Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 43

Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 43
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 43 MARIA Mutola frá Mósambík hefur verið ósigrandi í 800 metra hlaupi kvenna á þessu ári og hún sigraði enn eina ferðina í gær þegar hún kom fyrst í mark í greininni á heimsmeistaramótinu í París. Ólympíumeistarinn hélt því titlinum, kom í mark á 1.59,89. Þetta var þriðji heimsmeistaratitill Mutola og fagnaði hún því innilega ásamt bresku stúlkunni Kelly Holmes, vinkonu sinni og æfingafélaga, sem varð önnur á 2.00,18. Þriðja varð rússneska stúlkan Natalya Khrus- hchelyova á 2.00,29. Sigur Mutola var auðveldari en búist hafði verið við fyrir mótið þar sem tveir af hörðustu keppinautum hennar kepptu ekki í úrslitunum að þessu sinni. Aust- urríska stúlkan Stephanie Graf og Evrópumeistarinn frá Slóveníu, Jolanda Ceplak, gátu ekki keppt í úrslitunum. Ceplak hætti við keppni áður en riðlakeppnin hófst vegna ökklameiðsla og í gærmorgun missti Graf vatns- flösku á ristina og varð að sauma nokkur spor þannig að hún var úr leik. Maria Mutola var ekki í vandræðum í 800 metra hlaupinu Reuters Vinkonurnar Mutola, til hægri, og Holmes. DMITRY Karpov, frá Kasakstan, er með forystu í tugþrautar- keppninni eftir fyrri keppnisdag, hefur 4.599 stig en Bandaríkja- maðurinn Tom Pappas er næstur með 4.546 stig og heimsmethafinn Toman Sebrle frá Tékklandi þriðji með 4.423 stig. Karpov, sem er nýorðinn 22 ára, á 8.253 stig best í tugþraut, náði því á móti í maí á þessu ári og er greinilega á mikilli siglingu í þrautinni og ef fram heldur sem horfir bætir hann fyrri árangur sinn. Hinn 27 ára gamli Bandaríkja- maður, Pappas, náði sinni bestu þraut í júní þegar hann fékk 8.784 stig og Roman Sebrle náði hins vegar sinni bestu þraut í Götzis árið 2001 en þá fékk hann 9.026 stig. Besti árangur hans á þessu tímabili er 8.807 stig í Götzis, en tvívegis hefur hann fengið slétt 8.800 stig, í Götzis í júní 2002 og í München í ágúst sama ár. Jamaíkamaðurinn Claston Bern- ard er í fjórða sæti eftir fyrri dag- inn með 4.239 stig, Paul Terek frá Bandaríkjunum fimmti á 4.222 stigum og Tomas Dvorak frá Tékklandi sjötti með 4.145 stig eins og Aleksandr Pogorelov frá Rússlandi. Tveir keppendur eru hættir auk Jóns Arnars Magnússonar, þeir Erki Nool frá Eistlandi og Hamdi Dhouibi frá Túnis. Karpov fyrstur að þrautinni hálfnaðri  TATYANA Lebedeva frá Rúss- landi sigraði í þrístökki kvenna á HM í París, stökk 15,18 metra og er það lengsta stökk ársins hjá konunum.  FRANCOISE Mbango Etone frá Kamerún varð önnur, annað árið í röð, með 15,05 og er það afrískt met.  ÓLYMPÍUMEISTARINN Virg- ilius Alenkna frá Litháen gerði sér lítið fyrir og sigraði í kringlukasti, kastaði 69,69 metra í fyrsta kasti og er það besti árangur hans í ár. Annar varð Róbert Fazekas frá Ungverja- landi með 69,01 og Hvít-Rússinn Vasiliy Kaptyuhk varð þriðji með 66,51 sem er besti árangur hans í ár.  HEIMSMEISTARI síðustu ára, Þjóðverjinn Lars Riedel, sem reyndi nú við sjötta titil sinn, varð að sætta sig við fjórða sætið, kastaði 66,28 metra.  