Morgunblaðið - 10.07.2003, Síða 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Hólatorg
Fallegt einbýlishús sem er
kjallari, 2 hæðir og mann-
gengt geymsluris á kyrrlát-
um stað í góðu göngufæri
við miðborgina. Húsið skipt-
ist þannig: Á aðalhæð húss-
ins er forstofa, hol, 3 sam-
liggjandi glæsilegar stofur
með fallegum bogadregnum
gluggum og eldhús með ný-
legum tækjum. Á efri hæð, um fallegan viðarstiga, er rúmgott hol
með skápum og svölum til vesturs, 2 rúmgóð barnaherbergi,
stórt hjónaherbergi með fataherbergi inn af og suðursvölum auk
stórs baðherbergis. Manngengt, einangrað og klætt geymsluris
er yfir húsinu. Í kjallara hússins, sem bæði er innangengt í og
með sérinngangi, er forstofa, baðherb. með sturtuklefa, eldhús
með upprunal. fallegum innréttingum og borðaðstöðu, 2 rúmgóð
herbergi og 3 geymslur, þ.a. ein sem nýst gæti sem herbergi.
Mikil lofthæð er í húsinu og gifslistar og rósettur í flestum loftum.
Falleg ræktuð lóð.
GANGANDI vegfarandi, kona á
fimmtugsaldri, varð fyrir bifreið á
gangbraut yfir Glerárgötu til móts
við Grænugötu um miðjan dag í gær.
Var konan á leið austur yfir gang-
brautina er slysið varð, en þannig
háttar til að tvær akreinar eru í
hvora átt og umferðareyja á milli.
Svo virðist að sögn lögreglu að bílar
hafi verið stöðvaðir fyrir konunni við
gangbrautina á hægri akreininni til
suðurs, en bifreiðin sem lenti á kon-
unni var á vinstri akrein og virðist
ökumaður ekki hafa tekið eftir kon-
unni þar sem hún gekk yfir götuna.
Lenti hún á framrúðu bílsins og
kastaðist síðan af honum. Konan var
flutt á slysadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri en hún var með
meðvitund eftir slysið.
Lögreglan á Akureyri óskar eftir
að ökumaður blárrar rútu sem ók um
Glerárgötu þegar slysið varð hafi
samband við lögreglu.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Ekið var á gangandi vegfaranda
sem var á leið yfir gangbraut.
Ekið á
gangandi
vegfaranda
UM 60 manna hópur bandarískra
ferðamanna átti viðdvöl á Akureyri í
vikunni, en þeir komu til bæjarins á
Boing 757 þotu sem er í eigu körfu-
boltaliðsins Dallas Mavericks. Liðið
notar þotuna til að koma sér á milli
borga á leiktímabilinu en leigir hana
svo út á meðan hlé er gert í körfu-
boltanum. Hópurinn, sem samanstóð
af eldra fólki hafði viðdvöl á Akur-
eyri einn dag, kom að morgni og fór
að kvöldi suður til Keflavíkur þar
sem gist var áður en haldið var heim
á leið aftur.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Flugvél sem er í eigu Dallas Mavericks hafði viðdvöl á Akureyrarflugvelli.
Um borð voru 60 manna hópur eldri borgara frá Bandaríkjunum.
Komu með þotu
Dallas-liðsins
DAGANA 11.–23. júlí verða þrettán
ungmenni frá átta Evrópulöndum og
Kanada saman komin í búðum sem
Lionsklúbbarnir við Eyjafjörð starf-
rækja í grunnskólanum að Hrafnagili
í Eyjafjarðarsveit. Unglingarnir
dveljast í viku á íslenskum heimilum
áður en búðirnar hefjast og nokkrir
íslenskir unglingar fara utan í sumar
til samsvarandi dvalar. Slíkar búðir
eru haldnar víða um heim sem hluti af
alþjóðlegum unglingaskiptum Lions-
hreyfingarinnar í anda fyrsta mark-
miðs Lionsklúbba sem er: Að vekja
og efla anda skilnings og trausts með-
al þjóða.
„Þátttakendur eru á aldrinum 17–
20 ára. Dagskráin er fjölbreytt og
miðar að því að unglingarnir kynnist
íslenskri náttúru og atvinnulífi lands-
manna og menningu. Áhersla er einn-
ig lögð á að þau kynnist fólki á sínu
reki. Það verður meðal annars farið í
þriggja daga gönguferð frá Leir-
hnjúk að Sæluhúsmúla um Gæsafjöll
og Þeistareyki. Síðar á tímabilinu
verður farin skoðunarferð um lands-
hlutann. Fyrirtæki á Akureyri og
Dalvík verða heimsótt, farið á sjó og á
hestbak og auðvitað í fjós. Léttir dag-
ar með ungu fólki á svæðinu verða inn
á milli, söfn skoðuð o.fl.
