Morgunblaðið - 02.08.2003, Síða 43

Morgunblaðið - 02.08.2003, Síða 43
fjölbreytni í lífi sínu enda á yf- irleitt ekki fyrir rótföstum plöntum að liggja að vera mikið á flakki. Bergflétta, Hedera helix, er til í mörgum afbrigðum. Flest þau afbrigði sem eru með hvít- eða gulskellóttum blöðum eru of við- kvæmar til að þrífast utandyra hérlendis allt árið. Þær eru hins vegar fyllilega harðgerðar utan- dyra yfir sumarið og fara sér- staklega vel með blómstrandi blómum í pottum og kerum. Bergfléttan vex ekki mikið yfir sumarið en hún minnkar ekki heldur... Fúksía eða blóðdropi Krists, Fuchsia cv., er ákaflega fallegur blómstrandi hálfrunni. Blómin eru stór, ým- ist einlit eða tvílit og í rauðum, bleikum, fjólubláum eða hvítum litum. Á árum áður áttu allar alvöru húsmæður fúksíur í stofu- og eldhúsgluggum sínum en svo duttu þær úr tísku og þóttu einstaklega púkaleg blóm. Nú hafa fúksíurnar fengið uppreisn æru. Þær eru komnar inn úr kuldanum og hafa verið settar út í kuldann aftur, bara í ann- arri merkingu. Fúksíur blómstra allt sum- arið og maður fær mjög mikið af blómum fyrir peningana en rétt er að passa upp á að fjarlægja visin blóm af plöntunum svo þær fari ekki að mynda fræbelgi, þá fer orka plöntunnar í fræmyndunina en minna í blómgun. Vaxtarlag fúksía er mjög fjöl- breytt og er hægt að fá plöntur fyrir hvers konar aðstæður. Hengi-fúksíur henta einkar vel í hengipotta, uppréttar fúksíur í ker og venjulega potta og svo er jafnvel hægt að fá fúksíur á háum stofni og eru þær sérlega glæsilegar í stórum potti á sólpalli. Ástralska pálmategundin Corydalis austr- alis er glæsileg viðbót í flóru útlægu inni- ÞAÐ er rétt að taka það fram hér í upphafi greinarinnar að ég hef ekkert á móti inni- blómum og þetta er alls ekki heróp af neinu tagi, inniblóm eru svo sannarlega velkomin innandyra, ég á meira að segja nokkur svoleiðis sjálf og þau eru öll hin hressustu. Það sem ég ætla að fjalla um í þessari grein eru inniblóm sem hafa fengið fjölbreyttara notagildi. Á síðustu árum hafa skap- ast nýjar hefðir í ræktun hjá okkur Íslendingum. Með auk- inni ræktun og tilkomu sól- palla og skjólveggja hefur okkur tekist að skapa hlýja og skjólgóða garða sem auka notagildi garð- anna til muna og gera okkur kleift að rækta mun hitakærari plöntur utandyra en áður þekktist. Margar þessara tegunda hafa verið aufúsugestir á íslenskum heimilum um ára- tugaskeið en ekki hefur verið talið óhætt að henda þeim út á guð og gaddinn. Nú hefur ný kynslóð harðbrjósta garðyrkjumanna tekið sig til og markaðssett fyrrverandi inni- plöntur sem útiplöntur. Rétt er að taka það fram að allar þessar inniplöntur eru ein- ungis ætlaðar til notkunar utandyra yfir sumartímann því þær þola ekki íslenskt vetrarveður. Í sumum tilvikum eru þær þá ræktaðar eins og önnur sumarblóm en einn- ig má kippa plöntunum inn og geyma þær í hlýjunni innandyra yfir veturinn. Næsta vor er svo tilvalið að gleðja plönturnar aftur með því að veita þeim dvalarleyfi utandyra um leið og hlýtt er orðið í veðri. Engar rann- sóknir hafa verið gerðar á sálarlífi plantn- anna og hugsanlegra áhrifa þessa flakks út og inn á þær en ef plöntur hefðu sál, er ég viss um að þær gleddust mikið yfir aukinni blómanna. Ungplöntur pálmans eru með löng, graslík blöð sem ná 60–100 cm hæð. Það gefur mjög skemmtileg áhrif að setja plöntu af þessu tagi í miðju á keri eða potti og raða blómstrandi plöntum í kring. Til eru afbrigði af þessum pálma með purpurarauð laufblöð og eru þau ekki síðri en aðalteg- undin. Cineraria, Pericallis x hybrida, var mikið ræktuð sem inniblóm hér áður fyrr. Hún er frábrugðin hinum tegundunum í því að hún er ekki fjölær. Cinerarian er ein þessara tegunda sem duttu úr tísku og var mikið til hætt að rækta hana. Ný afbrigði af cinerariu eru nú komin í ræktun. Þessi afbrigði eru lágvaxin og þétt og blómstra mikið. Blómin eru í bleikum, rauðum og bláum litum. Hvert blóm stendur í langan tíma og er blómg- unartími plöntunnar mun lengri utandyra en innan því lægra hitastig hægir á