Morgunblaðið - 02.08.2003, Síða 38

Morgunblaðið - 02.08.2003, Síða 38
MINNINGAR 38 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Konráð Sigurðs-son fæddist í Miðbæjarskólanum í Reykjavík 13. júní 1931. Hann lést á heimili sínu að Blönduhlíð 35 í Reykjavík 15. júlí síðastliðinn. Hann var yngsti sonur Sig- urðar Jónssonar skólastjóra, f. að Lækjarkoti í Mos- fellssveit 6. maí 1872, d. 17. júní 1936, og konu hans Rósu Tryggvadóttur frá Jórunnarstöðum í Eyjafirði, f. 4. júní 1891, d. 15. desember 1944. Albræður Konráðs voru Hróarr, f. 5. júlí 1925, d. 1. júní 1953, og Tryggvi vélstjóri, f. 19. september 1929. Faðir Konráðs var ekkill eft- ir Önnu Magnúsdóttur kennara, f. 9. maí 1868, d. 16. desember 1917, og höfðu þau eignast tvö börn, Steinþór náttúrufræðing, f. 11. janúar 1904, d. 2. nóvember 1947, og Guðrúnu kennara, f. 15. júlí 1905, d. 15. júlí 1995. Konráð var þríkvæntur. Hann kvæntist Þórunni Benediktsdóttur Gröndal 1953 en þau skildu 1957. Börn hans og Þórunnar eru 1) Sig- urður prófessor við KHÍ, f. 19. ágúst 1953. Maki Kolbrún Egg- ertsdóttir BA í almennum málvís- unarfræðingur. Dóttir þeirra er Sif, f. 2003. 7) Andri læknir f. 16. september 1971. Konráð kvæntist Önnu Agnars- dóttur kennara og M.Paed. í ís- lensku 1976. Dætur þeirra eru 8) Hildur Rósa nemi, f. 26. júlí 1974. Sambýlismaður Arnar Guðjónsson tónlistarmaður. 9) Anna, f. 24. mars 1977, d. 5. maí 1979, og 10) Anna Guðrún nemi, f. 13. febrúar 1980, en hún á dótturina Önnu Hildi, f. 2000, með Birni Róberti Ómarssyni. Konráð Sigurðsson missti föður sinn 5 ára að aldri og móður sína 13 ára. Hann ólst eftir það upp hjá bróður sínum Steinþóri og síðar hjá systur sinni Guðrúnu. Á yngri árum starfaði hann á skurðgröfu og öðrum þungavinnuvélum. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1952 og kandí- datsprófi í læknisfræði frá Há- skóla Íslands 1963 en fékk almennt lækningaleyfi 1966. Konráð starf- aði sem héraðslæknir í ýmsum læknishéruðum frá 1963 en lengst í Laugaráslæknishéraði á árunum 1967–1982. Á þeim tíma gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum í fé- lögum lækna. Hann starfaði sem læknir á geðdeild Borgarspítalans á árunum 1972–1973 og í Svíþjóð á árinu 1981. Hann var yfirlæknir heilsugæslustöðvar Seltjarnarness 1982–1983 en frá þeim tíma og til dauðadags starfaði hann sem heimilislæknir á eigin stofu, við Klapparstíg, í Hafnarstræti en síð- an í Uppsölum í Kringlunni. Útför Konráðs hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk. indum. Börn þeirra eru Þóra, f. 1988, Atli, f. 1989, Ingólfur f. 1993 og Gunnar, f. 1997. Sonur Sigurðar og Maríu Sigríðar Gunnarsdóttur er Þór, f. 1981. 2) Áslaug skrifta og búninga- hönnuður, f. 6. janúar 1955. Maki Karl Júl- íusson leikmynda- hönnuður. Börn þeirra eru Anna, f. 1980 og Karl Einar, f. 1982. Konráð kvænt- ist Sigrid Østerby framhaldsskólakennara og list- meðferðarfræðingi 1960 en þau skildu 1973. Börn þeirra eru 3) Atli líffræðingur og kennari, f. 11. október 1959. Maki Anne Berit Valnes leikskólakennari. Börn þeirra eru Björk, f. 1995, Lilja, f. 1996, Hákon, f. 1998, Tryggvi, f. 2000 og Gauti, f. 2002. 4) Sif hæsta- réttarlögmaður, f. 4. desember 1960. Maki Þórður Hjartarson og eiga þau dótturina Helgu Østerby, f. 1997. 5) Huld BA í frönsku og flugfreyja, f. 5. ágúst 1963. Maki Sigurður Tómas Magnússon hér- aðsdómari. Börn þeirra eru Sigrún Hlín, f. 1988, Margrét Sif, f. 1994 og Magnús Konráð, f. 1998. 