Morgunblaðið - 26.09.2003, Side 42
ÍÞRÓTTIR
42 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
JÓN Steinar Gunnlaugsson reifaði í blaðinu í gær hug-
mynd um sameiningu íþróttafélaga, sem oft hefur borið á
góma innan íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík. Ég fagna
þessari umræðu og hvernig hún er sett fram. Yfirleitt
þegar þessi umræða hefur farið í loftið þá ganga menn svo
langt að algerlega þurfi að sameina íþróttafélög, tvö eða
fleiri, þannig að einhver félög verði lögð niður.
Innan forystu íþróttafélaganna í Reykjavík hefur þeirri
skoðun verið haldið á lofti að sameining íþróttafélaga að
öllu leyti kynni að takmarka aðgang að íþróttum, sér-
staklega í yngri aldursflokkum og að sjálfboðaliðum kynni
að fækka. Það er markmið íþróttahreyfingarinnar að sem
flestir stundi íþróttir og að aðgengi barna og unglinga til
íþróttaiðkunar verði óheft.
Við höfum því haft sömu skoðanir og Jón Steinar að
sameina eldri flokkana, þ.e. meistaraflokkana, þannig að
félögin geti sent sameiginlegt lið, væntanlega sterkara lið,
til keppni í úrvalsdeild. Þetta hefur verið reynt í nokkrum
íþróttagreinum og hefur að mínu mati gefist ágætlega. Ég
tel reyndar að við sameiningu keppnisflokka eigi að líta til
hverfaskiptingarinnar í Reykjavík þannig að t.d. Fram,
Þróttur og Ármann, félögin fyrir norðan Miklubraut, ættu
að sameina sína flokka og félögin sunnan Miklubrautar,
þ.e. Valur og Víkingur, ættu að sameina sína keppn-
isflokka.
Einnig ætti að skoða þetta uppi í Breiðholti með sam-
einingu keppnisflokka ÍR og Leiknis. Ef forystumenn
íþróttafélaganna kæmust að samkomulagi um þetta kæmi
eitt sterkt keppnislið frá hverju hverfi í Reykjavík, líkt og
nú kemur úr Vesturbænum, Árbæjarhverfinu og er að
koma upp í Grafarvogi. Þarna eru félög sem eru að vinna í
hverfum sem hafa 15–20 þúsund íbúa. Reykjavíkurborg
yrði að koma myndarlega að þessum málum hjá félögun-
um t.d. með bættri aðstöðu.
Ef þetta gengi eftir störfuðu félögin áfram á svipuðum
grunni og hingað til en legðu þó meiri rækt við barna- og
unglingastarf, auk þess sem unglingarnir ættu meiri
möguleika á að komast áfram í betra keppnislið í framtíð-
inni.
Reynir Ragnarsson
formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur.
Sameining
íþróttafélaga
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Verkalýðs-
félagsins Hlífar á ársfund Alþýðusambands
Íslands, sem haldinn verður á Nordica Hótel
dagana 23. og 24. okbótber 2003.
Tillögum með nöfnum 7 aðalfulltrúa og 7 vara-
fulltrúa ber að skila á skrifstofu Hlífar fyrir
kl. 16:00 miðvikudaginn 1. október nk.
Tillögunum ber að fylgja meðmæli minnst
50 til 60 félagsmanna.
Kjörstjórn Hlífar.
TILKYNNINGAR
NAUÐUNGARSALA
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
bygging 295 kW heimarafstöðvar í Eyvind-
artungu, Bláskógabyggð skuli ekki háð mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/
2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til
24. október 2003.
Skipulagsstofnun.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
eru hér með auglýstar til kynningar eftirfarandi
tillögur að deiliskipulagi í Reykjavík:
Suðurlandsvegur, aðveitustöð við
Trippadal austan Rauðavatns.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi
varðandi lóð fyrir aðveitustöð við Trippadal,
norðan Suðurlandsvegar, austan Rauðavatns.
Tillagan gerir ráð fyrir 2500 m2 lóð með húsi að
grunnfleti allt að 650m2 með hámarkshæð 9m.
Húsið verður byggt utan um tvo spenna og
tilheyrandi tæknibúnað. Nánar um tillöguna
vísast til kynningargagna.
Fiskislóð 1, 3 og 5-9, deilskipulag í
Vesturhöfn Reykjavíkurhafnar.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi
varðandi þrjár lóðir við Fiskislóð á fyllingu við
Örfirsey í Vesturhöfn Reykjavíkurhafnar.
