Morgunblaðið - 02.08.2003, Side 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 49
Heimsferðir kynna nú sína glæsilegustu vetraráætlun frá upphafi
og nýir spennandi ferðamöguleikar á hagstæðari kjörum en áður
hafa sést á íslenskum ferðamarkaði. Nú getur þú valið um beint
flug til Kanaríeyja í allan vetur á stórlækkuðu verði, en Heims-
ferðir lækka verðið frá því í fyrra um allt að 30% milli ára, eða
einstök tilboð í sérflug okkar til Kúbu og Jamaica í Karíbahafinu.
Nú bjóðum við annað árið í röð bein flug til Salzburg í Austur-
ríki, sem er örstutt frá bestu skíðasvæðum Austurríkis, Zell am
See, St. Anton og Lech á betra verði en nokkru sinni fyrr og úr-
val frábærra hótela. Njóttu heimsins í vetur og tryggðu þér gott
frí á frábærum kjörum.
Vetrar-
ævintýri
Heimsferða
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kanarí
Vikulegar ferðir
í vetur
Verð kr. 27.762
Beint flug til Jamaica
Nú í fyrsta sinn frá Íslandi er í
boði beint leiguflug til paradísar-
eyjunnar Jamaica í Karíbahafinu.
Hér upplifir þú einstakt andrúms-
loft og ótrúlega stemmningu sem
á engan sinn líka. Glæsilegur að-
búnaður í boði fyrir Heimsferða-
farþega. Sjá bækling Heimsferða
með Morgunblaðinu í dag.
Beint flug til Salzburg
Nú bjóða Heimsferðir beint flug
til Salzburg, en borgin liggur rétt
við bestu skíðalönd Austurríkis
og örstutt að fara til Zell am See,
St. Anton eða Lech, sem eru með
bestu skíðasvæðum heimsins.
Kúba
Frá kr. 98.150
Beint leiguflug til
þessarar heillandi eyju.
Jamaica
Frá kr. 89.950
Beint leiguflug í fyrsta
sinn á Íslandi til einnar
fegurstu eyju í
Karíbahafinu.
Siglingar
Frá kr. 145.750
Glæsisiglingar með Costa Cruises í
Karíbahafinu.
í Karíbahafinu
Skíði
Frá kr. 39.950
í Austurríki
Beint flug til
Salzburg
Beint flug til Salzburg þar sem þú
finnur vinsælustu áfangastaðina í
Austurrísku ölpunum, Zell am See,
St. Anton eða Lech.
M.v. hjón með 2 börn, Agaeta Park,
vikuferð, 6.janúar.
Símabókunargjald, kr. 2.000.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Metbókanir til Kanarí
Heimsferðir hafa nú stórlækkað
verðið til Kanarí í vetur og nú
þegar hafa á þriðja þúsund manns
tryggt sér ferðina þangað á ótrú-
legum kjörum. Kynntu þér bestu
verðin og bestu hótelin.
Lægra verð á netinu
Nú getur þú tryggt þé lægsta
verðið til Kanaríeyja með því að
bóka á netinu, en þú sparar
2.000.- kr. á mann, ef þú bókar
og greiðir á www.heimsferdir.is.
Einfalt og öruggt.
MÝRDALSHREPPUR seldi á þessu
ári aðstöðuna á tjaldstæðunum í Vík
í Mýrdal. Að sögn Sifjar Hauks-
dóttur, eins af nýju eigendunum,
hefur sumarið það sem af er gengið
nokkuð vel.
Tjaldstæðin eru mjög rúmgóð og
eru á fallegum stað rétt í jaðri Vík-
urþorpsins, öll aðstaðan er til fyr-
irmyndar, þjónustuhús er á staðn-
um með snyrtiaðstöðu, sturtum,
þvottavél og eldunaraðstöðu. Einnig
eru tvö sumarhús með öllum búnaði
leigð út í lengri og skemmri tíma.
Við hliðina á tjaldstæðunum er svo
sex holu golfvöllur sem verður
stækkaður í 9 holur síðar í sumar.
Undanfarna daga hafa Sif og fé-
lagar verið að undirbúa versl-
unarmannahelgina og er ætlunin
meðal annars að hafa varðeld á
kvöldin með tilheyrandi gleði.
Morgunblaðið/Jónas ErlendssonSif Hauksdóttir við þjónustuhúsið á tjaldsvæðunum í Vík.
Nýir eigendur
tjaldstæðanna í Vík
Fagradal. Morgunblaðið.
Opið í Smáralind Í dag, laugardag-
inn 2. ágúst, verða verslanir í Smára-
lind opnar eins og venjulega á laug-
ardögum frá kl. 11–18. Leiktæki
fyrir börnin verða í Vetrargarðinum
í dag. Vegna frídags verslunar-
manna verður almennt lokað sunnu-
dag og mánudag en opið verður hjá
eftirtöldum: Sunnudaginn 3. ágúst
og mánudaginn 4. ágúst verður Pizza
Hut opið frá kl. 12–22, Friday’s frá
kl. 12–23 og miðasalan í Smárabíói
verður opnuð kl. 13.20. Jafnframt
verður Hagkaup og Ís-inn í Hag-
kaup með opið á sunnudeginum frá
kl. 12–18.
