Morgunblaðið - 27.08.2003, Side 32

Morgunblaðið - 27.08.2003, Side 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kjartan Gunn-arsson fæddist á Ísafirði 19. apríl 1924. Hann lést sunnudaginn 17. ágúst síðastliðinn. Faðir Kjartans var Gunnar Andrew (1891–1970), for- stöðumaður sjúkra- hússins á Ísafirði, sonur Jóhannesar Ólafssonar hrepp- stjóra og alþingis- manns, Þingeyri (1859–1935) og Helgu Samsonar- dóttur (1856–1940), en móðir Kjartans var Guðlaug Kvaran (1895–1985), dóttir Jósefs Hjör- leifssonar Kvaran prests á Breiða- bólsstað (1865–1903) og Lilju Mettu Kristínar Ólafsdóttur (1863–1930). Kjartan var næst- yngstur fimm systkina, en systkini hans eru: Bolli, 1918–1994, Jósef, 1919–1989, Kári, 1921–1995, og an, f. 1982, Kári, f. 1992, og Kor- mákur, f. 1995. 4) Guðrún lyfjafræðingur, f. 1964, maki Agn- ar Hansson, deildarforseti HR. Börn þeirra eru Dóra Júlía, f. 1982, Helga Margrét, f. 1998, og Hans Trausti, f. 2000. Kjartan lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1945 og útskrifaðist sem lyfja- fræðingur vorið 1952 í Kaup- mannahöfn. Hann starfaði sem lyfjafræðingur í Laugavegs Apó- teki og Vesturbæjar Apóteki á ár- unum 1952–1961. Hann stofnaði heildsöluna Hermes hf. árið 1961. Hann var stofnandi og fyrsti apó- tekari Borgarness Apóteks, 1964– 1976. Þá var hann apótekari í Lyfjabúðinni Iðunni, 1976–1996. Hann sat í stjórn Lyfjafræðinga- félags Íslands árin 1953–1958 og var um tíma formaður þess. Kjart- an var mikill áhugamaður um landakort og safnaði þeim í fjölda ára. Hann var virkur í alþjóðleg- um félagsskap kortaáhugamanna (IMCOS) og sat eitt tímabil í stjórn þess. Kortasafn hans er nú í eigu Þjóðarbókhlöðunnar. Útför Kjartans fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Lilja Helga, f. 1932, sem er ein eftirlifandi þeirra systkina. Árið 1950 kvæntist Kjartan Dórótheu Jónsdóttur, f. 1. nóv. 1925, dóttur Jóns Sig- urpálssonar kaup- manns og Guðrúnar Tómasdóttur. Börn þeirra eru: 1) Guðlaug framhalds- skólakennari, f. 1954, maki Fjölnir Ás- björnsson framhalds- skólakennari. Dætur Guðlaugar eru Hild- ur, f. 1979, maki Valtýr Gunnars- son, og Nanna, f. 1988. 2) Gunnar heildsali, f. 1959. Hann á synina Hauk, f. 1988, og Kjartan, f. 1995, með fyrrverandi eiginkonu sinni Hönnu Björgu Hauksdóttur. 3) Sigurður Árni hagfræðingur og forstjóri Lánasýslu ríkisins, f. 1960. Maki Sólborg Hreiðarsdótt- ir fóstra. Synir þeirra eru Kjart- Með nokkrum orðum langar mig að minnast tengdaföður míns Kjart- ans Gunnarssonar sem lést sunnu- daginn 17. ágúst. Minningarnar hrannast upp en samt skortir mig orð til að kveðja. Elsku Kjartan minn, það voru forréttindi fyrir mig og strákana mína að kynnast slíkum manni sem þú varst. Alltaf ljúfur og góður. Sunnudagurinn 17. ágúst var bjartur og fagur. Þannig minnist ég Kjartans. Farðu í friði elsku vinur og hafðu þökk fyrir allt. Þín Sólborg. Sunnudagurinn 17. ágúst rann upp heiður og bjartur. Eins fallegur og síðsumardagur í Reykjavík getur orðið. Borgin var að fara á fætur og hristi af sér slenið eftir viðburða- ríka menningarnótt – einstaka ung- menni voru á ferð, hálfúfin eftir æv- intýri næturinnar. Úti í Gróttu sungu fuglarnir sólinni lof og skvampið í sjónum líkist hjali í kátu ungabarni. Þannig kvaddi borgin Kjartan Gunnarsson tengdaföður minn þeg- ar hann varð bráðkvaddur á leið í sína hefðbundnu morgungöngu sunnudaginn 17. ágúst sl. Hjartað stoppaði og hann lést samstundis sagði læknirinn. Eins mikið og hans er sárt saknað af fjölskyldu og vin- um vitum við að Maðurinn