Morgunblaðið - 10.07.2003, Page 15

Morgunblaðið - 10.07.2003, Page 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2003 15 Stórkostlegt opnunartilboð á Vikingfellihýsum 9 feta Netsalan hefur opnað nýja sérverslun með útivistar- og húsbílavörur í Knarrarvogi 4 í ReykjavíkLOKSINS Takmarkað magn Nú fer hver að verða síðastur! Verð nú 645.000 Verð áður 798.000 Mikið úrval af tjöldum á frábæru verði Dometic ísskápar - gas 12V, 220w. Verð kr. 75.000 - Opnunartilboð 60.000 Ferðaklósett 9.900 - Opnunartilboð 6.000 Baksýnismyndavél 39.000. Mikið úrval af tjöldum, stólum, borðum og fleira. THERE’S ONLY ONE McLouis Netsalan ehf. Knarrarvogi 4, Reykjavík. Ath. nýtt símanúmer 517 0220 - Fax 517 0221 Netfang: netsalan@itn.is • Heimasíða: www.itn.is/netsalan Opið á virkum dögum frá kl. 10-19 Lokað laugardaga til 1. september. Húsbílar Dæmi úr Reimo búðinni FRAMKVÆMDUM við yfirbygg- inguna sem á að rísa yfir Hafnar- fjarðarveginn við Hamraborg í Kópavogi miðar vel áfram og er unnið að fullum krafti til að stand- ast verkáætlun. Lokið hefur verið við að setja holplötur í brúna og eru smiðir byrjaðir að steypa veggi og gafla yfirbyggingarinnar. Holplöt- urnar hvíla á stálbitum sem vega um 400 tonn en ofan á holplöturnar verður hús byggt síðar meir. Yfir- byggingunni er ætlað að tengja eldri hluta Hamraborgarinnar við nýja tónlistar- og náttúrugripasafn- ið í Kópavogi og fyrirhugað er að í henni verði ýmsar verslanir auk heilsugæslustöðvarinnar í Kópa- vogi, apóteks og banka. Að sögn Jóns Sigurðssonar, verk- stjóra hjá Risi ehf, sem annast framkvæmdirnar, bendir allt til þess að hægt verði að taka mann- virkið í notkun um næstu áramót, eins og stefnt var að. Töluverðar raskanir á umferð Töluverðar raskanir á umferð hafa orðið á meðan framkvæmdir hafa staðið yfir og hefur þurft að loka umferð um Hafnarfjarðarveg meðan byggingarefni er híft yfir veginn. Ökutækjum hefur þá verið beint til hliðar við Hafnarfjarðar- veginn, en ökumenn þeirra hafa ekki allir sætt sig fyllilega við rask- anirnar með tilheyrandi umferðar- teppum á köflum. Gert er ráð fyrir áframhaldandi umferðarröskunum af og til fram að verslunarmanna- helgi, eða allt fram í miðjan ágúst. Um 12 manns starfa nú að smíðinni, en hafa verið talsvert fleiri. Um er að ræða einstætt mann- virki hérlendis þar sem yfirbygg- ingin mun vera sú fyrsta sem smíð- uð er yfir fjölfarin umferðar- mannvirki Einstæð yfirbygging við Hamraborg í Kópavogi að taka á sig mynd Byrjað á að steypa veggi og gafla Kópavogur Morgunblaðið/Arnaldur Vænta má umferðartafa af og til næstu vikurnar vegna framkvæmda. GERT er ráð fyrir að ljúka fram- kvæmdum við nýtt húsnæði Klé- bergsskóla á Kjalarnesi áður en skólastarf hefst á hausti komanda. Vonir voru bundnar við það í fyrra- haust að unnt yrði að ljúka fram- kvæmdum á þessu ári en í fyrra hófst skólastarf nokkru seinna en vanalega þegar fresta varð skóla- setningu vegna klúðurs við fram- kvæmdir á húsnæði skólans. Rúnar