allri starf- semi plöntunnar. Þessi tegund hentar sér- lega vel stök í pott á borði eða í samplöntun með öðrum plöntum í ker og potta. Ljóst er að þessi listi er ekki tæmandi, inni á heimilum landsmanna leynast örugglega inniblóm sem er alveg óhætt að skella út yfir sumarið, til dæmis jukkur eða drekatré. Sumir vilja jafnvel halda því fram að plönt- urnar hafi gott af þessari útiveru sinni því stundum getur orðið verulega heitt innan- dyra að sumarlagi. Það er þó vissara að tryggja þessum plöntum hlýjan og sólríkan stað þegar þær eru settar út þótt allar geti þær talist nokkuð vindþolnar. Gott er að venja þær smám saman við útiveruna og taka þær inn á nóttunni fyrst í stað. Við þekkjum það líklega þjóða best, Ís- lendingar, hvað okkur finnst skemmtilegt að leggja land undir fót og jafnvel að bregða okkur út fyrir landsteinana. Hugsanlegt er að íslensk inniblóm hafi fengið svolítið flökkusmit með vökvunarvatninu frá okkur og þau vilji gjarnan vera á faraldsrótum en til þess þurfa þau aðstoð okkar fótfráu flökkukindanna. Verum því óhrædd við að prófa okkur áfram í þessum efnum, í versta falli hefur líf viðkomandi plöntu orðið til- breytingarríkara en ella… Út með inniblómin Blómaker með ástralska pálmanum, berg- fléttu, daggarbrá og mánabrúði. Blóm Cinerariu. VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 497. þáttur Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 43 AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R „Au — pair“ Frakkland Leitum að „au — pair“ frá 1. september til 1. júlí í þorp í suður Frakklandi. Hafið samband í tölvupósti á: sandrine.tandel@laposte.net . Okkur vantar öflugt fólk með auga fyrir tækifærum Skoðið kynningu á ensku og norsku á http://www.trendgames.net. Fyrirspurnir til Bjarte á Bjarte@rebel-networks.no (á ensku /norsku) eða Arne í s. 0047911 63920.Ritari - fasteignasala Öflug fasteignasala óskar eftir ritara. Í starfinu felst símsvörun, umsjón með innheimtu, aðstoð við skjalagerð og fleira. Gott tækifæri til að öðlast reynslu á spennandi starfsvettvangi. Svör óskast send til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Ritari — 2003“, fyrir föstud. 8. ágúst. Au-pair í úthverfi Boston Ung íslensk læknishjón óska eftir Au-pair til að aðstoða við létt heimilisstörf og umönnun tveggja ára tvíbura. Lágmark 18 ára. Ágæt enskukunnátta. Möguleiki á enskunámi. Reyklaus. Uppl. í s. 897-6701 eða 555-4466 Félagasamtök á höfuðborgarsvæðinu leita að starfsmanni í 50% skrifstofustarf. Við- komandi þarf að hafa reynslu af bókhaldi, þarf að geta unnið sjálfstætt og vera góður í mann- legum samskiptum. Umsóknir berist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 12. ágúst merktar: „F-13990“. Ný leið ráðgjöf óskar eftir að ráða starfsfólk í hlutastarf, 6-8 tíma í viku, í tilraunaverkefnið Lifs-listin sem hefst í haust. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun í hinum ýmsu listgreinum og í upp- eldisfræðum. Einnig er æskilegt að umsækj- endur hafi reynslu af því að starfa með með ungu fólki. Nánari upplýsingar má nálgast á www.nyleid.is eða í síma 534 5444. Byggingatæknifræð- ingur/verkfræðingur óskast á litla teiknistofu í Kópavogi. Starfsvið: Burðarþols- og langahönnun (Acad), eftirlit og önnur tilfallandi verkefni. Áhugasamir leggi inn umsóknir fyrir 11. ágúst á auglýsingadeild Mbl. eða sendið á box@mbl.is merkar: „B — 13964“. Farið verður með öll svör sem trúnaðarmál. Byggingarvinna Óskum eftir að ráða verkamenn vana bygging- arvinnu. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu fyrirtækisins www.risehf.is og á skrifstofu þess, Skeiðarási 12, Garðabæ. Frekari upplýsingar veittar í síma 544 4151. Varmalandsskóli í Borgarfirði Kennarar Lausar stöður við skólann: Almenn kennsla, sérkennsla, leiklist (tjáning), tónmennt. Skoðaðu heimasíðu skólans. Komdu á staðinn og kynntu þér skólann og umhverfi hans. Upplýsingar gefur Flemming Jessen, símar 430 1511/430 1531/849 1452. netf. fjessen@ismennt.is .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.