Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 18

Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðleg ráðstefna um umhverfisáhrif skógræktar. Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá gengst fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um kolefnismál og umhverfisáhrif nýskógræktar og landgræðslu föstudaginn 8. ágúst, kl. 9:00 - 17:00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, 3. hæð. Dagskrá: 9:00 Ráðstefnan sett. 9:15 Auður Ingólfsdóttir, umhverfisráðuneytinu, flytur erindið „The Kyoto protocol and Iceland’s policy in relation to afforestation and other mitigation options“. 9:45 Paul Jarvis, prófessor við Edinborgarháskóla, flytur erindið „Carbon Forestry“. 10:30 Kaffi. 10:45 Tom Gower, prófessor við Winconsinháskóla, flytur erindið „Carbon sequestration opportunities in the forest biological and industrial C-cycle“. 10:30 Sune Linder, prófessor við skógfræðideild sænska landbúnaðarháskólans, flytur erindið „Possibilities to increase carbon sequestration by afforestation and forest management“. 12:00 Léttur hádegisverður og umræður. 13:00 Bjarni Diðrik Sigurðsson, Rannsóknarstöð skógræktar, flytur erindið „Research projects related til carbon sequestration and biodiversity of woody ecosystems in Iceland“. 13:30 Ólafur Karl Nielsen, Náttúrufræðistofnun, flytur erindið „The effects of afforestation on the bird fauna: A case study from the ICEWOODS project“. 14:00 Kaffi. 14:30 Kristín Svavarsdóttir og Ása L. Aradóttir, Landgræðslu ríkisins, flytja erindið „The effects of revegetation on carbon sequestration and vegetation compositior“. 15:00 Hlynur Óskarsson og Rannsóknastofnun landbúnaðarins, flytja erindið „The volcanic soils of Iceland and C-sequestration“. 15:30 - 17:00 Pallborðsumræður. Ráðstefnan er í boði Skógræktar ríkisins, NorFA og landbúnaðarráðuneytisins, og er haldin í tengslum við norrænan doktorsnemakúrs um skógvistfræði sem fram fer hér á landi 7.-14. ágúst. Ráðstefnan verður á ensku og er öllum opin. Ráðstefnugjald er 1000 kr, en boðið verður upp á kaffiveitingar og léttan hádegisverð. SKIPULAGS- og byggingarráð Hafnarfjarðarbæjar hefur lagt til að hafin verði gerð deiliskipulags í Sléttuhlíð sem skilgreini svæðið sem frístundabyggð og sumarbústaða- svæði. Sléttuhlíðin er vinsælt útivistar- svæði hjá bæjarbúum, þar eru skemmtilegar gönguleiðir og marg- ar fjölskyldur og félög stunda skóg- rækt í hrauninu. Svæðið á sér langa sögu sem sumarbústaðaland Hafn- firðinga og höfðu bæjaryfirvöld á tímabili áhyggjur af því að aukin sumarbústaðabyggð í Sléttuhlíð myndi menga neysluvatn bæjarbúa, þar sem vatnið úr Kaldárbotnum rann í gegnum Sléttuhlíðina. En við innleiðingu nýrrar vatnsveitu, árið 1950, var hættan á mengun neyslu- vatnsins úr sögunni og þá var úthlut- að fleiri sumarbústaðarlóðum í Sléttuhlíðinni. Framtíð sumarhúsabyggðar í Sléttuhlíðinni hefur verið í um- ræðunni síðustu árin og hafa eigend- ur sumarbústaða þar óskað eftir að fá að leggja kalt vatn og rafmagn inn í bústaðina. Ekki virðist nú vera neitt því til fyrirstöðu að Hitaveita Suðurnesja og Vatnsveita Hafnar- fjarðar geti fljótlega hafist handa við að leggja rafmagn og kalt vatn að sumarbústöðunum. Sléttuhlíðin frí- stunda- og sum- arbústaðasvæði Hafnarfjörður BORGARRÁÐSFULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins lýstu á fundi borgarráðs, þriðjudaginn 29. júlí síðastliðinn, yfir áhyggjum sínum vegna stöðu barnaverndarmála í Reykjavík. Telja þeir stefnumótun í málaflokknum ábótavant. Í fyrir- spurn sem borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðismanna settu fram á fundinum segir m.a.: „Barnavernd- arnefnd Reykjavíkur berast sífellt fleiri og alvarlegri mál og því miður hefur ekki verið hægt að sinna öll- um þeim með viðunandi hætti. Sök- um manneklu og mikils álags nær starfsfólkið einungis að taka erf- iðustu málin til meðferðar. Þær breytingar sem gerðar voru á starf- semi og skipulagi barnaverndar- nefndar virðast ekki hafa skilað sér, eins og við sjálfstæðismenn vör- uðum við. