Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 37

Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 37 Hveragerðisbær Eftirtaldar lóðir eru nú lausar til umsóknar Kambahraun 53 — 1.036,3 fermetra einbýlis- húsalóð. Austurmörk 18a — 1.654,0 fermetra verslunar- þjónustu- og iðnaðarlóð. Verði tvær eða fleiri umsóknir um einstaka lóð mun fulltrúi sýslumanns draga á milli umsækj- enda. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu bæjarins, Hverahlíð 24, Hveragerði og á heimasíðu Hveragerðisbæjar, http://www.hveragerdi.is/, undir flipanum „eyðublöð“. Bæjartæknifræðingur. ATVINNUHÚSNÆÐI 100 fm skrifstofuhúsnæði óskast í Kópavogi til kaups eða leigu. Áhugasamir hafi samband við Kristberg í síma 892 1931 eða Ágúst í síma 894 7230. Fasteignasalan Hóll, Skúlagötu 17. TILKYNNINGAR Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Svanabyggðar í landi Efra-Sels í Hruna- mannahreppi. Sveitarstjórn Hrunamannahrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Svanabyggðar í landi Efra-Sels í Hrunamanna- hreppi samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin nær til svæðisins sem afmarkast af Svanabyggð 4 og Svanabyggð 13. Á auðu svæði þar á milli er gerð tillaga um að bæta við tveimur sumar- húsalóðum. Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofu Hrunamannahrepps í Akurgerði 6 frá og með miðvikudeginum 27. ágúst nk. og til og með miðvikudagsins 24. september nk. Þeim, sem eiga hagsmuna að gæta, er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn skriflegum athuga- semdum rennur út miðvikudaginn 8. október nk. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Hruna- mannahrepps, Akurgerði 6. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir til- skilinn frest, teljast samþykkir henni. Sveitarstjóri Hrunamannahrepps. Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði. Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi fyrir „Iðnaðar- svæði austan Reykjavíkurvegar” vegna Reykjavíkurvegar 76, 78 og 80 í Hafnarfirði Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 21. ágúst 2003 að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipu- lagi fyrir „Iðnaðarsvæði austan Reykjavíkurvegar” vegna Reykjavíkurvegar 76, 78 og 80 í Hafnar- firði í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Breytingin felst í megin atriðum í sameiningu lóða og nýjum byggingarreitum. Breytingin verður til sýnis í afgreiðslu umhverfis- og tæknisviðs, Strandgötu 8-10, þriðju hæð, frá 27. ágúst 2003–25. september 2003. Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskipulagi. Þeim, sem telja sig hagsmuna eiga að gæta, er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breyt- inguna og skal þeim skilað skriflega til bæjar- skipulags í Hafnarfirði, eigi síðar en 10. október 2003. Þeir, sem ekki gera athugasemd við breyt- inguna, teljast samþykkir henni. Bæjarskipulag Hafnarfjarðar SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Háaleitisbraut 58—60 Miðvikudaginn 27. ágúst Kristniboðssalurinn á Háaleitis- braut 58. Samkoma í kvöld kl. 20.00. „Ég vil syngja fyrir Drottni.“ Sálm. 13. Ræðum.: Jóhannes Ólafsson. Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir hjartanlega velkomnir. Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. R A Ð A U G L Ý S I N G A R LÓÐIR ATVINNA mbl.is ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Herdísi Hjörleifsdóttur félagsráðgjafa vegna umræðu um kynferðisbrotamál á Vestfjörðum. „Undanfarið hefur kynferðisafbrota- mál á Vestfjörðum verið til umfjöll- unar í fjölmiðlum. Því lyktaði hins vegar með dómi eins og almenningi er kunnugt um og vann undirrituð að málinu fyrir nefndina. Eftir að dómurinn lá fyrir beindist kastljósið talsvert að forsögu málsins, áður en undirrituð tók að sér umrætt verkefni fyrir nefndina en undirrituð hefur þó ítrekað komið við sögu í gagnrýni Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu. Hann hefur fundið að því að undirrituð viti ekki hvaða boðleiðir skuli fara þegar mál er tilkynnt Barnaverndarstofu. Undirrituð vill því að gefnu tilefni benda á, að í 7. gr. III. kafla stjórn- sýslulaga nr. 37/1993 stendur m.a.: „Stjórnvald skal veita þeim sem til þess leita nauðsynlega aðstoð og leið- beiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þess.“ Síðan stendur í 3ja lið, 8. gr. barna- verndarlaga nr. 80/2002: „Barnaverndarstofa getur, á grundvelli kvartana eða annarra upp- lýsinga sem henni berast um meðferð einstakra mála og ef hún telur ástæðu til, aflað nauðsynlegra gagna, upplýs- inga og skýringa hjá viðkomandi barnaverndarnefnd.“ Það kemur hvergi fram, eins og Bragi heldur fram, að upplýsingar skuli vera skrif- legar eða eingöngu lagðar fram hjá einstökum starfsmönnum, lögfræð- ingi Barnaverndarstofu í þessu tilviki. Þess utan vill undirrituð enn og aft- ur benda á, að það var aldrei tilgang- ur undirritaðrar að Barnaverndar- stofa tæki málið sérstaklega til athugunar þar sem undirrituð var, að beiðni barnaverndarnefndar Vestur- byggðar og Tálknafjarðar, að vinna að málinu. Það er hins vegar ekki hlutverk þess sem tilkynnir eða gefur stjórnvaldi upplýsingar að ákveða hvað viðkomandi stjórnvald gerir við upplýsingarnar og því hlýtur undir- rituð, í ljósi framangreindra laga, að álykta að Barnaverndarstofu hafi ekki þótt ástæða til að hafa bein af- skipti af málinu á þeim tíma. Barnaverndarmál eru almennt erf- ið og margslungin í vinnslu auk þess að vera viðkvæmur málaflokkur. Nefndarmenn, starfsmenn og þeir, sem að málunum koma, vilja vinna sem best að hagsmunum viðkomandi barna í samræmi við barnaverndar- lög. Við erum öll manneskjur sem gerum mistök, einnig starfsfólk og forstjóri Barnaverndarstofu, og þeg- ar okkur verður á, þá þurfum við að viðurkenna það og reyna að gera bet- ur næst.“ Yfirlýsing frá Herdísi Hjörleifsdóttur félagsráðgjafa um kynferðisbrotamál Á Barnaverndar- stofu hvílir leið- beiningarskylda SVERRIR Björnsson, framkvæmdastjóri auglýs- ingastofunnar Hvíta hússins, varð heimsmeistari í glerkúluleik á árlegu heimsmeistaramóti sem haldið var í Frakklandi á dögunum. Sverrir sigraði á Ís- landsmóti sem haldið var á sjómannadaginn og hlaut að launum keppnisrétt og ferðir á heimsmeist- aramótið. Í för með Sverri voru eiginkona hans og dóttir en Sunneva, dóttir hans, er jafnframt umboðs- maður og þjálfari Sverris. Heimsmeistaramótið í glerkúluleik hefur verið haldið tuttugu og einu sinni og þetta er í þriðja sinn sem Ísland sendir keppendur. Sverrir segist hæst- ánægður með niðurstöður mótsins en gerir ekki ráð fyrir að hann reyni að verja titilinn að ári. Morgunblaðið/Arnaldur Sverrir Björnsson fékk höfðinglegar móttökur á Keflavíkurflugvelli við komuna til Íslands. Íslendingur náði heims- meistaratitli í glerkúluleik

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.