Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 50
DAGBÓK
50 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Mannamót
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ. Skrifstofa fé-
lagsins verður lokuð í
sumar til 2. september.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morg-
unganga frá Hraunseli
kl. 10. Rúta frá Firð-
inum kl. 9.50.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Ferð í Skafta-
fellssýslur, fjórir dagar:
Ekið austur í Þjórs-
árdal, komið við í
Gjánni, Stöng, Háa-
fossi, Hrauneyjum,
Veiðivötnum, ekið
Vatnahringinn. Land-
mannalaugar, Skaft-
ártunga, Eldgjá,
Kirkjubæjarklaustur,
Lakagígar, Fjarð-
árgljúfur, Prestbakka-
kirkja og Dverghamr-
ar. Á heimferð er ekið
um Landbrot, Með-
alland og Vík í Mýrdal.
Gisting: Hrauneyjar
ein nótt, Kirkjubæj-
arklaustur tvær nætur.
Leiðsögn: Ólafur Sig-
urgeirsson.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, opin frá kl.
10–16. S. 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa til 12. ágúst.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Námskeið í
glerskurði byrjar 12.
ágúst. Námskeið í
postulínsmálningu
byrjar 7. ágúst. Söng-
tímar byrja 14. ágúst.
Ath. breyttur tími í fé-
lagsvistinni, frá og með
1. sept. byrjar fé-
lagsvistin kl. 13.30.
Vesturgata 7. Farið
verður á Snæfellsnes
miðvikudaginn 13.
ágúst kl. 9. Ekin verður
Vatnaleiðin til Stykk-
ishólms, þar sem litast
verður um, sjávarrétt-
asúpa, heitt brauð og
kaffi borðað í Sjáv-
arpakkhúsinu. Ekið út
nesið, á Rifi tekur Skúli
Alexandersson, fyrrv.
alþingismaður, á móti
hópnum og sýnir okkur
Ingjaldshólskirju og
fleira markvert. Kvöld-
verður snæddur á hótel
Búðum. Leið-
sögumaður Nanna
Kaaber. Upplýsingar
og skráning í síma
562 7077. Allir vel-
komnir.
FEBK. Púttað á Lista-
túni kl. 10.30 á laug-
ardögum. Mætum öll
og reynum með okkur.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krumma-
kaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Uppl. á skrifstofu
GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið til að hætta
reykingum í Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hvera-
gerði, fundur í Gerðu-
bergi á þriðjud. kl.
17.30.
GA-samtök spilafíkla,
fundir spilafíkla. Höf-
uðborgarsvæðið:
Þriðjudagur kl. 18.15 –
Seltjarnarneskirkja,
Valhúsahæð, Seltjarn-
arnes. Miðvikudagur
kl. 18 – Digranesvegur
12, Kópavogur.
Fimmtudagur kl. 20.30
– Síðumúla 3–5, göngu-
deild SÁÁ, Reykjavík.
Föstudagur kl. 20 –
Víðistaðakirkja, Hafn-
arfjörður. Laug-
ardagur kl. 10.30 –
Kirkja Óháða safnaðar-
ins v/ Háteigsveg,
Reykjavík. Austurland:
Fimmtudagur kl. 17 –
Egilsstaðakirkja, Eg-
ilsstöðum. Neyðarsími
GA er opinn allan sólar-
hringinn. Hjálp fyrir
spilafíkla. Neyðarsími:
698 3888.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
OA-samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is og
í síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10 og
110 ganga að Kattholti.
Minningarkort
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi), 2.
hæð, s. 552-2154. Skrif-
stofan er opin miðvi-
kud. og föstud. kl. 16–
18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-6880
og 586-1088.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna,
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-
5715.
Landssamtökin
Þroskahjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í
síma 588-9390.
Í dag er laugardagur 2. ágúst,
214. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Óttist þá því eigi.
Ekkert er hulið, sem eigi
verður opinbert, né leynt,
er eigi verður kunnugt.
(Matt. 10, 26.)