með ljá- inn mun vitja okkar allra og margt dauðastríðið langdregnara og erf- iðara en þetta. Fyrir það verðum við að vera þakklát. Kjartan var að öllu leyti óvenju- lega hress miðað við aldur og stund- aði útivist og hestamennsku af mikl- um móð allt fram á síðasta dag. Í raun gerðu hestarnir það að verk- um að samband Kjartans við börnin sín varð miklu nánara en ella og ófáar stundir sem varið var í hest- húsinu í Víðidal eða austur í Ölfusi eða „í austur“ eins og ungur alnafni hans kallar það gjarnan. Litlu barnabörnin höfðu öll mikið gaman af því að umgangast dýrin og kom umhyggja Kjartans gagnvart þeim berlega í ljós á þessum vettvangi. Þarna var hann í essinu sínu. Kjartan var menntaður lyfjafræð- ingur þótt margt annað hafi honum einnig verið til lista lagt. Þannig var hann mjög viðskiptalega sinnaður og náði á þeim vettvangi góðum ár- angri. Árið 1964 réðst hann í það að stofnsetja nýtt apótek í Borgarnesi og síðar varð hann apótekari í Ið- unnarapóteki í Reykjavík. Samhliða þeim rekstri þá ráku þau Dóra inn- flutningsfyrirtækið Hermes um ára- bil. Þá var Kjartan einn fyrsti lyf- salinn til að færa apótekið inn í nýtt rekstarform þegar Iðunn var flutt í Domus Medica árið 1995. Mikið hef- ur nú gengið á í þeim bransa síðan. Kjartan var einstakur fagurkeri. Öll hans framkoma, klæðaburður og umhverfi báru með sér fágaðan smekk og sjentilmennsku. Kjartan lærði í Danmörku á þeim tíma sem margir af fremstu og þekktustu arkitektum Dana voru að skapa sér nafn og þekkti hann vel til verka þeirra og sögu. Stundum held ég að meira listræn störf hefðu ekki hent- að honum síður en sá vettvangur sem hann valdi sér. Ekki er hægt að minnast tengda- föður míns án þess að nefna fram- lag hans til kortasöfnunar. Um ára- bil safnaði Kjartan gömlum Íslandskortum og átti hann eitt merkasta safn slíkra korta. Þessi kort eru nú varðveitt á Landsbóka- safni Íslands. Dagur er að kveldi kominn – Kjartan Gunnarsson hefur lokið sínu starfi. Blessuð sé minning hans. Kæri Kjartan – hvíl þú í friði. Agnar Hansson. Mér þótti alltaf svo gaman að fá afa og ömmu í heimsókn til Kaup- mannahafnar, þegar ég bjó þar sem krakki, og var alltaf mjög spennt að fara út á flugvöll að sækja þau enda hélt ég lengi vel að þau byggju á Kastrup. Það var alltaf mjög ævintýralegt að heimsækja afa uppi á kontor á Smáragötunni, því þar átti afi alls- kyns skemmtilega muni í skápnum sínum, m.a. leðurpoka fullan af gull- peningum, sem ég og Kjartan frændi lékum okkur oft með. Þetta var í raun bara gömul erlend mynt en okkur fannst þetta vera mikill fjársjóður. Ég fór oft í heimsókn til afa í Lyfjabúðina Iðunni á Laugavegin- um. Þar gaf hann sér alltaf tíma til þess að bjóða mér upp á skrifstofu og spjalla við mig og leyfði mér síð- an að velja mér einn pakka af Strumpaópali í nesti. Þegar afi kom heim frá útlöndum, gaf hann mér iðulega einhverja mjög vel valda gjöf. Eins og til dæmis þegar hann gaf mér New Kids on the Block plötu og hvítan stuttan kjól, þegar ég var 17 ára, og öllum vinkonunum fannst afi vera mjög smart að velja svona vel. Afi ræktaði stundum jarðarber í garðinum hjá sér og setti fallegar jólaseríur í trén á jólunum og átti voðalega flottan rauðan leðurstól sem okkur barnabörnunum þótti mikill heiður að fá að sitja í. Nú eftir að ég byrjaði nýlega í námi í arkitektúr þótti mér mjög gaman að spjalla við afa um hönn- un, enda hafði hann mikið fram að færa, þar sem hann var mjög mikill áhugamaður um góða hönnun. Okkur frændsystkinunum þótti öllum mjög vænt um hann