Morgunblaðið - 02.08.2003, Side 25
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 25
TÓNLISTARSMEKKUR manna
gefur vísbendingar um persónu-
leika þeirra, samkvæmt nýrri
könnun sem greint er frá í júníhefti
Journal of Personality and Social
Psychology. Hvers konar tónlist
hlustar þú á? spyr fólk sem er að
kynnast gjarnan hvert annað og ef
marka má fyrrgreinda könnun get-
ur svarið sagt mikið til um karakt-
ereinkenni, áhugamál og lífs-
viðhorf.
Unnendur klassískrar tónlistar
virðast til að mynda eiga nokkuð
sameiginlegt með gallhörðum
þungarokksaðdáendum, ef marka
má niðurstöðurnar.
Tónlistarsmekkur 3.500 ein-
staklinga var greindur í könnun-
inni og skipt í fjóra meginþætti
sem hér segir, eftir því um hversu
margþætta, tilfinningaríka og
kraftmikla tónlist var að ræða.
Íhugul og margslungin: Klass-
ísk tónlist, djass, blús og þjóðlaga-
tónlist.
Áköf og uppreisnargjörn:
Jaðartónlist, rokk og þungarokk.
Hefðbundin og hress: Dægur-
lög, trúartónlist, sveitasöngvar og
kvikmyndatónlist.
Kraftmikil og taktföst: Rapp,
hipp-hopp, soul, fönk, raf- og dans-
tónlist.
Segjast rannsakendur hafa fund-
ið tengsl milli fyrrgreindra flokka
og karaktereinkenna, sjálfsskynj-
unar og greindar þátttakenda.
Svo dæmi sé tekið voru meiri lík-
ur á því að fólk sem velur klassíska
tónlist, eða tónlist í flokknum íhug-
ul og margslungin, kvæðist greint,
opið fyrir nýrri reynslu, með frjáls-
lyndar stjórnmálaskoðanir og ekki
mikið fyrir að stunda íþróttir.
Aðlaðandi og hefðbundið
Þungarokksaðdáendur, sem að-
hyllast tónlist í flokknum áköf og
uppreisnargjörn, töldu sig einnig
opna fyrir nýrri reynslu og
greinda. Auk þess voru þeir sólgnir
í nýjungar og áhættu og mikið fyrir
hreyfingu.
Niðurstöður benda ennfremur til
þess að fólk sem vill hlusta á hressa
og hefðbundna músík á borð við
dægurlög og trúartónlist sé glatt,
félagslynt, áreiðanlegt og hjálp-
samt. Það telji sig jafnframt lík-
amlega aðlaðandi og sé tiltölulega
hefðbundið.
Fólk sem hlustar á rapp eða aðra
kraftmikla og taktfasta tónlist skar
sig nokkuð úr samkvæmt niður-
stöðunum, en rannsóknin leiddi í
ljós að um væri að ræða málgefna,
kraftmikla og sáttfúsa einstaklinga
sem leiddu hjá sér íhaldssöm við-
horf.
Þátttakendur svöruðu því enn-
fremur að tónlistarsmekkur léti
jafnmikið uppi um skapgerð þeirra
og tómstundagaman. Einnig töldu
þeir tónlistarsmekk varpa næst-
mestu ljósi á skapgerð annarra,
jafnvel meira en hvers konar bæk-
ur eða tímarit þeir læsu. Helsta vís-
bendingin um hvern mann ókunn-
ugir hefðu að geyma var hins vegar
áhugamál viðkomandi að þeirra
mati.
Rannsakendurnir, Peter J.
Rentfrow og Samuel D. Gosling við
Texas-háskóla í Austin segja fjölda
spurninga ósvarað áður en hægt sé
að leggja fram óyggjandi kenn-
ingar um tónlistarsmekk. Niður-
stöðurnar sýni hins vegar fram á að
tónlist geti aukið skilning manna á
ýmsum sálrænum þáttum manns-
ins.
Tengsl milli
skapgerðar
og tónlistar-
smekks
Reuters
Unnendur kraftmikillar og taktfastrar tónlistar eru sagðir málgefnir, sátt-
fúsir og lausir við íhaldssemi, samkvæmt nýrri könnun.
BÚR ehf. hefur bætt tveimur vörum við í Náttúrulín-
una, jasmínhrísgrjónum og óbragðbættri kartöflu-
mús. Vöruliðir í Náttúrulínunni er um 25 talsins,
segir í tilkynningu. „Jasmínhrísgrjónin eru í eins
kílós og 3,5 kílóa umbúðum. Þau eru sérvalin, rækt-
uð við bestu hugsanlegu aðstæður og henta vel með
öllum mat eða í grauta og búðinga. Jasmínhrísgrjón
eru vinsælustu hrísgrjón í Asíu. Kartöflumúsin í
Náttúrulínunni er komin aftur og án krydds, salts,
sykurs eða annarra bragðefna, að ósk viðskiptavina.
Kartöflumúsin er unnin úr nýjum kartöflum og eru
leiðbeiningar um matreiðslu á umbúðum, segir enn
fremur.
Vörurnar fást í Nóatúni, Nettó,11–11, Sam-
kaupum, Krónunni, Kaskó, KB, KH, Úrvali, Kjarvali
og Strax.
NÝTT
Jasmíngrjón og
ókrydduð kartöflumús
NÓATÚN hefur opnað vef sinn á
Netinu eftir endurbætur. Hefur
vefurinn meðal annars fengið nýtt
útlit og er orðinn gagnvirkari en áð-
ur. Þar er að finna upplýsingar um
fyrirtækið, verslanir Nóatúns, nýj-
ustu tilboð, heimsendingarþjónustu
og starfsfólk. Auk þess eru á annað
hundrað uppskrifta í safni verslun-
arinnar og fróðleikur um hráefni til
matargerðar.
Uppsetning var í höndum Vefs-
Samskiptalausna og auglýsinga-
stofunnar Fastlands og segir Ás-
mundur Þórðarson hjá Fastlandi
láta nærri, að umferð hafi fjórfald-
ast um vefinn frá því að endurbót-
um lauk. Uppskriftir eru vinsælt
efni, að hans sögn, og þá hefur fólk
skráð sig í netklúbb verslunarinnar
sem sendir nýjustu tilboð í tölvu-
pósti.
Sérstök síða er tileinkuð ráðgjöf
um heilsu og hollustu á vefnum og
auk þess eru tenglar á áþekkar síð-
ur á Netinu.
Endur-
bætur á vef
Nóatúns
Noatun.is hefur verið tekið í gegn.