Sigmarsson, yfireftirlits- maður með framkvæmdum á staðn- um, segir að unnið sé að því að klára 1.500 fermetra viðbyggingu skóla- hússins að utan svo hún verði tilbúin fyrir skólasetningu. Ennfremur er verið að ganga frá pípulögnum, raf- lögnum, veggjum, loftræstikerfi, gólfum, lofti, innréttingum og því- umlíku. Í gamla húsnæði skólans, sem er á tveimur hæðum, á að gera breytingar með því að innrétta tvær nýjar kennslustofur í miðrými hús- næðis, þar sem áður var anddyri og salur. Ekki stendur þó til að klára gamla húsnæðið heldur halda áfram þar sem frá var horfið í fyrra. Sigþór Magnússon, skólastjóri Klébergsskóla, er bjartsýnn á fram- haldið og segist vona það besta fyrir hönd nemenda og starfsfólks skól- ans, enda sé ekki annað hægt. Um 170 nemendur eru í Klébergsskóla í 1. til 10. bekk og 15 kennarar. Klébergsskóli á Kjalarnesi Skólahúsnæð- ið á að vera fullfrágengið í haust Kjalarnes STRÆTÓ bs. gerir nokkrar breytingar á leiðakerfi sínu 12. júlí. Breytingar ná til leiða 7, 13, 20 og 25. Umrædd breyting tengist þó ekki þeirri heildar- endurskoðun leiðakerfis, sem nú er unnið að. Breytingin felst í því að leið 13, (Ártún–Grafholt) fellur niður, en þess í stað mun leið 7 (áður Lækjar- torg–Ártún) leysa hana af hólmi á virkum dögum og heitir leið 7 því framvegis Lækjartorg–Ártún– Grafarholt. Samhliða verður til ný leið, þ.e. leið 8 Ártún–Grafarholt–Ártún sem gengur um kvöld og um helgar. Einnig hefur verið tekin upp sú nýjung að leið 7 gengur í Nauthólsvík fram til 30. sept- ember en að sumri loknu fer hún ekki lengra en að Hótel Loftleiðum. Á Kjalarnesi hafa þá verið gerðar breytingar á leiðakerfinu sem felast í því að leið 20 fer á enda- stöð í Þverholt í Mosfellsbæ í stað Ártúns eins og áður var. Jafnhliða hefur ferðum á leið 20 á virkum dögum verið fjölgað um þrjár og fjórar um helgar. Að sögn Harðar Gíslasonar, aðstoðarfram- kvæmdastjóra Strætó, fer leið 20 þó í Ártún á morgnana með óbreyttu sniði. Um er að ræða breytingar sem sprottnar eru upp úr starfi hverfa- ráðs á Kjalarnesi. Hörður segir að með umræddum breytingum hafi ferðir 20 og 25 verið samhæfðar þannig að tryggt sé að farþegar geti farið frá Kjal- arnesi með leið 20 og skipt yfir í leið 25 (Ártún Mos- fellsbær) í Þverholti án þess að þurfa að bíða leng- ur en í 2–3 mínútur. Þannig verði til nánast viðstöðulaus strætisvagnaferð frá Kjalarnesi til Reykjavíkur. Til frekari glöggvunar skal bent á að út er komin ný leiðabók sem lýsir breytingunum nánar. Auk umræddra breytinga hefur endastöð leiða 140/150 verið færð frá Mæðragarði, sem er við Lækjargötu, neðst í Hverfisgötu við Stjórnarráðið. Að sögn Harðar hefur farþegafjöldi hjá Strætó staðið í stað undanfarin ár, en farþegafjöldi er mældur í svokölluðum innstigum. Á virkum dögum eru innstig um 35 þúsund talsins. Strætó bs. boðar breytingar á leiðakerfi sínu frá og með 12. júlí Leið 7 og 8 taka við af leið 13 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.