Morgunblaðið - 10.07.2003, Blaðsíða 38
DAGBÓK
38 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Kiel, Mánafoss og
Snorri Sturluson
koma í dag. Apollo
Lupus, Arnarfell,
Sedna IV Megadream
og Goðafoss fara í
dag.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Handavinnustofan er
lokuð vegna sumar-
leyfa. Kl. 9.45–10
helgistund, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13–16.30 opin smíða
og handavinnustofa.
Kl. 13.30 lengri ganga.
Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 íkonagerð, kl. 10–
13, verslunin opin, kl.
13–16 spilað.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12
bað, kl. 9–16 opin
vinnustofa, kl. 13.30
söngtími.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kynn-
ingafundur í dag kl.
10,
um ferðaáætlun í or-
lofsferðina til Vest-
fjarða með gistingu á
Reykjanesi og Ísafriði.
Þátttakendur fjöl-
mennið. Glerlist kl 13.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids fellur
niður, næst spilað 7.
ágúst. Dagsferð 12.
júlí Söguferð í Borg-
arfjörð laus sæti. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa til 12.
ágúst. Sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug á mánudög-
um, miðvikudögum og
föstudögum kl. 9.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–16.
Gullsmári, Gullsmára
13. Lokað vegna sum-
arleyfa til 5. ágúst.
Hárgreiðuslustofan og
fótaaðgerðarstofan
verða opnar.
Hraunbær 105. Kl. 9
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
10 boccia, 13.30 fé-
lagsvist. Hársnyrting
og fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofa lokuð vegna
sumarleyfa frá 3. júlí
til 5. ágúst. Kl. 10–11
ganga.
Vesturgata. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 10–11
boccia.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð og boccia æfing,
kl. 13 frjáls spil.
Kanaríeyjaflakkarar,
halda sumargleði í Ár-
nesi, Gnúpverjahreppi
11.–13. júlí. Svæðið
opnað kl. 16 föstudag.
Boðið verður upp á
óvissuferð á drauga-
slóðir, happdrætti,
hlaðborð og margt
fleira. Músík föstud.–
laugardagskvöld. Allir
mæta að venju með
gleði í hjarta.
Hana-nú, Kópavogi,
Hugmyndabanka-
fundur verður í Gjá-
bakka í dag, fimmtu-
dag, 10. júlí kl. 13,
vegna hátíðargöngu
gönguklúbbs laugar-
daginn 19. júlí nk. í til-
efni 20 ára afmælis
Hana-nú. Allir vel-
komnir.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður í
dag, fimmtudaginn 10.
júlí, kl. 14 við Fífusel.
Minningarspjöld
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552-2154.
Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud.
kl. 16–18 en utan
skrifstofutíma er sím-
svari. Einnig er hægt
að hringja í síma 861-
6880 og 586-1088.
Gíró- og kredit-
kortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl.10–15.
Sími 568-8620. Bréfs.
568-8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minningar-
kort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða
í bréfs. 533-1086.
Í dag er fimmtudagur 10. júlí
191. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Og ef þér reynist ekki trúir í
því sem annars er, hver gefur yð-
ur þá það, sem yðar er?
(Lúk. 16, 12.)
Fáum dettur annað íhug en að George W.
Bush takist að halda
embætti sínu í forseta-
kosningum sem háðar
verða í nóvember árið
2004. Kosningabarátta er
þegar byrjuð og svo virð-
ist að enginn af mögu-
legum frambjóðendum
demókrata eigi mögu-
leika á sigri.
Ýmsir hafa þó bent á
að hægagangur í efna-
hagslífinu geti orðið for-
setanum að falli, sér-
staklega ef efnahagslífið
tekur ekki við sér á
næstu mánuðum. Samlík-
ingin við föður forsetans,
George eldri, er augljós.
Hann varð fyrsti forseti
Bandaríkjanna sem ekki
tókst að tryggja sér end-
urkjör eftir að hafa leitt
þjóðina til sigurs í stríði.
Skömmu eftir að hersetu
Íraka í Kúveit var hrund-
ið mældist forsetinn með
um 90% stuðning og töldu
flestir af frambærileg-
ustu demókrötum Banda-
ríkjanna að það væri
feigðarflan að ætla sér í
kosningabaráttu gegn
svo vinsælum forseta.
Gæfudísirnar voru hins
vegar fljótar að snúast
gegn Bush eldri og vel
skipulögð kosningabar-
átta lítt þekkts fylkis-
stjóra frá Akransas, Bills
Clinton, bar Bush ofur-
liði.
Stuðningsmenn núver-andi forseta hafa frá
upphafi gert tilraun til
þess að tryggja að stjórn-
málaspekúlantar líki
George yngri frekar við
hinn viðkunnanlega Ron-
ald Reagan en klunnaleg-
an föður sinn; og víst er
að George W. býr yfir
meiri sjarma en George
eldri. Hins vegar virðast
feðgarnir báðir því marki
brenndir að stóla um of á
árangur í utanríkis-
málum, sem geta verið
líkleg til vinsælda til
skamms tíma, en falla
oftast nær í skuggann
þegar að kosningabar-
áttu um forsetaembættið
kemur.
