Morgunblaðið - 02.08.2003, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í SJÓNVARPSFRÉTTUM á dög-
unum var kona á vegum borgarinnar
spurð að því hvort borgin ætlaði að
leyfa að Austurbæjarbíó væri brotið
niður. Hún svaraði með útúrsnúningi
að borgin ætlaði ekki að fara að reka
bíó en um það hafði enginn spurt.
Mér vitanlega er enginn staður fyrir
unglinga í gamla bænum en í nýjustu
hverfunum er verið að koma upp að-
stöðu fyrir íþróttir og fleira. Þegar
Lídó var lagt niður sem skemmti-
staður fóru unglingarnir aftur á
Hallærisplanið sem svo var nefnt,
því þeir höfðu engan samastað. Þess-
vegna fyndist mér að borgin ætti að
breyta Austurbæjarbíóinu í
skemmtistað unglinga (án drykkju
og eiturefna) og bjarga um leið þessu
fallega húsi frá því að vera brotið
niður. Nóg hefur verið gert að því að
rífa í bænum, að brjóta 100 ára göm-
ul steinhús niður af því að þau féllu
ekki að skipulaginu t.d. við Suður-
landsbraut og Háaleitisbraut og
víða.
Mikill uppgröftur hefur verið í Að-
alstræti þar sem talið er að bær Ing-
ólfs hafi staðið og þar kom margt í
ljós sem sannar það. Maður hefði
haldið það mikils virði að geta spurt
hvar Ingólfur og Hallveig hefðu búið
og það í miðri höfuðborg Íslands. En
öðru nær, þar á að reisa hótel. Að
vísu mega rústirnar vera í skonsu í
kjallaranum en það verður að grafa
göng, úr gamla kirkjugarðinum und-
ir Aðalstræti, til að komast þangað
inn vegna þess að þarna færi pláss
forgörðum sem átti að vera bílastæði
fyrir hótelgesti. Þá datt þeim í hug
að grafa það undir Túngötuna og síð-
an datt einum snillingi í hug að best
væri að hafa bílastæðið undir Tjörn-
inni, það væri hvort eð er ekkert not-
að og fuglarnir gætu gutlað þar of-
aná eins og áður þó bílar væru undir.
En þeir sáu ekki Arnarhól en þar
var þó gert bílastæði fyrir mörgum
árum kallað Kolaport. Þar stóð áður
gamli kolakraninn og eftir að hann
kom þurfti ekki að bera kolin og salt-
ið á bakinu upp úr skipunum. Engin
höfuðborg í heimi á eins gott pláss
fyrir bíla og Reykjavík. Það er allt
Arnarhólstúnið sem má taka og gera
að bílastæði eftir þörfum.
Björgum Austurbæjarbíói frá því
að bera brotið niður og gerum það að
samastað vímulausrar æsku. Ríki og
bær taki höndum saman um að svo
megi verða. Höfum það í huga að
hver og einn unglingur sem hægt er
að bjarga frá því að lenda í vímuefna-
vanda er dýrmætur fyrir fjölskyld-
una og þjóðina alla. Og æskan á nú
að erfa landið, það sem eftir verður
af því, þegar stórvirk tæki verða bú-
in að bora og brjóta það að vild fyrir
erlenda álkónga.
Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd
þá vertu á framtíðar vegi.
Þannig orti Þorsteinn Erlingsson.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Austurbæjarbíó
Frá Guðmundi Bergssyni
Morgunblaðið/Jim Smart
Greinarhöfundur vill að gamla
Austurbæjarbíói verði þyrmt og
það verði gert að samastað fyrir
vímulausa unglinga.
ÞAÐ væri sannarlega hagkvæmt að
loka akrein á Hringbraut, Sæbraut,
Miklubraut, Breiðholtsbraut og
Kringlumýrarbraut fyrir alla nema
strætó. Ástæðan er sú að „ef menn
sjái almenningsvagninn fara fram úr
sér á hverjum degi á leið til og frá
vinnu og skóla hljóti það að verða til
þess að fólk fari að hugleiða hvort
ekki sé hentugra að nota almenn-
ingssamgöngur en einkabílinn“.
Þetta segir Ásgeir Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, í Morgun-
blaðinu 13. júlí og lætur sig dreyma
um nýtt blómaskeið SVR.
Maður hreinlega viknar þegar
svona snillingar viðra hugmyndir sín-
ar. Ég efast ekki eitt augnablik um
að allir – já ALLIR – munu skilja
sóðalegan, mengandi einkabílinn eft-
ir heima og ferðast með snyrtilegum,
sparneytnum og fyrirferðarlitlum
strætisvögnum í hvaða veðri sem er.
Eflaust munu einhverjir efasemd-
armenn – aðallega nasistar, komm-
únistar og einkabílistar – mótmæla
þessu og kalla heimsku. Að öngþveit-
ið sé nægt fyrir og þvingunaraðgerð-
ir séu ekki vænlegar til árangurs. En
það er ekki málið. Aðalatriðið er að
fólk átti sig á hvað það er gaman að
ferðast með strætó því þetta er í raun
tugmilljóna limósína með einkabíl-
stjóra og útvarpi. Auk þess má tala í
síma án handfrjáls búnaðar í strætó,
ekki gleyma því.
Þessir sömu „istar“ myndu líklega
leggja til vitleysu í líkingu við að
frekar ætti að gera fleirum kleift að
eiga og reka einkabíl með lægri
sköttum á eldsneyti og bíla. Þeir
myndu líka varpa fram þeirri
ábyrgðarlausu skoðun að frekar ætti
að auka umferðarrýmd á HÖFUÐ-
BORGARSVÆÐINU en á Trölla-
skaga og Austfjörðum. Að tvöföldun
og þreföldun helstu umferðaræða
höfuðborgarsvæðisins sé mörg þús-
und sinnum hagkvæmara þjóðhags-
lega en jarðgöng í fámennum kjör-
dæmum. Þetta er vitaskuld helber
vitleysa. Bera menn enga virðingu
fyrir þörfum landsbyggðarfólks?
Skilur þetta fólk ekki að maður er
manns gaman? Miklu meiri lífsfylling
fylgir því að ferðast saman í strætó
en einmana í mengandi einkabílnum.
Enginn þarf að örvænta meðan
hugsuðir eins og Ásgeir Eiríksson
eru til. Nái hugmyndir hans fram að
ganga mun bróðerni, samkennd og
lífsgleði, að ógleymdri skilvirkni
aukast stórkostlega í umferðinni.
SIGURGEIR ORRI
SIGURGEIRSSON,
Garðastræti 17, Reykjavík.
Sítrónur í umferð
Frá Sigurgeiri Orra
Sigurgeirssyni
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.