Morgunblaðið - 24.06.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 43
BECKHAM-hjónin ætla að slá upp
veglegri kveðjuveislu fyrir vini og
vandamenn áður en þau flytja frá
Englandi til
Madrid-borgar,
þar sem David
mun nú leika
knattspyrnu
næstu fjögur árin
með Real Madr-
id. Er talið að
herlegheitin muni
kosta að minnsta
kosti 12 milljónir króna. Hjónin hafa
boðið 300 gestum til kveðjuhófsins
sem haldið verður á næturklúbbnum
heita Nell’s Bar í Lundúnum. Hefur
Victoria fyrirskipað að það verði
spænskt þema og nóg af sangria
handa öllum. Á gestalista eru fyrr-
verandi félagar Davids úr Man-
chester United, fyrrverandi vin-
konur Victoriu úr Spice Girls, Sir
Elton John og unnusti hans David
Furnish, Naomi Campbell og Liz
Hurley m.a. Hjónin eru um þessar
myndir stödd í Japan þar sem David
er í heljarinnar kynningarherferð.
… Julia Roberts er æf út í banda-
ríska tímaritið Redbook fyrir að
hafa birt skrumskælda mynd af sér
á forsíðunni. Það
sem tímaritið
gerði var að
skeyta saman
myndir af henni
frá tveimur tíma-
skeiðum, lík-
aminn er af mynd
sem tekin var á
frumsýningu
Notting Hill 1998 en höfuðið af
mynd frá því á People’s Choice verð-
laununum 2002. Yfirskriftin er síðan
„Hin eina sanna Julia“. Ábyrgð-
armenn tímaritsins hafa beðið Ro-
berts velvirðingar á þessum vinnu-
brögðum… Arnold
Schwarzenegger ætlar ekki að
leyfa börnum sínum að sá þriðju
Tortímanda-myndina, sem frum-
sýnd verður í
næsta mánuði.
Schwarzenegger
á fjögur börn,
elsta er 13 ára og
yngsta 5 ára, og
segir hann þau
aldrei hafa séð
neina af Tortím-
anda-myndunum
ofbeldisfullu. „Sonur minn sagði við
mig um daginn að allir krakkarnir í
skólanum hefðu gaman af því að
segja setninguna „Ég sný aftur“ úr
T2. Ég spurði hann hvar þau lærðu
þetta og hann sagði mér að vinir sín-
ir horfðu á myndina á mynddiski. Ég
vil ekki leyfa börnum mínum það,
ekki svona ungum. Ég fylgi fast eftir
fyrirmælum kvikmyndeftirlits-
ins.“… Robbie Williams hefur tek-
ið fyrsta skrefið í átt að sam-
komulagi við fyrrverandi félaga sinn
úr Take That, Mark Owen. Robbie
hefur boðið Mark að koma fram með
sér á tónleikum seinna í sumar.
Þetta mun eflaust hafa jákvæð áhrif
á sólóferil Marks sem hingað til hef-
ur gengið fremur brösulega. Tón-
leikarnir sem um ræðir fara fram í
Knebworth í Hertfordshire, dagana
1. til 3. ágúst.
Take That naut á sínum tíma gríð-
arlegra vinsælda, á þriggja ára tíma-
bili kom hljómsveitin átta lögum í
toppsæti breska vinsældarlistans og
seldi um níu milljón plötur um heim
allan. Fyrir átta árum skildi leiðir,
þrír af fimm meðlimum hljómsveit-
arinnar; Robbie, Mark og Gary Bar-
low, hófu allir að
starfa upp á eigin
spýtur. Robbie
var sá eini sem
uppskar árangur
erfiðisins …
Chris Martin,
söngvari
Coldplay, hefur
samið lag um ást-
konu sína, Gwyneth Paltrow.
Söngvaranum varð það að orði á tón-
leikum, sem sveitin hélt í Denver
fyrir skömmu, að lagið „Móses“ væri
um fegurðardísina frá Hollywood.
