Morgunblaðið - 24.06.2003, Side 36
DAGBÓK
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Arn-
arfell, Goðafoss, Black
Watch, Latouche-
Trévilla og Sylvia.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Bootes og Polar
Princess.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg 5,
fataúthlutun þriðju-
daga kl. 16–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað, vinnustofa, og
jóga, kl. 11 dans, kl. 13
vinnustofa. Minnum á
Jónsmessuferðina á
morgun. Enn tími til að
skrá sig.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og opin handa-
vinnustofa, kl. 9–12.30
bókband og öskjugerð,
kl. 9.30 dans, kl. 10.30
leikfimi, kl. 13–16.30
opnar handavinnu- og
smíðastofur. Kl. 13.30
létt ganga. Púttvöllur
opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað, kl. 10
samverustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–16
vefnaður, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16 opin
vinnustofa, kl. 10–11
leikfimi, kl. 12.40 versl-
unarferð í Bónus, kl.
13.15–13.45 bókabíllinn,
kl. 12 hárgreiðsla.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag er
brids kl. 13, billjard og
frjáls handavinna kl.
13.30. Pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Sími 588 2111. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
ganga frá Glæsibæ kl.
10. Dagsferð 4. júlí:
Rangárvellir, Oddi,
Sögusetrið á Hvolsvelli.
Súpa og brauð á Hvols-
velli. Leiðsögn Pálína
Jónsdóttir. Minnum á
fleiri ferðir. Nánari
uppl. á skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sími 575 7720. Kl. 9-
16.30 vinnustofur opn-
ar. Kl. 13 boccia. Veit-
ingar í Kaffi Bergi.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9.30–12, kl. 14
ganga.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
handavinnustofan opin
frá kl. 13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
kaffi, spjall, dagblöð-
in,kl. 10 boccia, kl. 11
leikfimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
boccia, Fótaaðgerðir,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 13–16
frjáls spil.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
9.30 opin vinnustofa og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 13 hand-
mennt og opin vinnu-
stofa, kl. 14 félagsvist.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á miðviku-
dögum kl. 20, svarað í s.
552 6644 á fundartíma.
Bergmál, vina- og líkn-
arfélag. Sumarferð fé-
lagsins verður að Skóg-
um undir Eyjafjöllum
sunnudaginn 29. júní
nk. Lagt af stað frá
húsi Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17, kl. 10.
Hádegishressing og
byggðasafnið skoðað.
Guðsþjónusta í kirkj-
unni að Skógum.
Þátttaka tilkynnist í
síma 552-1567 (Karl
Vignir), 568-1418 (Þór-
anna Þórarins) og 555-
1675 (Jónína Arndal).
Ferð þessi er öllum op-
in. Bergmál, ferða-
nefnd.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður í
dag, þriðjudaginn 24.
júní, kl. 10 við Brekku-
hús. Á morgun, mið-
vikudaginn 25. júní, kl.
10 við Vesturberg og kl.
14 við Rauðalæk.
Minningarkort
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Austurlandi: Egils-
staðir: Gallery Ugla,
Miðvangur 5. Eski-
fjörður: Póstur og s.,
Strandgötu 55. Höfn:
Vilborg Einarsdóttir
Hanarbraut 37.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Suð-
urlandi: Vestmannaeyj-
ar: Apótek Vestmanna-
eyja, Vestmannabraut
24. Selfoss: Selfoss
Apótek, Kjarninn.
Í dag er þriðjudagur 24. júní,
175. dagur ársins 2003. Jóns-
messa. Orð dagsins: En Jesús
sagði við lærisveina sína: Sannlega
segi ég yður: Torvelt verður auð-
manni inn að ganga í himnaríki.
(Matt. 19, 23.)
Á vefsíðu ungra jafn-aðarmanna fjallar for-
maður UJ í Reykjavík,
Andrés Jónsson, um
breytt viðhorf íslensks
samfélags til kynlífs.
Andrés telur að breytinghafi átt sér stað þegar
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir
snéri heim til Íslands úr
námi sem fyrsti íslenski
kynlífsfræðingurinn.
Um miðjan 10. áratug-inn tók byltingin enn
kipp með tilkomu súlu-
staðanna og undir lok
hans hafði almennur að-
gangur þjóðarinnar að
Internetinu opnað allar
flóðgáttir og innreið kyn-
lífsiðnaðarins á Íslandi
náði hámarki. Tugir þús-
unda Íslendinga munu til
að mynda hafa notað sér
þjónustu stefnumótavefj-
arins Einkamál.is. En það
fyrirtæki auglýsir m.a. að
það sé þitt einkamál ef þú
hneigist til samræðis við
hross. Annað hefði ég nú
haldið án þess að ég hafi
kynnt mér dýravernd-
unarlögin sérstaklega,“
segir Andrés í fyrri grein
sinni.
