Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 60

Morgunblaðið - 02.08.2003, Page 60
60 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 4 og 10.10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12ára with english subtitles Sýnd kl. 4 og 8. Ensk. texti Fyndnasta Woody Allen myndin til þessa. Sjáið hvernig meistarinn leikstýrir stórmynd frá Hollywood blindandi. Sýnd kl. 5.50 og 10.. B i. 12 JOHN TRAVOLTA OG SAMUEL JACKSON I FYRSTA SINN SAMAN SIÐAN PULP FICTION Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND. I I I I I Í I . Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B i. 16. ERIC BANA JENNIFER CONNELLY NICK NOLTE „Líklegast best heppnasta ofurhetjumynd allra tíma! Sá græni rokkar.“ B.Ö.S. Fréttablaðið í l j ll í ! i . . . . l i  GH KVIKMYNDIR.COM "Besta hasarmynd sumarsins það sem af er" t r r i f r"  SG. DV  SG. DVÓ.H.T Rás2 KVIKMYNDIR.IS Sýnd kl. 3.45, 5.50 og 8. Með ísl tali Hinir galvösku Gaulverjar, Ástríkur og Steinríkur eru mættir aftur til leiks í frábærri mynd fyrir alla fjölskylduna. Og sem fyrr vantar ekki kraftinn í þá. Sýnd með íslensku tali ATH! SÝNINGARTÍMAR GILDA FYRIR LAUGARDAG, SUNNUDAG OG MÁNUDAG KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8, 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4.10, 6, 8, 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3, 5.45, 8.30 og 10.10. Sýnd sunnudag kl. 3, 5.45, 8.30 B.i.12 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 3.30. B.i.12 ára. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. Í sumar skaltu sleppa útilegunni. Frábær spennuhrollur sem sýnir að það getur reynst dýrkeypt að taka ranga beygju. FRUMSÝNING Stranglega bönnuð börnun innan 16 ára. „Líklegast best heppnasta ofurhetjumynd allra tíma! Sá græni rokkar.“ B.Ö.S. Fréttablaðið í l j ll í ! i . . . . l i  GH KVIKMYNDIR.COM "Besta hasarmynd sumarsins það sem af er"  SG. DVÓ.H.T Rás2  SG. DV KVIKMYNDIR.IS Dreifing: Sérstæðasti ástarþríhyrningur íslenskrar kvikmyndasögu LOKSINS FÁANLEG Á DVD TÓNLEIKUM Sigur Rósar er lokið og ég kasta mæðinni. Þetta er búið að taka á. Hér gekk allt upp og ég hef ekki séð Sigur Rós svona góða í mörg ár. Eða öllu heldur þau, því strákarnir voru dyggilega studdir stúlkunum fjórum í strengjakvart- ettinum Animu. Það er ómögulegt annað en að fyllast stolti. „Krakk- arnir okkar“ tóku þetta hreinlega í nefið. Baksviðs bíðum við svo spennt eftir hetjunum, faðmlög og tilfinn- ingaþrungnu hrósi hlaðið á þær þegar þær birtast. „Ég held ég hafi fengið mér of marga bjóra á Iron Maiden,“ segir Kjartan og er þung- ur á brún. En hún lyftist – og á þeim reyndar öllum – þegar þeim er komið í skilning um að þetta hafi gengið glimrandi vel og reyndar miklu meira en það. Og við það tekur við gleðirík slökun með tilheyrandi hlátri og masi. Ég nota því tækifærið og nálgast Georg og inni hann eftir smávægilegu en þó formlegu spjalli, svo ég verði nú verðugur launa minna. Sigur Rósar-liðar eru þekktir fyrir að forðast fjöl- miðlanna fremur en hitt og það var því sannarlega með ráðum gert að fara til Georgs enda hefur hann það orð á sér að vera hvað tilkippileg- astur í spjall. Við grínumst svo létt með það að við setjum okkur báðir í formlegar viðtalsstellingar inni í einum tréskúrnum sem myndar búningsklefaaðstöðuna. Báðir sýni- lega orðnir nokkurð vanir. Georg er sonur fjölmiðlamanns og segir mér að hann hafi verið að vinna á Stöð 2 í tvö ár og ætti því að þekkja aðeins inn á þetta. Við erum einir inni, ljóstíran er dauf og notaleg og ísskápur, fullur af veigum, er ekki langt undan. Báðir þægilega slakir og litla spjallið okkar því rólegt og hispurslaust. „Teik it avei!“ „Það er svolítið margt fram- undan, þannig séð,“ segir Georg þegar ég spyr hann hvað taki við eftir þessa helgi (27. júní–29. júní) en sveitin lék á föstudagskvöldi en færði sig svo til Glastonburyhátíð- arinnar í Bretlandi þar sem hún lék á sunnudeginum. „Við förum svo til Noregs með Hrafnagaldurinn í lok júlí (verkið var flutt tvisvar í þessari viku í tengslum við Ólafshátíðina í Þránd- heimi). Það er svakalegt verkefni. Í byrjun ágúst ætlum við svo að hefja upptökur á nýju efni fyrir næstu plötu. Við vitum ekkert í hvaða formi það efni verður – kannski hendum við því. En allavega ætlum við að setja eitthvað nýtt á band – byrja semsagt á næstu plötu. Okkur er farið að langa mikið til að losa um efni sem hefur verið að hlaðast upp og gera eitthvað nýtt. Við ætl- um að gera þetta öðruvísi en áður en við erum alltaf búnir að ofspila efnið þegar það kemur loksins að upptökum. Nú erum við líka loksins Sigur Rós á Hróarskeldu Það viðrar vel… Einn af hápunktum Hróarskeldu þetta árið var tónleikar gulldrengjanna í Sigur Rós. Arnar Eggert Thoroddsen var sem betur fer á staðnum og tók Georg Holm í stutt spjall að törninni lokinni. FRANSKA leikkonan Marie Trintignant lést í gær- morgun vegna bólgumyndunar í heila. Trintignant hafði legið meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í Litháen í tæpa viku en var flutt heim til Frakklands á fimmtu- dag eftir að dómari féllst á kröfu fjölskyldu hennar um að hún yrði flutt heim. Talið er að leikkonan hafi hlotið áverka á höfði í átökum við sambýlismann sinn Bertrand Cantat á hóteli í Viliníus á sunnudag. Höfðu læknar sagt að engir möguleikar væru á að hún kæmist aftur til meðvitundar en hún hafði gengist undir tvær að- gerðir. Trintignant, sem var dóttir leikarans Jean-Louis Trintignant, var 41 árs og hafði leikið í meira en 30 kvikmyndum. Hún átti fjögur börn og hafði verið við kvikmyndatökur í Litháen með móður sinni, leik- stjóranum Nadine Trintignant. Cantat, sem er söngvari rokkhljómsveitarinnar Noir Desir, er í haldi lögreglu í Litháen vegna gruns um að hann hafi valdið henni áverkunum. Hann hef- ur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. ágúst. Franska leikkonan Trintignant látin AP Trintignant var við vinnu í Litháen áður en hún lést.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.