Lagið er um þessar mundir í miklu
uppáhaldi hjá söngvaranum og að
hans sögn það skemmtilegasta sem
hann spilar á tónleikum. Eftirfar-
andi textabrot kemur fram í laginu:
„Eins og Móses hefur vald yfir haf-
inu/hefur þú vald yfir mér.“
Gwyneth gaf nýlega frá sér yfirlýs-
ingu þess efnis að hún ætlaði að
halda með hljómsveitinni í tónleika-
ferð. Yfirlýsing þessi virðist hafa
komið öðrum meðlimum hljómsveit-
arinnar þeim, Johnny Buckland,
Will Champion og Guy Berryman, í
opna skjöldu. Þeir félagar eru
smeykir um að Gwyneth muni
hindra þá í að njóta lífsins til fulln-
ustu í tónleikaferðinni. Af ofan-
greindu textabroti er það þó að
merkja að Yoko ehh … Gwyneth
muni fá sitt fram … Jennifer Lopez
heldur því fram að vaxi sé ofaukið í
vaxmynd af henni sem er í hinu víð-
fræga vaxmyndasafni, Madame Tus-
saud’s í London. Söng- og leikkonan
krefst þess að ríflega 5 kg af vaxi
verði fjarlægð af afturenda eft-
irmyndarinnar. Sumum þykir víst
þessar áhyggjur Jennifer af bak-
hlutanum gefa sögusögnum um yf-
irvofandi barneignir hennar og leik-
arans Ben Affleck, byr undir báða
vængi.
FÓLK Ífréttum
ÖLL þekkjum við partímyndir,
þessar ljósmyndir sem teknar eru í
partíum, venjulega allt of margar,
enda smellt af í hita leiksins. Þegar
allt er svo rosalega fyndið og
skemmtilegt, eitthvað sem verður að
taka mynd af, í
einhverri veikri
von um að geta
haldið í þessa
gleðitilfinningu,
varðveitt stuðið.
Útkoman er oft og tíðum dapurleg,
langflestar myndirnar handónýtar,
úr fókus, af fólki sem maður þekkir
ekkert, ofan í myndavélinni, í
glennu. En svo eru inn á milli nokkr-
ar algjörlega óborganlegar sem
koma alltaf til með að flytja mann
aftur í partíið, sama hversu langt er
liðið síðan, og þær myndir eru manni
kærari en margt, jafnvel þótt þær
séu kannski ekkert listaverk. En
það er alveg sama hvernig mynd-
irnar koma út, ef maður var ekki
partíinu og þekkir ekki þá sem eru á
myndunum, þá er nákvæmlega ekk-
ert gaman að skoða þær og eiginlega
alveg tilgangslaust.
Eldhúspartíplöturnar eru svolítið
eins og partímyndir. Þær fanga
ákveðna partístemmningu, tónleika
sem ganga út á andartakið, þetta
ákveðna sumar sem þeir fóru fram,
þessar sveitir sem þá voru vinsæl-
astar, einkum þó í sveitaballageir-
anum. Þeir sem voru þarna hafa
vafalítið sagt við sig, þetta verður að
gefa út – maður verður að geta varð-
veitt þetta stuð. Þessar plötur eru
fyrir þá. Maður verður helst að hafa
verið þarna. Þá er allt svo gaman.
En rétt eins og það getur stundum
nægt að þekkja þá sem eru á partí-
myndunum til að hafa gaman af
þeim þá má vissulega fá heilmikið út
úr Eldhúspartíplötum sé maður vel
kunnugur þeim sem á þeim eru, eiga
þar lög. Hér er átt við aðdáendurna.
Sé maður aðdáandi sveitanna sem
fram koma á Eldhúspartí fm957
2003, hljómsveitanna Lands & sona,
Írafárs, Í svörtum fötum, Á móti sól,
Jet Black Joe eða Daysleeper, er
platan eflaust kærkominn fengur.