6) Ari læknir, f. 14. september 1968. Maki Þóra Guðmundsdóttir hjúkr- Konráð Sigurðsson tengdafaðir minn er látinn á 73. aldursári. Kon- ráð starfaði sem heimilislæknir allt til dánardags og var starfsferill hans afar gifturíkur. Lífshlaupi Konráðs verður hins vegar ekki að öðru leyti líkt við siglingu niður lygna á milli gróinna bakka. Þvert á móti voru margir boðar á lífsleið hans, þröng gljúfur, flúðir og fossar en þó inn á milli lygnar og fagrar breiður. Faðir Konráðs var Sigurður Jóns- son, skólastjóri Miðbæjarskólans, virtur og dáður skólamaður. Hann varð farkennari í Grímsneshreppi 16 ára en sótti sér síðan kennaramennt- un til Danmerkur. Sigurður hélt uppi jákvæðum aga, vildi hag allra sem mestan. Sigurður átti sæti í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var um skeið forseti borgarstjórnar. Rósa móðir Konráðs var afar bókhneigð og víð- lesin. Fjölskyldan bjó á lofti Miðbæj- arskólans. Fyrsta áfallið dundi yfir þegar Konráð var fimm ára en þá dó faðir hans úr lungnabólgu. Við tóku erfið ár hjá Rósu móður Konráðs og drengjunum þremur, Hróari, Tryggva og Konráði, og fluttu þau úr einu leiguhúsnæðinu í annað næstu árin. Elsti albróðir Konráðs átti við geðsjúkdóm að stríða og móðir hans var heldur ekki heil heilsu. Konráð lagði sitt af mörkum við að fram- fleyta fjölskyldunni með blaðburði og var í sveit öll sumur. En áföllin urðu fleiri. Konráð missti móður sína 13 ára og var næstu tvö árin hjá Steinþóri hálf- bróður sínum og Auði Jónasdóttur konu hans. Steinþór lést í hörmulegu slysi við rannsóknarstörf í Heklu- gosinu 1947. Konráð bjó síðan í skjóli hálfsystur sinnar Guðrúnar og manns hennar, Gísla Gestssonar frá Hæli. Reyndust þessi systkini Kon- ráði afar vel. Guðrún hvatti hann til að taka landspróf og til að hefja nám í Menntaskólanum í Reykjavík. Þeim sem ekki kynntust Konráði fyrr en á síðari hluta ævi hans kemur það væntanlega á óvart að Konráð vann fyrir sér í námi með því að stjórna stórvirkum vinnuvélum. Hann vann lengi á skurðgröfum við að ræsa fram mýrar norðan lands og sunnan og starfaði auk þess við virkjun Sogsins. Konráð varð strax um tvítugt verkstjóri í stórum verk- um. Annað átti þó fyrir honum að liggja en að stjórna þungavinnuvél- um. Hann hóf læknanám og braut- skráðist úr læknadeild Háskóla Ís- lands 1963. Við tók vinna á ýmsum deildum sjúkrahúsa í Reykjavík og síðan störf sem héraðslæknir í ýms- um umdæmum, m.a. Kópaskers-, Raufarhafnar-, Hólmavíkur- og Djúpuvíkurhéraði. Hann var héraðs- læknir í Laugaráshéraði í Árnes- sýslu frá 1967 til 1982. Þegar Konráð kom þangað til starfa var hann eini læknirinn í héraðinu og einn starfs- maður til aðstoðar. Héraðið var afar víðfeðmt en fjölmennir skólar á Laugarvatni heyrðu m.a. undir hér- aðið. Á þessum árum var vinna við Búrfellsvirkjun í fullum gangi og al- varleg vinnuslys tíð. Vinnutími Kon- ráðs var allur sólarhringurinn og álag á honum oft og tíðum gríðarlega mikið. Vegir voru vondir og oft ill- færir á vetrum vegna snjóa og á vor- in vegna aurbleytu. Í þá tíð var al- gengt að háaldrað og sjúkt fólk dveldi heima fram í andlátið og miklu tíðara en nú að læknar væru sóttir í heimahús. Löngu áður en ég kynntist Huld, dóttur Konráðs, varð ég vitni að natni Konráðs og umhyggjusemi við sjúklinga sína. Yfir móður minni sat hann eitt sinn heilan dag þegar hún var hætt komin vegna hjartasjúk- dóms. Hann ráðlagði henni að hætta að reykja 1968 og hlýddi hún því en um þetta sem annað gildir að auð- veldara er að kenna heilræðin en að halda þau. Vægt er til orða tekið að segja að Konráð hafi verið elskaður og dáður af fólki í uppsveitum Ár- nessýslu og veit ég ekki til að