Morgunblaðið - 10.07.2003, Síða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2003 7
ÓLYMPÍULEIKARNIR í stærðfræði
hefjast í Japan á laugardag en íslensku
keppendurnir halda utan í dag. Ólymp-
íuleikarnir eru haldnir árlega og hver
þjóð hefur möguleika á að senda sex
keppendur. Að sögn Friðriks Diego,
fararstjóra íslenska liðsins, eru um 80–
90 þjóðir sem taka þátt og því um úrval
ungra stærðfræðisnillinga að ræða.
„Keppendurnir hafa verið í 4–6 vik-
ur í strangri þjálfun og eru nokkuð vel
undirbúnir. Þau sem hafa farið áður
hafa að sjálfsögðu ákveðið forskot,“
segir Friðrik.
Á hverju ári er haldin forkeppni og svo
úrslitakeppni hér á landi til að úrskurða
um hvaða nemendur fá að fara. Skilyrðin
eru að viðkomandi verður að vera undir
tvítugu og í framhaldsskóla.
Ólympíuleikarnir standa svo í tvo
daga, sunnudag og mánudag. Nemendur
fá þrjú dæmi á dag og hafa fjóra og hálfa
klukkustund til að leysa þau. Sjö stig eru
í boði fyrir hvert dæmi en að sögn Frið-
riks þarf mikið til að fá fullt hús stiga.
Dómnefndin er skipuð fulltrúum frá
hverju landi en í ár er Fríða Rún Björns-
dóttir fulltrúi Íslands.
Íslensku keppendurnir í Ólympíuleikunum í stærðfræði (frá vinstri ): Örn Arnaldsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, Líney Halla Kristinsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð, Ásgeir Alexandersson, Mennta-
skólanum á Akureyri, Höskuldur P. Halldórsson, Menntaskólanum í Reykjavík, Eyvindur Ari Pálsson,
Menntaskólanum í Reykjavík, Hringur Grétarsson, Menntaskólanum í Reykjavík.
Keppa í stærðfræði
í Japan
TVEIR breskir eldri borgarar luku
í gær flugi sínu á heimasmíðaðri
flugvél yfir Atlantshafið þegar þeir
lentu í Blackpool á Bretlandi. Þetta
var síðasti leggur ferðarinnar, en
þeir félagar lögðu upp frá Reykja-
víkurflugvelli um hádegi á þriðju-
dag.
Denis Wood og Jack Berkin, báð-
ir 68 ára, flugu yfir hafið frá Kan-
ada til Bretlands, með viðkomu á
Grænlandi og Íslandi á vél sem þeir
kalla „nokkurs konar nútíma útgáfa
af flugvél Wright-bræðra“, en í ár
eru 100 ár liðin síðan Wright-bræð-
ur flugu í fyrsta sinn flugvél sem
flaug fyrir eigin vélarafli.
Með þessu rættist sex ára gamall
draumur Wood og Berkin, sem
voru að vonum ánægðir með að
komast á leiðarenda eftir langt flug
yfir opnu hafi. Nú segir Wood að
áætlunin sé að fljúga á flugsýn-
ingum í Bretlandi áður en þeir fé-
lagar fljúga áfram til Suður-Frakk-
lands þar sem þeir eiga heima.
Atlantshafs-
flugi á
heimasmíð-
aðri vél lokið
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti prests í London rann út hinn
4. júlí síðastliðinn. Tveir prestar
sóttu um embættið. Þeir eru: sr.
Sigríður Guðmarsdóttir og sr. Sig-
urður Arnarson.
Embætti prests í London er
veitt frá 1. september 2003. Emb-
ættið er samstarfsverkefni biskups
Íslands, Tryggingastofnunar ríkis-
ins og utanríkisráðuneytisins, á
grundvelli sérstaks samstarfs-
samnings. Þriggja manna hæfis-
nefnd tilnefnd af samstarfsaðilum
metur umsækjendur og mælir með
einum. Niðurstaða nefndarinnar er
bindandi.
Biskup Íslands skipar í emb-
ættið til fimm ára.
Tveir sóttu um
embætti prests
í London
ÞAÐ SEM af er liðið þessu ferðaári
er 31,79% aukning í útleigu á bíla-
leigubílum hjá bílaleigunni Hertz á
Íslandi samkvæmt frétt frá fyrir-
tækinu.
Af þeim sökum hefur Hertz þurft
að stækka bílaflota sinn til muna og
er með yfir 800 bíla í umferð nú, en
það er um 30% aukning frá sl. ári.
Gert er ráð fyrir 30% fleiri bók-
unum í júlí, ágúst og september mið-
að við sama tíma í fyrra.
Þær þjóðir sem sýna mesta aukn-
ingu í leigu bílaleigubíla hjá Hertz á
Íslandi eru Sviss, Finnland, Frakk-
land, England, Ísland og Bandarík-
in.
Fleiri leigja
bílaleigubíl
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
17
13
07
/2
00
3
Kanaríeyjar eru vinsælasti vetraráfangasta›ur sólflyrstra Íslendinga undanfarna
áratugi. Nú liggur fer›aáætlun vetrarins fyrir og okkur er ánægja a› kynna n‡
íbú›ahótel sem sameina gæ›i og gó›a sta›setningu.
á mann m.v. tvo í íbú› á Teneguia í
2 vikur, 3. jan. e›a 6. mars me›
Úrvalsfólks bókunarafslætti.
68.630 kr.*
Ver›dæmi:
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting, akstur til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
10.000 1) kr.
bókunarafsláttur í allar fer›ir frá 9. des.
15.000 1) kr.
bókunarafsláttur fyrir Úrvalsfólk
í fer›irnar 3. jan. e›a 6. mars 2004.
Morgunflug me› Icelandair á laugardögum
1) Gildir ekki ef keypt er flugsæti án gistingar
né á íbú›ahótelunum Barbacan Sol og Carolina.
Glæsilegur bókunarafsláttur fyrir
fyrstu 350 farflegana sem bóka
og sta›festa fyrir 8. ágúst n.k.
Tenegia - Látlaust og vel sta›sett.
Las Camelias - Allra vinsælasta
Íslendingahóteli› undanfarin ár.
Barbacan Sol - Glæsilegra en
nokkru sinni fyrr, allt endurn‡ja›.
Santa Barbara - Eins og n‡tt,
búi› a› endurn‡ja öll húsin.
Princess - Fallegu smáh‡sin
í Maspalomas.
Tveir vinsælustu gistista›ir Skandinava
á Kanarí nú hjá Úrvali-Ús‡n:
Carolina í San Augustin og
Amazonas á Ensku ströndinni.