Morgunblaðið - 14.09.2003, Síða 36
DAGBÓK
36 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss kemur í dag. Nor-
wegian Dream fer í
dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20 til 23.30.
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Áætlað er að
hafa námskeið í fram-
sögn sem á að hefjast
25. september. Leið-
beinandi Bjarni Ingv-
arsson. Skráning og
uppl. á skrifstofu FEB,
s. 588-2111.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. „Opið
hús“ fimmtudaginn 18.
sept kl. 14 í Hraunseli.
Vetrardagskráin
kynnt. Kolbrún Odd-
bergsdóttir ræðir
framtíðarsýn í öldr-
unarmálum í Hafn-
arfirði. Heimatilbúin
skemmtiatriði og fjör.
Kaffi og kökur. Allir
velkomnir.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fjölbreytt
dagskrá alla virka dag
frá kl. 9–16.30, m.a.
opnar vinnustofur og
spilasalur, söngur og
dans. Allir velkomnir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Hausti fagnað með
ostaveislu miðvikudag-
inn 17. september kl.
14. Kynntir verða ís-
lenskir ostar. Gospel-
kór frá Fíladelfíu syng-
ur, undir stjórn Óskars
Einarssonar, lög af nýj-
um hljómdiski sem
verður til sölu eftir
söng. Kaffihlaðborð
með ostakökum, rjóma-
pönnukökum o.fl. Allir
velkomnir.
Norðurbrún 1. Mynd-
list hefst aftur mánu-
daginn 15. september,
og leir hefst aftur
fimmtudaginn 18. sept-
ember.
Blóðbankabílinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blodbank-
inn.is.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Jón Jóhann Jónsson,
Hlíf II, Ísafirði, s. 456
3380 Jónína Högna-
dóttir, Esso-verslunin,
Ísafirði, s. 456 3990 Jó-
hann Kárason, Engja-
vegi 8, Ísafirði, s. 456
3538 Kristín Karvels-
dóttir, Miðstræti 14,
Bolungarvík, s. 456
7358.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Norðurlandi:
Blómabúðin Bæj-
arblómið, Húnabraut 4,
Blönduósi, s. 452 4643
Blóma- og gjafabúðin,
Hólavegi 22, Sauð-
árkróki, s. 453 5253
Blómaskúrinn, Kirkju-
vegi 14b, Ólafsfirði, s.
466 2700 Hafdís Krist-
jánsdóttir, Ólafsvegi
30, Ólafsfirði, s. 466
2260 Blómabúðin Ilex,
Hafnarbraut 7, Dalvík,
s. 466 1212 Bókabúð
Jónasar, Hafnarstræti
108, Akureyri, 462 2685
Bókabúðin Möppudýr-
ið, Sunnuhlíð 12c, Ak-
ureyri, s. 462 6368
Penninn Bókval, Hafn-
arstræti 91–93, Ak-
ureyri, s. 461 5050
Blómabúðin Akur,
Kaupangi, Mýrarvegi,
Akureyri, s. 462 4800
Blómabúðin Tamara,
Garðarsbraut 62,
Húsavík, s. 464 1565
Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar, Garð-
arsbraut 9, Húsavík, s.
464 1234, Skúli Jóns-
son, Reykjaheiðarvegi
2, Húsavík, s. 464 1178
Skúli Þór Jónsson,
Boðagerði 6, Kópa-
skeri, s. 465 2144 Rann-
veigar H. Ólafsdóttur,
Hólavegi 3, 650 Laug-
um, s. 464 3181
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Austfjörðum.
Birgir Hallvarðsson,
Botnahlíð 14, Seyð-
isfirði, s. 472-1173
Blómabær, Miðvangi,
Egilsstöðum, s. 471-
2230 Nesbær ehf., Eg-
ilsbraut 5, 740 Nes-
kaupstað, s. 477-1115
Gréta Friðriksdóttir,
Brekkugötu 13, Reyð-
arfirði, s. 474-1177 Að-
alheiður Ingimund-
ardóttir, Bleiksárhlíð
57, Eskifirði, s. 476-
1223 María Ósk-
arsdóttir, Hlíðargötu
26, Fáskrúðsfirði, s.
