Morgunblaðið - 26.09.2003, Qupperneq 19
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi, Fjarðarkaupum
og Yggdrasil, Kárastíg 1.
Rauðsmára-
Phytoestrogen
Fyrir konur á
breytingarskeiðinu
ELLEN kona mín ýtti viðmér, ég hafði verið aðyrkja dálítið ofan í læstar
skúffur um árin og hún sagði að
annaðhvort yrði þessu fleygt þegar
ég væri farinn eða ég gæti gefið
ljóðin út,“ segir Sverrir Pálsson
sem nú hefur sent frá sér þriðju
ljóðabók sína, Laufvinda.
Sú fyrsta, Slægjur, kom út árið
1994 og síðan Töðugjöld 1998.
Sverrir bætir við að ágætur vin-
skapur á árum áður við Akureyr-
arskáldin, Guðmund Frímann og
Kristján frá Djúpalæk, hafi einn-
ig veitt sér innblástur, „við vor-
um miklir vinir og spjölluðum
margt“.
Sverrir gegndi erilsömu starfi
skólastjóra Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar um langt árabil og gafst
þá ekki mikið tóm til að sinna
skáldskapnum, „en ég fór svolítið
að huga að honum eftir að ég lauk
mínu eiginlega ævistarfi, þá fóru
að gefast tómstundir,“ segir hann.
Og er ekki við eina fjölina felldur
þegar listagyðjan er annars vegar.
Fór á myndlistarnámskeið hjá
Erni Inga fyrir tveimur árum og
„nú stendur baráttan um tímann
og tómstundirnar milli pennans og
pensilsins.
Stundum tekur pensillinn völdin
og ég mála af kappi í bílskúrnum,
svo sný ég mér aftur að penn-
anum,“ segir hann og bætir við að
sig vanti hvorki verkefnin né lífs-
fyllinguna.
„Það er afar mikils virði. Og ekki
síður að eiga stuðning Ellenar
konu minnar, sem hefur verið
óspör á hvatningu, hvað sem ég hef
tekið mér fyrir hendur.“ Fyrsta
ljóð bókarinnar er ort til hennar:
Þú ert mitt ljós og leiðsögn
á langri ævigöngu
skynjar augum skyggnum
skil á sönnu og röngu ...
Annars segir Sverrir að bókin
geymi ljóð af mörgu tagi, nátt-
úrulýsingar, stemningar, söguleg
kvæði „og ýmislegt sem upp í hug-
ann kemur, jafnvel heimsósóma og
kvæði þar sem ég yrki gegn styrj-
öldum,“ segir hann, en sem dæmi
bregður hann sér í hlutverk jap-
ansks hrísgrjónabónda að fallinni
atómsprengju.
Þá er að finna í bókinni ljóða-
flokk sem sprottinn er af minn-
ingum frá sumardvöl hans hjá
ömmu sinni og afa á Eyrarbakka
árið 1931, þá sjö vetra gamall og
heit golan utan af hafinu lék um
vangann,
„þar sem ég stend í sjógarðshliðinu
á nýjum strigaskóm
og stuttbuxum
skyrtan fráhneppt í hálsinn ...
Í Eyrarbakkaflokknum losar
skáldið svolítið um formið, sumt er
með rími og stuðlum eins og flest
kvæði þess, sum undir fornum
háttum „og sum eru mjög laus í
reipunum. Það býður upp á visst
frelsi sem góður og gildur brag-
arháttur heftir að vissu leyti.“
Eitt ljóðanna er þó ort vorið
1947 og heitir Slysið á Hestfjalli og
er vísað í mannskætt flugslys í
Héðinsfirði sem þá varð. „Ég fann
þetta ljóð í skrifblokk sem ekki
hafði verið opnuð í áratugi,“ segir
hann um ljóðið.
Sverrir gefur bókina út sjálfur,
svo sem hinar fyrri. Hún er ekki til
sölu í bókabúðum, en „fúslega af-
greidd héðan“, segir hann og vísar
til heimilis þeirra hjóna, að Mosa-
teigi 7 á Akureyri.
