Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT HUTTON lávarður, dómarinn sem stjórnar rannsókn á dauða vopna- sérfræðingsins dr. David Kelly, hef- ur hafið rannsóknina og staðfesti í gær að Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, yrði beðinn að bera vitni. Auk Blairs verður Geoff Hoon varnarmálaráðherra og Alastair Campbell, almannatengsla- fulltrúi og einn helsti ráðgjafi for- sætisráðherrans, m.a. kallaðir til vitnis. „Á einhverju stigi málsins geri ég ráð fyrir að ég biðji forsætisráð- herrann og varnarmálaráðherrann, hr. Geoff Hoon, að greina frá vitn- eskju sinni um þær umræður sem áttu sér stað og þær ákvarðanir sem teknar voru í tengslum við dr. Kelly,“ sagði Hutton. Dómarinn sagði enn fremur alveg ljóst að deiluaðilar í þessu máli, sem hefur verið afar fyrirferðarmikið í breskum fjölmiðlum sl. vikur, fengju ekki tækifæri til að færa rök fyrir sínum mál- stað við vitnaleiðslurn- ar. Ritaði yfirmönnum sínum bréf Að því er fram kem- ur á fréttavef BBC mun Kelly hafa ritað yfirmönnum sínum bréf skömmu fyrir andlátið sem staðfestir að hann hafi átt fund með Andrew Gilligan, fréttamanni BBC. Í bréfinu segir hann að fréttamaðurinn hafi „ýkt“ frásögn sína. „Lýsing [Gilligans] á fundi okkar samræm- ist aðeins að litlu leyti samskiptum mínum við hann, sérstaklega lýs- ing hans á mínu per- sónulega mati á getu Íraka, en almennt er ranglega greint frá eðli [fundarins],“ segir í bréfinu. Rannsókn Huttons mun m.a. snú- ast um það hvernig greint var frá nafni Kellys opinberlega og hvað hann sagði fréttamönnum nákvæm- lega. Dómarinn greindi frá því í gær að Kelly hafi þjáðst af hjartasjúk- dómi og án þess að skýra það frek- ar sagði Hutton að á líki hans hefðu fundist fjórir plástrar sem notaðir eru við að taka hjartalínurit. Komið hefur í ljós að Kelly tók af sér gler- augun og úrið áður en hann lést en það er talið benda eindregið til þess að hann hafi framið sjálfsmorð. Kelly verður jarðsettur nk. mið- vikudag og því tilkynnti dómarinn að rannsókn málsins yrði ekki hald- ið áfram fyrr en 11. ágúst. Opinber rannsókn hafin á dauða vopnasérfræðingsins dr. David Kelly Blair verður beðinn að bera vitni Hutton lávarður. London. AFP. KÍNVERSKIR aðdáendur knattspyrnuliðsins Real Madrid fögnuðu ákaft er leikmenn liðsins komu til Peking í gær. Hundruð aðdáenda Dav- ids Beckhams biðu fyrir utan hótel liðsins í mið- borginni. Fólkið hélt á lofti myndum af knatt- spyrnumanninum og þegar rúta liðsins ók upp að hótelinu hrópaði það „David, komdu út“. Real Madrid er nú á ferðalagi um Asíu og mun spila við knattspyrnulið í Tókýó, Hong Kong og Taílandi á næstunni. Beckham, sem gekk til liðs við Real Madrid fyrir mánuði, mun líklega spila sinn fyrsta leik með liðinu í Peking um helgina. AP Real Madrid í kynningarferð um Asíu HERSETAN í Írak og baráttan gegn hryðjuverkamönnum um allan heim er að verða Bandaríkjaher ofviða. Hann hefur ekki á að skipa nógu mörgum mönnum til að standa í því, sem hann hefur tekist á hendur. Kem- ur þetta fram í grein, sem Barry McCaffrey, prófessor í bandarískum öryggismálum við West Point-her- skólann, skrifar í Wall Street Journal. Í bandaríska hernum eru nú 491.000 menn en McCaffrey segir, að það sé einfaldlega of lítið. Bendir hann á, að af 33 herdeildum séu 24 dreifðar um 120 lönd, alls 368.000 her- menn. Fyrir utan fastaherinn er síðan um að ræða 135.000 varaliða og þjóð- varðliða. Peter Schoomaker, væntanlegur yfirmaður bandaríska herráðsins, er á sama máli og McCaffrey og á fundi með þingmönnum í síðustu viku var- aði hann alvarlega við núverandi álagi á stóran hluta hersins. Sagði hann augljóst, að fjölga yrði hermönnum ef Bandaríkin ætluðu sér að halda uppi núverandi herstöðvum erlendis. „Bush-stjórnin gagnrýnir Clinton- stjórnina fyrir að hafa grafið undan hernum á síðasta áratug en það er einmitt það sama, sem hún er að gera, bara í miklu meira mæli,“ segir Mich- ael O’Hanlon, sérfræðingur í öryggis- málum við Brookings-stofnunina. Segist hann óttast, að hermenn og varaliðar taki þann kostinn að hætta hermennsku fremur en að eiga það á hættu að vera sendir um hálfan hnött- inn í langan tíma. Óttast ófarir í Írak O’Hanlon telur, að Bandaríkja- stjórn verði að vera með 125.000 til 150.000 hermenn