Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 48

Morgunblaðið - 27.08.2003, Síða 48
Á teppinu hjá Magdalene-systur.Allt eða ekkert lýsir lífi í breskri bæjarblokk. ÁMEÐAN Bretinn veltirvöngum yfir risi oghnignun breskrar kvik-myndagerðar vill hann gjarnan gleyma því að burtséð frá því hvort takist að velgja Hollywood undir uggum með stórsmellum á borð við Fjögur brúðkaup og jarð- arför og Bond-myndirnar eilífu, hafa ávallt verið til vandaðir og ein- stakir kvikmyndagerðarmenn breskir sem eiga sér fjölda tryggra aðdáenda utan heimahaganna. Nægir þar að nefna Mike Leigh, Ken Loach og Peter Greenaway sem skýr dæmi um það en þeir eiga það sameiginlegt að hafa, ef eitthvað er, notið frekari hylli utan heima- landsins og til marks um það gera þeir orðið myndir sínar nær alfarið fyrir erlent fé. Þar að auki hafa ung- ir kvikmyndagerðarmenn á Bret- landseyjum löngum fengist við spennandi viðfangsefni, verið óhræddir við að takast á við ögrandi og umdeild viðfangsefni. Breskir bíódagar sem haldnir verða í Háskólabíói dagana 29. ágúst til 14. september munu bera framar öðru glöggt vitni um þetta tvennt. Þar verður nefnilega annars vegar að finna nokkra af reyndari kvikmyndagerðarmönnum Breta á mjög góðum degi – ef ekki þeim besta – auk þess sem yngri og óþekktari kvikmyndagerðarmenn fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Alls eru myndirnar tíu sem sýndar verða á Bresku bíódögunum, nýjar og nýlegar myndir af ólíkum toga sem allar hafa hlotið góða dóma og komið við sögu kvikmyndahátíða. Háskólabíó stendur fyrir veislunni í náinni samvinnu við breska sendi- ráðið, Íslensku kvikmynda- samsteypuna, Bergvík, Rás 2 og kvikmyndaklúbbinn Film-Undur. Sextán/Sweet Sixteen Opnunarmynd bíódaganna er þessi nýjasta mynd Ken Loach, einhvers virtasta en um leið umdeildasta leik- stjóra Breta sem á að baki myndir á borð við Kes (1969), Raining Stones (1993) og My Name is Joe (1998). Myndin vakti þegar mikla athygli er hún var frumsýnd á Cannes 2001 þar sem hún keppti í aðalkeppninni. Þar sló jafnframt í gegn aðalleikari myndarinnar Martin Compston, sem þá var aðeins 17 ára gamall og nýgræðingur í faginu. Handritshöf- undur myndarinnar Paul Laverty hlaut þar einnig verðlaun fyrir besta handritið, sem segir raunasögu ungs drengs, Liams, og baráttu hans fyrir betra lífi handa sér, syst- ur sinni og móður en hún er við það að fá lausn úr fangelsi. Til þess að svo geti orðið telur hann sig þurfa að finna fjölskyldunni lánlitlu öruggt þak yfir höfuðið. Hann finn- ur draumaheimilið, afskekkt hús, fyrir utan grimmdarlega stórborg- ina, en til þess að eignast það þarf hann fé og fer að afla þess með sölu eiturlyfja. Sem fyrr er frásagnarmáti Loach óvæginn. Hann er staðráðinn í að sýna ömurlegt líf hinna lægst settu í sönnu ljósi og vonast þannig til að vekja þá sem ekki þekkja til – eða loka vísvitandi augunum fyrir því – af værum blundi. Afraksturinn er mynd sem almennt þykir ein hans allra sterkasta, enda hefur hún hlot- ið fjölda verðlauna. Allt eða ekkert/All or Nothing Mike Leigh er gjarnan nefndur með Ken Loach þegar talið berst að hug- rakkari kvikmyndagerðarmönnum Breta. Leigh á sér fjölmarga aðdá- endur hérlendis enda hefur hann á hartnær fjörutíu ára ferli – fyrst í sjónvarpi, svo kvikmyndum – sent frá sér fjölda rómaðra mynda, eins og Life is Sweet (1990), Naked (1993) og Secrets and Lies (1996). Það er ekki síst fyrir verklagið sem Leigh er þekktur en hann er vanur að virkja leikhóp sinn mun meira en aðrir leikstjórar, fær hann til að móta persónur sínar og gefa þeim líf sem gjarnan hefur skilað óviðjafn- anlegri leikframmistöðu. Allt eða ekkert hefur ekki hvað síst verið lof- uð fyrir frammistöðu leikhópsins – sem er firnasterkur. Fremstur með- al jafningja er góðkunningi úr myndum Leighs, Timothy Spall, sem leikur óhamingjusaman blá- snauðan leigubílstjóra í Lund- únaborg samtímans. Hjónaband hans og Penny (Lesley Manville) er handónýtt og heimilislífið ömurlegt. Börnin þeirra tvö eygja litla von um gott líf, dóttirin á við offituvanda að stríða og sonurinn atvinnulaus. Ekki virðist líf nágranna í bæjarblokkinni neitt skárra en Mike Leigh tvinnar saman sögur af þessu lánlitla fólki á listilegan máta, í senn dramatískan og kómískan. Líkt og Sextán keppti Allt eða ekkert á Cannes í fyrra og hlaut þar mikið lof. Síðan hefur myndin verið sýnd á fjölda kvik- myndahátíða og hvarvetna talin til bestu mynda Leighs. Blóðugur sunnudagur/ Bloody Sunday Hinn 30. janúar 1972 skutu breskir hermenn 13 óvopnaða borgara sem voru í friðsamlegri mótmælagöngu í Derry-héraði á N-Írlandi. Atburð- urinn varð til þess að margir ungir N-Írar gengu í IRA-samtökin og ýtti undir þau blóðugu átök sem áttu eftir að ríkja milli mótmælenda og kaþólikka á N-Írlandi næsta ald- arfjórðunginn. Blóðugur sunnudag- ur lýsir aðdraganda þessa harm- leiks og reynir að lýsa því hvaða áhrif hann hafði á N-Íra, ekki aðeins kaþólikka, heldur mótmælendur einnig. Svo vel þykir hafa tekist til að myndin hefur hlotið fjölda verð- launa, þ.