allar stílbrigðatilraunirnar,
hlaupa með sig í gönur og gleymir
einu lykilatriði, sögunni.
Þetta draumkennda ferðalag
hins staðlaða tálkvendis er nefni-
lega óþarflega snúið þannig að
maður uppsker engan veginn laun
erfiðisins, sem er að sitja undir
myndinni. Síðan er hún bara svo
fjandi illa leikin, sama hvað karl-
inn segir sjálfur, en í viðtölum hef-
ur hann básúnað glæsta frammi-
stöðu Romijn-Stamos.
Gallharðir De Palma-unnendur
eru kenjóttir mjög þannig að sum-
ir þeirra sjá Tálkvendið vafalítið
sem tæra snilld. Aðrir er ég
hræddur um að bíti sig til blóðs í
vörina.
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Ráðvilltur
í rökkrinu
Í SJÓNVARPSHEIMI eru 45 mín-
útur í einni klukkustund, á móti
þessum gömlu góðu 60 mínútum í
raunheimi. Munurinn er þetta 15
mínútna svigrúm fyrir auglýsing-
arnar lífsnauðsynlegu í sjónvarps-
heiminum.
Einhverjir allra farsælustu og um
leið rómuðustu þættir síðustu ára
heita 24 stundir og gerist hver þátt-
ur á einni sjónvarpsstundu og öll
þáttaröðin, alls 24 þættir, því á heil-
um sjónvarpssólarhring.
Hefst fyrsti þátturinn á því að
gagnnjósnarinn Jack Bauer (Kiefer
Sutherland) kemst á snoðir um að
ráða eigi forsetaframbjóðanda af
dögum. Fer þá hver sekúnda að
skipta máli, hvort honum takist að
koma í veg fyrir morðið. Eftir því
sem sekúndúm, mínútum og klukku-
stundum fjölgar stækkar vefurinn
og fleiri flækjast í hann sem gerir
spennuna óbærilega. Þessir vinsælu
sjónvarpsþættir eru nú komnir út á
mynddiskum, allar 24 stundirnar, 5
stundir á hverjum diski, að und-
anskyldum síðustu stundunum, sem
eru 4 saman á diski.
Af öðru efni sem út kemur á
myndbandi og -diskum í vikunni má
nefna spænsku spennumyndina In-
tacto en hún er með yfirnáttúrulegu
ívafi og fjallar um fórnarlamb hel-
fararinnar sem býr yfir þeim mætti
að geta gefið, selt og stolið láni frá
öðrum mönnum. Hann rænir láninu
frá manni sem lifði af jarðskjálfta
þannig að sá hyggur á hefndir og
nýtur aðstoðar annars lukkunar
pamfíls sem lifði af flugslys. Frum-
leg mynd sem stendur til að gera að
stórmynd í Hollywood. Aðrar
spennumyndir sem koma út í vik-
unni eru m.a. Yfirgefin (Abandon)
með Katie Holmes, Í fjötrum (Trapp-
ed) með Kevin Bacon og Charlize
Theron, Lok og læs (Lockdown) og
framhald Í Kína borða þeir hunda
sem heitir Gamlir menn á nýjum bíl-
um. Einnig koma út gamanmynd-
irnar Á gægjum (I Spy) með Eddie
Murphy og Owen Wilson, Talandi
um kynlíf (Speaking of Sex) með Bill
Murray og enn ein Brady Bunch-
myndin. Tvær nýjar myndir ruku
beint í toppsæti listans yfir vinsæl-
ustu leigumyndbönd. Eminem og
Mílurnar átta fór á toppinn og Jack
Nicholson og Varðandi Schmidt í
annað sæti.
!" #
$
!"
!"
!"
!" $
!" $
$
!"
!" $
#
$
!" $
$
#
%
&
'
&
'
'
&
'
'
'
&
'
&
&
%
&
'
'
'
&
!"
##
$
% & %
' '
(
)
!
# )( *
Kiefer Sutherland hefur 24 stundir
til að bjarga málunum – með nokkr-
um auglýsingahléum.
45 mínútur í einni klukkustund
Skjöldurinn (The Badge)
Engin snilldarræma en snillartilþrif
aðalleikarans Billys Bobs Thorntons
gera hana fyllilega þess virði að
leigja. (S.G.)
Skotið (Crush)
Bæði skemmtilega háðsk og mjög
dramatísk mynd sem fjallar um
sanna vináttu. Vel skrifuð, marg-
slungin og vel leikin kvikmynd sem
kemur á óvart. (H.L.)
Varðandi Schmidt
(About Schmidt)
Þrátt fyrir alvöruna og hlífðarlaust
raunsæið er Varðandi Schmidt
gráglettin í aðra röndina, krydduð
háðskum athugasemdum um fall-
valtleikann og fánýti mannlífsins.
Örugglega með bestu og mætustu
myndum stórleikarans Jacks Nic-
holsons. (S.V.)
8 mílur (8 Mile)
Eftirminnileg og vönduð kvikmynd
með sterkri nærveru stærstu rapp-
stjörnu heims, Eminem. Veikir
heildarmyndina hversu veik meg-
infléttan er þó.(H.J.)
Blood Work (Blóðrannsókn)
Leikstjórinn Eastwood gerir þokka-
lega hluti en leikarinn Eastwood er
ósannfærandi sem harðsvíraður lög-
reglumaður ogkvennagull í eltinga-
leik við raðmorðingja. (S.V.)
Nýliðinn (The Rookie)
Mynd sögð af mikilli væntumþykju
um þjóðaríþróttina bandarísku,
hafnabolta þar sem hinn geðþekki
Dennis Quaid er stórkostlegur í að-
alhlutverkinu.(S.V)
Einkaritarinn (The Secretary)
Einkar fumlaus og virðingarverð
stúdía á sadó/masókisma, framsett á
skemmtilega skrítinn máta sem þó
er aldrei á kostnað þessara for-
boðnu kennda. (S.G.)
Hvergi í Afríku
(Nowhere in Africa)
Vel leikin, vel gerð mynd með fal-
legum boðskap, þótt framvinda
reynist heldur ótrúverðug á stund-
um. (S.V.)
Bekkjarafmælið (Klassfesten/
The Reunion)
Snyrtileg sænsk meðhöndlun á
kunnuglegu efni um endurfundi, eft-
irsjá og fornar ástir í huga miðaldra
fólks. (S.V.)
Elska þig að eilífu (Elsker dig for
evigt/Open Hearts)
Mjög rómantísk ástarsaga sem auð-
velt er að lifa sig inn í, en þó verður
að hafa varann á þar sem líf persóna
er afar flókið og margslungið. (H.L.)
Frá sér numin (Swept Away)
O
Aldrei gefið mynd skammareinkunn
áður. Horfið á hana og ykkur á eftir
að finnast allar aðrar myndir vera
snilldarverk. Takk Madonna. (S.G.)
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn
Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Eftir að hafa horft á Frá sér numin virka allar aðrar myndir sem snilld.