Morgunblaðið - 27.08.2003, Qupperneq 18
SUÐURNES
18 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HAFIN er malbikun á nýrri akrein Reykjanes-
brautar, frá Hafnarfirði að Njarðvík. Fyrsti spott-
inn var malbikaður í gær.
Vinna við tvöföldun Reykjanesbrautar gengur
vel. Tvenn mislæg gatnamót eru á þeim kafla sem
verktakar vinna nú við að leggja. Lokið er smíði
brúar á nýju akreinina við gatnamót Vatnsleysu-
strandarvegar og samskonar brú er langt komin í
Hvassahrauni. Núverandi Reykjanesbraut verður
grafin í sundur til að hægt verði að byggja brýr á
gömlu akreinarnar og verður því að nota nýju
brýrnar og kafla við þær á meðan á því stendur.
Í gær malbikuðu starfsmenn Hlaðbæjar Colas
um 600 metra kafla á og við brúna við Vatnsleysu-
strandarveg og er það fyrsti kafli nýju akrein-
arinnar. Í dag verður sett yfirlag og eftir það verð-
ur hægt að hleypa umferð á veginn eftir því sem
nauðsynlegt er vegna framkvæmdarinnar. Verður
hann tengdur gamla veginum á snyrtilegan hátt.
Jónas Snæbjörnsson, umdæmisstjóri Vegagerð-
arinnar í Reykjanesumdæmi, býst þó við að lækka
verði hámarkshraðann á þessum kafla Reykjanes-
brautar niður í 70 kílómetra á klukkustund á með-
an umferðinni verður beint á milli akreina en hann
býst við að það standi yfir í tvo til þrjá mánuði.
Á næstunni verða fleiri kaflar malbikaðir þótt
ekki verði þeir notaðir fyrir almenna umferð fyrr
en síðar.
Fyrsti kafli nýju akrein-
arinnar malbikaður
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tvær malbikunarvélar voru notaðar við malbikun á Reykjanesbrautinni í gær og tveir valtarar fylgdu á eftir. Umferð verður bráðlega hleypt á kaflann.
Reykjanesbraut
SANDGERÐISDAGAR hefj-
ast næstkomandi fimmtudag
og standa fram á laugardag.
Er þetta í fimmta skipti sem
fjölskylduhátíð með þessu
nafni er haldin í Sandgerði og
hefur dagskráin aldrei verið
viðameiri en nú.
Ferða- og menningarráð
Sandgerðisbæjar stendur fyrir
Sandgerðisdögum. Fyrstu at-
riði á dagskrá hátíðarinnar
verða á fimmtudagskvöld, í
Púlsinum og Vitanum.
Sandgerðisdagar verða sett-
ir formlega við upphaf tónlist-
ardagskrár í Safnaðarheim-
ilinu á föstudagskvöld,
klukkan 20. Um kvöldið verð-
ur ýmislegt að vera en aðalhá-
tíðisdagurinn er þó á laugar-
dag. Þá verður fjölbreytt
dagskrá frá morgni til kvölds.
Lýkur dagskránni með varð-
eldi og flugeldasýningu og síð-
an verða dansleikir fram á
nótt.
Viðamesta
dagskrá
Sandgerð-
isdaga
Sandgerði
SKEMMDIR urðu á tveimur
bátum þegar bát rak stjórn-
laust um Grindavíkurhöfn. Bát-
inn rak loks upp í fjöru.
Verið var að færa Guðbjörgu
GK-517 frá Eyjabakka að Mið-
garði í Grindavíkurhöfn að
morgni sunnudags. Drapst þá á
vél bátsins og fór hún ekki í
gang aftur. Rakst Guðbjörg
með framendann á Þröst GK og
rak síðan upp í fjöruna norðan
við Miðgarð.
Hafnsögubáturinn dró Guð-
björgu GK á flot. Samkvæmt
upplýsingum úr dagbók lög-
reglunnar urðu einhverjar
skemmdir á báðum bátunum.
Rak á
bát og upp
í fjöru
Grindavík
BÆJARRÁÐ Sandgerðisbæj-
ar telur heilsugæsluþjónustu
Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja óviðunandi og í bókun er
hvatt til þess að stjórn hennar
taki málið til alvarlegrar at-
hugunar.