Stofnanir og fyrirtæki hafa stutt
Lionsklúbbana með ráðum og dáð til
að draga úr kostnaði og er sú aðstoð
mikils metin og þökkuð,“ segir í
fréttatilkynningu.
Unglingabúðirnar verða formlega
settar með kvöldverði í Íslandsbæn-
um í Vín föstudaginn 11. júlí og hefst
opnunarhátíðin kl. 18. Fjölumdæmis-
stjóri Lions á Íslandi og unglinga-
skiptastjóri hreyfingarinnar verða
viðstaddir opnunina.
Lionsklúbbarnir sem sjá um ung-
lingabúðir Lions í ár eru Lkl. Akur-
eyrar, Hængur og Ösp, allir á Akur-
eyri, Lkl. Dalvíkur og Sunna einnig á
Dalvík, Vitaðsgjafi í Eyjafjarðarsveit
og Hrærekur á Árskógsströnd.
Alþjóðlegar ung-
lingabúðir Lions-
hreyfingarinnar
STÖÐUG umferð skipa hefur verið
að Krossanesbryggju síðustu vikur,
„og við höfum verið með verksmiðj-
una nokkuð stíft í gangi frá því í
byrjun maí,“ sagði Hilmar Steinars-
son verksmiðjustjóri og var ánægður
með góðan gang.
Tvö skip voru lönduðu loðnu hjá
Krossanesi í gær, Antares var með
um 900 tonn og Grindvíkingur með
1.100 tonn eða samtals um 2.000
tonn. Um tvo sólarhringa tekur að
bræða loðnuna en vinnslugeta verk-
smiðjunnar er um 1.000 tonn á sólar-
hring. „Svo er bara gott útlit, við
sjáum fram á að aflinn berist nokkuð
stíft að landi nú næstu daga,“ sagði
Hilmar og bætti við loðnan væri góð.
Frá því loðnuveiði hófst 20. júní síð-
astliðinn hefur Krossanes tekið á
móti um 12 þúsund tonnum af loðnu
og í maí nam aflinn um 8 þúsund
tonnum af síld. „Það er alltaf gaman
þegar vel gengur,“ sagði Hilmar.
Góður gangur
í Krossanesi
merki inn á módelin en slíkt er nú
alltaf gert í tölvu,“ sagði Svan-
björn. „Það er ómetanlegt fyrir
okkur að geta sýnt þetta safn hér,
þetta er okkur gífurlega mikils
virði.“ Rúnar Bárður átti einnig
myndir af öllum flugvélum sem
FÉLAGAR sem standa að Flug-
safninu á Akureyri tóku sig til í
vikunni og máluðu merki gamla
Flugfélags Íslands og Loftleiða á
framhluta DC-6 flugvélar sem er
nokkurs konar tákn fyrir flugsafn-
ið. Svanbjörn Sigurðsson, fram-
kvæmdasjóri Flugsafnsins á Akur-
eyri, sagði að tilefnið væri að þessi
tvö félög hefðu sameinast í eitt;
Flugleiðir fyrir um 30 árum. „Við
gerðum þetta svona í tilefni af
væntanlegu þrítugsafmæli Flug-
leiða,“ sagði Svanbjörn. Þá nefndi
hann að gamla Flugfélag Íslands
hefði áður heitið Flugfélag Akur-
eyrar en það var stofnað árið 1937.
Hann sagði að hluti af starfsemi
Flugsafns Akureyrar væri að
varðveita og kynna flugsögu Ís-
lands. Svanbjörn sagði að bæði fé-
lögin,
Flugfélag Íslands og Loftleiðir
hefðu DC-6 flugvélar á meðan þau
voru og hétu en merki þeirra
prýða nú áðurnefnda framhluta
slíkrar vélar sem nú er í eigu flug-
safnsins.
Safninu gífurlega mikils virði
Nú fyrir skömmu barst safninu
góð gjöf er foreldrar Rúnars Bárð-
ar Ólafssonar afhentu því til varð-
veislu flugvélamódelsafn hans.
Rúnar Bárður lést af slysförum 14.
nóvember 1998, en hann var mikill
áhugamaður um flugvélar og hafði
búið til fjölda flugvélamódela, m.a.
allar flugvélar í eigu íslenskra
flugfélaga, vélakost Landhelgis-
gæslunnar og eldri flugvélar eins
og sjóflugvélar og katalínur.
