Morgunblaðið - 02.08.2003, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 31
A
LLMÖRG ár eru liðin
síðan öldruð heiðurs-
kona hringdi til mín og
bað mig að finna sig.
Hún kvaðst heita Ósk
Guðjónsdóttir og eiga heima á Vest-
urgötu 56. Þegar ég heimsótti Ósk
kvað hún erindi sitt vera að gefa mér
ljósmyndir er hún ætti í fórum sín-
um. Þær kynnu að vekja áhuga ein-
hverra ef fjallað væri um þá sem
sátu fyrir er ljósmyndarinn beindi
myndavél sinni að þeim. Það kom í
ljós er við Ósk skoðuðum ljósmynd-
irnar að þær vöktu áhuga minn,
enda kannaðist ég við marga sem á
þeim voru, þótt þar væru borgarar
sem voru fæddir áratugum fyrr en
ég, sem ég nú reyndi að koma fyrir
mig hver væri hvað og tengdist
hverjum.
Það sem varð til þess að ég tók
myndirnar fram nýverið var saga
gamals góðvinar míns, Ketils Larsen
leikara, jólasveins og Tóta trúðs.
Áratugir, hálf öld, er liðin síðan leið-
ir okkar Ketils lágu saman. Ketill er
einn þeirra, sem sannarlega fer sín-
ar eigin leiðir. Allt frá fyrstu dögum
er kynni okkar tókust hefir Ketill
sent mér póstkort úr fjarlægustu
stöðum. Í dag er hann kannske í
óbyggðum, síðan er hann kominn til
Ítalíu, Grænlands, Austurlanda fjær
eða nær eða Kína. Okkur Katli hefur
alltaf samið vel – og þó? Einhvern
daginn kom hann til mín og kvaðst
vera kominn af Grími Thomsen
skáldi og Bessastaðabónda. Ég bað
Ketil vin minn að minnast aldrei á
slíka fásinnu framar. Hann varðist
andmælum mínum og vitnaði til
móður sinnar. Ég vissi að Helga á
Engi var sómakona, en einhvern
veginn hafði ættfræðin brenglast.
Þurfti ei annað en hyggja að ártölum
til þess að fá staðfestingu á því. Ég
benti Katli á að hann ætti að kanna
ætt sína og bauðst til þess að hyggja
að sannfræði og manntölum.
Þegar manntal var tekið á Elliða-
vatni árið 1845 þá búa þar hjónin
Jón Jónsson sjálfseignarbóndi, 56
ára, og kona hans Guðrún Jóns-
dóttir, 29 ára. Þau eiga tvo syni, Jón
3 ára og Guðmund 2 ára. Yngri bróð-
irinn, Guðmundur, mun vera faðir
Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu,
sem giftist Borgþór Jósefssyni bæj-
argjaldkera. Saman eignuðust þau
hjónin þjóðkunn börn, sem tóku upp
ættarnafnið Borg.
Hjá húsbændunum á Vatni, eins
og Elliðavatn var kallað fyrr á árum,
var fósturbarn. Það var María
Amalía Thomsen, 19 ára gömul þeg-
ar manntalið var tekið. Þá erum við
farin að nálgast Ketil Larsen og
Thomsen. María Amalía var dóttir
Ditlevs Thomsens kaupmanns,
stofnanda stórverslunar þeirrar er
reis við Hafnarstræti og Lækj-
artorg.
Í bæjar- og borgarfulltrúatali
Reykjavíkur, sem þeir Páll Líndal
og Torfi Jónsson skráðu, birtast
upplýsingar um þá sem setið hafa í
bæjarstjórn allt frá árinu 1836. Þar
er Ditlev Thomsen nefndur. Þau
mistök hafa orðið að ljósmynd sú
sem birt er reynist ekki vera af bæj-
arfulltrúanum sem kjörinn var held-
ur af afkomanda hans og nafna,
Ditlev Thomsen konsúl og forstjóra
Thomsens Magasíns.
Ditlev Thomsen, sá sem kjörinn
var bæjarfulltrúi 1852, var ættaður
frá Bau í Slésvík. Hann fluttist ung-
ur hingað til lands. Var versl-
unarstjóri á vegum Siemsens í
Keflavík. Dvaldist um skeið í Hafn-
arfirði en hlaut borgararéttindi í
Reykjavík sem verslunarstjóri 15.
október 1829 en borgarabréf sem
kaupmaður 29. júlí 1837. Ditlev
Thomsen hóf verslunarrekstur í svo-
kölluðu Sívertsenshúsi við Hafn-
arstræti 22, en árið 1844 reisti hann
hús við Lækjartorg sem síðar var
stækkað og flestir Reykvíkingar
muna sem Hótel Heklu er lengi bar
af öðrum húsum hvað stærð og at-
hafnalíf snerti um langt skeið.