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins spyrja fulltrúa R-listans hvort og þá hvernig þeir hyggjast beita sér fyrir því að hægt verði að sinna þessu mikilvæga samfélags- máli með fullnægjandi hætti.“ Ennfremur óskuðu borgarstjórn- arfulltrúar Sjálfstæðisflokks eftir upplýsingum um hvað líður gerð sérstakrar framkvæmdaáætlunar á sviði barnaverndar í Reykjavík. Sjálfstæðismenn í borgarráði Fyrirspurn um barna- verndarmál Reykjavík ÆGISSÍÐAN er fallegur staður á sumarkvöldum og vinsæl til útivist- ar. Þar má gjarnan sjá ástfangin pör, skokkara, línuskautafólk og Göngu-Hrólfa af öllum stærðum og gerðum. Hjólreiðar meðfram strandlengjunni eru einnig sí- vinsælar og fóru þessi mæðgin ekki á mis við þá dýrmætu reynslu sem hjólreiðatúr úti í veðurblíðunni get- ur verið. Sá stutti virtist ekki vera langt frá þeim áfanga að sleppa öruggu skjóli hjálpardekkjanna og bruna óstuddur í gegnum lífið. Morgunblaðið/Kristinn Heilbrigð útivist við Ægissíðuna Reykjavík NÚ STENDUR yfir mesta ferðahelgi ársins og yfirgefa tugþúsundir Ís- lendinga heimili sín og ferðast um landið. Hvort sem leiðin liggur í sveitasæluna eða á útihátíðir standa íbúðir og einbýlishús tóm eftir sem áður og ef aðgát er ekki höfð getur þar reynst um hina ágætustu búbót að ræða fyrir glæpamenn. Þórður Þórðarson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir lög- regluna auka viðbúnað sinn vegna þess. „Við verðum náttúrulega með aukið eftirlit, bæði á merktum og ómerktum bílum. Við reynum að sinna því sem hægt er að sinna. Við viljum brýna sérstaklega fyrir fólki að ganga almennilega frá eigum sínum, að loka gluggum og setja læsingar á hurðir og ef hægt er, að fá einhvern til þess að breyta ljósum öðru hvoru, kveikja hér og slökkva þar.“ Þórður telur einnig mikilvægt að fólk virkji samstarf við nágranna sína og biðji þá um að fylgjast með ef ein- hverjar grunsamlegar mannaferðir eiga sér stað og tilkynna þær til lög- reglunnar hið snarasta. „Innbrot eru mjög algeng í íbúðarhús um verslun- armannahelgar, en það veltur allt á því að fólk gangi vel frá áður en það fer út á land.“ Þórður biður ökumenn að hafa þol- inmæðina og góða skapið með sér í ferðina, því umferðartafir geti verið umtalsverðar á mánudag. Ennfremur sé Bakkus slæmur ferðafélagi bíl- stjórans. Mesta ferðahelgin gengin í garð Töluverð aukn- ing á viðbúnaði lögreglunnar Reykjavík ÞÉTTING byggðar í Reykja- vík myndi hafa í för með sér verulegan sparnað á eknum kílómetrum. Þetta kemur fram í grein Haralds Sigurðssonar skipulagsfræðings í tímaritinu Arkitektúr, verktækni og skipulag. Í aðalskipulagi Reykjavíkur og aðalskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001– 2024 er aukin áhersla lögð á þéttingu byggðar. Í greininni kemur fram að sé byggð á höfuðborgarsvæð- inu þétt um 7.000 íbúðir, til ársins 2024, gæti það þýtt um 29–36 milljóna kílómetra sparnað í ekinni vegalengd á ári. Það hefur í för með sér orku- og tímasparnað, minni ökutækja- og slysakostnað og minni rekstrarkostnað gatna- kerfis. Þétting og betri nýting svæða haldast í hendur Að sögn Haralds felst þétt- ing byggðar í því að nýta svæðin betur. „Þetta er áætlað út frá vannýttum svæðum, s.s. yfirgefnu iðnaðarhúsnæði.“ Við útreikningana er stuðst við umferðarlíkan sem reiknar umferðarmagn í framtíðinni út frá ákveðnum forsendum, þ.e. fjöldi bygginga, íbúa og starfa eftir svæðum. „Inni í þessu líkani er fjarlægðarstuðull og eftir því sem við þéttum byggðina meir verður fjar- lægðarstuðullinn minni og meðalvegalengdir styttri. Kjarninn í þessu er náttúru- lega, þegar til lengri tíma er litið, sparnaður í vegalengdum sem eykur líkurnar á að fólk noti aðra ferðamáta en einka- bíla,“ segir Haraldur. Haraldur Sigurðs- son skipulags- fræðingur Þétting byggðar hagkvæm Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.