Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 33

Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 33 ✝ Haraldur Krist-inn Jensson fæddist í Reykjavík 9. júní 1923. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar Haralds voru Jens Pétur Tomsen Stef- ánsson stýrimaður, f. 13. janúar 1897, d. 25. mars 1982, og Guð- mundína Margrét Jónsdóttir, f. 1. jan- úar 1897, d. 20. ágúst 1974. Haraldur átti fjögur systkini. Þau eru Þórir, f. 29. mars 1920, d. 4. mars 2002; Ásta Margrét, f. 30. maí 1927; Erna Guðrún, f. 9. ágúst 1930; og Hólmfríður, f. 1. september 1934, d. 11. janúar 2000. Haraldur kvæntist 4. september 1948 eftirlifandi konu sinni, Huldu Guðmundsdóttur, f. í Reykjavík 23. febrúar 1930. Þau hafa lengst af bú- ið í Reykjavík, en bjuggu á Akra- nesi frá 1971 til 1988. Börn Haralds og Huldu eru: 1) Svava, f. 20. des. 1948, gift Guð- mundi Jens Þorvarðarsyni, f. 12. mars 1947. Börn þeirra eru: a) Elsa er hann skráður viðvaningur á mót- orskipið Sæbjörgu og þá varð ekki aftur snúið. Næstu árin er hann hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands við sjó- mannsstörf. Haraldur lýkur far- mannaprófi frá Stýrimannaskólan- um í Reykjavík 1947. Á skólaárunum og eftir þau var hann í starfi hjá Eimskipafélagi Íslands og allt til ársins 1970, ýmist sem stýrimaður eða skipstjóri. Síðustu tvö árin starfaði hann þó í landi við verkstjórn hjá félaginu, en var þá af og til fenginn til að fara með leigu- skipum sem lóðs á ströndina eða lestunarstjóri (super cargo). Árið 1970 réðst hann til Sementsverk- smiðju ríkisins, fyrst sem stýrimað- ur, en fljótlega sem skipstjóri, á ms Freyfaxa og var í flutningum fyrir Sementsverksmiðjuna allt til ársins 1983 að skipið var selt, vegna minnkandi verkefna. Frá þeim tíma og fram til loka árs 1993, þegar hann lét af störfum vegna aldurs, var hann skipstjóri á ms Skeiðfaxa, sem var í eigu Sementsverksmiðju ríkisins og flutti sement frá Akra- nesi til Reykjavíkur. Haraldur var sæmdur heiðursmerki sjómanna- dagsráðs fyrir störf við sjó- mennsku. Alls urðu árin fimmtíu og þrjú sem hann sinnti sjómennsk- unni. Haraldur var félagi í Oddfell- owstúku nr. 5, Þórsteini. Útför Haralds verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Sif, gift Birgi Braga- syni. Börn þeirra eru Matthías og Gunnhild- ur, dóttir Birgis, b) Þorvarður Gísli, sam- býliskona Hildur Ólöf Pétursdóttir, c) Har- aldur Jens, sambýlis- kona Erla Kristín Bjarnadóttir; 2) Guð- mundur, f. 21. maí 1950, kvæntur Rakel Kristjánsdóttur, f. 10. okt. 1951. Börn þeirra eru: a) Kristján Freyr Jóhannsson, kvæntur Elmu Dóru Halldórs- dóttur. Börn þeirra eru Rakel Anna og Kristín Lena, b) Helga, sambýlis- maður Kim Peter Viviane De Roy. Dóttir Helgu er Fanný Huld Frið- riksdóttir, c) Hulda og d) Fannar; 3) Erna, f. 8. mars. 1957, gift Karli Eð- varð Þórðarsyni, f. 31. maí 1955. Börn þeirra eru Gísli og Sara; 4) Bjarni Óli, f. 27. mars 1968, kvænt- ur Árnýju Davíðsdóttur, f. 4. mars 1970. Börn þeirra eru Tinna og Davíð Ýmir. Haraldur stundaði sjómennsku og störf henni tengd allan sinn starfsaldur. Hinn 22. febrúar 1941 Það var við hæfi að Haraldur Jensson kveddi þennan heim að morgni afmælisdags Reykjavíkur, en hann var fæddur og uppalinn í Reykjavík og foreldrar hans einnig. Er ég kvaddi hann kvöldið áður með orðunum „láttu þér nú batna“ svar- aði hann „ef ég get“. Með þessu orðavali var ljóst að hann var farinn að gefa eftir, enda um áralanga bar- áttu að ræða við illvígan