ÞREFALDUR heimsmeistari í 100 metra grindahlaupi kvenna, Gail Dev- ers frá Bandaríkjunum, náði ekki að tryggja sér sæti í úrslitum í dag. Hún hljóp í fyrsta riðli og kom þriðja í mark á 12,87 sekúndum en það dugði henni ekki til að komast í úrslit því áttunda og níunda stúlkan í úrslit hlupu á 12,85.  BÚIST var við sigri Devers enda hefur hún verið svo til ósigrandi í greininni undanfarin ár og er þetta ár engin undantekning þar á. En svo bresta krosstré sem önnur.  KIM Collins, nýkrýndur heims- meistari í 100 metra hlaupi, ákvað í gær að keppa ekki í 200 metrunum og freista þess að gera það sem Banda- ríkjamenn hafa gert svo oft, að sigra í báðum spretthlaupunum.  „ÉG hef ekki hlaupið nægilega mik- ið í sumar til að fara í 200 metrana,“ sagði Collins sem varð þriðji í grein- inni fyrir tveimur árum í Edmonton.  ANNAR sterkur hlaupari hefur einnig dregið sig út úr keppninni í 200 metrunum, Ólympíu- og heimsmeist- arinn Kostas Kenteris frá Grikk- landi. Hann er lítillega meiddur og vill ekki taka neina áhættu, ári fyrir Ólympíuleikana í heimalandi hans.  EINN til viðbótar mun vanta þegar keppt verður í 200 metra hlaupinu en það er Bandaríkjamaðurinn John Drummond. Hann var dæmdur úr leik í riðlakeppninni í 100 metra hlaupinu, mótmælti því harkalega og átti á hættu að vera vikið úr keppn- inni. Hann sparaði hins vegar móts- stjórn ómakið, er hættur keppni og verður því fjarri góðu gamni í 200 metra hlaupinu og eins þegar keppt verður í 4x100 metra boðhlaupi um helgina.  BANDARÍSKI táningurinn Ally- son Felix komst ekki áfram úr riðla- keppninni í 200 metra hlaupi kvenna, hljóp á 23,33 sek. í þriðja riðli, varð þar í sjötta sæti og komst ekki áfram. Stúlkan, sem er 17 ára, hljóp vega- lengdina á 22,11 sek. fyrr á árinu. FÓLK Fyrsta greinin hjá köppunum var100 metra hlaup og þar fékk Jón Arnar tímann 11,11 sekúndur og 836 stig, frekar slakur tími og setti hann í fjórtánda sætið. Langstökkið, sem er hans sterkasta grein, hefur oft gengið brösuglega og stundum hefur hann aðeins náð þriðja stökkinu löglegu. Að þessu sinni gerði hann ógilt í fyrsta stökki, hljóp í gegnum það næsta en það mældist aðeins 6,15 metrar og þar töpuðust nokkur hundruð stig. „Ég veit hreinlega ekki hvað gerð- ist í fyrsta stökkinu – þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður. Lang- stökkið hefur gengið mjög vel síð- ustu árin, auðvitað hefur maður gert ógilt um nokkra sentimetra en ekki farið rúm tvö fet fram fyrir planka. Það svona hvarflar að manni að ein- hver hafi fært mælinguna – annað eins hefur reyndar gerst í þessu. Nú, þetta stökk var auðvitað ógilt, en fínt stökk samt, örugglega alveg um átta metrar þannig að mér fannst ég geta stokkið langt. Ég færði mig rúmum tveimur fet- um aftar til að gera nú örugglega gilt en ég rann á plankanum áður en ég náði gripi og fékk slink á ökklann. Stökkið mældist bara 6,15 metrar og ég hef ekki fengið svoleiðis mælingu síðan ég var fimmtán ára held ég. Ég ákvað að reyna kúluna þrátt fyrir eymslin í ökklanum en það gekk ekki og við ákváðum að ég hætti keppni. Þegar menn eru komn- ir á þennan aldur reyna þeir að hlífa sér ef þess er kostur og í þessu tilviki hefði verið rangt að halda áfram og eiga á hættu að vera lengi að ná sér. Ég var búinn að tapa það mörgum stigum að ég hefði aldrei náð fram- arlega og ég hef það mikinn metnað