Morgunblaðið - 02.08.2003, Side 43
fjölbreytni í lífi sínu enda á yf-
irleitt ekki fyrir rótföstum
plöntum að liggja að vera mikið á
flakki.
Bergflétta, Hedera helix, er til
í mörgum afbrigðum. Flest þau
afbrigði sem eru með hvít- eða
gulskellóttum blöðum eru of við-
kvæmar til að þrífast utandyra
hérlendis allt árið. Þær eru hins
vegar fyllilega harðgerðar utan-
dyra yfir sumarið og fara sér-
staklega vel með blómstrandi
blómum í pottum og kerum.
Bergfléttan vex ekki mikið yfir
sumarið en hún minnkar ekki
heldur...
Fúksía eða blóðdropi Krists,
Fuchsia cv., er ákaflega fallegur
blómstrandi hálfrunni. Blómin eru stór, ým-
ist einlit eða tvílit og í rauðum, bleikum,
fjólubláum eða hvítum litum. Á árum áður
áttu allar alvöru húsmæður fúksíur í stofu-
og eldhúsgluggum sínum en svo duttu þær
úr tísku og þóttu einstaklega púkaleg blóm.
Nú hafa fúksíurnar fengið uppreisn æru.
Þær eru komnar inn úr kuldanum og hafa
verið settar út í kuldann aftur, bara í ann-
arri merkingu. Fúksíur blómstra allt sum-
arið og maður fær mjög mikið af blómum
fyrir peningana en rétt er að passa upp á að
fjarlægja visin blóm af plöntunum svo þær
fari ekki að mynda fræbelgi, þá fer orka
plöntunnar í fræmyndunina en minna í
blómgun. Vaxtarlag fúksía er mjög fjöl-
breytt og er hægt að fá plöntur fyrir hvers
konar aðstæður. Hengi-fúksíur henta einkar
vel í hengipotta, uppréttar fúksíur í ker og
venjulega potta og svo er jafnvel hægt að fá
fúksíur á háum stofni og eru þær sérlega
glæsilegar í stórum potti á sólpalli.
Ástralska pálmategundin Corydalis austr-
alis er glæsileg viðbót í flóru útlægu inni-
ÞAÐ er rétt að taka það fram
hér í upphafi greinarinnar að
ég hef ekkert á móti inni-
blómum og þetta er alls ekki
heróp af neinu tagi, inniblóm
eru svo sannarlega velkomin
innandyra, ég á meira að
segja nokkur svoleiðis sjálf og
þau eru öll hin hressustu. Það
sem ég ætla að fjalla um í
þessari grein eru inniblóm
sem hafa fengið fjölbreyttara
notagildi.
Á síðustu árum hafa skap-
ast nýjar hefðir í ræktun hjá
okkur Íslendingum. Með auk-
inni ræktun og tilkomu sól-
palla og skjólveggja hefur
okkur tekist að skapa hlýja og
skjólgóða garða sem auka notagildi garð-
anna til muna og gera okkur kleift að rækta
mun hitakærari plöntur utandyra en áður
þekktist. Margar þessara tegunda hafa verið
aufúsugestir á íslenskum heimilum um ára-
tugaskeið en ekki hefur verið talið óhætt að
henda þeim út á guð og gaddinn. Nú hefur
ný kynslóð harðbrjósta garðyrkjumanna
tekið sig til og markaðssett fyrrverandi inni-
plöntur sem útiplöntur. Rétt er að taka það
fram að allar þessar inniplöntur eru ein-
ungis ætlaðar til notkunar utandyra yfir
sumartímann því þær þola ekki íslenskt
vetrarveður. Í sumum tilvikum eru þær þá
ræktaðar eins og önnur sumarblóm en einn-
ig má kippa plöntunum inn og geyma þær í
hlýjunni innandyra yfir veturinn. Næsta vor
er svo tilvalið að gleðja plönturnar aftur
með því að veita þeim dvalarleyfi utandyra
um leið og hlýtt er orðið í veðri. Engar rann-
sóknir hafa verið gerðar á sálarlífi plantn-
anna og hugsanlegra áhrifa þessa flakks út
og inn á þær en ef plöntur hefðu sál, er ég
viss um að þær gleddust mikið yfir aukinni
blómanna. Ungplöntur pálmans eru með
löng, graslík blöð sem ná 60–100 cm hæð.
Það gefur mjög skemmtileg áhrif að setja
plöntu af þessu tagi í miðju á keri eða potti
og raða blómstrandi plöntum í kring. Til eru
afbrigði af þessum pálma með purpurarauð
laufblöð og eru þau ekki síðri en aðalteg-
undin.
Cineraria, Pericallis x hybrida, var mikið
ræktuð sem inniblóm hér áður fyrr. Hún er
frábrugðin hinum tegundunum í því að hún
er ekki fjölær. Cinerarian er ein þessara
tegunda sem duttu úr tísku og var mikið til
hætt að rækta hana. Ný afbrigði af cinerariu
eru nú komin í ræktun. Þessi afbrigði eru
lágvaxin og þétt og blómstra mikið. Blómin
eru í bleikum, rauðum og bláum litum. Hvert
blóm stendur í langan tíma og er blómg-
unartími plöntunnar mun lengri utandyra en
innan því lægra hitastig hægir á allri starf-
semi plöntunnar. Þessi tegund hentar sér-
lega vel stök í pott á borði eða í samplöntun
með öðrum plöntum í ker og potta.