á m. hinn virta Gullbjörn á kvikmyndahátíðinni í Berlín þar sem hún var frumsýnd í fyrra. Með aðalhlutverk í myndinni fer N-Írinn James Nesbitt sem margir ættu að kannast við í hlutverki Adams í þáttunum Cold Feet. Leik- stjórinn er Paul Greengrass en næsta mynd hans er framhald Bourne Idendity, sem mun heita Bourne Supremacy og skarta Matt Damon í hlutverki Jason Bourne. Jarðarför með útsýni/ Plots With A View Kolsvört kómedía um banvænt við- skiptastríð milli tveggja útfar- arstofa í smábæ í Wales. Boris Plotz (Alfred Molin) rekur Plotz útfar- arstofuna og en átti sér þann draum að verða dansari og að eignast æskuástina Bettí (Brenda Blethyn) sem neyddist til að fara að vilja föð- ur síns og giftast framapotara bæj- arins sem nú er orðinn bæjarstjóri og heldur við einkaritara sinn (Naomi Watts). Þegar tengdamóðir Bettíar fellur frá, sér Plotz um út- förina og leiðir þeirra Bettíar liggja saman á ný. Til þess að ná saman aftur og losa Bettí við ótrúan eig- inmanninn, ákveða þau að sviðsetja dauða Bettíar. Magdalene-systurnar/ The Magdalene Sisters Hér er á ferð einhver umdeildasta mynd síðari ára. Fjallar hún um dökkan blett á írskri sögu, framferði systranna miskunnsömu á Magda- lene-hælunum sem rekin voru í Ír- landi á síðustu öld. Var það trú manna að þar væri verið að koma vitinu fyrir ungar, afvegaleiddar stúlkur, en raunin reyndist önnur og ömurlegri. Klaustrin voru nefnilega ekkert annað en fangelsi þar sem stúlkurnar voru í þrældómi og þeim misþyrmt stöðugt – vegna synda þeirra. Og þessar syndir gátu verið að þær væru of ljótar, eða of fal- legar, eða þá að þær væru fórn- arlamb nauðgunar og því orðnar „óhreinar“. Magdalene-systurnar segir sögu fjögurra stúlkna á 7. ára- tug síðustu aldar sem þurftu að þola vist á einu slíku hæli. Þessi frumraun leikarans Peters Mullans hlaut Gullna ljónið á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum á síð- asta ári og var jafnframt verðlaunuð á síðustu Toronto-hátíð svo einungis fáeinar vegtyllur séu nefndar sem henni hafa hlotnast. Myndin hlaut mikla aðsókn á Bretlandseyjum og nýtur nú töluverðra vinsælda og umtals vestanhafs. Gullið tækifæri/Lucky Break Gamanmynd frá Peter Cattaneo, sem gerði hina geysivinsælu Full Monty. James Nesbitt (Bloody Sunday, Cold Feet) leikur bank- aræningja sem er gómaður og send- ur í 12 ára fangelsisvist. Þegar hann lendir í hópi fanga sem fá að setja upp leikrit sér hann gullið tækifæri til að flýja. Auk Nesbitt leika í myndinni þau Olivia Williams (The Sixth Sense, Rushmore), Christ- opher Plummer og Timothy Spall. Hrein/Pure Mynd um 10 ára gamlan dreng sem reynir að hjálpa móður sinni í bar- áttu hennar við heróínfíkn. Faðir drengsins er látinn og axlar hann mikla ábyrgð er hann reynir að vernda móður sína og yngri bróður fyrir kærasta hennar, eiturlyfjasala og melludólgi. Þessi níunda mynd leikstjórans Gillies MacKinnon vann til verð- launa á Berlínarhátíðinni í ár. Í aðal- hlutverki eru Molly Parker, sem þekkja má úr Center of the World, Wonderland og Rare Birds Sturlu Gunnarssonar, Keira Knightley sem er að verða ein af stóru stjörnunum eftir að hafa leikið á móti Johnny Depp í Sjóræningjum Karíbahafs- ins og hinn ungi Harry Eden sem mjög hefur verið lofaður fyrir frammistöðu sína í myndinni. Féhirðirinn/The Croupier Ekta breskur krimmi eftir sérfræð- ing í því faginu Mike Hodges, sá er gerði hina margfrægu Get Carter með Michael Caine frá 1971. Féhirð- irinn hefur fengið fantagóða dóma James Nesbitt í Blóðugum sunnudegi. Naomi Watts í Jarðarför með útsýni. Brot af því besta í breskri kvikmyndagerð 48 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8. B.i. 16. Sýnd kl. 5.50. ísl tal.Kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. NÓI ALBINÓI with english subtitles Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. KVIKMYNDIR.IS  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL Sýnd. kl. 6. Enskur texti YFIR 35.000 GESTIR! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“ stórkostleg”!  KVIKMYNDIR.COM  Skonrokk FM 90.9 Sýnd kl. 6.40, 9 og 10.20. B.i. 12 ára. Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! HULK B A S I C Ástríkur & Kleópatra BRUCE ALMIGHTY KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.50, 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12. 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.40, 8 OG 10.20.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.