„Þetta eru listilega vel gerð módel
og hann hefur t.d. málað sjálfur öll
skráðar hafa verið á Íslandi og
sögu þeirra, um rekstur, notkun
og afdrif. Svanbjörn sagði að Flug-
safninu á Akureyri yrði væntan-
lega síðar falin varðveisla mynda-
safnsins.
Flugsafnið var opnað sumarið
2000 en þar er rakin saga flugmála
Íslendinga til vorra daga. Þar er
að finna flugvélar af mörgum gerð-
um, m.a. elstu sjúkraflugvélina og
þá hanga svifflugur í lofti auk tor-
kennilegra flugtækja. Eitt þeirra
er Grunau 9, fyrsta loftfar Akur-
eyringa sem smíðað var 1937, en í
því hófu margir af þekktustu flug-
mönnum landsins feril sinn.
Flugsafnið er opið þrisvar í viku
yfir sumarmánuðina, á fimmtudög-
um, föstudögum og laugardögum
frá kl. 14 til 17.
Flugsafnið fékk að gjöf módel
af flugvélum sem Rúnar Bárður
Ólafsson hafði búið til.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Svanbjörn, framkvæmdastjóri Flugsafnsins á Akureyri við DC-6 vél. Öðru
megin á vélinni er gamla Loftleiðamerkið en á þeirri hlið sem við sjáum er
merki gamla Flugfélags Íslands. Félögin voru sameinuð í Flugleiðir fyrir
rétt um 30 árum en flugsafnið minnist tímamótanna með þessum hætti.
Fékk fjölda flug-
vélamódela að gjöf
Flugsafnið á Akureyri minnist 30 ára afmælis Flugleiða
Kristniboðsmót á vegum Kristni-
boðssambandsins verður haldið á
Löngumýri í Skagafirði dagana 11.–
13. júlí. Mótið byrjar á föstudags-
kvöldið með samkomu þar sem Jó-
hann Þorsteinsson talar. Að morgni
laugardags verður biblíulestur í
umsjá Skúla Svavarssonar kristni-
boða. Síðdegis verður kristniboðs-
samkoma sem Guðlaugur Gunnars-
son og Leifur Sigurðsson
kristniboðar sjá um. Um kvöldið
verður vitnisburðarsamkoma þar
sem fólk segir frá trúarreynslu
sinni. Kl. 11 á sunnudagsmorgnum
verður messa í Miklabæjarkirkju,
Jónas Þórisson kristniboði predikar
og sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur
Skagfirðinga, þjónar fyrir altari.
Lokasamvera kristniboðsmótsins
verður kl. 14 og talar þá Haraldur
Jóhannsson. Skráning á mótið er á
Löngumýri í síma 453-8116.
Á NÆSTUNNI
Hljómsveitin Mór leikur á Heitum
fimmtudegi í Deiglunni í kvöld,
fimmtudagskvöldið 10. júlí, kl. 21.30.
Í henni eru Þórhildur Örvarsdóttir
söngkona, Kristján Edelstein gítar,
Halldór Gunnlaugur Hauksson
trommur og Stefán Ingólfsson bassi.
Á efnisskránni verða íslensk þjóðlög
í nýjum og ferskum útsetningum að
því er segir í frétt um Tuborgdjass-
inn svonefnda.
Í DAG
LEIKSKÓLANUM Árholti verður í
sumar breytt í skólavistun fyrir fötl-
uð börn, en sú starfsemi var áður í
Skólastíg.
Jakob Björnsson, formaður
stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar,
sagði að húsnæði í Skólastíg hefði
ekki hentað starfseminni lengur, þar
væri ekki nægilegt rými en nokkur
fjölgun hefði orðið í þeim hópi sem
nýtir þjónustuna. Hann sagði að
skólanefnd hefði óskað eftir því að fá
Árholt til umráða undir skólavist-
unina, en leikskólanum verður lokað
nú síðsumars. Jakob sagði að hús-
næðið í Árholti yrði notað til bráða-
birgða en ekki væri rými fyrir um-
rædda starfsemi í grunnskólum
bæjarins. Ekki hefði heldur verið
gert ráð fyrir henni í nýbyggingu við
Brekkuskóla, en hann vænti þess að
þegar hafist yrði handa við byggingu
grunnskóla í Naustahverfi myndi
skólavistun faltaðra verða fundinn
þar staður.
Jakob sagði að hresst hefði verið
upp á húsnæði Árholts fyrir skömmu
og því þyrfti lítið að gera til að koma
starfseminni þar fyrir, en þó þyrfti
að laga og bæta aðgengi að skólanum
og eitt og annað smávægilegt.
Skólavistun
fatlaðra
í Árholt
♦ ♦ ♦