Reynir Sveinsson, forseti
bæjarstjórnar Sandgerðis,
segir að fólk sem panti tíma
hjá lækni á heilsugæslustöð-
inni í Keflavík fái óviðunandi
þjónustu. Fólki sé haldið í sím-
anum langtímum saman og
síðan boðinn tími eftir tvo til
þrjá daga eða bent á að koma
á neyðarvakt eftir lokun stöðv-
arinnar. Sjálfur segist hann
hafa lenti í þessu þegar hann
þurfti að leita til læknis og
segir að margir hafi svipaða
sögu að segja.
Bæjarráðsmenn telji nauð-
synlegt að fá á þessu skýr-
ingar og að reynt verði að laga
ástandið.
Telja þjón-
ustu heilsu-
gæslunnar
óviðunandi
Sandgerði
VEÐRIÐ hefur svo sannarlega
leikið við púttara í sumar, ekki
síst þá sem hittast reglulega á
púttvellinum við Mánagötu í
Keflavík. Félagarnir Friðrik Sig-
urbjörnsson, Jóhann Pétursson og
Ísleifur Guðleifsson voru hressir í
blíðunni sl. föstudag þegar blaða-
maður átti leið hjá. Þeir segja fé-
lagsskapinn á vellinum góðan.
„Við komum hingað oft, sér-
staklega þegar veðrið er gott.
Sumir koma meira að segja tvisv-
ar á dag,“ sögðu þeir félagar
spurðir um aðsókn þeirra að vell-
inum. Þeir sögðu að veðrið hafi
verið einstakt í sumar og því hafi
aðsókn verið mjög góð að vell-
inum, sem er 36 holu völlur. Það
hefur heldur varla liðið sá dagur í
sumar að ekki hafi sést til spilara
þar. Á veturna hafa púttarar hins
vegar aðstöðu í Röstinni í Kefla-
vík og eru báðir staðirnir á veg-
um Púttklúbbs Suðurnesja.
Það er greinilegt að það ríkir
góður andi á púttvellinum og að
sögn Jóhanns er misjaft hvernig
spilarar hópa sig saman. „Við
komum hingað ýmist ein okkar
liðs eða fleiri saman.“ Ísleifur tek-
ur fram að það ríki góður andi á
vellinum og að félagsskapurinn sé
góður. „Við höfum líka aðstöðu
hér til að setjast niður og hana
nota menn, bæði til að slappa af
og ekki síst til að tala saman.“
Friðrik bætir við með glettni að
þarna sláist menn ekki, þótt þeir
hafi áhöldin til þess. „Það er þá í
mesta lagi að menn séu að rífa
kjaft.“
Um tíma stóð til að taka völlinn
undir bílastæði fyrir Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja en að sögn
þeirra félaga var málum miðlað.
Friðrik segist hins vegar ekki í
vafa um að það verði gert á end-
anum og það mátti heyra á máli
þeirra félaga að eftirsjá yrði af
vellinum, enda eindæma veð-
urblíða á þessum stað, að þeirra
sögn.
Slást
ekki með
kylfunum
Keflavík
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Félagarnir Ísleifur Guðleifsson, Friðrik Sigurbjörnsson og Jóhann Pétursson koma oft á púttvöllinn í Keflavík,
ekki síst þegar veðrið er gott. Hér fara þeir 36 holurnar saman og það sannarlega ekki í fyrsta eða síðasta skiptið.
Púttararnir eru ánægðir með veðurblíðuna og völlinn góða við Mánagötu
HVERFISVINIR og aðrir að-
standendur umhverfisátaks í
Reykjanesbæ og eigendur fast-
eigna hófu í gær hreinsun á
svæði við vitann á Vatnsnesi í
Keflavík. Ætlunin er að gera
svæðið aðgengilegra til útivistar.
Við vitann hefur safnast mikið
drasl á undanförnum árum og
staðurinn meðal annars verið
notaður til þess að losa sig við
rusl.
Viðar Már Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Umhverfis- og
tæknisviðs Reykjanesbæjar, seg-
ir að áhugi sé á að gera almenn-
ingi kleyft að ganga um svæðið
og njóta fagurs útsýnis þaðan.
Tekið til við vitann
á Vatnsnesi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Mikið drasl hefur safnast upp í nágrenni vitans á Vatnsnesi.
Keflavík