Morgunblaðið - 27.08.2003, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 47
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Tvær löggur.
Tvöföld spenna.
Tvöföld skemmtun.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
Sýnd kl. 4, 6, 8, 9.15 og 10.30.
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
ATH! Munið eftir Sinbað
litasamkeppninni á ok.is
SV. MBL
Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt
aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í
svakalegustu hasarmynd sumarsins!
Sýnd kl. 3.45, 6, 8 og 10.15.
J I M C A R R E Y
B R U C E
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali.
NÝR mixdiskur með Gus Gus, Mixed Live, kom út hjá bandaríska
útgáfufyrirtækinu Moonshine í gær. Búið er að birta umsögn um
diskinn á vef Rolling Stone.
Diskurinn er tekinn upp á litlum bar í Reykjavík, nánar tiltekið
Sirkus, í þeim tilgangi að fanga húmorískan gleðianda sveitarinnar.
Fimmtán lög eru á diskinum, sem er 72 mínútna langur, m.a. eftir
tæknómeistarann frá Detroit, Aaron-Carl, og endurhljóðblöndun á
Gus Gus-laginu „David“.
Í umsögninni segir að niðurstaðan sé hress og framandi. Þar seg-
ir að sem plötusnúðar kunni Gus Gus að skemmta sér og gleðin skíni
sannarlega í gegn.
Umsögn um nýjan mixdisk frá Gus Gus í Rolling Stone
Lifandi gleðidiskur
Morgunblaðið/Arnaldur
President Bongo er þekktur fyrir líflega
framkomu með Gus Gus.www.gusgus.com
SÆNSKA söngkonan Åsa Rydman
heldur tónleika á Gauki á Stöng í
kvöld.
Rydman leikur ljúfsára en fjöl-
breytilega tónlist, þjóðlagaskotna,
sem byggir á grunni píanós og
kassagítars. Svipar henni þannig
sumpartinn til þess sem stöllur
hennar Kate Bush, Tori Amos,
Dido og íslensku söngkonurnar
Anna Halldórsdóttir, Fabúla, Þór-
unn Antónía og Hera hafa fengist
við.
Rydman hefur gefið út plötuna
Seeds of Love en hún hefur að
geyma tónlist sem hún samdi sér-
staklega fyrir sýningu sem hún
setti upp í New York þar sem hún
er nú búsett.
Rydman er fædd og uppalin í
Örebro í Svíþjóð og starfar einnig
með hljómsveitinni Åsa’s Garden
sem hún stofnaði á háskólaárum
sínum. Sveitin hefur sent frá sér
eina plötu There Is No Way …
Á skömmum ferli hefur Rydman
komið víða við, búið í París og Sa-
rajevó og leikið enn víðar.
Sænsk söngkona
á Gauknum
Ljósmynd/Anna Julia Granberg
Åsa Rydman leikur á Gauknum í kvöld.
Tónleikar Åsu Rydman eru á
Gauki á Stöng og hefjast
kl. 22 í kvöld.
RAGNHILDUR Steinunn Jónsdótt-
ir, fegurðardrottning Íslands, heldur
í dag til Parísar þar sem hún tekur
þátt í keppninni Ungfrú Evrópa
2003, en keppnin verður haldin 12.
september í Euro-Disney-garðinum
við París.
Stúlkurnar sem taka þátt í keppn-
inni dvelja einnig í borginni við
kynningar- og auglýsingastörf auk
undirbúnings fyrir lokakvöldið.
Keppendur dvöldu í viku á eyjunni
Guadeloupe í Karíbahafinu í júlí, þar
sem kynningarmyndatökur fyrir
keppnina fóru fram.
Keppnin Ungfrú Evrópa var fyrst
haldin fyrir 56 árum, fyrst alþjóð-
legra fegurðarsamkeppna, segir í
fréttatilkynningu frá Fegurðarsam-
keppni Íslands.
Ragnhildur tekur þátt
í Ungfrú Evrópu
Morgunblaðið/Jim Smart
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir var
kjörin Ungfrú Ísland 2003.