sjúkdóm. Fáeinum dögum áður hefði svarið getað verið eitthvað á þessa leið „ekki spurning“ eða annað álíka, með örlítið kaldhæðnislegri kímni. Það var ekki háttur Haraldar Jens- sonar að gefa eftir eða barma sér vegna sjúkleika. Þannig var tengda- faðir minn, barðist eins lengi og hægt var og helst lengur. Haraldur kynntist sjónum ungur og allan sinn starfsaldur starfaði hann á sjónum á farskipum eða við störf tengd sjómennsku. Eftir að Haraldur hætti til sjós, vegna ald- urs, leið varla sá dagur að hann æki ekki niður að höfn eða út í Örfirisey og teygaði að sér sjávarilminn. Á árum áður gátu sjómenn átt það á hættu að vera langdvölum að heim- an og liðu jafnvel nokkrir máunuðir á milli þess að þeir sáu fjölskyldu sína. Haraldur var engin undanþága frá því og var langdvölum fjarri heimili sínu, maka og börnum. En hann treysti Huldu sinni og vissi að hún héldi vel utanum heimilið og fjölskylduna. Í fallegu bréfi sem hann lét eftir sig þakkar hann Huldu fyrir hversu vel henni hafi tekist til við að ala upp börnin þeirra og kom- ið þeim vel til manns. Haraldur átti nú samt sinn þátt í uppeldinu og fengu börnin hans oft á tíðum frá honum sendibréf sem skrifuð voru í erlendum höfnum eða úti á rúmsjó í hverjum hann minnti þau á gildi lífs- ins og lagði þeim lífsreglurnar. Árið 1979 reistu Hulda og Halli sér sumarbústað í landi Stóra-Fjalls í Borgarfirði. Bústaðnum var valinn staður ofarlega í hól, þannig að vel sást í allar áttir, í stað þess að byggja hann í skjóli ofan í laut. Har- aldur var var vanur því að standa í brúnni og sjá vítt yfir. Þarna gat Haraldur horft úr sinni brú og séð í allar áttir, jafnvel til sjávar. Á þess- um stað eyddu Hulda og Halli öllum sumrum eftir að bústaðurinn var byggður. Þarna áttu þau sinn sælu- reit og var yndislegt að sjá hversu samhent þau voru um að hlúa að staðnum, rækta upp og halda í horf- inu. Þangað voru börnin og barna- börnin alltaf velkomin og var oft þröngt í bústaðnum. Haraldur var óþreytandi við að dytta að bústaðn- um og voru þau ekki fá handtökin sem þar lágu, en Haraldur var þann- ig að hann gat helst ekki verið verk- laus og fannst manni jafnvel að stundum málaði hann tvær umferðir en ekki eina bara til að hafa eitthvað að gera. Haraldur var vel ritfær og hafði gaman af að skrifa. Hann hafði skemmtilega rithönd, svo jaðraði við skrautskrift og eru t.d. dagbækurn- ar úr sumarbústaðnum gott dæmi um það, eins og um ritfærni hans. Haraldur var ágætis kokkur og hafði yndi af góðum mat. Hin síðari ár dvöldu Hulda og Halli oft hjá okk- ur á aðfangadagskvöld. Allir fóru til kirkju nema Haraldur, hann var heima og sá til þess maturinn væri tilbúinn þegar fólk kom úr kirkju, búinn að brúna kartöflur o.s.frv. Hulda mín, guð vakir yfir þér og við vitum að þegar þar að kemur stendur Halli með útréttan faðminn og tekur á móti þér. Guðmundur Jens Þorvarðarson. Stundin er runnin upp. Þú ert lagður af stað í siglinguna inn í eilífð- ina. Loksins færðu hvíldina sem þú átt skilið, elsku afi okkar. Styrkur þinn og hugrekki hefur smitað alla í kringum þig, og þú og amma hafið hjálpað okkur mikið í gegnum erfið tímabil. Takk innilega fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og hugrekki þitt mun halda áfram að fylgja okkur í hjarta okkar. Guð blessi þig elsku afi, þín barna- börn, Sara og Gísli. Það er bjart yfir minningum bernskuára minna á Bræðraborgar- stígnum í Reykjavík. Þetta var þeg- ar stórfjölskyldan var og hét, safn- aðist saman í