að ég hefði ekki haft nokkurn áhuga á að vera í kringum 7.000 stigin,“ sagði Jón Arnar í samtali við Morg- unblaðið í gær. Jón sagði greinilegt að margir ungir strákar væru að koma sterkir inn í þrautina. „Það er virkilega gaman að sjá hversu margir ungir strákar eru að koma sterkir inn. Við þessir gömlu erum samt ekkert á því að láta þá hafa þetta allt án fyrir- hafnar og reynum að láta þá hafa að- eins fyrir hlutunum næsta árið eða svo, en það er markmiðið að komast á Ólympíuleikana í Aþenu og standa sig þar. Hvað varðar heimsmeistaramót á ég nú frekar von á að þetta hafi verið mitt síðasta. Heimsmeistaramót ut- anhúss virðast hreinlega ekki vera mín mót – ætli það sé ekki orðið full- reynt. Annars veit maður auðvitað aldrei, ef líkaminn verður í lagi og ég hef enn gaman af þessu og tel mig geta verið í kringum 8.000 stigin er aldrei að vita hversu lengi maður endist í þessu,“ sagði Jón Arnar. Jón Arnar Magnússon féll úr keppni á fimmta heimsmeistaramótinu í röð Fer trúlega ekki aftur á HM Reuters Skúli Unnar Sveinsson skrifar „MAÐUR er auðvitað sorrí, sár og svekktur yfir þessu öllu saman,“ sagði Jón Arnar Magnússon tugþrautarmaður eftir að hann hætti keppni í þrautinni eftir þrjár greinar á heimsmeistaramótinu í París í gær. Hann var þá í tuttugasta og síðasta sæti keppenda og aumur í ökkla, eftir langstökkið, þannig að niðurstaðan var að hætta í stað þess að halda áfram og gera illt verra. Þetta er í fimmta sinn sem Jóni mistekst að ljúka keppni á heimsmeistaramóti. „ÞETTA var nú heldur endasleppt hjá okkur að þessu sinni,“ sagði Guðmundur Karlsson, landsliðs- þjálfari í frjálsíþróttum, eftir að Jón Arnar Magnússon hætti keppni í tugþrautinni eftir þrjár greinar í gær. „Jón náði löngu stökki í fyrstu til- raun en það var ógilt þar sem hann fór langt fram yfir plankann. Það var leiðinlegt að fá það stökk ekki gilt því það var í það minnsta upp á 7,70 metra. Í öðru stökkinu færði hann sig aftar, rann aðeins á plank- anum áður en gaddarnir gripu og fékk mikinn slink á ökklann. Hann hljóp eiginlega í gegnum stökkið og drap tánni niður á leiðinni og það var mælt upp á 6,15 metra. Fremur ómerkilegt stökk og hann ákvað að reyna aftur en það tókst ekki. Jón ákvað samt að reyna að varpa kúlunni en fann til í ökklanum og þar sem hann hafði tapað einum 350 stigum í langstökkinu, sem er hans sterkasta grein, var það niðurstaða okkar að hann hætti keppni. Það var enginn akkur í því að níðast á ökkl- anum til þess eins að ná tíunda til tólfta sæti,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að meiðsli Jóns væru ekki alvarleg. „Þetta eru minnihátt- ar meiðsli en það má segja að ef hann hefði stokkið 7,50–7,60 í lang- stökkinu hefðum við örugglega reynt að harka þetta af okkur. Úr því sem komið var hafði það engan tilgang,“ sagði landsliðsþjálfarinn. Um tugþrautarkeppnina sagði Guðmundur greinilegt að nokkur kynslóðaskipti væru að eiga sér stað. „Það eru greinileg kynslóða- skipti að verða og þessir „gömlu“ sem hafa verið í baráttunni undan- farin ár þurfa orðið að hafa sig alla við til að halda í við þessa ungu sem eru að verða sterkir,“ sagði Guð- mundur. Enginn akkur í að níðast á ökklanum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.