í Írak í eitt ár enn og síðan 50–75.000 menn í nokkur ár í viðbót. Að hans mati er það helmingi meira lið en herinn þoli og að auki tel- ur hann „raunverulega hættu“ á, að herinn brotni saman og bíði ósigur í Írak. Tillögur O’Hanlons eru þær, að liðsaflinn í sjóhernum verði nýttur betur en hingað til og Bandaríkja- stjórn biðji bandamenn sína, t.d. Frakka, Þjóðverja og Japani, að leggja sér lið. Vandamálið með Frakkland og Þýskaland og einnig stór lönd eins og Indland og Pakistan er hins vegar það, að þau neita að senda lið til Íraks nema á vegum Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkin hafa raunar fengið liðsinni nokkurra Austur-Evrópuríkja og annarra, alls 22 ríkja, en samtals munu þau ekki leggja fram nema 9.000 hermenn. Vilja fjölga í Banda- ríkjaher Sagður of fá- mennur fyrir nú- verandi umsvif NÚ er mikill grilltími og víst er, að grillilmurinn mun liggja í loft- inu um þessa helgi. Einn réttur mistekst þó oftar en aðrir, það er hamborgarinn. Hjá bresku mat- vælakeðjunni Iceland hafa menn reiknað út, að hamborgarar fyrir nokkuð á þriðja milljarð íslenskra króna fari forgörðum árlega af þessum sökum og því var ákveðið að gera nú eitthvað í málinu. Ákveðið var að leita til færustu sérfræðinga en öllum að óvörum var ekki borið niður hjá grill- meisturum og öðrum úrvalskokk- um, heldur hjá stærðfræðingnum dr. Dilwyn Edwards í Greenwich- háskólanum í London. Dr. Edwards og stærðfræðing- arnir hans lögðu nú heilann í bleyti í heilar þrjár vikur og út- koman er hin fullkomna formúla fyrir rétt steiktum hamborgara. „Stærðfræðin kemur alltaf best að gagni þegar leysa þarf flókin vandamál og Iceland á heiður skilinn fyrir að átta sig á því. Þetta var erfitt verkefni en við fundum réttu lausnina,“ segir dr. Edwards. Formúlurnar eru tvær og er sú einfaldari fyrir þá, sem ekki eru með háskólapróf í stærðfræði. Næst þegar þeir ætla að grilla hamborgara dugar alveg að vera með reglustiku og venjulegan vasareikni. Formúlan er þessi: Massinn, M, er hlutfall af UÞ en U er umfang hamborgarans og Þ er þykktin. Steikartíminn, S, er þá líkur kvaðratinu af Þ deilt með U. Það er allt og sumt. Þetta má raunar einfalda enn. Ef menn skyldu nú vita hve lengi þeir vilja steikja hamborgarann sinn, þá segir formúlan, að steik- artíminn fjórfaldist ef settur er á grillið helmingi þykkari ham- borgari. Ef þykktin er óbreytt en umfangið helmingi meira, þá verður steikartíminn aðeins tvö- falt lengri. Hjá Iceland segja menn, að 10 cm breiðan og 1 cm þykkan ham- borgara eigi að steikja í 14 mín- útur, hvorki meira né minna. Formúla meistaranna Hin formúlan er fyrir tölvísa matgæðinga, sem fá ekki flog þótt þeir þurfi að grufla dálítið í eðlisfræði og lógaritma: Mælið hitann í grillkolunum og í hamborgaranum sjálfum. Finnið muninn og deilið í hann með muninum á kolahitanum og æski- legum steikarhita. Nú er komið að lógaritmanum en til þess þarf tölvur eins og þær, sem notaðar eru á síðari stigum stærðfræði- náms. Færið inn í lógaritmaskala þunga hamborgarans og marg- faldið með varmagetu hans og varmaflæðistuðlinum. Deilið síð- an útkomunni í varmaleiðni ham- borgarans. (Hrópið síðan á hjálp eða hringið strax í Raunvísinda- stofnun.) Rétta formúlan fyrir góðum grillborgara Morgunblaðið/Kristinn Hér er bara verið að grilla lamba- læri og því hvorki þörf fyrir reglu- stiku né reiknivél. TVEIR „nánir samstarfsmenn“ Saddams Husseins fyrrverandi Íraksforseta voru teknir höndum í áhlaupi bandarískra sérsveitarher- manna á hús í fæðingarborg hans, Tikrit, í gær. Greindi talsmaður Bandaríkjahers frá þessu í gær. Mennirnir tveir, sem að svo komnu máli var ekki upplýst meira um en að þeir hefðu verið háttsettir í Baath-flokki Saddams, voru hand- samaðir um kl. fjögur síðdegis í gær að staðartíma. Var herþyrlum beitt í aðgerðinni. Robert Isabella, tals- maður Bandaríkjahers í Írak, stað- festi síðar: „Þetta voru nánir sam- starfsmenn Saddams Husseins.“ Richard Boucher, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær að ef takast myndi að hafa hendur í hári Saddams Huss- eins sjálfs bæri að láta hann svara til saka fyrir íröskum dómstól. Menn „nán- ir Saddam“ handteknir Tikrit, Washington. AFP, AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.