Líklegt er að þolin-
mæði almennings vegna
efnahagsmála fari þverr-
andi og hagfræðingar
virðast flestir á þeirri
skoðun að hugmyndir
Bush um skattalækkanir
séu ekki til þess fallnar
að ýta við hjólum efna-
hagslífsins af nægjan-
legum krafti. Við þetta
bætist að almenningur í
Bandaríkjunum kann illa
við það ef bandarískir
hermenn halda áfram að
falla í Írak; í stríði sem
þegar er búið að lýsa yfir
sigri í.
Efasemdir um mála-tilbúnað ríkisstjórnar
Bush í aðdraganda stríðs-
ins í Írak gerast þar að
auki sífellt háværari en
lengi vel, eftir hryðju-
verkin 11. september
2001, þorðu bandarískir
fjölmiðlar lítið að gagn-
rýna utanríkisstefnu
Bush, af ótta við ásakanir
um skort á föðurlandsást
og samstöðu. Þetta er
smám saman að breytast
og forsendur Íraksstríðs-
ins verða vafalaust rædd-
ar í kosningabaráttunni.
STAKSTEINAR
Er staða Bush nægilega
sterk?
Víkverji skrifar...
ÍSLENDINGAR hafa löngum ver-ið orðlagðir fyrir að kunna ekki
að standa í biðröðum heldur troðast
hver um annan þveran þar til þeim
tekst að ná athygli þess sem er að
afgreiða með einhverjum hætti,
yfirleitt með því að stara stíft í augu
þeirra og vonast til að ná augn-
sambandi. Þar er nefnilega óskrifuð
regla að augnsamband jafngildir af-
greiðslunúmeri og þegar Víkverji
nær slíku sambandi veit hann að
biðin er senn á enda. Eftir áralanga
þjálfun telur Víkverji sig hafa náð
ágætri leikni í augnsamböndum.
Þegar Víkverji lendir í troðningi, til
dæmis í bíósjoppu eða á vínveit-
ingahúsi, reynir hann, með sam-
stilltri, hárfínni og blæbrigðaríkri
notkun andlitsvöðva og augna, að
koma þeim skilaboðum til af-
greiðslufólksins að hann sé búinn að
bíða lengur en flestir eftir af-
greiðslu en sé bara alls ekkert fyrir
það að trana sér fram og sé reyndar
orðinn afskaplega þreyttur á öllum
troðningnum sem sé sko alls ekki
honum að kenna. Þessi aðferð hefur
gefist ótrúlega vel og Víkverji þarf
sjaldnast að bíða lengur en hann á
skilið.
VÍKVERJI þekkir engan semheldur því fram að það sé merki
um háttvísi og gott uppeldi að troð-
ast fram fyrir í biðröðum heldur
gera langflestir sér grein fyrir því að
það er hinn argasti dónaskapur. Síð-
astliðinn föstudag voru ótrúlega
margir dónar á leið út úr Reykjavík
um Vesturlandsveg. Ballið byrjaði
þar sem Vesturlandsvegur þrengist
úr tveimur akreinum í eina, á milli
Grafarvogs og Mosfellsbæjar. Af
einhverjum ástæðum myndaðist
fljótlega biðröð hægra megin sem
teygði sig langleiðina upp að Grafar-
holti en umferðin á vinstri akrein
gekk betur, að minnsta kosti í
fyrstu. Víkverji ók á hægri akrein og
í baksýnisspeglunum sá hann að
ökumenn fyrir aftan hann tóku
margir að skipta yfir á vinstri akrein
og tróðu sér svo inn í röðina framar,
með þeirri afleiðingu að biðröðin
hægra megin gekk enn hægar. Það
sauð á Víkverja en þar sem hann er
vel innrættur datt honum ekki í hug
að skipta um akrein. Hann fékk
nokkra sárabót við vegþrenginguna
þegar fjölmargir reyndu að ryðjast
fram fyrir hann en með því að aka
óþægilega nálægt næsta bíl tókst
Víkverja að koma í veg fyrir að einn
einasti bíll á vinstri akrein kæmist
fram fyrir hann.
Víkverji átti hins vegar ekkert
svar við því þegar þrír bílar tóku
fram úr biðröðinni hægra megin
með því að aka eftir vegarkantinum
sem er auðvitað kolólöglegt. Þegar
hvítur A-Benz nálgaðist á vegkant-
inum sýndi Víkverji vanþóknun sína
með því að sveigja aðeins inn á kant-
inn en uppskar aðeins frekjulegt
flaut frá ökumanninum sem taldi
greinilega að hann ætti fullan rétt á
að brjóta umferðarreglur og troða
sér fram fyrir röðina. Verði honum
að góðu.
Morgunblaðið/Golli
Hér var allt með felldu.