475-1273 Sigríður
Magnúsdóttir, Heið-
mörk 11, Stöðvarfirði,
s. 475-8854.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu
hjá Þórði Tómassyni, s.
487-8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Ólafssyni,
Skeiðflöt, s. 487-1299, í
Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Laufás-
vegi 2, s. 551-1814 og
hjá Jóni Aðalsteini
Jónssyni, Geitastekk 9,
s. 557-4977.
Minningarkort
Félags eldri borgara,
Selfossi, eru afgreidd
á skrifstofunni,
Grænumörk 5, mið-
vikudaga kl. 13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482-1134, og versl-
unni Írisi í Miðgarði.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykjavík,
s. 570 5900. Fax: 570
5901. Netfang: slysa-
varnafelagid@lands-
bjorg.is
Í dag er sunnudagur 14. sept-
ember, 257. dagur ársins 2003,
Krossmessa á hausti. Orð dags-
ins: En snúið yður nú til mín, seg-
ir Drottinn, af öllu hjarta, með
föstum, gráti og kveini.
(Jl. 2, 12.)
Andri Óttarsson rifjarupp í pistli á Deigl-
unni þegar rússneski
heimspekingurinn Ayn
Rand flúði heimaland sitt
og lagði af stað í lang-
þráða ferð til Bandaríkj-
anna. Hann segir að bók
hennar „We the living“,
sem kom út árið 1936,
geymi fyrstu lýsingar
Rússa í Bandaríkjunum
af ástandinu í Sovétríkj-
unum. Í fyrstu hafi
Bandaríkjamenn hins
vegar skellt skollaeyrum
við þessum hryllings-
sögum. Áhugalitlir um
staðreyndir sem stöng-
uðust á við ímyndina um
draumaríkið.
Svo segir Andri: „Hug-urinn leitar til Ayn
Rand þegar flóttamenn
frá ýmsum alræðisríkjum
koma fram á Vest-
urlöndum og segja frá
ástandinu í heimaland-
inu. Saga hennar sýnir að
það er mikilvægt að
hlusta á flóttamenn, taka
mark á reynslu þeirra og
ekki gleypa einhverja
draumaímynd sem oftast
er samin af valdhöfunum
í viðkomandi ríki. Flótta-
menn hrópa nefnilega
sjaldnast úlfur úlfur,
vegna alræðisstjórna sem
fara illa með þegna sína
nema full ástæða sé til
þess.
Nú er nýfarinn héðanLuo Gan sem er einn
æðsti yfirmaður öryggis-
og dómsmála í Kína.
Flóttamenn frá Kína
ásamt ýmsum alþjóða-
samtökum hafa ítrekað
birt fréttir um gífurleg
mannréttindabrot kín-
versku alríkisstjórn-
arinnar á þegnum sínum.
Umræddur Luo Gan er
persónulega ábyrgur fyr-
ir ýmsum viðurstyggileg-
um glæpum, þar á meðal
kom hann að árásinni á
Torgi hins himneska frið-
ar hinn 4. júní 1989. Í árs-
skýrslu Mannréttinda-
nefndar Sameinuðu
þjóðanna frá 2001 kemur
einnig fram að hann hafði
nána vitneskju um grófa
misnotkun og pyntingar
á föngum í kínverskum
fangelsum, þar á meðal
kynferðislegri misnotkun
á kvenkyns föngum.“
Seinna segir: „Við heyr-um dásamlegar sögur
af uppganginum í Kína á
sama tíma og flóttamenn
og alþjóðasamfélagið
gerir lítið annað en að
tala um mannréttinda-
brot, pyntingar og kúgun
kínversku alræðisstjórn-
arinnar á þegnum sínum.
