Morgunblaðið - 02.08.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.icelandair.is
New York
www.icelandair.is/newyork
Rölta um listamannahverfið Williamsburg
í Brooklyn, kíkja á galleríin og markaðina
þar sem fólk selur hlutina á góðu verði.
Í New York þarftu að:
á mann í tvíbýli í 3 nætur. Innifalið: flug, gisting á
Cosmopolitan Hotel Tribeca, flugvallarskattar og
þjónustugjöld.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
21
70
5
07
/2
00
3
Soho
Greenwich
Village
Lover
West
Side
Chelsea
Little
ItalyCosmopolitan
Hotel Tribeca
w
ay
Br
oa
dw
ay
Br
oa
dw
ay
WillamsburgBridge
East Houston Street
West Houston Street
Delany St,
Broome St.
East 14th Street
West 14th Street
East 23rd Street
34rd Street
Fi
fth
Av
en
ue
Av
en
ue
of
th
e
Am
er
ica
ns
M
ad
iso
n
A
ve
.
Madison
Square Park
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Verð frá 63.440 kr.
UMFERÐARFULLTRÚAR Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar og
Umferðarstofu stilltu sér upp á leið-
unum út úr borginni í gær og seldu
viðbótarspegla á bifreiðar. Lögregl-
an var þar skammt frá og stöðvaði
bifreiðar, sem höfðu fellihýsi í eft-
irdragi og engan viðbótarspegil, en
eins og kunnugt er ber að hafa við-
bótarspegla ef keyrt er með fellihýsi
eða tjaldvagn í togi. Fólki var gefinn
kostur á að kaupa speglana en ann-
ars voru bílarnir kyrrsettir á staðn-
um.
Jóhann Jóhannsson, verkefna-
stjóri hjá Slysavarnafélaginu Lands-
björgu, var staddur á biðsvæðinu við
Rauðavatn við Suðurlandsveg þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
gærdag. Hann sagði að allir tækju
þessu mjög vel og fólk hefði orð á því
að þetta væri gott framtak. „Fólk
veit í sjálfu sér upp á sig sökina því
þetta hefur verið í umræðunni upp á
síðkastið. Þeir söluaðilar, sem ég hef
talað við, segja að fólki séu kynntar
þessar reglur þegar það kaupir felli-
hýsin,“ benti hann á, en speglarnir
voru seldir á 3 þúsund krónur parið.
Hann sagði að salan væri ívið meiri á
Vesturlandsveginum en Suðurlands-
veginum og bætti við að það væru ef-
laust tveir af hverjum tíu bílum sem
framhjá færu með fellihýsi í eftir-
dragi.
Fólk leggur of snemma af stað
eftir drykkju næturinnar
„Við erum umferðarfulltrúar
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og Umferðarstofu og okkar hlutverk
er umferðareftirlit. Um verslunar-
mannahelgina fylgjumst með því að
umferðin gangi vel fyrir sig og reyn-
um að vera sýnilegir til þess að
minna á öryggið í umferðinni,“ sagði
Jóhann. Umferðarfulltrúar Slysa-
varnarfélagsins verða á sex stöðum á
landinu öllu um helgina. „Við erum
líka með forvarnarpakka í bílnum og
ef fólk sér okkur getur það stoppað
okkur og fengið forvarnarpakka, en í
honum er afþreying fyrir börnin til
að hafa í bílnum.“
Jóhann lagði áherslu á að talsvert
væri um ölvunarakstur um verslun-
armannahelgina eins og aðrar helgar
á árinu. Hann benti jafnframt á að
um verslunarmannahelgina væri
meira um að fólk drykki fram eftir
nóttu og legði of snemma af stað.
„Við erum með áfengisblöðrur í bíln-
um. Á mánudaginn ætla ég til dæmis
að vera á bryggjunni í Þorlákshöfn
og ætla að bjóða þeim sem koma með
Herjólfi að blása í blöðru.“
Seldu viðbótarspegla
við þjóðveginn
FJÖLDI fólks fór um Umferðar-
miðstöðina í gær á leið í útilegu yfir
verslunarmannahelgina. Þessar
fjórar vinkonur voru að stíga upp í
rútu á leið til Þorlákshafnar þaðan
sem Herjólfur sigldi með þær til
Vestmannaeyja. Þær sögðust vera
fullar eftirvæntingar og hlökkuðu
mest til brekkusöngsins. Hattana
báru þær til að bera kennsl hver á
aðra í mannhafinu á þjóðhátíð en
töldu óvíst hve lengi þær myndu
halda þeim á höfðinu.
Tryggvi Árnason skipuleggur
áætlunarferðir rútubifreiða Aust-
urleiðar. Hann sagði unga fólkið
streyma í Galtalæk og til Eyja.
Einnig hafi verið þó nokkur
straumur fólks til Landmannalauga
og í Þórsmörk. Hann gerir ráð fyrir
að rútur Austurleiðar flytji á milli
átta til tíu þúsund manns á milli
áfangastaða þessa helgi.
Vignir Bjarnason og Þórður
Svavarsson ætluðu ekki að sóa tím-
anum í Herjólfi og fóru með flugi til
Vestmannaeyja í gærkvöldi. Þeir
sögðu stemninguna þar eftirsókn-
arverða og reykti lundinn ómiss-
andi þáttur á þjóðhátíð.
