Morgunblaðið - 02.08.2003, Side 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 57
POPPDROTTNINGIN Madonna
hefur krafist þess að Gap-versl-
anirnar selji
barnabók hennar
í öllum Gap-
barnafatabúðum.
Er þetta hluti af
auglýsingasamn-
ingi sem Ma-
donna gerði við
Gap en hún er
sem stendur að-
alstjarna nýrrar Gap-auglýsinga-
herferðar ásamt Missy Elliott.
Bókin, sem heitir The English
Roses, Ensku rósirnar, er byggð á
kabbalah-trúnni, sem Madonna
fylgir.
Gap ætlar enn-
fremur að gefa
eintök af nýrri
smáskífu Ma-
donnu, „Into the
Hollywood
Groove“, með öll-
um seldum
flauelsbuxum …
Sandra Bullock er hætt með kær-
astanum, hinum 22 ára Ryan Gosl-
ing. Nokkur aldursmunur var á
parinu því Sandra er 39 ára. Sam-
bandsslitin urðu vegna fjar-
sambandsörðugleika. „Þetta fjar-
samband varð of mikið fyrir þau. Það
var ekkert drama í gangi eða rifrildi.
Þau eru ennþá vinir,“ upplýsti vinur
þeirra … Leikkonan Anna Paquin,
sem er þekkt fyrir leik sinn í
X-mennunum, á tvo hvolpa, sem eru
farnir að valda usla á heimilinu.
Hvolparnir hennar Önnu, sem heita
Dee Dee og Sascha, eyðileggja allt
sem verður á vegi þeirra. „Þeir eru
óþekkir og éta púðana í sófanum
mínum. Og þegar ég sný mér við í
eina sekúndu eru þeir búnir að éta
sokkapar,“ sagði hún.
Meira um hunda. Jade Jagger,
skartgripahönnuður og dóttir Micks
Jaggers, er veik fyrir mjóhundum.
Hún á fjóra slíka
sem koma víða að
í heiminum. Jade
er svo hrifin af
mjóhundum að
hún stóðst ekki
freistinguna þeg-
ar hún var í Mar-
okkó um daginn
og keypti sér einn
til viðbótar. „Ég
ætlaði ekki að
kaupa hann en
hann var af alveg
sérstaklega sjald-
gæfri tegund,“
sagði hún …
Stjóri plötufyr-
irtækisins Death
Row, Suge
Knight, hefur
veið dæmdur í tíu mánaða fangelsi
eftir að hafa kýlt bílastæðavörð fyrir
utan næturklúbb í Los Angeles.
Hann var handtekinn fyrir utan hinn
vinsæla klúbb White Lotus eftir að
hafa misst stjórn á skapi sínu vegna
þess að bílastæðavörðurinn var ekki
tilbúinn með bílinn hans í tíma.
Suge, sem heitir réttu nafni Marion,
var sendur aftur í fangelsi því að þeg-
ar hann var handtekinn braut hann
skilorð sem hann var á.
FÓLK Ífréttum
Útsala
Útsala
Útsala
COS
Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575
ÞAÐ kom mér í opna skjöldu
hvað þessi plata hangir vel saman.
Svona samstarfs- og hliðarverkefni
manna sem hafa annað að aðal-
starfi geta oft verið vafasöm en
hér hefur ofangreindum þremenn-
ingum tekist að landa prýðisplötu.
Gírinn er lágstemmdur og rólynd-
islegur, lögin sandblásin og „amer-
ísk“, með tilvísun í tímalausar mel-
ódíur að hætti
Neil Young og
hrátt og hryss-
ingslegt grugg af
gamla skólanum
(fyrri tíma
Screaming Trees
t.d.). Værukærðin og „blátt áfram“
andinn er helsti styrkur plötunnar
sem rennur vegna þeirra þátta
ljúflega í gegn. Það eru engin átök
í gangi en heldur engin lognmolla,
lögin eru því látlaus og næstum
þægilega „venjuleg“. Uppfyllingar-
efni er næstum ekkert og rúsínan í
pylsuendanum er hið 12 mínútna
hávaðadjamm „Pasted“, spuni sem
– já, þetta er ótrúlegt – svínvirkar!
Fyrsta plata Eyes Adrift er
ágæt sönnun þess að stundum
borgar sig að vera bara „slakur“ á
því.
Tónlist
Gamalt
grugg
Eyes Adrift
Eyes Adrift
Cooking Vinyl
Eyes Adrift skipa Curt Kirkwood (Meat
Puppets), Krist Novoselic (Nirvana) og
Bud Gaugh (Sublime). Furðu gott bara.
Arnar Eggert Thoroddsen
STAIND er besta dæmið um
hversu illa er hægt að fara með
rokk og þá dægurtónlist almennt.
Væmnin, tilgerðin, hugmynda- og
rokkleysið er svo yfirdrifið að
mann næstum
setur hljóðan að
sitja undir þessu.
Þegar líður á
plötuna er hún
orðin svo þreyt-
andi í ófrumlegu
hjakki sínu að það
næstum því líður yfir mann úr
leiðindum. Já, þetta er svona
slæmt. Það eru engin gífuryrði hér
á ferðinni.
Og þessi andsk… söngvari
þarna, Aaron Lewis, er einn sá
mest pirrandi sem ég hef lengi
heyrt í.
Það er sannarlega hollt og gott
að vera minntur á það endrum og
eins að það er líka verið að búa til
arfaslaka tónlist. Það er gert ræki-
lega hér. En má ég frábiðja mér
fleiri kennslustundir úr ranni
Staind. Í guðanna bænum!
0 stjörnur
Ömurlegt
Staind
14 Shades of Grey
Flip Records/Elektra
Lélegasta plata ársins. Slær sjálfan
Michael Bolton út í almennum leiðindum
og smekkleysu (sem átti þó verstu plötu
síðasta árs).
Arnar Eggert Thoroddsen