Ljóst er að þessi listi er ekki tæmandi, inni
á heimilum landsmanna leynast örugglega
inniblóm sem er alveg óhætt að skella út yfir
sumarið, til dæmis jukkur eða drekatré.
Sumir vilja jafnvel halda því fram að plönt-
urnar hafi gott af þessari útiveru sinni því
stundum getur orðið verulega heitt innan-
dyra að sumarlagi. Það er þó vissara að
tryggja þessum plöntum hlýjan og sólríkan
stað þegar þær eru settar út þótt allar geti
þær talist nokkuð vindþolnar. Gott er að
venja þær smám saman við útiveruna og
taka þær inn á nóttunni fyrst í stað.
Við þekkjum það líklega þjóða best, Ís-
lendingar, hvað okkur finnst skemmtilegt að
leggja land undir fót og jafnvel að bregða
okkur út fyrir landsteinana. Hugsanlegt er
að íslensk inniblóm hafi fengið svolítið
flökkusmit með vökvunarvatninu frá okkur
og þau vilji gjarnan vera á faraldsrótum en
til þess þurfa þau aðstoð okkar fótfráu
flökkukindanna. Verum því óhrædd við að
prófa okkur áfram í þessum efnum, í versta
falli hefur líf viðkomandi plöntu orðið til-
breytingarríkara en ella…
Út með inniblómin
Blómaker með ástralska pálmanum, berg-
fléttu, daggarbrá og mánabrúði.
Blóm Cinerariu.
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
497. þáttur
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 43
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
„Au — pair“ Frakkland
Leitum að „au — pair“ frá 1. september til 1.
júlí í þorp í suður Frakklandi. Hafið samband
í tölvupósti á: sandrine.tandel@laposte.net .
Okkur vantar
öflugt fólk með auga fyrir tækifærum
Skoðið kynningu á ensku og norsku á
http://www.trendgames.net. Fyrirspurnir til
Bjarte á Bjarte@rebel-networks.no (á ensku
/norsku) eða Arne í s. 0047911 63920.Ritari - fasteignasala
Öflug fasteignasala óskar eftir ritara. Í starfinu
felst símsvörun, umsjón með innheimtu, aðstoð
við skjalagerð og fleira. Gott tækifæri til að öðlast
reynslu á spennandi starfsvettvangi.
Svör óskast send til auglýsingadeildar Mbl.,
merkt: „Ritari — 2003“, fyrir föstud. 8. ágúst.
Au-pair í úthverfi
Boston
Ung íslensk læknishjón óska eftir Au-pair til
að aðstoða við létt heimilisstörf og umönnun
tveggja ára tvíbura. Lágmark 18 ára.
Ágæt enskukunnátta. Möguleiki á enskunámi.
Reyklaus. Uppl. í s. 897-6701 eða 555-4466
Félagasamtök á
höfuðborgarsvæðinu
leita að starfsmanni í 50% skrifstofustarf. Við-
komandi þarf að hafa reynslu af bókhaldi, þarf
að geta unnið sjálfstætt og vera góður í mann-
legum samskiptum.
Umsóknir berist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
12. ágúst merktar: „F-13990“.
Ný leið ráðgjöf
óskar eftir að ráða starfsfólk í hlutastarf, 6-8
tíma í viku, í tilraunaverkefnið Lifs-listin sem
hefst í haust. Æskilegt er að umsækjendur hafi
menntun í hinum ýmsu listgreinum og í upp-
eldisfræðum. Einnig er æskilegt að umsækj-
endur hafi reynslu af því að starfa með með
ungu fólki. Nánari upplýsingar má nálgast á
www.nyleid.is eða í síma 534 5444.
Byggingatæknifræð-
ingur/verkfræðingur
óskast á litla teiknistofu í Kópavogi.
Starfsvið: Burðarþols- og langahönnun (Acad),
eftirlit og önnur tilfallandi verkefni.
Áhugasamir leggi inn umsóknir fyrir 11. ágúst
á auglýsingadeild Mbl. eða sendið á
box@mbl.is merkar: „B — 13964“.
Farið verður með öll svör sem trúnaðarmál.
Byggingarvinna
Óskum eftir að ráða verkamenn vana bygging-
arvinnu. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu
fyrirtækisins www.risehf.is og á skrifstofu þess,
Skeiðarási 12, Garðabæ.
Frekari upplýsingar veittar í síma 544 4151.
Varmalandsskóli í Borgarfirði
Kennarar
Lausar stöður við skólann: Almenn kennsla,
sérkennsla, leiklist (tjáning), tónmennt.
Skoðaðu heimasíðu skólans.
Komdu á staðinn og kynntu þér skólann og
umhverfi hans.
Upplýsingar gefur Flemming Jessen, símar
430 1511/430 1531/849 1452.
netf. fjessen@ismennt.is .