Vantar hvorki
verkefni né
lífsfyllingu
Morgunblaðið/Kristján
Sverrir: Baráttan stendur milli
pennans og pensilsins.
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 19
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
kápur
jakkar
buxur
peysur
samkvæmisklæðnaður
STEFANÍA Traustadóttir bæjar-
stjóri í Ólafsfirði segir Ólafsfirðinga
ekki tilbúna til þess að fara í samn-
ingaviðræður sem hefðu það eitt að
markmiði að sameina Akureyri, Dal-
víkurbyggð, Ólafsfjörð og Siglufjörð.
„Við höfum viljað ræða sameining-
armál almennt og hafa þar inni fleiri
kosti. Á þessum fundi vildum við
reyna að fá í gang viðræður um það
hvernig sameinað sveitarfélag
þriggja sveitarfélaga hér við utan-
verðan Eyjafjörð gæti litið út,“ segir
hún og vísar til fundar fulltrúa
þriggja síðarnefndu bæjanna nýlega.
Stefanía sagði að Dalvíkingar vildu
ekki taka þátt í slíkum viðræðum.
Þeir hafi heldur ekki viljað láta
kanna viðhorf íbúa í sveitarfélögun-
um þremur til sameiningar.
Fulltrúar sveitarfélaganna fjög-
urra ræddu sameiningarmál sl. vet-
ur en í kjölfarið lögðu Ólafsfirðingar
til að áfram yrði rætt um sameiningu
Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Dalvík-
urbyggðar en að viðræðum með
þátttöku Akureyrarbæjar yrði slitið.
„Bæjarstjórn Ólafsfjarðar vill halda
áfram að ræða við fulltrúa sveitarfé-
laga á Eyjafjarðarsvæðinu um það
hvernig sveitarfélag eða sveitarfélög
verða til á svæðinu að loknu þessu
ferli sem nú er að fara af stað. Við
viljum ekki láta ríkisvaldið eða Sam-
band íslenskra sveitarfélaga segja
okkur hvernig eigi að gera þetta.“
Stefanía sagði að ef það yrði nið-
urstaðan við breytingar á sveitar-
stjórnarlögunum, að talið yrði úr ein-
um potti eftir sameiningarkosn-
ingar, myndu atkvæði Akureyringa
ráða niðurstöðunni í slíkum kosning-
um í Eyjafirði, vegna stærðar sveit-
arfélagsins. „Það skipti þá engu máli
hver niðurstaðan yrði í hinum sveit-
arfélögunum. Með þessu væri verið
að taka sjálfsákvörðunarvald íbúa
sveitarfélaganna um eigin framtíð úr
höndum þeirra. Þau geta reyndar
kosið um það innan sinna raða að
taka ekki þátt í sameiningarkosn-
ingu. Þá gæti hins vegar löggjafinn
komið að málum og skikkað sveit-
arfélög til þátttöku. Þetta kæmi þá
líka fram í kosningum til sveita-
stjórnar í sameiginlegu sveitarfélagi.
Þessi sterka staða Akureyrar kallar
fram ákveðnar spurningar, sem
verður að fá svör við,“ sagði Stef-
anía.
Sterk staða Akur-
eyrar veldur deilum
SNJÓ hefur ekki fest jafnsnemma á Ak-
ureyri síðustu 63 ár og að þessu sinni, en jörð
var talin alhvít á fimmtudaginn í síðustu
viku, 18. september. Síðan snjómælingar hóf-
ust í höfuðstað Norðurlands fyrir um það bil
70 árum hefur jörð fyrst orðið alhvít 7. sept-
ember árið 1940, og þá varð raunar alhvítt
næstu daga á eftir einnig að sögn Trausta
Jónssonar veðurfræðings á Veðurstofu Ís-
lands.
Varla er hægt að segja að alls staðar í
bænum hafi snjó almennilega tekið upp fyrr
en snemma í þessari viku eftir hretið á
fimmtudaginn var, en skv. opinberum tölum
var það eini dagurinn þar sem jörð taldist al-
hvít.