Guðríður Sigurðar-dóttir fjallar um
sumarleyfi Íslendinga á
Tíkinni. Hún segir m.a.:
„Þar sem ég þekki til í
öðrum löndum spannar
sumarleyfistíminn yf-
irleitt um 5–6 vikur, þá
yfirleitt í júlí og ágúst.
Hér á landi spannar
hann hinsvegar 3 mán-
uði, fólk er að taka
kannski 2–3 vikur sam-
fleytt og svo frídaga hér
og þar yfir sumarið.
Þetta hefur það í för með
sér að fyrirtæki á Íslandi
eru að vinna á hálfum
hraða í þessa 3 mánuði
sem sumarleyfistímabilið
nær yfir. Einnig má
nefna að rétt á undan
þessu langa sumarleyfis-
tímabili voru nokkrar
ansi slitróttar vinnuvikur
í vor þegar við fengum
fjóra fimmtudagsfrídaga
á 7 vikna tímabili þannig
að segja má að þetta
slitrótta vinnutímabil nái
yfir ekki bara þrjá mán-
uði heldur tæpa fimm
mánuði.
Orsök þessa langasumarleyfistímabils
Íslendinga má líklega að
einhverju leyti rekja til
hinna gríðarlega löngu
sumarleyfa skólanna.
Ung börn á skólaaldri er
ekki hægt að skilja eftir
ein heima og ekki er
mikið um gæsluúrræði
fyrir börn á þessum
aldri. Þetta verður til
þess að foreldrar grípa
til þess ráðs að fara
annaðhvort í sumarfrí á
sitthvorum tíma til að ná
að dekka gæslu barnsins
yfir sumarið eða að ann-
að foreldrið hverfur af
vinnumarkaði. Því miður
er staðreyndin sú að oft-
ar en ekki eru það mæð-
urnar sem taka það að
sér að vera heima hjá
börnunum og því má
segja að þessi löngu
sumarleyfi skólanna séu
enn einn þáttur sem hef-
ur óbein áhrif á stöðu
kvenna á vinnumarkaði.
Uppi hafa verið hug-myndir um að fækka
námsárum á grunn- og
framhaldskólastigi þann-
ig að nemendur útskrif-
ist með stúdentspróf
átján ára eins og í flest-
um löndum í kringum
okkur. Einn þáttur í
fækkun skólaáranna
væri að stytta sumarleyfi
skólanna. Þetta væri
gert fyrst og fremst til
að gera íslenska mennta-
kerfið samkeppnishæf-
ara en um leið myndi
þetta hafa áhrif á sumar-
leyfistöku fólks á íslensk-
um vinnumarkaði, draga
úr röskun á vinnu for-
eldra og auka vinnu-
hraða fyrirtækja… Ef
skólar tækju almennt
upp stutt vetrarfrí í sam-
ráði við atvinnulífið væri
þjóðfélagið undir það bú-
ið rétt eins og á sumar-
leyfistímanum.
Þetta myndi bæta stöðukvenna á vinnu-
markaði því eins og áður
sagði er það enn svo að
það eru yfirleitt kon-
urnar sem taka á sig þá
vinnuröskun sem hlýst
vegna úrræðaleysi í
gæslu barna.“
STAKSTEINAR
Allir í frí!
Víkverji skrifar...
FÁTT þykir Víkverjameira pirrandi en að fá
vonda þjónustu. Oftar en
einu sinni og oftar en tvisv-
ar hefur Víkverji komið
óánægður frá skyndibita-
staðnum Subway. Víkverji
fer þó einhverra hluta
vegna alltaf aftur á staðinn,
ekki vegna þjónustunnar
heldur einfaldlega vegna
þess að bátarnir eru svo
góðir.
Subway er einn af þess-
um stöðum sem eru hluti af
stórri keðju. Staðirnir eru
um allan heim. Það sem ein-
kennir slíkar skyndibitakeðjur – eða
öllu heldur það sem dregur fólk að
þeim – er að viðskiptavinurinn veit að
hverju hann gengur. Þótt einhver
fjölbreytni sé á milli landa þá eru bát-
arnir nokkurn veginn staðlaðir og
þjónustan ætti að vera það líka.