Hugsunarvilla
Í FRÉTT í Morgun-
blaðinu 5. júlí sl. segir
upplýsingafulltrúi Flug-
leiða að farþegi eigi ekki
rétt á því að farangur
komi um leið og hann á
áfangastað. Þessi setning,
ef rétt er eftir höfð, lýsir
mjög alvarlegri hugsunar-
villu hjá forráðamönnum
Flugleiða og er eins og
klippt út úr ævagömlum
tíma þegar Flugleiðir voru
með einokun á flugi til og
frá landinu. Það snýst ekki
um réttindi að farangur
flugfarþega fylgi þeim á
áfangastað. Það er léleg
afsökun hjá Flugleiða-
mönnum ef þeir eru með
þessum orðum upplýs-
ingafulltrúans að vitna í
löngu úreltar reglugerðar-
setningar til að afsaka
mistök sín. Það er eins og
forráðamenn Flugleiða
átti sig ekki á því að ef ein-
hver vafi væri á því í huga
farþega að þeir ættu rétt á
að fá farangur sinn afhent-
an á komustað þegar þeir
ferðuðust með Flugleið-
um, myndu þeir kjósa að
skipta við annað flugfélag.
Flugleiðamenn ættu að
skoða það hvort ekki sé
hægt að fá eitthvert annað
fyrirtæki en IGS til að
hlaða vélarnar áður en það
félag gerir fleiri mistök, á
kostnað vinsælda flug-
félagsins.
Kjartan Eggertsson.
Tapað/fundið
Reiðhjól fullorðinna
hurfu
Í SL. VIKU hurfu tvö full-
orðinsreiðhjól frá Lamba-
stekk í Breiðholti. Hjólin
eru svart kvenmanns
TREK gírahjól og Daewoo
gírahjól. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um hjól-
in eru beðnir um að hafa
samband í síma 697 7384.
Skinnhúfa tapaðist
SKINNHÚFA, brún að
lit, týndist af farangurs-
vagni á Keflavíkurflugvelli
hinn 27. júní sl. Húfan er
veiðihúfa og er gerð úr
kindaskinni. Hún er sér-
hönnuð fyrir eiganda
hennar eftir málum og
hann þarfnast hennar sár-
lega þar sem hann á við
vandamál að stríða vegna
eyrna sinna. Þeir sem
kunna að hafa húfuna und-
ir höndum eða vita hvar
hún er niðurkomin eru
vinsamlegast beðnir að
hafa samband í síma 0046/
40/193220 og biðja um
Marie-Ann Lundberg eða
senda póst á netfangið
Lundbergsforlag@hotma-
il.com. Einnig væri hægt
að senda húfuna í pósti á
heimilisfangið Björkgatan
3 214 34, Malmö, Sweden.
Fundarlaunum er heitið.
Barnakápa í óskilum
DRAPPLITUÐ barna-
kápa með blómum og
skinnkanti er í óskilum á
Blómaverkstæði Binna.
Úlpan hefur verið þar frá
sl. helgi. Réttur eigandi
getur vitjað hennar þar.
Dýrahald
Táta fæst gefins
VEGNA ofnæmis á heim-
ilinu verðum við því miður
að láta frá okkur kisuna
okkar. Táta er bröndótt
kisa með hvíta sokka og
brjóst. Hún er nýlega orð-
in 2 ára og afar blíð og góð.
Ef vill gæti fylgt kattar-
kassi, bursti, matarskálar
o.fl. Vinsamlegast hafið
samband við Bjarna í síma
862 2604 eða 562 9818.
Læða hefur gerst
heimagangur
LÍTIL læða hefur undan-
farið vanið komur sínar á
heimili mitt. Hún er grá-
bröndótt, loðin og ólar-
laus, eyrnamerkt með töl-
unni 50, síðasta talan er
mjög máð. Upplýsingar í
síma 568 8165.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
LÁRÉTT
1 eira, 4 hælbein, 7
ákæru, 8 gaul, 9 lík, 11
stillt, 13 vanþóknun, 14
frek, 15 tiginn valds-
maður, 17 að ótöldum, 20
guði, 22 hryggur, 23
kvendýrið, 24 undirnar,
25 hreinar.
LÓÐRÉTT
1 óskar ákaft, 2 rödd, 3
eyðimörk, 4 heitur, 5
ungi lundinn, 6 líkams-
hlutinn, 10 veldur ölvun,
12 blekking, 13 skelfing,
15 einn postulanna, 16
klettasnös, 18 svardagi,
19 mannsnafn, 20 sóm-
inn, 21 reitt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 pennalata, 8 messu, 9 tigna, 10 mær, 11 tjara,
13 ausan, 15 atlas, 18 ógild, 21 tól, 22 kafla, 23 asnar, 24
gallharða.
Lóðrétt: 2 elska, 3 nauma, 4 letra, 5 tagls, 6 smit, 7
raun, 12 róa, 14 ugg, 15 aska, 16 lyfta, 17 stagl, 18 ólata,
19 iðnað, 20 durt.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16