nokk- urn skugga hafi borið þar á. Vafa- laust er hins vegar að á honum hafa verið brotin öll vökulög og vinnu- verndarreglur. Hugtakið „samþætt- ing starfs og fjölskyldulífs“ var fjar- lægt á þessum árum. Gríðarlegt vinnuálag hefur varla gert fjöl- skyldulífinu í læknisbústaðnum í Laugarási gott. Þegar frá leið fjölgaði starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar. Læknarn- ir urðu tveir, hjúkrunarfræðingur og fleiri starfsmenn bættust í hópinn. Meiri tími gafst þá til tómstunda. Í Laugarási varð Konráð fyrir stærsta áfallinu þegar Anna litla dóttir hans drukknaði rúmlega tveggja ára vorið 1979. Hefur þessi erfiða reynsla vafalaust ýft upp ógróin sár vegna missis ástvina í bernsku. Þau Anna eiginkona hans reistu sér eftir það nýtt hús, Árósa, í Laugarási en dvöl þar varð þeim erf- ið eftir fráfall Önnu litlu þótt fjöl- skylda og góðir vinir þeirra, svo sem séra Guðmundur Óli og Anna í Skál- holti, hafi reynst þeim einkar vel. Gerðist Konráð 1982 yfirlæknir heilsugæslustöðvarinnar á Seltjarn- arnesi. Andlegri líðan Konráðs hrak- aði mikið eftir þetta og á árinu 1983 varð hann alvarlega veikur af geð- hverfasýki. Enda þótt hann næði sér aldrei fyllilega af þessum erfiða sjúkdómi náði hann ótrúlegum bata með dyggum stuðningi Önnu. Kon- ráð tók fljótlega aftur til starfa sem sjálfstætt starfandi heimilislæknir í Reykjavík en því starfi gegndi hann til æviloka. Konráð Sigurðsson átti ýmis áhugamál sem hann sinnti eftir föng- um. Helsta áhugamál hans um árabil voru lax- og silungsveiðar. Hann hafði fastan vikulegan veiðidag í Brúará fyrir landi Haga. Þá stundaði hann laxveiðar víða um land með góðum árangri. Læknishéraðið á veiðirétt í Hvítá við Laugarás gegnt Iðu en frá þeim bakka þessa mikla fljóts eru veiðar lítið stundaðar þar sem ekkert er bergvatnið. Konráð renndi þar oft fyrir lax og eitt haust- ið veiddi hann þar á sjötta tug fiska. Hann kvaðst hafa verið orðinn svo þreyttur á að koma laxinum í frysti á Selfoss að hann hefði hætt veiði- skapnum. Eftir þetta haust missti Konráð að mestu áhugann á að veiða sjálfur en ekki á veiðum. Hvert sum- ar fylgdist hann náið með veiðitölum í öllum helstu laxveiðiám landsins og skráði niður þróun veiðinnar frá viku til viku. Fyrir fjórum árum fórum við Konráð ásamt fleirum til veiða í Hvítá við Iðu. Eftir að veiðimenn höfðu öslað daglangt um bakkafulla Hvítá var snæddur góður matur í veiðihúsinu og lumaði Konráð þá á bestu veiðisögunum. Konráð var áhugasamur um skák og spilamennsku. Hann tefldi oft við börn sín í Laugarási og vakti með þeim skák- og bridsáhuga. Brids var helsta áhugamál Konráðs síðustu ár- in og spiluðu þau Anna vikulega við vini sína. Konráð var alla tíð áhugamaður um stjórnmál og hafði sérstakan áhuga á kosningum og kosningaúr- slitum. Hann var reyndar áhuga- maður um allt sem laut að tölum og tölfræði. Kímnigáfa Konráðs og jafnframt góð máltilfinning birtist m.a. í því að hann kom sér upp sínu eigin orða- safni yfir algenga hluti og athafnir daglegs lífs. Mörg þessara orða og orðatiltækja eru afar skondin og hafa börn hans tileinkað sér mörg þeirra. Konráð var mikill sóldýrkandi og áður en maður fór að taka eftir að sólin væri farin að hækka á lofti á vorin var hann orðinn fallega brúnn. Hann naut sín vel í utanlandsferðum og þegar sólin skein í Grímsnesinu þegar þau dvöldu í sumarbústaðnum Heiði. Konráð var afar dulur á tilfinn- ingar sínar og talaði helst ekki um eigin hagi. Hann tranaði sér ekki fram í fjölmenni en var afar viðræðu- góður í þröngum hópi. Sá eiginleiki að hlusta