afa, þar sem hann gaf sér alltaf svo góðan tíma til að spjalla og leika við okk- ur. Verst þykir mér að ófæddu börnin mín fái ekki að kynnast hon- um í framtíðinni. Hildur Gunnlaugsdóttir. Hann afi minn var alltaf svo góð- ur við mig. Þegar ég var í tónlistar- skólanum kom hann alltaf vikulega og sótti mig. Svo stoppuðum við í Suðurveri og hann keypti handa mér franskar kartöflur og stundum líka kjúkling. Mér þótti svo vænt um að afi skyldi alltaf koma og sækja mig og mér fannst gaman að hitta afa svona mikið þá. Ég man hvað mér fannst gaman að fara í heimsókn til ömmu og afa. Ég fór alltaf beint upp á kontorinn hans og lék mér þar. Stundum fór ég þangað upp og stalst til að fá mér tyggjó úr skúffunum hans. Okkur Hauki frænda fannst svo gaman að gramsa í skápnum hans og skoða allt dótið þar. Hann gaf okkur oft harðfisk sem hann sótti niður í kjallara eða enskan brjóst- sykur. Þegar ég var að fara til útlanda var hann alltaf svo góður að gefa mér peninga til að hafa með mér. Hann sagði mér alltaf að bjóða mömmu út að borða. Og eftir því sem ég best man, hef ég alltaf gert það. Þegar hann kom heim frá útlönd- um gaf hann mér alltaf eitthvað flott. Ég man ein jólin fékk ég frá honum myndina „Titanic“ á spólu, sem ég hafði óskað mér svo lengi. Það var alltaf gaman að umgang- ast afa. Hann geislaði af góð- mennsku og gjafmildi. Ég man að hann kvaddi mig alltaf með orðinu: ,,Blessó!“ Ég kveð afa minn með þakklæti og bið guð að blessa minn- ingu hans. Nanna Guðlaugardóttir. Það er vor í lofti í Reykjavík, fyr- ir hestafólk er þessi tími árs sér- stakt tilhlökkunarefni. Allar reið- leiðir færar og hægt að ríða út fram eftir björtum vorkvöldum. Kjartan Gunnarsson móðurbróðir minn hef- ur boðið mér hagbeit á jörð fjöl- skyldunnar austur í Ölfusi og það er ákveðið að ríða austur. Við hittumst að morgni laugardags og með í för er Gunnar sonur hans og einn að auki. Kjartan leikur á als oddi að vanda, enn kvikur í hreyfingum og hlífir sér hvergi þótt hálfáttræður sé. Við ríðum rólega af stað, fjöl- margir á austurleið þennan sama dag og því mikið líf á reiðgötunni. Ekki fer á milli mála að samneytið við hestana er Kjartani kært; allur samgangur manns og hests er gef- andi þeim sem eftir því leita og gaf Kjartani alla tíð mikið. Ferðin aust- ur hin ánægjulegasta, Kjartan segir stórskemmtilegar sögur af fólki og leikur með tilþrifum tilsvör manna. Kjartan hafði yfirbragð heims- mannsins sem hefur víða ratað en á sínar djúpu rætur í íslenskri nátt- úru. Mín fyrsta minning um Kjart- an og fjölskyldu er frá árum þeirra í Borgarnesi. Mjög kært var alla tíð með móður minni og Kjartani og fórum við margar ferðir til þeirra og kynntumst krökkunum vel. Æv- intýraferðir í minningunni, löng leiðin fyrir fjörðinn, stór og mikil brú en þegar loksins var komið á áfangastað beið okkar mikil gest- risni fjölskyldunnar. Ekki spillti að Guðlaug frænka mín hafði eignast forláta meri sem ég held að hafi verið upphafið að hestaeign fjöl- skyldunnar. Nú er Kjartan allur og er skarð fyrir skildi. Minning lifir um ljúfan frænda sem lét sér annt um sitt fólk og spurði margs þegar við hittumst. Fjölskyldunni allri og vinum Kjartans færi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð veita ykkur styrk í sorginni. Gunnar Ingimundarson. Á námstíma mínum í lyfjafræði stundaði ég um skeið verknám í Vesturbæjarapóteki, sem þá var ný- stofnað af Birgi Einarsyni apótek- ara. Er ég mætti þar til leiks fyrstu vikuna í september 1956, kynnti Birgir mig fyrir yfirlyfjafræðingi