Við erum að skella skolla-
eyrum við þessari hátt-
semi með því að púkka
upp á mennina og stjórn-
arfyrirkomulagið sem er
ábyrgt fyrir þessu
ástandi. Þetta ástand
verður einfaldlega alltaf
við lýði á meðan alræð-
isstjórn kommúnista
verður við völd í land-
inu,“ segir Andri og spyr
að lokum: „Er ekki kom-
inn tími til að taka höf-
uðið upp úr sandinum og
fara að hlusta á kín-
verska flóttamenn í stað
kínverskra ráðamanna.“
STAKSTEINAR
Hlustum á sögur
flóttamanna í stað
stjórnvalda
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI lenti í því aðpípulagnir í húsinu hjá
honum gáfu sig, sem leiddi
til þess að hann þurfti að fá
nýja eldhúsinnréttingu sem
hann hafði reyndar alls ekki
hugsað sér að gera í nán-
ustu framtíð. Eftir að hafa
valið sér innréttingu hjá
þekktu fyrirtæki í Reykja-
vík var honum tilkynnt að
hann þyrfti að bíða í fjórar
vikur eftir afgreiðslu og var
sáttur við það.
x x x
ÞEGAR að afhendingu innrétting-arinnar kom var þó komið babb
í bátinn. Erlendi birgirinn sem fyrir-
tækið verslar við hafði farið í sumar-
frí og því seinkaði afhendingu um
fjórar vikur. Víkverji hafði því beðið
í átta vikur og var ekki alveg sáttur.
Þegar þær fjórar vikur voru liðnar
varð aftur töf á afhendingu um eina
viku. Þá var Víkverji nú orðinn fúll
enda búinn að vera án eldhúss síðan
um miðjan júní. Loks kom innrétt-
ingin, níu vikum eftir að hún var
pöntuð, fimm vikum eftir að hún átti
að vera tilbúin til afhendingar.
VÍKVERJA fannst sjálfsagt málað fá afslátt vegna þessarar
seinkunar en það var ekki til um-
ræðu hjá fyrirtækinu. Var erlenda
birginum kennt um og sagt að mis-
skilningur hefði orðið varðandi sum-
arfrí ytra. Víkverja fannst það nú
varla sitt mál, hafði lifað á heim-
sendum mat og tilbúnum mat í ör-
bylgjuna lengur en góðu hófi gegnir,
sem þýddi auðvitað aukin fjárútlát
þar sem slíkt fæði er dýrt. Fyrir-
tækið bauð þó Víkverja að keyra
innréttinguna ókeypis heim, sem er
til lítilla bóta þar sem trygginga-
félag Víkverja átti að sjá um þann
þátt hvort eð var.
x x x
Í KJÖLFAR þessa fór Víkverji aðvelta fyrir sér hvort hann væri
ótrúlega kröfuharður að vilja fá
bætur fyrir seinkun sem þessa.
Tíðkast ekki að fá afslátt þegar vara
sem keypt er berst ekki á réttum
tíma? Það er kannski erfitt að
reikna út hvert fjárhagslegt tjón
Víkverja hefur verið vegna seink-
unarinnar en óþægindin eru ótví-
ræð. Víkverji hefði án efa valið sér
innréttingu annars staðar ef hann
hefði grunað að svona myndi fara.
Hann er líka harðákveðinn í að
versla ekki aftur við umrætt fyr-
irtæki.
x x x
VÍKVERJI er hins vegar afaránægður með þá iðnaðarmenn
frá VÍS sem hafa komið að við-
gerðum í íbúðinni vegna tjónsins
sem hlaust af leku pípunum. Pípu-
lagningamenn jafnt sem smiðir luku
sinni vinnu á tilsettum tíma og
gerðu það vel.
Víkverji hefur notað örbylgjuofninn ótæpilega
í sumar og þráir að fá eldhúsið sitt að nýju!
Morgunblaðið/Jim Smart
Hvað kostar
að geta barn?
ÞRÓUN mannkyns er að
börn fæðast, vaxa upp og
verða að unglingum, ung-
lingar að fullorðnum og
fullorðnir að foreldrum,
þ.e. ef þeir kæra sig um.
En fyrir marga kostar það
ansi mikla peninga!
Nú þegar höfum við
hjónin farið í þrjár tækni-
sæðingar (63.000) og eina
smásjárfrjóvgun (164.000)
og höfum við því borgað
227.000 kr. fyrir utan rann-
sóknir og aðgerðir sem
þessum vandræðum fylgja,
en ekkert barn fengið í
hendurnar ennþá. Fyrir
liggur önnur tilraun sem
mun kosta okkur 93.000 kr.