Ditlev Thomsen var sérlundaður
maður og lét ekki hlut sinn. Hann
átti lengi í harðvítugum deilum um
veiðirétt í Elliðaánum, en konungur
hafði selt honum þau hlunnindi árið
1853. Ditlev Thomsen neitaði að
taka sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur.
Bar hann við kunáttuleysi í íslensku,
en Trampe stiftamtmaður tók það
ekki til greina og úrskurðaði að hann
skyldi sitja í bæjarstjórn.
Ditlev Thomsen var erfiður emb-
ættismönnum og fór sínu fram í
flestu. Fræg var deila hans við bæj-
arfógeta um mykjuhaug við hús
hans í Hafnarstræti. Varð úr mál og
var Thomsen vikið úr bæjarstjórn
um skeið. Þó tók hann sæti þar síð-
ar.
Ditlev Thomsen fórst með póst-
skipinu „Søløven“ undir Svörtu-
loftum 27. nóvember 1857.
Kona hans var Gytte Jacobine,
dóttir Anders Levers versl-
unarmanns og konu hans Friðrikku,
dóttur Rasmus Lynges kaupmanns
á Akureyri. Lynge var skyldur
fjölda þjóðkunnra manna. Má nefna
Jakob Smára menntaskólakennara,
Ólaf Friðriksson ritstjóra o.fl.
Áður en Ditlev Thomsen gekk í
hjónaband hafði hann eignast dóttur
þá, Maríu Amalíu, sem skráð er á
manntal á Elliðavatni árið 1845.
Ditlev var þá ungur maður í Hafn-
arfirði.
Guðrún Geirsdóttir Zoëga vann
um skeið í Thomsens Magasíni áður
en hún giftist manni sínum, Þor-
steini Þorsteinssyni. Stallsystir
hennar og vinkona, Lovísa Ágústs-
dóttir Fjeldsted, var þar einnig um
svipað leyti. Geir Þorsteinsson,
verkfræðingur, sonur Guðrúnar og
Þorsteins, minnist þess að móðir
hans og Lovísa gátu talað saman í
síma um það bil tvær klukkustundir
daglega. Þær höfðu um margt að
ræða frá fyrri árum þegar Thom-
sens Magasín var miðstöð bæjarlífs-
ins og hafði á sér stórborgarsnið.
Lovísa og eiginmaður hennar, Lárus
Fjeldsted lögfræðingur, einn virtasti
maður í stétt málaflutningsmanna,
bjuggu alllengi í húsakynnum
Thomsens þar sem síðar var Hótel
Hekla.
Sigurður Guðmundsson frá Of-
anleiti mun hafa ráðist til starfa í
Thomsens Magasíni áður en hann
gekk í þjónustu Thorefélagsins árið
1907 en síðar til Eimskipafélags Ís-
lands. Hann var rómað prúðmenni.
Valdimar Erlendsson læknir nefnir
Ditlev Thomsen sem einn helsta
ballstjórann á dansleikjum Reykja-
víkurklúbbsins, en þeir voru haldnir
á Hótel Íslandi í byrjun 20. aldar.
Ditlev kom víða við sögu. Hann fór
ríðandi vestur á Snæfellsnes í prest-
skapartíð séra Árna Þórarinssonar.
Þá fékk hann Tvede apótekara með
sér til þess að skoða ölkelduna sem
kennd er við Rauðamel. Lækn-
ingamáttur ölkelduvatnsins var
rómaður og hafði alþýða tröllatrú á
drykknum.
Karl Nikulásson konsúll var upp-
eldissonur Mortens Hansens, skóla-
stjóra Barnaskóla Reykjavíkur.
Karl var frændi Jóns Sigurðssonar
forseta í föðurætt, en móðurætt
hans nafnkunnir Vesturbæingar.
Naut hann þeirrrar frændsemi á
námsárum sínum í Kaupmannahöfn.
Þóra Pálsdóttir, frá Pálshúsum á
Bráðræðisholti, var ráðskona hjá
Valdemar prins, yngsta syni Krist-
jáns 9. konungs þess er hingað kom
á þjóðhátíð 1874. Fengu þeir feðgar
við brottför sína einn frægasta gæð-
ing Íslandssögunnar er hneggjaði
feginsamlega er hann leit gamlan
húsbónda sinn í konungsgarði árið
1876 þegar Eiríkur frá Brúnum
kvaddi dyra og skiptist á ljós-
myndum við konungsfjölskylduna.
Þóra sauð og steikti kræsingar og
konunglega rétti í eldhúsi því sem
hún hafði til umráða í Det Gule
Palads, höll Valdemars prins í hjarta
Kaupmannahafnar. Eldhúsið var í
kjallara hallarinnar. Þóra frá Páls-
húsum og aðstoðarstúlkur hennar,
sem hún fékk leyfi húsráðenda til að
ráða til sín til hjálpar við matreiðslu
og þjónustu, minntust þess oft að
þær sáu þá feðga, Kristján konung
og yngsta son hans, Valdemar prins,
daglega er þeir gengu saman dag-
legan „göngutúr“ sinn, en þær sáu
ekki nema lítinn hluta þeirra feðga
er þeir gengu fyrir eldhúsgluggann.