fremur en að hafa orðið kom sér afar vel í samskiptum hans við sjúklinga. Mér hefur verið sagt að meðal góðra kosta Konráðs sem læknis hafi verið einstök næmi við greiningu á sjúkdómum. Slík færni hlýtur þó ávallt að byggjast á mikilli þekkingu í læknisfræði, næmum skilningi á sérkennum sjúklinga og góðri rökhugsun. Færni við sjúk- dómsgreiningu er vafalítið mikill styrkur heimilislæknis í dreifbýli. Konráð lagði sig allan fram í starfi og naut alla tíð virðingar sjúklinga sinna og ekki síður samstarfsmanna. Konráð eignaðist tíu börn í þrem- ur hjónaböndum. Börn hans af fyrri hjónaböndunum voru ung við skiln- aðina og þeir reyndust börnunum vitaskuld erfiðir. Konráð hélt þó ávallt góðum tengslum við börn sín. Sigrid átti ríkan þátt í að halda góð- um tengslum Konráðs við börn hans af fyrsta hjónabandi. Þá átti Anna ómetanlegan þátt í að viðhalda tengslum hans við börnin og dró ekki af sér í fjölskylduboðum um jól og oft um áramót. Börn Konráðs nutu gestrisni hennar, gjafmildi og hlýju í þeim samskiptum. Þá héldu þau Konráð góðu sambandi við Tryggva, eftirlifandi bróður hans, og dóttur hans, Sigurbjörgu. Konráð sýndi væntumþykju sína til barna sinna og fjölskyldunnar fremur í athöfnum en orðum. Hann fylgdist afar vel með námi og starfi barna sinna og barnabarna og hafði mikinn metnað fyrir þeirra hönd. Á hverju kvöldi bað hann fyrir hverju og einu barna sinna. Sólargeislinn hann síðustu árin var dótturdóttirin Anna Hildur sem bjó hjá þeim hjón- um í Blönduhlíðinni ásamt móður sinni. Í banalegu Þóru ömmu minnar var Konráð tíður gestur á bernsku- heimili mínu og við banabeð hennar sagði hann við syrgjandi móður mína: „Nú er hún komin í hendurnar á færari læknum.“ Konráð læknir er nú kominn í þeirra hóp. Sigurður Tómas Magnússon. Látinn er elskulegur mágur minn Konráð Sigurðsson. Anna systir mín var bráðung þegar hún kynntist Konráði. Hann var miklu eldri en hún, nýskilinn við seinni eiginkonu sína og sjö barna faðir. Satt að segja runnu tvær grímur á litla bróður. En Anna mín féll fyrir honum, þótt hún þættist sjá að þar færi ekki rós án þyrna. Nú svo löngu seinna þegar ég lít til baka er margs að minnast. Við Anna höfum alltaf haft náið samband og allar hræringar í lífi hennar hafa snert mig mikið. Óhætt er að segja að skipst hafi á skin og skúrir í lífi hennar og Konráðs. En nú þegar upp er staðið veit ég að Konráð reyndi alla tíð að standa sig gagnvart henni. Engum duldist hve mikið hann elskaði konu sína og mat hana mikils. Og hún var hans besti vinur og hann hennar. Þegar honum var sjálfrátt miðuðu allar gerðir hans að því að tryggja velferð konu sinnar og barna. Konráð var óvenju góðum gáfum gæddur, áreiðanlega vel ríflega með- alsnotur skv. skilgreiningu Háva- mála. Hann hafði óvenjulega yfirsýn mála. Þetta nýttist honum m.a. vel við læknisstörfin. Hann var fljótur að greina meinin og varð enda fljótt vinsæll og vel metinn læknir. Og hann hafði ágætt meirapróf á buddu. Alla tíð var mjög gaman og lær- dómsríkt að spjalla við Konráð um stjórnmál og önnur áhugamál mín og hans. Hægt var að fletta upp í hon- um upplýsingum um ótrúlegustu hluti. Og sumir vina minna nutu líka visku hans. Ég er ekki frá því að Sig- urður Örn vinur minn hafi lagt í læknanám vegna hvatningar Kon- ráðs. Konráð var alla tíð elskulegur við mig og mitt fólk. Í raun má segja að aldrei hafi borið skugga á þau sam- skipti. Hann var í miklu uppáhaldi hjá börnum mínum og sérlegt eft- irlæti móður minnar. Margar ánægjustundirnar rifjast upp. Fjörug spilakvöld, þar sem Konráð var í essinu