Víkverja virðist þó vera allur gang-
ur á því hvers konar bát hann fær,
þrátt fyrir panta alltaf það sama. Hið
ágæta starfsfólk staðanna sýnist Vík-
verja ekki hafa hugmynd um að það
starfar fyrir skyndibitakeðju sem
verður að hafa ákveðnar reglur og
gera hlutina á sama hátt í hvert
skipti. Víkverja þykir það ekki smá-
munasemi að krefjast þess að fá jafn-
margar ostsneiðar á bátinn sinn í
Kringlunni og í Lækjargötunni. Þetta
eru nú einu sinni staðir sem gefa sig
út fyrir að vera hluti af sömu heild og
eiga í raun réttri að bjóða upp á sama
matinn. Ef viðskiptavinur veit ekki
hvað hann fær þá er auðvitað enginn
tilgangur með skyndibitakeðjunni.
x x x
MÖRGUM þykir Víkverji veranöldurseggur þegar hann
kvartar yfir vondri þjónustu. Víkverji
blæs á slíkt. Honum þykir matur og
ýmislegt annað kosta nógu mikið í
peningum án þess að neytendur þurfi
líka að þola slæma þjónustu. Víkverji
hefur lent í því þrisvar á
umræddum skyndibitastað
að fá ekki kvittun í hend-
urnar eftir að hafa greitt
með korti. „Þú þarft sko
ekkert að skrifa undir,“
heyrðist í öll skiptin í hinu
óþjálfaða afgreiðslufólki.
Víkverji reyndi þá að benda
á að það er engu að síður
réttur þess sem greiðir fyrir
matinn að ráða því hvort
hann tekur við kvittun eða
ekki. Ákvörðun um það
verður alltaf að liggja hjá
viðskiptavini, ekki hjá þeim
sem selur matinn. Nú ætlar
Víkverji alls ekki að halda því fram að
afgreiðslufólk Subway hafi verið að
reyna að gera honum neinn grikk, því
fer fjarri. Það virtist einfaldlega ekki
vita betur. Víkverji vill vera viss um
að upphæðin sé rétt, enda telur hann
að hver og einn verði að bera ábyrgð
á því sjálfur að hann greiði rétta upp-
hæð. Þetta myndu margir flokka
undir leiðindavesen, en Víkverji ber
höfuð hátt þegar hann biður vinsam-
legast um að fá í það minnsta að sjá
kvittunina áður en henni er hent.
Hann ætlar ekki að hætta að borða
bátana góðu en vonar innilega að yf-
irmenn sjái sér fært að fræða ungt
starfsliðið um rétt viðskiptavinarins.
Morgunblaðið/Kristinn
Víkverji vill fá almennilega þjónustu eftir að hafa
greitt fyrir matinn sinn.
Tinnabækur
óskast
ÍSLENSKA útgáfan af
Tinnabókum nr. 4, 5, 7, 10,
11, 17, 18 og 20 óskast gef-
ins eða á góðu verði. Þeir
sem eiga þessar bækur og
geta hugsað sér að láta
þær frá sér eru vinsamleg-
ast beðnir að hafa sam-
band í síma 869 1230 eða
561 0410.
Einar.
Góð þjónusta
hjá Heklu
ÉG VIL koma á þakklæti
til Heklu fyrir góða þjón-
ustu við bílakaup. Sérstak-
lega vil ég þakka sölu-
manninum Tryggva
Andersen, mega aðrir
taka lipurð hans og heið-
arleika sér til fyrirmynd-
ar.
G.G.
Kóteletturnar
eru of smáar
ÉG ER sammála Viktori
sem skrifar í Velvakanda
þann 31. júlí sl. Lambakjöt
af 13 kg skrokkum er það
eina sem er almennilegt –
það sem er þar fyrir neðan
er of smátt og bragðlaust.