Andrés telur að mörkiná milli kláms og ann-
ars skemmtanaiðnaðar
verði sífellt óljósari. Hann
nefnir tónlistarmyndbönd
sem dæmi: „Ef maður
horfir á tónlistar-
myndbönd án þess að
hljóðið sé á er oft ekki
auðvelt að sjá hvort um
tónlistarflutning eða ein-
hverskonar klámmynd sé
að ræða. Kynlífsbyltingin
á því uppruna sinn að ein-
hverju leyti hjá framleið-
endum popptónlistar,
tísku og kvikmynda. Skil-
in á milli þessara greina
og klámiðnaðarins eru
óljós.“
Andrés telur að þróuniní átt að opinskárri um-
ræðu um kynlíf hafi geng-
ið of langt og að nú sé
kominn tími til þess að
fólk læri að blygðast sín á
ný. Hann rekur fjölmörg
dæmi í pistlum sínum um
hvernig umhverfið er orð-
ið stöðugt mettaðra að
kynferðislegum tilvís-
unum og vill að fólk taki
sér tak og snúi af þessari
braut. Hann telur að
margt í umhverfinu hafi
brenglandi áhrif á þær
hugmyndir sem ungling-
ar, sem eru að öðlast með-
vitund um sjálfa sig sem
kynverur, fái um hvað sé
eðlileg kynferðisleg hegð-
un.
Andrés leggur til aðþetta gildismat verði
tekið til endurskoðunar:
„Ég mæli hins vegar með
því að við leitum Vest-
urbæjar-húsmóðurinnar
innra með okkur og að við
leyfum henni að brjótast
út við og við. Ræktum
blygðunarkenndina! Hún
er ekki alltaf upprunnin í
kreddum. Stundum er hún
eðlilegt viðbragð heil-
brigðra tilfinninga þegar
að sjálfsvirðingu okkar er
ógnað og við sættum okk-
ur hreinlega ekki við eitt-
hvað,“ segir Andrés.
STAKSTEINAR
Kynlífsbyltingin étur
börnin sín
Víkverji skrifar...
LISTASAFNIÐ á Akureyri hefur ásíðastliðnum árum og misserum
látið mikið að sér kveða í íslensku
listalífi, haslað sér völl sem fram-
sækið og hugmyndaríkt safn með
fingurinn á púlsinum. Þetta er fyrst
og fremst einum manni að þakka,
Hannesi Sigurðssyni, forstöðumanni
safnsins. Hann hefur komið eins og
stormsveipur inn í íslenskt safnalíf og
gefið menningarbænum Akureyri
aukið vægi.
Hannes tók við safninu árið 1999
og lét snemma að sér kveða. Þannig
minnist Víkverji sýningarinnar Losti
2000, þar sem fjöldi listamanna tjáði
sig um kynjamál. Styr stóð um þessa
sýningu, einkum á heimaslóð, og ein-
hverjir íhuguðu lögsókn til að fá
henni lokað. Af því varð ekki. En
tónninn var gefinn, engin lognmolla
skyldi vera um Listasafnið á Ak-
ureyri. Og þannig hefur það verið,
hver forvitnilega sýningin hefur rekið
aðra, og menn eru löngu hættir að sjá
ofsjónum.
x x x
BREIDDIN hefur verið mikil ísýningahaldi nyrðra. Ef við rifj-
um upp síðasta ár kom rússnesk
myndlist frá Arkangelsk, sérstaklega
samsett fyrir safnið, í kjölfarið kom
Akureyri-myndlist II þar sem burt-
fluttum Akureyringum voru gerð skil
og síðan var m.a. boðið upp á Milli
goðsagnar og veruleika, þar sem verk
eftir múslimska listamenn voru sýnd,
og síðan tók við við sýningin Rem-
brandt og samtíðarmenn hans, sem
vakti feikilega athygli og aðdáun.
Enn stal safnið senunni fyrr á
þessu ári með sýningunni Aftökur og
útrýmingar og um næstu helgi verð-
ur opnuð sýning á höggmyndalist 20.
aldar, þar sem Hannes kemur á sam-
ræðu erlendra lykilmanna á borð við
Degas, Renoir, Maillol og Buren og
íslenskrar framvarðasveitar, Ás-
mundar Sveinssonar, Hreins Frið-
finnssonar, Sigurðar og Kristjáns
Guðmundssona, Finnboga Péturs-
sonar og fleiri. Þarna má kannski sjá
styrk safnsins í hnotskurn, það legg-
ur metnað í að færa okkur það besta
sem þekkist erlendis án þess að það
komi niður á okkar eigin myndlist.
Hennar sess er tryggður.
Það er engin tilviljun að Listasafn-
ið á Akureyri er svona atkvæðamikið
í íslensku listalífi. Öflug sýning-
arstjórn er skýringin. Þá eru sýn-
ingar safnsins jafnan settar fram með
þeim hætti að þær koma fólki við.
Þær eiga erindi við fjöldann en eru
ekki aðeins fyrir fámennan hóp inn-
vígðra. Án þess að það bitni á gæð-
unum.
x x x
VÍKVERJI las í viðtali við HannesSigurðsson hér í Morgunblaðinu í
janúar að samningur hans við safnið
rynni út í vor. Ekki hefur komið fram
hvort hann hefur verið framlengdur
en það yrðu mikil mistök hjá Akur-
eyringum að láta Hannes sér úr
greipum ganga. En eins dauði er ann-
ars brauð og það er ekkert vafamál
að margir áhugamenn um myndlist
vilja sjá hann á valdastól hjá öðru
hvoru stóru safnanna hér í Reykja-
vík, Listasafni Íslands eða Listasafni
Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Kristján
Verk á sýningunni Aftökur og út-
rýmingar í Listasafninu á Akureyri.