Þekkt lög sveitanna – misjafnlega
þó – í órafmögnuðum og öðruvísi
búningi – misjafnlega þó. Útkoman
eins misjöfn
og partí-
myndirnar
eru margar.
Land &
synir og Íra-
fár myndast
vel að
vanda. Land
& synir í
óhefð-
bundnum
stellingum,
gömlu smell-
irnir í málm-
blásnum
spariklæð-
um; „Terlín“
betra en áð-
ur, „Vöðva-
stæltur“
síðra en „Ör-
magna“ allt-
af jafn flott.
Írafár nokkurn veginn eins á svipinn
og venjulega, ekkert sérlega óraf-
mögnuð, en fiðluleikur Dan Cassidy
hressir uppá „Ég sjálf“.
Daysleeper og Jet Black Joe eru
alvarlegir á svipinn að vanda enda á
nettu trúnó í partíinu. Fyrrnefndu
enn að glíma við draug að nafni Jeff
Buckley, vonandi að þeir vinni á
honum bug því þeir geta sitthvað
fyrir sér, það er auðheyrt. Síðar-
nefndu eiga þó jafnvel við ennþá
stærri og ógurlegri draug að etja,
sinn eigin fortíðardraug, hvort lifa
eigi áfram á fornri frægð eða leita á
ný mið, fyrst ennþá lifir í glæðunum.
Þurfa að fara að gera upp hug sinn.
Þá eru ónefndir partíboltarnir
tveir, Á móti sól og Í svörtum fötum.
Týpurnar sem eru inni á öllum
myndunum, læðast aftan að, alltaf
hressir, skælbrosandi, í glennu, jafn-
vel með tvo putta uppúr höfði þeirra
sem taka átti mynd að. Það var samt
eins og þeir hafi ekki alveg verið
nægilega vel fyrir kallaðir er mynd-
unum var smellt í þetta sinnið, eitt-
hvað orðnir framlágir og fókusinn
ekki alveg réttur. Þó náðist ein fín af
þeim í svörtu er þeir fluttu besta lag
plötu sinnar frá því um jólin, lagið
„Tímabil“. En þessar tvær sveitir
eru þó jafnan hrókur alls fagnaðar í
partíum og eru því væntanlega ekki
að missa svefn yfir einhverjum mið-
ur lukkuðum partímyndum. Þær
segja aldrei alla söguna.
Partímyndir eru og verða alltaf
partímyndir og sjaldnast betri en
það. Eldhúspartí er albúm partí-
mynda fyrir þá sem sóttu umrædd
partí og hina sem þekkja vel og líkar
við þá sem á myndunum eru. Öllum
öðrum er ráðlagt að fletta einhverj-
um öðrum myndaalbúmum.
Tónlist
Partímyndir
Ýmsir flytjendur
Eldhúspartí fm957 2003
Skífan
Safn upptaka frá órafmögnuðum tón-
leikum sem útvarpstöðin FM957 stóð
fyrir sumarið 2003 undir yfirskriftinni Eld-
húspartí fm957. Af þeim sem fram komu
eiga lög á plötunni Land & synir, Írafár, Í
svörtum fötum, Jet Black Joe og Day-
sleeper. Á plötunni eru alls 15 lög og
með fylgir mynddiskur með mynd-
upptökum frá Eldhúspartítónleikunum.
Skarphéðinn Guðmundsson
Partímyndir eru
eins misjafnar og
þær eru margar.
Ljósmyndir/Gass/Inga
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16
Martröðin er raunveruleg!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Ef þú hélst að þú værir heimskur,
þá hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16
sv MBL
Fyndnasta
myndin sem
þú sérð á árinu! T H E Y
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig
máttlausan!
Sýnd kl. 4, 6 og 10.
www.laugarasbio.is