Ein kóteletta er eins og
matskeið, það er kjötiðn-
aðarmönnum ekki til
framdráttar að framleiða
slíkan varning. Þeir ættu
að taka þetta til sín og
framleiða almennilegt súpu-
kjöt.
Kjötsúpuunnandi.
Starfsstúlka Nóatúns
í Hamraborg
ÉG VAR stödd í Nóatúni í
Hamraborg um daginn sem
er óvanalegt því að ég á
heima í Reykjavík. Þar
geng ég að kjötborðinu. Það
var hádegi og svona 4 að
bíða eftir afgreiðslu og ein
starfsstúlka að afgreiða.
Þessi starfsmaður var að af-
greiða aldraða konu sem sá
ekki mjög vel og varð því að
treysta afgreiðslustúlkunni.
Ég heyrði það að konan
sagði að hún borðaði ekki
mikið og ekki stóra
skammta en hana langaði í
eitt reykt ýsuflak en hún
vildi ekki stórt stykki svo
stelpan bauðst til að skera
það í bita og pakka í þannig
pakkningar að hún gæti
tekið upp einn bita og þyrfti
þar með ekki að taka allt
ýsuflakið í einu úr frysti.
Jú, konan þakkaði fyrir og
keypti líka eitthvað meira
og alltaf bættist við fólk
sem beið eftir afgreiðslu.
Þessi stúlka á, af minni
hálfu, hrós skilið því að ekki
varð hún pirruð eða lét aðra
trufla sig þó sumir í röðinni
væru ekki að sýna tillits-
semi, hún var mjög róleg,
tillitssöm og þjónustaði alla
hratt og vel. Ég vildi að allir
starfsmenn tækju hana til
fyrirmyndar og væru með
svona góða þjónustulund
og því vil ég biðja þá sem
að vinna með henni að
koma þessu til skila því að
hún vann fyrir þessu
hrósi.
Guðrún.
Tapað/fundið
Rauð leikfangataska
tapaðist
RAUÐ leikfangataska tap-
aðist á Hótel Geysi föstu-
daginn 25. júlí sl. Taskan
er full af motorcross-
hjólum. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma
8988128 eða 5674195.
Myndavél tapaðist
OLYMPUS-myndavél tap-
aðist á Öskjusvæðinu,
sennilega við Víti, þann
21. júlí sl. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma
566 7137 eða 863 7137.
Gullarmband tapaðist
ÉG VAR á ferðalagi þann
30. júlí sl. og tapaði þá
gullarmbandi. Fjórir stað-
ir koma til greina; Hólar í
Hjaltadal, Gallerí Ash í
Varmahlíð, OB bensín-
stöðinni á Blönduósi og
Staðarskáli. Skilvís finn-
andi vinsamlegast hafi
samband í síma 554 5098
eða 899 5098.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
LÁRÉTT
1 klaufaskapur, 8 æpi,
9 æviskeiðið, 10 meis,
11 óheflaðan mann, 13
áma, 15 stafli, 18 storkar,
21 lúsaregg, 22 undirnar,
23 mergð, 24 glamraði.
LÓÐRÉTT
2 hlutdeild, 3 þræta,
4 bjart, 5 krafturinn,
6 digur, 7 venda, 12 af-
reksverk, 14 ótta,
15 fíkniefni, 16 peningar,
17 út, 18 duglegur,
19 lofað, 20 væskill.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 fjöld, 4 gepil, 7 úldin, 8 felur, 9 dún, 11 auðn,
13 hrái, 14 ýlfur, 15 barr, 17 æfir, 20 þrá, 22 lokka,
23 bifar, 24 rimma, 25 tuska.
Lóðrétt: 1 fjúka, 2 önduð, 3 dund, 4 Gefn, 5 pólar,
6 lerki, 10 úlfur, 12 nýr, 13 hræ, 15 bolur, 16 rekum,
18 fífls, 19 rorra, 20 þaka, 21 ábót.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16