Útsýnið sem við blasti voru feðg-
arnir, en af þeim sást aðeins tak-
markað. Stúlkurnar sáu bara fætur
þeirra upp að hné. Vakti það kátínu í
eldhúsinu.
Karl Nikulásson mun hafa þegið
margan bitann og sopann hjá Þóru
frænku sinni. Hann lauk ekki námi í
fræðum sínum, en stundaði þó ýmis
störf í þágu bænda, rannsóknir og
erindrekstur. Að loknum bókhalds-
og verslunarstörfum hjá ýmsum fyr-
irtækjum réðst hann í þjónustu H.
Th. A. Thomsen sem skrifstofustjóri
og síðar verslunarstjóri. Þar starfaði
hann frá 1905–1910. Hann varð heið-
ursfélagi Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur og sat lengi í stjórn
þess. Eiginkona hans var Valgerður
Ólafsdóttir, Jónssonar kaupmanns í
Hafnarfirði. Þeim varð ekki barna
auðið. Karl Kvaran listmálari hét
nafni hans.
Ef staðhæfing Helgu á Engi ætti
við rök að styðjast þá hefir Grímur
Thomsen verið ótrúlega bráðþroska
og niðurvaxinn að sama skapi. María
Amalía Thomsen, fósturdóttir Jóns
á Vatni og uppeldissystir Guð-
mundar, föður Stefaníu leikkonu,
var fædd árið 1826. Grímur Thom-
sen var fæddur 15. maí 1820.
Hraustlega gert af 6 ára snáða, eða
hvað?
Ketill vinur minn er miklu betur
settur með Ditlev Thomsen sem for-
föður. Nú virðist mér að Ketill ætti
að gera sér ferð til Bau í Slésvík og
kynna sér ættarslóðir forfeðranna.
Ættartengsl við hertogadæmi og
hjálendur Dana eru verðugt rann-
sóknarefni Íslendinga og Dana.
Glaðst á góðum degi
Íslenskir versl-
unarmenn gerðu
sér stundum glaðan
dag áður en frídagur
þeirra varð til.
Pétur Pétursson
rýndi í gamlar
myndir af starfsfólki
Thomsens Magasíns
í Reykjavík.
Starfsfólk Thomsens Magasíns. Myndin er líklega um aldargömul. Fyrir miðri mynd er Ditlev Thomsen, eigandi
og forstjóri. Fyrir framan hann stendur Helga Jónasdóttir. Hún starfaði áratugum saman hjá Thomsen. Helga var
barnsmóðir Tryggva Gunnarssonar bankastjóra. Við hlið Thomsens er Hannes Thorarensen, síðar forstjóri vín-
verslunar. Við hlið hans er Karl O. Nikulásson verslunarstjóri. Fyrir framan hann eru tvær góðar vinkonur, Guð-
rún Geirsdóttir Zoëga, síðar eiginkona Þorsteins Þorsteinssonar hagstofustjóra. Lovísa Ágústsdóttir, síðar eig-
inkona Lárusar Fjeldsted lögmanns. Við hlið Thomsens er Sigurður Guðmundsson frá Ofanleiti, síðar
skrifstofustjóri Eimskipafélags Íslands. Nöfn hinna vantar.
Ljósmynd/Sigfús Eymundsson
Skemmtiferð starfsfólks Thomsens Magasíns. Myndin er líklega tekin á árunum 1908–10. Karl Nikulásson versl-
unarstjóri og konsúll situr fyrir miðju. Hann leikur á harmonikku. Við hlið hans er Guðrún Þorkelsdóttir múrara.
Hún mun einnig hafa starfað hjá verslun Egils Jacobsen síðar. Sara Þorsteinsdóttir, síðar eigandi Sokkabúð-
arinnar, Rebekka Hjörtþórsdóttir með hvíta slæðu fyrir andliti, rómuð saumakona. Sigurður Þorsteinsson, bók-
haldari og yfirfiskmatsmaður, Sigurður Guðmundsson, Valdimar Jónsson, síðar verkstjóri hjá Landsverslun og
Olíuverslun Íslands á Klöpp. Benedikt G. Waage, síðar forseti ÍSÍ. Carl Ryden, síðar kaffiframleiðandi (með harð-
kúluhatt, lengst t.v.). Egill Jacobsen, síðar kaupmaður í Austurstræti. Gamlir Reykvíkingar ættu að þekkja þá sem
ekki eru nafngreindir. Tölvuöld torveldar allar leiðir, jafnframt því sem greiðir leiðir.
Höfundur er þulur.