Frá því um 1950 hefur orðið alhvítt á Ak-
ureyri að meðaltali sem næst 23. október skv.
upplýsingum veðuráhugamanns í bænum,
sem vann þær upp úr gögnum Veðurstofu Ís-
lands. Undantekningar á árunum 1950–2000
eru þær að 1954 varð alhvítt 25. september,
1969 varð alhvítt 30. september, 1975 varð al-
hvítt 27. september, 1988 varð alhvítt 26.
september og einnig 20. september 1990.
Í ár gerist þetta því um það bil fimm vikum
fyrr en í meðalári og viku fyrr en næstu und-
antekningar síðustu 50 ár. Að sögn lögregl-
unnar á Akureyri, sem sér um að fylgjast
með veðrinu og skrá, fyrir Veðurstofuna var
„snjókoma og/eða slydda“ klukkan 6 að
morgni fimmtudagsins 18. september sl.,
þegar fyrsti snjór haustsins er skráður.
Klukkan 9 að morgni er jörð sögð alþakin
jafnföllnum, þéttum eða votum snjó, þriggja
cm þykkum og klukkan 12 á hádegi er skráð
miðlungs snjóél og alhvítt í fjöll. Klukkan 3
síðdegis er aftur skráð snjókoma.
Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni var
daginn eftir skráð að jörð væri þakin þéttum
eða votum snjó að minna en hálfu leyti og
jörð telst þar af leiðandi ekki lengur alhvít.
„Eftir þetta hefur verið él og slydda og
rigning en snjó hefur ekki fest aftur,“ sagði
Gunnar Jóhannsson varðstjóri, en í fyrradag
taldist snjór vera farinn alveg úr byggð.
Til samanburðar má geta þess að fyrsti
haustdagur þar sem jörð hefur orðið alhvít í
Reykjavík er 9. september, að sögn Trausta
Jónssonar, veðurfræðings. Það er að vísu
talsvert síðan; þetta var árið 1926.
Fyrsti snjórinn: Börn og starfsfólk á leikskólanum Flúðum léku sér í snjónum á lóð skólans
þegar snjórinn féll í síðustu viku. Gerðu m.a. snjókarla og -kerlingar og voru hin ánægðustu.
Jörð varð nú alhvít á
Akureyri fimm vikum fyrr
en í meðalári frá 1950
Snjó ekki fest jafnsnemma í 63 ár
Boðið til Berlínar | Fyrstu sýn-
ingu í nýju galleríi á Akureyri, 02
gallery, er nýlokið og vakti áhuga
erlendra listfræðinga. Finnur Arnar
sýndi þar myndbandsverk. Aðstand-
endum gallerísins hefur nú verið
boðið að kynna verk Finns á al-
þjóðlegri myndlistarsýningu í Berlín
sem ber yfirskriftina „Old Habits
Die Hard“. Sýningin verður í SPAR-
WASSER HQ í Berlín.
Dansi, dansi | Sýningunni Dansi,
dansi dúkkan mín á Minjasafninu á
Akureyri lýkur á morgun, laug-
ardaginn 27. september. Þar getur
að líta dúkkur úr eigu myndlist-
arkonunnar
Guðbjargar
Ringsted, sem
hefur safnað
brúðum til
fjölda ára. Á
laugardag gefst
almenningi
tækifæri til að
bæta enn í safn
Guðbjargar eða
Minjasafnsins.
Ævintýradansleikhús | Þeir sem
leið eiga um miðbæinn á Akureyri í
dag kl. 17 ættu að staldra við og líta
inn í gluggann hjá versluninni
Centró. Hópur barna, 7–11 ára, ætl-
ar þá að vera með sýningu í gluggan-
um, en þau eru þátttakendur í æv-
intýradansleikhúsi barna sem þær
Anna Richards og Arna Valsdóttir
standa að. „Við ætlum að sýna í
gluggum í miðbænum síðasta föstu-
dag hvers mánaðar til áramóta. Við
viljum lífga upp á bæjarlífið og eins
þjálfa börn í að koma fram og hugsa
hlutina, t.d. glugga út frá listrænu
sjónarhorni,“ sagði Anna.