Konan í fylgd
Jakobs á Bölta
VARÐANDI beiðni mína
um konuna í fylgd Jakobs á
Bölta í laugardagsblaðinu
21. júní sl. þá eru komnar
upplýsingar um hana. Hún
hét Jósefína Oddný Gísla-
dóttir, f. 4. des. 1918, dáin 5.
okt. 1962. Hún var síðari
kona Þorsteins Jósepsson-
ar, blaðamanns og rithöf-
undar, og tók hann mynd
þessa 1954.
Með bestu kveðjum,
Leifur Sveinsson.
Kettir eru plága
ÞÓRA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
því á framfæri að kettir
væru plága. Sagðist hún
vera ósammála því sem kom
fram í Velvakanda í gær, 23.
júní, að kettir væru öllum til
ánægju en engum til ama.
Stökkmýs voru eitt sinn
gæludýr heimilis Þóru og
var búr þeirra bilað. Einn
morguninn, er komið var
inn í herbergið sem þær
voru geymdar í, voru þær
horfnar. Hefur ekki spurst
til þeirra síðan. Einu vís-
bendingarnar um hvarf
þeirra voru kattarspor í
gluggakistunni. Kettir eru
því til ama þar sem Þóra
býr.
Rangt reikningsnúmer
RANGT reikningsnúmer
birtist í Velvakanda sunnu-
daginn 22. júní sl., en þá var
sagt frá hjólastólamara-
þoni. Rétt reikningsnúmer
er: 1175-05-40756 og kenni-
talan er 570269-2169.
Tengja
UNNENDUR hins frá-
bæra tónlistarþáttar
Tengja á Rás tvö tóku gleði
sína á ný þegar stjórnarndi
þáttarins, Kristján Sigur-
jónsson, byrjaði að spila
heimstónlist og þjóðlaga-
rokk að nýju á laugardögum
í maí og júní. Þátturinn á
laugardaginn var auglýstur
sem sá fjórði og síðasti. Ég
skora á Kristján og Rás tvö
að halda áfram með þáttinn
þannig að hann verði viku-
lega á dagskrá.
Tónlistar- og
Rásarvinur.
Dýrahald
Bíbí er týndur
BÍBÍ flaug frá heimili sínu,
Gauksási 41, Hafnarfirði,
19. júní sl. Hann er blár að
lit og mjög gæfur. Bíbí talar
gjarnan þegar vel liggur á
honum og segir: „Bíbí góður
strákur.“ Ef einhver hefur
orðið hans var er sá hinn
sami vinsamlegast beðinn
að hafa samband í síma
565 2252 eða 894 0433.
Læðu vantar heimili
VEGNA flutninga vantar
kolsvarta, 6 ára gamla læðu
gott heimili. Læðan er vön
því að fá að komast út en fer
aldrei langt. Hún er góð og
gæf. Áhugasamir geta
hringt í síma 865 2297.
Tapað/fundið
Sími tapaðist
VÍNRAUÐUR Nokia 6150
sími tapaðist í miðbæ
Reykjavíkur aðfaranótt 20.
júní sl. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að hafa
samband í síma 694 9732.
Geisladiskahulstur
í óskilum
Geisladiskahulstur með
diskum í, fannst í miðbæ
Reykjavíkur fyrir 2–3 vik-
um. Ef einhver saknar þess
getur hann hringt í síma
867 5730.
Grá golftreyja tapaðist
GRÁ golftreyja týndist, lík-
legast á leið frá Nettó í
Mjódd í Neðra-Breiðholt.
Hafi einhver fundið peys-
una er sá hinn sami vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 557 1252.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Svífandi á línuskautum.
LÁRÉTT
1 hál, 4 skyggnist til veð-
urs, 7 snagar, 8 endar, 9
upplag, 11 vel látna, 13
bein, 14 hland, 15 álka,
17 skrifaði, 20 ílát, 22
fara laumulega með,
23 sárum, 24 kvenfugl-
inn, 25 kaka.
LÓÐRÉTT
1 sök, 2 upplagið, 3
ávöxtur, 4 mælieining, 5
milda, 6 rugga, 10
plokka, 12 keyra, 13
skjól, 15 stökkva, 16
kögguls, 18 bál, 19 lengd-
areining, 20 hafði upp á,
21 agasemi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 forherðir, 8 lesta, 9 ósjór, 10 puð, 11 sýkna, 13
arnar, 15 hjörs, 18 skúra, 21 tóm, 22 raupi, 23 eflir, 24
hlægilegt.
Lóðrétt: 2 orsök, 3 hrapa, 4 rjóða, 5 iðjan, 6 glás, 7 frír,
12 nær, 14 rok, 15 horf, 16 ötull, 17 sting, 18 smell, 19
útlæg, 20 aðra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16