(Gjaldskrána er að finna á
www.landspitali.is)
Mig langar að biðja þann
sem eitthvað veit, að svara
nokkrum spurningum.
Af hverju er tækni-
frjóvgun eins dýr og raun
ber vitni? Er hún að ein-
hverju niðurgreidd fyrir
sjúklinga?
Af hverju er dýrara fyrir
okkur að fara í glasafrjóvg-
un eftir því sem við eigum
fleiri börn? Er þannig litið
á að við eigum að sætta
okkur við færri börn en
aðrir sem ekki þurfa að-
stoð við að geta þau?
Af hverju fáum við ekki
afsláttarkort þegar við höf-
um greitt 18.000 kr. og af
hverju getum við ekki not-
að afsláttarkort til niður-
greiðslu meðferðar?
Ég vil taka það fram að
starfsfólk glasadeildarinn-
ar á hrós skilið fyrir það
frábæra starf sem það
vinnur, þangað er alltaf
gott að koma.
Með von um svör
Ófrjósemissjúklingur.
Burt með
Gunnar Örlygsson
MÉR finnst það alveg til
háborinnar skammar að
Frjálslyndi flokkurinn ætli
sér að halda áfram stuðn-
ingi við Gunnar Örlygsson
sem kjörinn var þingmað-
ur þeirra í Suðvesturkjör-
dæmi í vor.
Hvaða skilaboð er verið
að senda út í þjóðfélagið?
Er þetta siðferðilega rétt?
Gunnar situr nú inni fyr-
ir bókhaldsbrot, brot á lög-
um um nytjastofna sjávar
og stjórn fiskveiða. Þessi
brot ein og sér eru alveg
nóg til þess að þessi maður
hefur ekkert inn á þing að
gera.
En svo kemur í ljós að
Gunnar hefur meira á
samviskunni. Gunnar var
tekinn fyrir ölvunarakst-
ur, sem er mjög alvarlegt
mál, en hann lærði ekki af
reynslunni og lét taka sig
þrisvar sinnum próflaus-
an. En viti menn enn tekur
Guðjón A. Kristjánsson,
formaður Frjálslynda
flokksins, upp hanskann
fyrir Gunnar.
Ég vona að fólk í sam-
félaginu mótmæli, við eig-
um fullt af heiðarlegu fólki
sem gæti tekið að sér þing-
störf – svo burt með Gunn-
ar.
Kristín
Sigurðardóttir.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
FÓLKIÐ á þessum myndum er líklega ættað af Snæ-
fellsnesi eða Dalasýslu, e.t.v. af Ormsætt. Þeir sem
kunna að þekkja þá sem á myndunum eru vinsamlega
hafi samband við Björgu Gunnarsdóttur í síma 557-
4302 eða 866-6101.
Hver þekkir fólkið?
LÁRÉTT
1 lúta höfði, 4 hampa, 7
bleðils, 8 mannsnafn, 9 sár,
11 vitlaus, 13 durgur, 14
ráfa, 15 mælieining, 17
ófús, 20 heiður, 22 einskær,
23 meðalið, 24 horaðan, 25
ræktuð lönd.
LÓÐRÉTT
1 ómannblendinn, 2 yfir-
höfnin, 3 kvenfugl, 4 heið-
arleg, 5 keismagi, 6 pen-
ingar, 10 afkvæmi, 12
megna, 13 op, 15 horskur,
16 ber, 18 halar, 19 vænn,
20 kappnóg, 21 bylgja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 settlegur, 8 fagið, 9 duttu, 10 róa, 11 marra, 13
renna, 15 hratt, 18 fnasa, 21 ill, 22 undin, 23 andúð, 24 nið-
urgang.
Lóðrétt: 2 elgur, 3 tuðra, 4 eldar, 5 urtan, 6 æfum, 7 kuta, 12
rit, 14 ern, 15 haus, 16 Andri, 17 tinnu, 18 flagg, 19 aldan, 20
auða.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16