Á lóðunum nr. 1 og 3 verður heimilt að byggja
allt að tveggjahæða hús en á lóðinni nr. 5-9 má
húsið verða allt að 3 hæðir. Nýtingarhlutfall
allra lóðanna verður 0,5 og landnotkun er í
samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur. Nánar
um tillöguna vísast til kynningargagna.
Norðurstígsreitur, Norðurstígur, Vestur-
gata, Ægisgata og Tryggvagata, deili-
skipulag.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi af
svokölluðum Norðurstígsreit sem afmarkast af
Norðurstíg til austurs, Vesturgötu til suðurs,
Ægisgötu til vesturs og Tryggvagötu til
norðurs.
Í tillögunni er m.a. skilgreindur byggingarréttur,
lóðarmörk, fjöldi bílastæða o.fl. til framtíðar.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir nýbyggingu á horni
Ægisgötu og Tryggvagötu (lóðinni að Nýlendu-
götu 10), ofanábyggingu á lóðinni nr. 3 við
Norðurstíg, nýbyggingu á lóðinni nr. 5 við
Norðurstíg, nýbyggingu á lóðinni nr. 24 við
Vesturgötu, á lóð Hlíðarhúsa (austan Nýlendu-
götu7) er gert ráð fyrir flutningshúsi og
hækkun riss á Nýlendugötu 4. Þá gerir tillagan
ráð fyrir nokkrum breytingum á lóðarmörkum
á reitnum. Nánar um tillöguna vísast til
kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 26.
september 2003 til 7. nóvember 2003 og á
heimasíðu skipulags- og byggingarsviðs,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við þær skal skila skriflega til Skipulags- og
byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi
síðar en 7. nóvember 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 26. september 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Miðill sem svarar þér í dag.
Hringdu og fáðu einkalestur og
svör við vandamálum í starfi
eða einkalífi í síma 001 352 624
1720.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 1849268½ 9.0.
I.O.O.F. 1 1849268 Rk.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Bjarkarbraut 5, íb. 01-0201, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Valdimar
Þór Hrafnkelsson og Monica Elisa Cueva Martinez, gerðarbeiðendur
Dalvíkurbyggð, Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf., miðvikudaginn
1. október 2003 kl. 14:00.
Glerárholt, íb. 01-0101, Akureyri, þingl. eig. Pétur Freyr Pétursson,
gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, miðvikudaginn 1. október
2003 kl. 10:00.
Norðurgata 51, 010101, Akureyri, þingl. eig. Sigurlín Guðrún Stef-
ánsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandssími hf., miðvikudaginn 1. október
2003 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
25. september 2003.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
MILENE Domingues, eiginkona brasilíska knattspyrnusnill-
ingsins Ronaldos, er í leikmannahópi Brasilíu á heimsmeist-
aramóti kvenna sem nú stendur yfir í Bandaríkjunum. Þátt-
taka Milene í keppninni hefur vakið talsverða athygli, fyrst
og fremst vegna frægðar eiginmannsins og þjálfari liðsins,
Paulo Goncalves, viðurkennir að hún sé fyrst og fremst með
vegna athyglinnar. Fjölmiðlar hafa setið um liðið eftir að það
kom til Bandaríkjanna og það nýtur mun meiri eftirtektar en
ella. Goncalves sagði nokkru fyrir keppnina að Milene yrði
ekki valin í hópinn þar sem hún hefði ekki nægilega reynslu.
„Markaðssetningin er okkur gífurlega mikilvæg til að
kvennaknattspyrnan nái meiri fótfestu í Brasilíu, en til þessa
hefur hún engan stuðning fengið. En ég valdi Milene ekki
eingöngu vegna þessa. Ég var spurður hvort ekki væri
mögulegt að kalla hana inn í hópinn og ég samþykkti það
vegna þess að hún hefur burði til að ná lengra,“ sagði Gon-
calves.
Milene hefur aðeins leikið einn landsleik fyrir Brasilíu og
var valin í hópinn á síðustu stundu en hefur ekki komið við
sögu í tveimur fyrstu leikjum brasilíska liðsins í keppninni.
Milene, sem er 24 ára gömul, leikur með Rayo Vallecano á
Spáni en þar spilar Ronaldo með stórveldinu Real Madrid.
Reuters
Milene Domingues, eiginkona Ronaldo.
Frú Ronaldo
með á HM