eftirmiðdagskaffi á sunnudögum, á gamlárskvöld, já og svo aftur 1. janúar hjá ömmu og afa og miklu oftar. Í garðinum hjá þeim var alltaf sólskin og gott að vera barn í faðmi fjölskyldunnar. Kyn- slóðin sem ól börnin sín upp í þess- um góðu siðum er nú óðum að hverfa af sviði lífsins og er Haraldur, föð- urbróðir minn, þriðji úr kærleiksrík- um systkinahópi sem kveður á stutt- um tíma. Í huga barnsins var mikill ævin- týraljómi yfir sjómannslífinu, en Halli frændi var sjómaður alla sína tíð og lengst af í millilandasiglingum. Það var ekki bara að komast til fjar- lægra landa sem heillaði heldur var líka ýmislegt sem sjómennirnir gátu keypt í útlöndum sem ekki var til hér norður frá á þessum tíma og nutum við fjölskylda mín þess. Útidyra- hurðin rammgerða sem hann færði foreldrum mínum, þegar þau af litlum efnum voru að reisa sér hús, stendur enn fyrir sínu og í áratugi var flaggað á hátíðis- og tyllidögum á fánastönginni sem hann gaf þeim líka. Sjálf á ég enn í fórum mínum forláta dúkku sem var og er engri dúkku lík og aldrei gleymi ég tví- buravagninum sem hann flutti til landsins, en mér auðnaðist ekki að láta tvíburana mína hvíla í. Þá er mikill ljómi yfir mánaðar- reisunni sem hann bauð foreldrum mínum í til nokkurra Evrópulanda og var það þeirra fyrsta utanlands- ferð og oft til hennar vitnað. Síðar fóru þau ásamt Huldu, eiginkonu Halla, og Ástu systur þeirra og hennar manni í margar siglingar og hygg ég að aldrei hafi systkinin notið lífsins betur en saman á sjónum. Ekki er víst að sjómannslífið hafi verið eins ævintýralegt fyrir eigin- konuna og börnin sem biðu heima, en Hulda er gædd einstökum styrk og æðruleysi og hefur verið góð fyr- irmynd þeim er hafa fengið að kynn- ast henni. Frændi bjó yfir mörgum góðum eðliskostum, en það sem einkenndi hann helst var heiðarleiki og seigla í bland við mildi og næma kímnigáfu. Styrkur hans í löngu og oft erfiðu veikindastríði í mörg ár var þessi ótrúlega seigla. Hann fór varlega um vegi lífsins og heimshöfin en jafn- framt djarflega. Þessu greinarkorni fylgja hlýjar kveðjur frá Noregi yfir Atlantsálana sem hann Halli þekkti svo vel. Ég bið algóðan Guð um að styrkja Huldu og alla afkomendur þeirra hjóna og sömuleiðis systurnar tvær sem eftir lifa af systkinahópnum frá Eiðsstöðum við Bræðraborgarstíg. Það var nokkuð sérstakt að Reykja- víkurdrengurinn og vestur- bæingurinn kveddi þennan heim 18. ágúst á afmælisdegi borgarinnar sem honum þótti svo vænt um. Blessuð sé minning frænda míns, Haralds Jenssonar. Birna Þórisdóttir. Að morgni 18. ágúst sl. lést á Landspítalanum við Hringbraut góður vinur minn um langt árabil, Haraldur Kristinn Jensson skip- stjóri. Leiðir okkar Haraldar hafa löngum legið saman, allt frá þeim degi er við báðir hófum sjómennsku um 1940, sem viðvaningar um borð í björgunarskútunni Sæbjörgu, þar sem við deildum herbergi alla veru okkar þar. Eftir samveruna þar skildust leiðir um sinn. Leið hans lá til Eimskips, en mín til Ríkisskipa. Aftur lágu leiðir okkar saman og nú í farmannadeild stýrimannaskólans í Reykjavík, þaðan sem við lukum prófum vorið 1947. Um tíma leigði ég herbergi hjá ágætum foreldrum Haraldar á Bræðraborgarstíg 23. Þar var gott að vera. Þar hafði Har- aldur alist upp og bjó í foreldrahús- um þann tíma sem ég leigði þar. At- vikin höguðu því þannig til að við kvæntumst vinkonum, sem báðar áttu heima við sömu götu í Reykja- vík, Bergþórugötu. Lífsstarfi okkar lukum við svo hjá sama fyrirtæki þ.e. Sementsverksmiðjunni