Morgunblaðið/Kristinn
Ingibjörg Björnsdóttir, Laufey Guðmundsdóttir, Tinna Finnbogadóttir og Guðrún Stefánsdóttir voru kátar við
brottför í gær. Hattana báru þær til að bera kennsl hver á aðra í mannhafinu á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Þekkjast af höttunum
FJÖLMENNI var við upphaf útihá-
tíða víða um land í gær. Mikill fjöldi
gesta var einnig á sjötta unglinga-
landsmóti Íslands sem haldið er á
Ísafirði um helgina. Voru þeir orðnir
tæplega 7.000 í gærkvöldi þegar
mótið var formlega sett.
Ágreiningur kom upp í gær milli
mótshaldara unglingalandsmóts
UMFÍ og sýslumannsins á Ísafirði
um hvort mótshaldarar eigi að taka
þátt í kostnaði við löggæslu í
tengslum við mótið. Sýslumaður
krefst þess að mótshaldarar greiði
þriðjung af kostnaði við löggæslu í
tengslum við mótið, samtals 500.000
krónur. UMFÍ mun kæra ákvörðun
sýslumanns til dómsmálaráðherra.
„Við höfum aldrei lent í svona
stælum við yfirvöld áður,“ segir Sæ-
mundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ. Hann segir að
UMFÍ líti á þetta sem íþróttamót,
ekki útihátíð, þó að ýmislegt sé gert
til afþreyingar. Dagskrá mótsins
stendur til 23:30 á kvöldin og ekkert
kostar inn á svæðið, en keppendur
greiða þátttökugjald.
„Sýslumaður hótaði því að ef við
myndum ekki fara að kröfum hennar
[um að taka þátt í kostnaði við lög-
gæslu] þá mundi hún senda lögregl-
una á okkur í kvöld [gærkvöld] og
loka skemmtuninni,“ segir Sæmund-
ur. Hann bendir á að sjálfir séu þeir
með 140 meðlimi björgunarsveita í
gæslu á svæðinu, og að fenginni
reynslu undanfarinna ára sé afar
ólíklegt að vandamál komi upp á
mótinu.
„Það liggur fyrir ákvörðun sýslu-
manns um að krefja UMFÍ um hluta
af löggæslukostnaði vegna skemmt-
analeyfisskyldra viðburða á ung-
lingalandsmótinu,“ segir Sigríður
Björk Guðjónsdóttir, sýslumaður á
Ísafirði. Hún segir að með þessu sé
ekki verið að líkja mótinu við útihá-
tíð.
Veðrið lék ekki við þá rúmlega
1.100 ungu íþróttamenn sem etja
kappi í sjö íþróttagreinum mótsins,
talsverð rigning í gær en að sögn
mótshaldara stendur það til bóta.
Mikið verður um að vera um helgina
auk keppninnar því mótshaldarar
hafa skipulagt skemmtanir, ferðir og
annað fyrir krakkana og þá sem
fylgja þeim á mótið og ætti engum
að leiðast sem leggur leið sína á Ísa-
fjörð. Forseti Íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, kom í opinbera
heimsókn á Ísafjörð í gær og leit við
á landsmótinu ásamt föruneyti.
Þjóðhátíð sett í Eyjum
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var
sett við hátíðlega athöfn í Herjólfs-
dal kl. 14.30 í gær. Lúðrasveit Vest-
mannaeyja lék nokkur Eyjalög á
meðan hátíðargestir komu sér fyrir
á tröðinni við tjörnina. Óskar Freyr
Brynjarsson, formaður ÍBV íþrótta-
félags, setti hátíðina með stuttu
ávarpi þar sem hann þakkaði stuðn-
ingsaðilum og fjallaði stuttlega um
undirbúning hátíðarinnar.
Gerður Kristný, ritstjóri og rit-
höfundur, flutti hátíðarræðu þjóðhá-
tíðar, en hún kom í fyrsta sinn á
þjóðhátíð á síðasta ári og gaf í kjöl-
farið út bók um hátíðina. Gerður
sagði það mikinn heiður fyrir að-
komumanneskju að fá að flytja há-
tíðarávarp á þjóðhátíð en taldi tíma-
bært að aðkomumaður gæti flutt
Vestmannaeyingum þakkir fyrir að
bjóða landsmönnum árlega til svo
stórrar veislu. „Vestmannaeyingar
mega svo sannarlega vera stoltir því
engum öðrum bæ á landinu hefur
tekist að skapa jafnsterka hefð fyrir
neinni hátíð,“ sagði Gerður Kristný.
Tjöldum fjölgar á Akureyri
Umferðarþungi til Akureyrar
jókst jafnt og þétt þegar leið á dag-
inn í gær og seinni partinn kom
þangað hver bílalestin af annarri, að
sögn Þórarins Jóhannessonar varð-
stjóra hjá lögreglunni.
Tjöldum á tjaldsvæðunum við
Þórunnarstræti og að Hömrum
fjölgaði jafnt og þétt.
Aðfaranótt föstudags voru 300–
400 manns á tjaldsvæðinu að Hömr-
um en heldur færri við Þórunn-
arstræti.
Mikið fjölmenni var við upphaf útihátíða víða um land og á unglingalandsmóti í gær
Morgunblaðið/Sigurgeir
Fjölmenni var saman komið í Herjólfsdal í gær en þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum var sett við hátíðlega athöfn kl. 14.30.
Morgunblaðið/Skúli
Ungar Breiðabliksdömur brugðu á leik á mótinu á Ísafirði í gær og
létu rigninguna ekki skemma fyrir sér.
Morgunblaðið/Kristján
Tjaldgestum fjölgaði jafnt og þétt á tjaldsvæðunum á Akur-
eyri þegar leið á daginn í gær.
UMFÍ vísar úrskurði
sýslumanns til ráðherra