apóteksins, Kjartani Gunnarssyni. Kjartan var maður meðalhár, ljós yfirlitum og fyrirmannlegur í fasi. Ég man enn þétt handtak hans og það átti eftir að koma á daginn að í þessum manni hafði ég eignast vin, sem reyndist mér betri en enginn uns yfir lauk. Fljótlega eftir að ég kom heim frá námi tókum við Kjartan upp samstarf við lyfjaheildsöluna Her- mes, sem var í eigu fjölskyldu Kjartans. En skömmu síðar fluttist Kjartan til Borgarness og gerðist lyfsali þar. Þarna tókst honum, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika, að koma upp nútíma lyfjaþjónustu, sem Borgnesingar höfðu ekki áður notið. Hann var ákaflega samviskusam- ur í starfi, og ávallt til taks hvort sem var á nóttu eða degi. En þó að Kjartan Gunnarsson hafi verið góður og metnaðarfullur fagmaður var hann jafnframt allra manna skemmtilegastur og frásagn- argáfa hans var slík að margt skáld- mennið hefði mátt öfunda hann. Við hjónin sendum ástvinum Kjartans Gunnarssonar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans, Kristján Pétur Guðmundsson. Kjartan Gunnarsson varð bráð- kvaddur á fögrum síðsumarmorgni þar sem hann var að njóta dásemda útivistar úti undir Gróttu. Dauða hans bar að á svipaðan hátt og hann framkvæmdi, hratt og ákveðið. Góð- ur vinur hans komst þannig að orði að ef hann hefði mátt velja sér dauðdaga hefði hann valið þennan. Hann tók daginn jafnan snemma og svo var einnig að þessu sinni. Hann hefur líklega farið til að hlusta á hafið, heyra garg kríunnar og njóta að öðru leyti kyrrðar og dásemdar umhverfisins. Við fuglasöng og nið brimsins kom kallið sem ekki verð- ur umflúið. Mér koma í huga fagrar ljóðlínur Einars Benediktssonar: Kvikan, mjúkan bylgjubarm bið ég leggjast mér að hjarta, dögg í auga, djúpan harm með dularhjúp um andann bjarta; hóglátt mál og brennheitt blóð, blæju af kulda um hjartans glóð. – Kraft, sem ei vill hátt né kvarta. (Einar Benediktsson.) Hann átti mörg áhugamál og má þar nefna kortasöfnun, hesta- mennsku og útiveru. Hann var einnig mikill fagurkeri og safnaði að sér miklu af fallegum og vel hönn- uðum hlutum. Hann ræktaði áhuga- mál sín af kostgæfni. Hann var jafnan lífsglaður, hraustur og sífellt á ferð og flugi, jafnt innan lands sem utan. Ég hafði hitt Kjartan nokkrum dögum áður í miðbæ Reykjavíkur. Við gengum saman um Laugaveginn, nutum dásemda veðursins og spjölluðum saman. Að mér hvarflaði ekki að þetta yrði í síðasta sinn sem ég sæi hann á lífi. Hann var að velta fyrir sér að skreppa til Kaupmannahafnar á næstunni til að ná að grúska meira á Konunglega bókasafninu og jafn- framt sagði hann mér frá ferð sinni þangað fyrr í sumar. Þannig var Kjartan, sífellt að undirbúa eitt- hvað, sífellt að framkvæma og á honum voru hreint engin ellimerki. Því kom dauði hans eins og reið- arslag yfir hans nánustu. Þeirra missir er mikill. Kæru Dóra, Guð- laug, Guðrún, Sigurður, Gunnar og aðrir ástvinir, innilegar samúðar- kveðjur og megi ykkur gefast kraft- ur til að fást við sorgina. Fjölnir Ásbjörnsson. KJARTAN GUNNARSSON Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. LEGSTEINAR Mikið úrval af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960 Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við útför föður okkar, tengdaföður og afa, VILHJÁLMS EMILSSONAR, Laufási 7, Egilsstöðum. Björg Vilhjálmsdóttir, Emil Vilhjálmsson, Sigríður Bragadóttir, Inga Emelie Deinlein, Jón Robert Deinlein, Sara Björk Emilsdóttir, Eyrún Hlökk Þórhallsdóttir, Steinunn Björg Þórhallsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.