á Akra- nesi. Haraldur sigldi stríðsárin á skipum Eimskips. Að loknu far- mannaprófi var hann um árabil stýrimaður á skipum þess og afleys- ingaskipstjóri á nokkrum þeirra. Um tíma var hann verkstjóri við skipaafgreiðslu Eimskips og leið- sögumaður á ýmsum leiguskipum þess á ferðum í kringum landið. Haustið 1970 var hann ráðinn sem skipstjóri á flutningaskipið Freyfaxa í eigu Sementsverksmiðju ríkisins. Því starfi gegndi hann þar til skipið var selt árið 1983. Eftir það varð hann skipstjóri á M.S. Skeiðfaxa, fyrst á móti Kristjáni Kristjánsyni. Eftir að Kristján féll frá var Har- aldur eini skipstjórinn, allt til starfs- loka vegna aldurs. Vinátta okkar hefur staðið óslitið allar götur frá því við fyrst hittumst um borð í Sæbjörgu þar til hérvist- ardögum hans lauk, hafa fjölskyldur okkar tengst traustum vinaböndum og á Hulda konan hans ekki hvað síst sinn þátt í því. Haraldur var alla tíð greiðvikinn og bóngóður maður. Mig langar að geta lítils atviks sem lýsir því dálítið. Við vorum eitt sinn sam- skipa á einu skipa Eimskips, ég hafði verið ráðinn aðeins þessa einu ferð. Þegar skipið lét aftur úr höfn átti ég í tollinnsigli skipsins tvær lengjur af sígarettum. Ég spurði Harald hvort hann gæti ekki tekið þessar lengjur út fyrir mig og komið þeim í verð í einhverri erlendri höfn og í staðinn keypt fyrir mig hatt sem ég ein- hverra hluta vegna hafði áhuga á. Haraldur tók þessu vel og þegar skipið kom svo aftur úr þessari ferð kom hann með hattinn. Það var ekki fyrr en löngu síðar að ég frétti að sígarettulengjurnar höfðu verið gerðar upptækar og gott ef hann hefur ekki þurft að greiða einhverja sekt. Sjálfur orðaði Haraldur þetta aldrei og aldrei þurfti ég að bæta skaðann. Haraldur var tryggur vin- ur. Hann var góður og traustur skip- stjóri sem bar hag útgerðar jafnt sem skipshafna fyrir brjósti, enda naut hann alla tíð virðingar beggja. Fyrir allmörgum árum veiktist Haraldur af þeirri veiki sem að lok- um náði yfirhöndinni. Aldrei heyrði ég Harald minnast að fyrra bragði á veikindi sín og þegar þau bar á góma vildi hann sem minnst úr þeim gera og má segja að gott skap hafi ein- kennt hann allt til síðasta dags. Fallinn er frá góður drengur og vinur. Við hjónin sendum Huldu, afkom- endum þeirra og ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Friðrik Jónsson. HARALDUR KR. JENSSON Elskuleg fósturmóðir mín, HÓLMFRÍÐUR ÞORLEIFSDÓTTIR frá Efra-Firði, lést þriðjudaginn 19. ágúst. Jarðsett verður frá Hafnarkirkju laugardaginn 30. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Vilhjálmur Geir Þórhallsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ENGILBERT RAGNAR VALDIMARSSON, áður til heimilis í Eskihlíð 16, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 25. ágúst. Engilbert Engilbertsson, Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Bergþór Engilbertsson, Stefanía Helgadóttir, Jón Engilbertsson, Guðbjörg Vallaðsdóttir og afabörn. Ástkær móðir mín, EVA S. BJARNADÓTTIR, Neðstaleiti 4, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu- daginn 29. ágúst kl. 15. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Ólafsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, FLÓRA BALDVINSDÓTTIR, áður til heimilis á Siglufirði, lést á heimili sínu, Ási í Hveragerði, mánudag- inn 25. ágúst. Valtýr Jónasson, Jónas Valtýsson, Vigdís S. Sverrisdóttir, Guðrún Valtýsdóttir, Baldvin Valtýsson, Laufey Ása Njálsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.