sínu, enda sérlega slyng- ur spilari, skemmtilegar matarveisl- ur. Sólskinsstundir á Heiði. Og lax- veiðiferðir, áður en hann veiddi yfir sig. Konráð átti erfiða æsku. Hann missti föður sinn og móður ungur að árum. Hann varð allt of ungur að standa á eigin fótum. Alltaf sér maður betur og betur hvað gott uppeldi og heilbrigt atlæti á ungaaldri er gott veganesti fyrir lífið, og hvílík forréttindi það eru að njóta slíks. Og hvað örin á barnssál- inni geta vaxið og magnast og sett mikið strik í lífsreikninginn. Lífs- hlaup Konráðs var markað þessu. Dimmu skýin voru aldrei fjarri höfði hans þótt hann berðist við að bægja þeim frá, t.a.m. barnsmissir, sem ríð- ur hraustasta fólki að fullu. Helsti bandamaður hans, Anna, var aldrei langt undan. Hún var með alla þræði á höndum. Síðustu æviár sín var Konráð í raun varla nema skugginn af sér. En hann stóð sína vakt á stofunni og hjálpaði til heima eins og hann gat, reyndi að vera góður við alla. Þegar ég kvaddi Konráð hinsta sinni var ég þess fullviss að hann væri saddur lífdaga. Við kveðjum hann með söknuði en vitum af hon- um í góðum félagsskap með Önnu litlu og mömmu og pabba og gengn- um systkinum sínum. Tryggvi Agnarsson. Persónuleiki manna virkar líkt og veður. Sumir menn eru stormur, sumir eru sólskin, sumir eru hagl. Konni var hægur andvari. Hann hafði einkar þægilega nálægð, var fágætur séntilmaður, umhyggju- samur og nærgætinn við samferða- menn sína. Við nutum þess að þekkja hann í þrjá áratugi og áttum síðustu árin marga góða stund með þeim Önnu, bæði í Blönduhlíð og austur á Heiði. Við sátum gjarnan að spilum og spjalli eða yfir góðri mál- tíð. Margt bar á góma, dægurmál og pólitík, en gátur lífsins voru útrætt mál og fortíðin að mestu látin óáreitt. Konráð var vissulega maður mikillar lífsreynslu sem gaf honum víða sýn – sem manni fannst á stund- um að hann langaði til að veita sínum nánustu hlutdeild í. En kannske var líkt á komið með honum og Þorsteini frá Hamri í kvæðinu Sumir dagar: Sumir dagar eru hús sem við læsum vandlega áður en við kveðjum og hverfum út á vettvang áranna en ef við síðar förum þar hjá af tilviljun sjáum við allar dyr opnar – börn dvelja þar að leik og það sem mest er um vert: sólin skín ótrúlega glatt á húsið. Vissulega hefðum við viljað njóta nærveru Konna lengur, en minning hans er okkur kær. Hún er umvafin sólskini – og hægum andvara. Við vottum Önnu, börnum og barna- börnum okkar dýpstu samúð. Svava og Gylfi. Er hann ekki maður, eins og hinir, þótt hann sé gamall? Ég sat í stofu vina minna, lækn- ishjónanna í Laugarási. Héraðs- læknirinn, Konráð, varð að sinna skyldustörfum, ekki síður en gest- um. Og hér lá nokkuð við. Aldraður sjúklingur þurfti þeirrar hjálpar, sem naumast var unnt að veita, nema á sjúkrahúsi. Orðræðan og rökvísi læknisins festust í minni. Ég var þá nýlega kominn heim úr orlofi, hafði vitjað aldraðrar frænku í Nor- egi og manns hennar, sem var hart leikinn af ellinni og varla sjálfbjarga. Þau voru öðlingar, en kváðust nú orðin annars eða þriðja flokks borg- arar – áttu naumast aðgang að sjúkrahúsum eða læknisaðstoð. Þau voru orðin of gömul. Þeir eru margir orðnir læknarnir, sem þjónað hafa Laugaráshéraði síðustu fjóra eða fimm áratugi. Allir voru þeir mannval og drengskapar- menn. Og þeir líða ekki úr minni. Knútur Kristinsson var mér fyrstur samtíða, og gleymist ekki. Hann var fyrsti organisti minn við Skálholts- kirkju og Hulda, kona hans, söng- stjórinn. Konráð Sigurðsson entist þó KONRÁÐ SIGURÐSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.