Opið golfmót Opna VR-mótið verð-
ur haldið í annað sinn í dag, en í fyrra
tóku á annað hundrað manns þátt.
Þá fóru tveir holu í höggi svo það
verður spennandi að sjá árangurinn
af mótinu í ár. Ræst verður út af öll-
um teigum samtímis kl. 09:00. Keppt
verður um fyrsta sætið án forgjafar
en einnig eftir punktakerfi og er full
forgjöf að hámarki 24. Boðið verður
upp á léttan málsverð að móti loknu.
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir
þrjú efstu sætin, nándarverðlaun á
par 3 holum. Einnig verða veitt sér-
stök verðlaun fyrir flesta punkta
kvenna og til þess VR-félaga sem
stendur sig best á mótinu.
Í DAG
Byrjendakennsla í lestri Fræðslu-
fundur um byrjendakennslu í lestri
og stærðfræði verður haldinn í Nor-
ræna húsinu 7. ágúst nk. kl. 17.30–
19.30. Skóli Helgu Sigurjónsdóttur í
Kópavogi gengst fyrir fundinum og
ræðumenn verða Helga, sem á skól-
ann og rekur hann, og Haraldur
Ólafsson, veðurfræðingur og prófess-
or í eðlisfræði lofthjúpsins. Erindi
Helgu fjallar um lestur og lestr-
arkennslu og hvað sé til ráða þegar
illa gengur. Hún ræðir líka um
grundvöll menntakerfis okkar og
nauðsynlegar breytingar á því. Har-
aldur fjallar um reikningskennslu
með áherslu á þætti sem hættir til að
verða útundan í kennslunni
Kennslubækur Helgu í stærðfræði og
íslensku verða til sölu á fundinum.
Fundurinn er öllum opinn. Enginn
aðgangseyrir.
5. umferð Íslandsmótsins í GoKart
Andri Örn Víðisson (Tamiya/Orion/
LRP) og Gudmundur Werner (HPI/
LRP/LRP) munu berjast hart um 2.
sætið í loka umferð Íslandsmótsins
sem fram fer á REIS-brautinni í
Reykjanesbæ laugardaginn 9. ágúst.
Á NÆSTUNNI
LÖGREGLAN á Hvolsvelli
stöðvaði erlendan ferðalang í
bílaleigubíl á 136 km hraða á
Suðurlandsvegi milli Hellu og
Hvolsvallar á leið vestur um
miðjan dag í gær. Ökumaður
fékk 30 þúsund kr. sekt fyrir
hraðaksturinn.
Stöðvaður á
136 km hraða
UM verslunarmannahelgina verð-
ur ýmislegt í boði fyrir gesti á
Þingvöllum.
Farið verður í lengri gönguferð
um þingstaðinn forna á laugardag-
inn kl. 13 en þá verður fjallað um
sögu og staðhætti. Klukkan 16
verður hægt að fræðast um forn-
leifar og fornleifarannsóknir á
Þingvöllum í gönguferð sem hefst
við Þingvallakirkju. Á laugardags-
kvöld verður guðsþjónusta undir
berum himni við Þingvallakirkju
þar sem sr. Kristinn Á. Friðfinns-
son messar en hann nýtur aðstoð-
ar hjónanna Þorvalds Halldórsson-
ar og Margrétar Scheving sem sjá
um hljóðfæraleik og söng.
Sunnudaginn 3. ágúst verður
gönguferð klukkan 13 þar sem
gengið verður með ströndu Þing-
vallavatns og spáð í lífríki vatns-
ins. Guðsþjónusta verður í Þing-
vallakirkju klukkan 14 en
barnastund og þinghelgarganga
eftir messu. Þátttaka í dagskrá
þjóðgarðsins er öllum opin og án
endurgjalds.
Verslunarmannahelgi
á Þingvöllum
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur mun halda frídag versl-
unarmanna hátíðlegan í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum 4. ágúst nk.
Eins og undanfarin ár verður frítt í
garðinn í boði VR. Skemmtun þessi
hefur verið mjög vel sótt og í fyrra
komu yfir 9.000 gestir í garðinn á
þessum degi.
Þar verður margt til skemmtunar.
Í boði verða hoppkastalar og leik-
tæki frá Skátalandi, andlitsmálun og
póstaleikur. Ýmsar uppákomur
verða í garðinum og þar á meðal
verða lukkuúlfurinn og trúðar á rölti
um garðinn. Allir krakkar fá gefins
blöðru. Garðurinn verður opinn frá
kl. 10–18.
VR býður í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn
LISTAKONURNAR Leo Thorodd-
sen og Valdís Halldórsdóttir sýna
akrílmyndir, leirskúlptúra og mál-
verk í HM-kaffi á Selfossi. Sýningin
verður opin til 12. ágúst.
Alls eru á sýningunni 17 verk.
Þetta er fyrsta sýning þeirra
beggja en Leo Thoroddsen hefur
búið í Pretoríu í S-Afríku í þrjú ár
og sótt listnám þar.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Leo Thoroddsen og Valdís Halldórsdóttir við eitt listaverka Leo.
Listsýning í HM-kaffi
Selfossi. Morgunblaðið.